Morgunblaðið - 12.06.2019, Blaðsíða 24
24 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 2019
Undankeppni EM karla 2020
C-RIÐILL:
Hvíta-Rússland – Norður-Írland............ 0:1
Þýskaland – Eistland ............................... 8:0
Staðan:
Norður-Írland 4 4 0 0 7:2 12
Þýskaland 3 3 0 0 13:2 9
Holland 2 1 0 1 6:3 3
Hvíta-Rússland 4 0 0 4 1:9 0
Eistland 3 0 0 3 1:12 0
E-RIÐILL:
Aserbaídsjan – Slóvakía .......................... 1:5
Ungverjaland – Wales ............................. 1:0
Staðan:
Ungverjaland 4 3 0 1 6:4 9
Slóvakía 3 2 0 1 7:2 6
Króatía 3 2 0 1 5:4 6
Wales 3 1 0 2 2:3 3
Aserbaídsjan 3 0 0 3 3:10 0
H-RIÐILL:
Ísland – Tyrkland..................................... 2:1
Albanía – Moldóva.................................... 2:0
Andorra – Frakkland............................... 0:4
Staðan:
Frakkland 4 3 0 1 12:3 9
Tyrkland 4 3 0 1 9:2 9
Ísland 4 3 0 1 5:5 9
Albanía 4 2 0 2 5:3 6
Moldóva 4 1 0 3 2:10 3
Andorra 4 0 0 4 0:10 0
I-RIÐILL:
Kasakstan – San Marínó.......................... 4:0
Belgía – Skotland ..................................... 3:0
Rússland – Kýpur..................................... 1:0
Staðan:
Belgía 4 4 0 0 11:1 12
Rússland 4 3 0 1 15:3 9
Kasakstan 4 2 0 2 7:7 6
Skotland 4 2 0 2 4:7 6
Kýpur 4 1 0 3 6:5 3
San Marínó 4 0 0 4 0:20 0
J-RIÐILL:
Liechtenstein – Finnland........................ 0:2
Helgi Kolviðsson þjálfar Liechtenstein.
Grikkland – Armenía ............................... 2:3
Ítalía – Bosnía........................................... 2:1
Staðan:
Ítalía 4 4 0 0 13:1 12
Finnland 4 3 0 1 6:2 9
Armenía 4 2 0 2 7:6 6
Grikkland 4 1 1 2 6:8 4
Bosnía 4 1 1 2 5:7 4
Liechtenstein 4 0 0 4 0:13 0
KNATTSPYRNA
spennitreyju, stjórnað leiknum og
sýnt bestu takta í háa herrans tíð.
Síðari hálfleikurinn var í járnum.
Íslenska liðið varðist vel og náði af
og til ágætum skyndisóknum þó án
þess að skapa sér nein dauðafæri.
Tyrkir náðu nokkurri pressu síð-
asta stundarfjórðung leiksins en ís-
lenska vörnin og Hannes Þór Hall-
dórsson fyrir aftan hana stóðu
vaktina vel sem og allir íslensku
leikmennirnir og þegar pólski dóm-
arinn flautaði til leiksloka í blíðunni
í Laugardalnum ætlaði allt um koll
að keyra.
Tyrkir kvörtuðu undan lítilli
gestrisni Íslendinga við komuna til
landsins eins og frægt er. Ekki ætla
ég að blanda mér í þá umræðu en
svo mikið er víst að íslensku leik-
mennirnir sýndu Tyrkjunum enga
gestrisni þegar út á völlinn var
komið frekar en áður þegar Tyrk-
irnir hafa mætt í Laugardalinn. Þar
hafa þeir aldrei farið með sigur af
hólmi. Eftir að hafa unnið sannfær-
andi sigur á móti Frökkum um síð-
ustu helgi urðu Tyrkir hreinlega
undir í baráttunni á móti frábæru
og samhentu íslensku liði.
Breytingar til góða
Erik Hamrén gerði tvær breyt-
ingar á byrjunarliðinu frá sig-
urleiknum á móti Albaníu og að
mínu mati voru þær breytingar til
góða. Emil Hallfreðsson kom inn í
liðið fyrir Rúnar Má Sigurjónsson
og Jón Daði Böðvarsson tók stöðu
Viðars Arnar Kjartanssonar. Emil
og Aron Einar Gunnarsson voru
þéttir fyrir á miðsvæðinu og skil-
uðu virkilega flottu dagsverki. Jón
Daði lék í 65 mínútur og sá vann
fyrir kaupi sínu. Selfyssingurinn
gaf allt sem hann átti og lét varn-
armenn Tyrkja svo sannarlega hafa
fyrir hlutunum. Það var hvergi
veikan hlekk að finna í íslenska lið-
inu. Liðsheildin var frábær og sam-
heldnin, krafturinn, baráttan, sig-
urviljinn og vinnusemin var til
mikillar fyrirmyndar. Þegar sá
gállinn er á er okkar liði eru því all-
ir vegir færir. Það var ekki að sjá
að menn eins og Birkir Bjarnason,
Jón Daði Böðvarsson og Emil Hall-
freðsson séu búnir að spila sáralítið
með félagsliðum sínum undanfarna
mánuði. Þeir mættu tilbúnir til að
fórna sér fyrir liðið og gefa allt sem
Gamla góða Íslan
Glæsilegur 2:1 sigur gegn Tyrkjum
Tveir gullskallar Ragnars Sigurðs-
sonar Þriggja liða slagur í haust um
sætin tvö í lokakeppni EM 2020
Hannes Þór Halldórsson gat
ekkert gert við marki Tyrkja
en sá annars um þær fáu tilraunir
þeirra sem fóru á markið. Ekkert í
leikjunum tveimur sem bendir til
þess að hann missi sæti sitt í liðinu á
næstunni.
