Morgunblaðið - 12.06.2019, Side 19

Morgunblaðið - 12.06.2019, Side 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 2019 stundum sem við áttum með okkar vinahópi. Tene, Frakk- land, allar Námuhelgarnar og allt tjillið í 7D stendur upp úr af mörgu góðu. Skarð þitt verður aldrei fyllt en við munum halda minningu um einstakan dreng á lofti um ókomna tíð. Minning þín mun lifa í 603 og víðar, en fyrst og fremst 603 því þér var nokk sama um flest annað. Arnar Geir Halldórsson. Minn allra besti frændi fall- inn frá og langt fyrir aldur fram. Vil byrja á því að þakka þér fyrir allar samverustund- irnar sem við áttum saman. Ógleymanlegar ferðir okkar er- lendis standa upp úr og sú síð- asta í haust þegar þú heimsóttir mig til Tallinn. Lífsviðhorf þitt síðustu ár þrátt fyrir veikindin hefur verið ótrúlegt. Þú barðist í gegnum hvert áfallið með bros á vör og hélst alltaf þínu striki sama hvað á bjátaði. Þú lést veikindin aldrei stoppa þig og hélst ótrauður áfram að ferðast um heiminn eins og þér einum er lagið. Ég mun sakna klukku- tíma samtalanna okkar um dag- inn og veginn, aðalumræðuefnið var yfirleitt fótboltinn sem við ræddum frá morgni til kvölds. Ég mun ævinlega vera þakk- látur fyrir síðasta spjallið okkar áður en þú kvaddir þennan heim. Takk fyrir að bíða eftir mér og leyfa mér að kveðja þig. Ég veit hversu stoltur þú varst af Hermanni bróður þín- um og framvegis munt þú fylgj- ast með honum í kóngastól að ofan meðan hann reimar á sig skóna í Þorpinu. Grunar nú að fljótlega verði flestir orðnir rauðir og hvítir þarna uppi ef ég þekki minn mann rétt. Eftir standa minningar um frábæran einstakling, sem kenndi mér svo margt í lífinu. Hvíldu í friði, minn kæri, sjáumst síðar. Elsku Ragga, Rúnar og Her- mann, hugur minn er hjá ykkur. Ágúst Þór Ágústsson. Fallinn er frá mikill eðal- drengur, Baldvin Rúnarsson, frændi okkar. Baldvin var elst- ur barnabarnabarna Rögnu og Tona á Ránargötunni, ömmu og afa okkar. Stórfjölskylda Rögnu og Tona eins við köllum okkur hef- ur í gegnum tíðana verið ein- staklega samheldin og mikill samgangur á milli fjölskyldna. Einn af hápunktum ársins er spurningakeppnin í þorrablóti stórfjölskyldunnar. Baldvin hef- ur haft yfirumsjón með keppn- inni síðustu ár og gert það með miklum myndarbrag. Okkar leggur hennar Ingu, ömmusyst- ur Baldvins, hefur lagt mikla áherslu að hún haldist í hans umsjá, enda vitað að okkar möguleikar á sigri væru mun meiri þar sem hann gat þá ekki tekið þátt fyrir Hönnu legg. En því miður setur hann ekki sam- an fleiri keppnir og það verður mikið ábyrgðarhlutverk fyrir þann sem tekur það að sér. Þegar maður er 19 ára og fær þá frétt að maður sé með krabbamein þá gæti maður látið sjúkdóminn hægja á sér og far- ið að öllu með gát. Eða bara ákveðið að lifa lífinu til fulls, halda áfram með plönin sín og líta á veikindin sem smá hlið- arverkefni. Það gerði Baldvin og rúmlega það. Háskólanám á fótboltaskólastyrk í USA, há- skólanám í Danmörku, heims- reisa, kaup á sinni fyrstu íbúð, hlaupa hálfmaraþon og safna metfé, fara á alla leiki Íslands á EM, fara á alla leiki Íslands á HM er bara svona það sem kemur fyrst upp í hugann. Baldvin hafði einstaklega gaman af fótbolta og öllu sem að honum sneri. Hann var Þórs- ari og United-maður alla leið. Þó svo að veikindin hafi sett strik í reikningin á vellinum þá var hann á fullu utan vallar og starfaði meðal annars við þjálf- un og lýsingu og úrslitaþjón- ustu fyrir alþjóðlegar