Morgunblaðið - 12.06.2019, Qupperneq 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 2019
✝ Elsa JóhannaÓskarsdóttir
fæddist að
Hvammi í Langa-
dal í Austur-
Húnavatnssýslu 2.
september 1936.
Hún lést á sjúkra-
húsinu á Blönduósi
18. maí 2019.
Foreldrar henn-
ar voru Óskar Þor-
leifur Jóhannesson
frá Móbergi, f. 21. júní 1897,
d. 15. júlí 1988, og Guðrún
Magnea Magnúsdóttir, f. 17.
apríl 1913, d. 27. júní 1993.
Árið 1963 giftist Elsa Gunn-
ari Sig. Sigurðssyni húsa-
smíðameistara, f. 16. janúar
1942. Börn þeirra eru:
1) Kristín, f. 22 mars 1963,
maki Lúðvík Vilhelmsson, þau
eiga þrjú börn. Dagbjart
Gunnar, Erlu Guð-
rúnu og Elsu
Kristínu. 2) Óskar,
f. 12. janúar 1965.
3) Sigurður, f. 4.
febrúar 1970, maki
Jóhanna Kjart-
ansdóttir, þau eiga
tvö börn. Ástu
Lilju og Baldvin
Frey.
Elsa ólst upp í
Fagranesi í Langa-
dal en flutti til Blönduóss 1962
og bjó þar fram til síðasta
dags. Skólaganga var í far-
skóla sveitarinnar og síðan
kvennaskóli Blönduóss. Hún
vann fyrst við þjónustu og iðn-
að en lengst af við umönnun á
Héraðshæli Austur-Húnvetn-
inga. Útför hennar fór fram
frá Blönduóskirkju 1. júní
2019.
Elsku amma, nærveran þín,
ástúð og kærleikur hafa alla tíð
veitt okkur hlýju og öryggi.
Rétt eins og innilega faðmlagið
þitt. Þótt við kveðjum þig núna
með sorg í hjarta og grátbólgin
augu, stóru ömmubörnin þín,
þá erum við líka ómælanlega
þakklát fyrir stundirnar okkar
saman og allar fallegu minning-
arnar. Þær munu verma okkur
út lífið.
Þegar við vorum lítil örk-
uðum við linnulaust inn og út af
heimilinu ykkar afa, þar sem
við vorum öllum stundum svo
velkomin. Við nutum þess að
eiga þig að, þótt við hefðum
ekki á þeim árum verið sér-
staklega meðvituð um gæfuna
sem okkur hafði verið gefin.
Út æskuna okkar barstu alla
kosti sem kalla má ömmulega.
Heitar kleinur, prjónaðar peys-
ur, gráar krullur og endalausa
þolinmæði. Þegar við uxum úr
grasi urðum við líka svo lánsöm
að fá að kynnast þér betur sem
manneskju og sem vin – lífs-
reynslunni þinni, styrk og bein-
skeytta húmornum. Þegar við
sátum langstundum að skrafi,
yfir kaffibolla eða sérrí, og þú
sagðir okkur frá löngu liðinni
tíð. Aldrei sastu heldur á skoð-
unum þínum, það var ekki þinn
bragur. Þú veittir Erlu líka öll
þau ráð og stuðning sem hún
þurfti í gegnum sjúkraliðanám-
ið sitt. Þú varst og verður allt-
af stóra fyrirmyndin hennar á
því sviði. Eftir að við bjuggum
okkur síðan eigin heimili, í öðr-
um landshlutum og öðrum
löndum, fækkaði samveru-
stundunum okkar en þær urðu
fyrir vikið bæði nánari og
hlýrri.
Síðustu árin þín nýttuð þið
afi ósköp vel. Þið fóruð saman
á húsbílnum yfir landið þvert
og endilangt og meira að segja
yfir hafið líka. Við systkinin
ræddum okkar á milli hversu
mikið það gladdi okkur að þið
skylduð eiga þessar gæða-
stundir saman.
Við óskum einskis heitar en
að þú hafir vitað hvað þú skipt-
ir okkur miklu máli. Hversu
þakklát við erum fyrir að hafa
notið samvista þinna. Hversu
mikið það hryggir okkur að
kveðja þig, elsku amma. Þú
elskaðir okkur svo mikið og við
elskum þig líka, endalaust.
Takk fyrir hlýjuna, hláturinn
og öll innilegu faðmlögin.
Dagbjartur Gunnar, Erla
Guðrún og Elsa Kristín.