Hjörtur Hermannsson lenti sjaldnast
í vandræðum í varnarhlutverkinu en
hefði mátt staðsetja sig betur í ein-
staka tilvikum. Tók lítinn þátt í
sóknarleiknum.
Kári Árnason hefur oft tengt
betur við samherja sína með
löngum spyrnum úr vörninni. Nokk-
uð öruggur í varnarleiknum og ógn-
andi í föstum leikatriðum.
Ragnar Sigurðsson
gerði mjög vel í báðum
skallamörkum sínum. Öryggið upp-
málað í varnarleiknum, las vel í
sendingar Tyrkjanna og greip inn í,
og angraði Yilmaz mikið.
Ari Freyr Skúlason hélt sig aftarlega
og lenti aldrei í vandræðum. Varð að
játa sig sigraðan eftir 70 mínútur
enda ekki spilað í tvo og hálfan mán-
uð fyrir landsleikina tvo.
Jóhann Berg Guðmundsson
lagði upp mark með frábærri
aukaspyrnu. Mjög ógnandi í fyrri
hálfleik og skilaði alltaf sínu í vörn.
Harkaði af sér í 80 mínútur þrátt
fyrir kálfameiðsli.
Aron Einar Gunnarsson batt
miðjuna vel saman og vernd-
aði vítateiginn allan leikinn. Frískur
framan af leik og tók sinn þátt í fjölda
sókna Íslands í fyrri hálfleik.
Gylfi Þór Sigurðsson var
stórkostlega vinnusamur,
jafnvel á eigin mælikvarða. Átti marg-
ar hættulegar spyrnur, bæði send-
ingar og skot, og stóran þátt í seinna
marki Íslands.
Emil Hallfreðsson tengdi vel við
Aron á miðjunni, yfirvegaður
með boltann og lét finna vel fyrir sér
án hans. Valdi skynsamlega hlaup
fram og hafði orku til að klára leikinn
vel.
Birkir Bjarnason sýndi að hann
ræður enn vel við tvo leiki í röð
þrátt fyrir ekkert leikform. Afar dug-
legur, óheppinn að fá ekki víti og
skallaði á Ragnar í marki tvö. Gult
spjald og leikbann vegna óþarfs brots.
Jón Daði Böðvarsson
skellihló að hugtakinu
„leikform“ með frábærum leik; gríð-
arlegum dugnaði, endalausum hlaup-
um sem skiluðu miklu vegna styrks
hans, tækni og útsjónarsemi. Vann
mörg skallaeinvígi og opnaði svæði
fyrir félaga sína.
Kolbeinn Sigþórsson kom inn á fyrir
Jón á 64. mínútu. Ekki með sömu yf-
irferð og hafði hægt um sig.
Hörður B. Magnússon kom inn á fyrir
Ara á 68. mínútu. Frekar óöruggur og
komst illa í takt við leikinn.
Arnór Ingvi Traustason kom inn á fyr-
ir Jóhann á 80. mínútu. Hljóp mikið
og reyndi að búa eitthvað til.
Frammistaða
leikmanna Íslands
Birkir Bjarnason verður ekki með í
næsta leik Íslands í undankeppni
EM í knattspyrnu en hann er gegn
Moldóvu á Laugardalsvellinum 7.
september. Birkir fékk gula spjald-
ið í leiknum við Tyrki og er þar með
kominn með tvö slík í undankeppn-
inni en það þýðir eins leiks bann.
Birkir í banni
í næsta leik
Í LAUGARDAL
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Gamla góða Ísland er mætt aftur til
leiks. Eftir brösótt gengi á síðasta
ári, hundleiðinlega og slaka
frammistöðu í Þjóðadeildinni og í
kjölfarið vondan skell á móti heims-
meisturum Frakka erum við farin
að kannast við strákana okkar og
sjá þá spila í líkingu við það sem
þeir sýndu okkur í síðustu tveimur
undankeppnum. Ísland vann sann-
gjarnan 2:1 sigur gegn Tyrkjum á
Laugardalsvellinum í gærkvöld og
eftir fjórar umferðir í riðlinum eru
Íslendingar jafnir Tyrkjum og
heimsmeisturum Frakka með níu
stig og ljóst að baráttan um tvö
efstu sætin og þar með farseðil í úr-
slitakeppni EM á næsta ári stendur
á milli þessara þriggja liða.
Miðvörðurinn Ragnar Sigurðs-
son skorar ekki á hverjum degi fyr-
ir íslenska landsliðið en hann gerði
sér lítið fyrir og skoraði bæði mörk
Íslands með skalla í fyrri hálfleik
eftir föst leikatriði og kappinn var
ekki langt frá því að fullkoma
þrennuna í seinni hálfleik þegar
kollspyrna hans fór fram hjá mark-
inu í góðu færi. Ragnar hefur þar
með skorað fimm mörk fyrir ís-
lenska landsliðið, einu marki minna
en hinn frábæri miðvörðurinn í lið-
inu, Kári Árnason. Fyrri hálfleik-
urinn að hálfu íslenska liðsins var
hreint út sagt magnaður og nánast
fullkominn en það eina sem skyggði
á glæsilega frammistöðu í fyrri
hálfleik var mark Tyrkjanna sem
leit dagsins ljós á 40. mínútu eftir
hornspyrnu. Fram að því höfðu Ís-
lendingar haft Tyrkina í algjörri