getrauna- síður. Hann var líka einstaklega glúrinn í því að finna leiki út um allan heim þar sem mögu- lega væri hægt að taka inn smá aur, þannig séð atvinnumaður í fótbolta sem er draumur flestra yngri fótboltaiðkenda. Baldvin var einstaklega glað- lyndur, með mátulega svartan húmor og hafði sterkar skoð- anir á því hvernig hann ætlaði að koma sér áfram. Smá sletta af kæruleysi í bland við ofan- greint og trú á eigin getu getur komið manni langt. Í okkar huga hefði hann haft meiri tíma með okkur þá hefði Baldvin komist lengra en flestir. Í fimmtugsafmæli Ragnheið- ar mömmu sinnar fyrir nokkr- um mánuðum tók Baldvin að sér veislustjórn og gerði það með miklum sóma. Gerði góð- látlegt grín að mömmu sinni og pabba og sagan og leikrænir til- burðir um það hvernig hann ímyndaði sér þeirra fyrstu kynni fyrir tíma samskipta- og samfélagsmiðla var frábær. Þá var ekki á honum að sjá að hann myndi kveðja okkur nokkrum mánuðum seinna. Elsku Ragnheiður, Rúnar og Hermann, Hanna og Hermann eldri, skarðið sem Baldvin skil- ur eftir sig verður seint fyllt. Við ætlum koma þar fyrir ynd- islegum minningum um frábær- an dreng sem kvaddi okkur allt of snemma. Baldvin, við sjáumst seinna! Þínir frændur, Baldvin, Arinbjörn, Anton og Árni. Vinátta er eitt af því fallegasta sem þú getur eignast og eitt af því besta sem þú getur orðið. Vinur er lifandi fjársjóður og ef þú átt einn slíkan, þá átt þú eina verðmætustu gjöf lífsins. (Höfundur ókunnur) Vinur Orra, vinur Atla, vinur okkar og allra hinna. Vina- og kunningjahópurinn risastór og hafa mörg tár fallið undanfarið. Baldvin, vinurinn okkar með fallega brosið sem náði til augn- anna og dillandi hláturinn. Þú kvaddir þegar bjart er allan sólarhringinn, það kemur ekki á óvart. Við kynntumst þegar þú varst lítill snaggaralegur prakk- ari að æfa fótbolta með Þór. Þið Orri breyttust í samlokur á núll einni og Atli og vinir hans tóku ykkur undir sinn verndarvæng. Úr varð stór og samhentur hóp- ur sem brallaði ýmislegt. Þið orðnir ungir menn og við héld- um að framtíðin væri björt og ykkur allir vegir færir. En fyrir rúmum fimm árum veiktist þú og við horfðum á hvernig þú tókst á við þetta risaverkefni með ótrúlegum dugnaði, kjarki, baráttu og bjartsýni. Þetta er vont en það venst var það nei- kvæðasta sem við heyrðum þig segja um veikindin. Við sáum hvaða toll þau tóku en að gefast upp var ekki í þinni orðabók. Þú lést ekkert stoppa þig í að lifa lífinu lifandi. Skurðaðgerðir, lyfjagjafir og geislar, ekkert stoppaði þig. Þú tókst eitt skref í einu (ókei, stökkst) að næsta ævintýri. Fyrir tveimur vikum sagðir þú: „Við Orri verðum að fara að henda í eina ferð.“ Ferðalögin þín innan- og utan- lands með vinum og eða fjöl- skyldu voru ótalmörg og einnig fórstu einn (þá fór nú um okk- ur). Ekkert var ómögulegt í þínum huga og við horfðum á eftir þér nánast beint af skurð- arborðinu og út í heim í leit að nýjum ævintýrum. Lífið er núna átti vel við um þig. Nú komið er að kveðjustund, elsku Baldvin hetjan okkar. Við eigum sann- arlega margar og góðar minn- ingar um þig sem við munum rifja upp um ókomin ár. Það gerum við í þínum anda skelli- hlæjandi og látum brosið ná til augnanna. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Við munum sakna þín út yfir endimörk alheimsins. Samúðarkveðjur til fjöl- skyldu Baldvins, hann var ein- stakur. Bjarney og fjölskylda Steinahlíð. Baldvin minn, elsku litli frændi og vinur, er fallinn frá langt fyrir aldur fram. Það má eiginlega segja að við höfum kynnst allt of seint í þessu lífi. Ég man ennþá eftir mómentinu á goðamótinu 2010 þegar þú röltir upp að mér og tilkynntir mér að við værum náskyldir frændur, eftir stutt spjall fatt- aði ég það að við ættum mikla samleið og værum með ná- kvæmlega sömu áhugamál og í kjölfarið byrjuðum við að rækta okkar frábæru vináttu. Þrátt fyrir að vera þremur árum yngri en ég leið mér alltaf eins og þú værir stóri frændi minn þar sem þú varst töluvert skyn- samari og greindari en ég. Ég vil þakka þér fyrir allt sem þú kenndir mér á lífsleið- inni og öll frábæru ráðin sem þú gafst mér. Jákvæðni var þitt aðalsmerki og það voru aldrei vandamál, heldur bara lausnir. Ég mun aldrei gleyma öllum ut- anlandsferðunum okkar og sér- staklega ekki þeirri síðustu til Rússlands þegar við fórum að sjá okkar menn í íslenska lands- liðinu spila og ég man svo inni- lega þegar þú sagðir við mig eftir leikinn gegn Nígeríu: „hvað er fólk að velta sér upp úr úrslitunum hérna, það er bara rugl að við séum að spila við þessar þjóðir“ og fórst svo að hlæja. Ég er ævinlega þakklátur fyrir okkar síðustu stund saman þegar við hringdum í Ágúst bróður til Eistlands á facetime og faðmlagið okkar áður en ég kvaddi þig og lagði af stað heim til Reykjavíkur. Hvíldu í friði, Baldvin minn, sjáumst síðar. Elsku Ragnheiður, Rúnar og Hermann. Hugur minn er hjá ykkur. Hrafnkell Freyr Ágústsson. Elsku vinur, þetta eru skila- boð sem við vildum ekki þurfa að senda þér, við vitum reyndar að þú ert að lesa þetta og ert 100% skellihlæjandi yfir því að við séum í svona miklum vand- ræðum að skrifa þetta, en við tökum það á kassann og hlæjum með. Það er nefnilega það sem þú kenndir okkur, að hafa bara gaman að öllu og taka þessu blessaða lífi ekki of alvarlega því við eigum jú bara eitt líf og þú sagðir okkur að njóta þess á meðan við getum. Við munum reyna að gera það fyrir þig. Þessi skilaboð hefðu frekar átt að snúast um skipulag á næstu þvæluferð, en svona virðist lífið vera og það er eins og það er. Þú varst sá traustasti í bransanum, gæinn sem hver og einn gat treyst fyrir nákvæm- lega öllu. Með heilan haug af leyndarmálum og við erum rosalega þakklátir fyrir það því mikið var af vitleysunni sem við brölluðum saman og er líklega fyrir bestu að þú liggir á þeim. Alltaf varstu jafn harður og tókst ekki einu sinni í mál að þú værir veikur. Ætli það sé ekki út af því að þú leyfðir okkur ekki að halda það og varst fljót- ur að gefa okkur gula spjaldið ef við töluðum eitthvað um það. Þú varst alltaf sannur sjálfum þér. – Sama hvað bjátaði á, þá varstu alltaf Bassi Rú. Bassinn okkar allra. Sameiningartákn svo ótal margra. Sannur vinur og ein raunverulegasta mann- eskja sem við höfum kynnst. Þú varst sannkallaður meistari æs- ingsins og varst ávallt tilbúinn að æsa menn upp í alls konar umræður og pota í það og sjá hvernig það brást við. Hvernig veistu hvað virkilega býr innra með öðrum ef þú skoðar ekki? Þú elskaðir að fá fólk upp á tærnar því að þá virkilega sýndi fólk sitt rétta andlit. Þú varst alltaf þú sjálfur og skildir ekki hvers vegna allir voru ekki allt- af sannir sjálfum sér. Ef þú ert ekki þú sjálfur, hver ertu þá? Þú þoldir ekki leikþátt. Þú hataðir hann. Þú gerðir bara allt og lifðir lífinu nákvæmlega eins og þú vildir. Hver fer hinum megin á hnöttinn rétt kominn úr erfiðri lyfjameðferð og það einn síns liðs? Tekur bara þátt í mara- þoni og pakkar