Elsa Jóhanna
Óskarsdóttir
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar 4 Opin handavinnustofa kl. 9-12. Opin smíðastofa kl. 9-15.
Bridge kl. 12.30. Opið hús, t.d. vist og bridge kl. 13-15.30. Opið fyrir
innipútt og 18 holu útipúttvöll. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala
kl. 14:45-15.30. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. S. 535-2700.
Boðinn Sundleikfimi kl. 14.30.
Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10-
10:30. Boccia kl. 10:40-11:20. Spiladagur, frjáls spilamennska kl. 12:30-
15:50. Opið kaffihús kl. 14:30-15:15.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffispjall og blöðin við hring-
boðið kl. 8:50. Opin Listasmiðja kl. 9-16. Línudans kl. 10-11:15. Salat-
bar kl. 11:30-12:15. Hádegismatur kl. 11:30. Miðvikufjör kl. 11:50.
Friðjón og Kiddi koma og skemmta. Gáfumannakaffi kl. 14:30. Hug-
myndabankinn opin kl. 9-16. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari
upplýsingar í síma 411-2790.
Garðabæ Vatnsleikfimi. Sjál. kl. 8:00. Gönguhópur fer frá Jónshúsi
kl. 10:00. Bridge í Jónshúsi kl. 13:00.
Gerðuberg 3-5 Opin Handavinnustofan kl. 08:30-16:00. Útskurður
m/leiðbeinanda kl. 09-12. Línudans kl. 11:00-12:00 Leikfimi Helgu Ben
kl. 11:00-11:30. Útskurður / Pappamódel m/leiðb. kl 13:00-16:00.
Félagsvist kl. 13:00-16:00. Döff Félag heyrnalausra. Allir velkomnir.
Gjábakki kl. 9.00 Handavinna, kl. 13.00 Félagsvist.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá 8-16, blöðin og púsl
liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45 og
hádegismatur kl. 11.30. Liðleiki á stólum og slökun með Önnu kl.
13.30 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30.
Norðurbrún 1 Morgunleikfimi kl. 9:45, Lesið upp úr blöðum kl.
10:15, Upplestur kl. 11-11:30, Viðtalstími hjúkrunarfræðings kl. 10-12,
Hádegisverður kl. 11:30-12:30, Félagsvist kl. 13:30, Bónusbíllinn kl.
14:40.
Seltjarnarnes Botsía í salnum kl. 10:00, Kaffispjall í króknum kl.
10:30, Snjallsímanámskeið kl. 13:00, vatnsleikfimi sundlaug Seltjar-
narnes kl. 18:30. Minnum á skráningu á spjaldtölvunámskeiðið,
skráning í síma 857-9424 eða 866-3027.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-16. Heitt á
könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30-12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Handavinnuhópur
hittist kl. 13.00. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30-15.30. Allir vel-
komnir. Síminn í Selinu er: 568-2586.
Félagslíf
Fræðslukvöld um bænina kl.
20-21. Fyrsti hluti af átta:
„Hvers vegna að biðja?“ Allir
velkomnir, ókeypis aðgangur en
tekið við frjálsum framlögum.
Kaffi og meðlæti á eftir.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Ýmislegt
Skráðu þig í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/
Nú geta
allir fengið
iPad-áskrift
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
stjúpmóðir, tengdamóðir, amma og
langamma,
SIGRÚN RUT EYJÓLFSDÓTTIR,
Lerkidal 10, Reykjanesbæ,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
fimmtudaginn 6. júní.
Útförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju föstudaginn 14. júní
klukkan 13.
Úlfar Hermannsson
Eyjólfur Pálsson
Sigríður Stefanía Pálsdóttir Gunnar Hans Konráðsson
Eyþór Árni Úlfarsson
Helga Sigríður Úlfarsdóttir Helgi Kárason
Ólöf Marín Úlfarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Okkar ástkæri sonur, eiginmaður og faðir,
GÍSLI KRISTJÁNSSON HEIMISSON
verkfræðingur,
Hverafold 31, Reykjavík,
lést fimmtudaginn 6. júní.
Útför hans fer fram frá Grafarvogskirkju
föstudaginn 14. júní klukkan 13.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á minningarsjóð
líknardeildar og Heimahlynningar Landspítala, https://www.land
spitali.is/um-landspitala/stydjum-starfsemina/minningarkort/
María Gísladóttir
Þorgerður Ragnarsdóttir
María, Grímur og Ragnar Gíslabörn