því saman, fer á alla leikina hjá landsliðinu á EM og HM, kaupir sér racer í stofuna til þess að halda sér í formi, skipuleggur allar utan- landsferðir hjá okkur strákun- um, vinnur eins og skepna og þjálfar með, flytur einn til Ástr- alíu rétt eftir aðgerð. Varst allt- af tilbúinn að vera með fjöl- skyldu og vinum sama hvað bjátaði á og hvernig líðan þín var. Það er bara einn maður og það er Baldvin Rúnarsson, kóngurinn í þorpinu. Alltaf varstu samkvæmur sjálfum sér og alltaf vinur vina þinna, hvað sem bjátaði á og sama hvað hver sagði. Þegar við hugsum út í það þá varstu í raun aldrei mannlegur og í raun ekki hægt að bera þig við neinn. Þú áttir það til að vísa í góðvin þinn Zlatan: „Lions don’t compare themselves to humans“ og það átti ansi vel við um þig. Við erum ofboðslega þakk- látir fyrir þann tíma sem við fengum með þér. Þú kenndir okkur þrautseigju og þú kennd- ir okkur lífsreglurnar. Fyrir það munum við ávallt minnast þín. Takk fyrir allt, elsku vinur. Minning þín mun lifa í hjörtum okkar allra að eilífu. Birgir Viktor Hannesson, Egill Örn Gunnarsson, Finnur Heimisson, Finnur Mar Ragnarsson, Guðmundur Oddur Eiríksson, Halldór Kristinn Harðarson, Ingólfur Árnason, Jónas Björgvin Sigurbergsson, Róbert Ingi Tómasson, Sölvi Andrason, Örnólfur Hrafn Hrafnsson. Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Okkar ástkæri JAKOB GÍSLI ÞÓRHALLSSON lést þriðjudaginn 4. júní. Útförin fer fram frá Langholtskirkju fimmtudaginn 13. júní klukkan 13. Fríða Kristbjörg Hjálmarsdóttir Ingi Þór Jakobsson Hanna Birna Jóhannesdóttir Hreinn Jakobsson Aðalheiður Ásgrímsdóttir Þórhallur Jakobsson Stefanía Bergmann Magnúsd. barnabörn og langafabörn. Frændi okkar, HELGI GUNNAR ÞORKELSSON skrifstofumaður, Barmahlíð 51, Reykjavík, lést fimmtudaginn 30. maí á hjúkrunarheimilinu Sóltúni. Útför hans fer fram frá Háteigskirkju föstudaginn 14. júní klukkan 11. Sigríður Helga Þorsteinsd., Jón Ingi Guðmundsson, Þorsteinn Kári, Guðmundur Kristján og Friðgeir Ingi Jónssynir, Þorsteinn, Guðrún Ása og Friðgerður Ósk Jóhannsbörn, Elva Dögg Gunnarsdóttir, Vagn Leví Sigurðsson og fjölskyldur Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSTA KRISTJANA ÓLAFSDÓTTIR frá Þórustöðum í Bitrufirði, lést mánudaginn 3. júní á Landspítalanum í faðmi ástvina. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 14. júní klukkan 13. Ólafur Friðmar Brynjólfsson Guðný Gunnarsdóttir Danfríður Kristín Brynjólfsd. Guðmundur Þór Ármannsson Brynjólfur Bjarki Jensson Helga Kristín Magnúsdóttir Ingibjörg Jensdóttir barnabörn og barnabarnabörn Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ADAM ÞÓR ÞORGEIRSSON, Háholti 5, Akranesi, lést 5. júní á Sjúkrahúsi Akraness. Útförin fer fram frá Akraneskirkju miðvikudaginn 12. júní klukkan 13. Ólöf Erna Adamsdóttir Hreinn Haraldsson Friðrik Adamsson Lise Dandanell Auður Adamsdóttir Gunnlaugur V. Snævarr Þorgeir Adamsson Hrönn Hilmarsdóttir barnabörn og langafabörn Ástkær vinur okkar og frændi, BÖÐVAR GÍSLASON, bóndi á Butru í Fljótshlíð, lést á dvalarheimilinu Kirkjuhvoli mánudaginn 10. júní. Aðstandendur Ástkær faðir minn, tengdafaðir og afi, GRÍMUR MARINÓ STEINDÓRSSON listamaður, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð miðvikudaginn 5. júní. Jarðarför fer fram frá Kópavogskirkju miðvikudaginn 12. júní klukkan 15. Gríma Sóley Grímsdóttir Viðar Guðmundsson Sigurlaug Guðmundsdóttir og barnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.