Morgunblaðið - 12.06.2019, Page 24

Morgunblaðið - 12.06.2019, Page 24
24 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 2019 Undankeppni EM karla 2020 C-RIÐILL: Hvíta-Rússland – Norður-Írland............ 0:1 Þýskaland – Eistland ............................... 8:0 Staðan: Norður-Írland 4 4 0 0 7:2 12 Þýskaland 3 3 0 0 13:2 9 Holland 2 1 0 1 6:3 3 Hvíta-Rússland 4 0 0 4 1:9 0 Eistland 3 0 0 3 1:12 0 E-RIÐILL: Aserbaídsjan – Slóvakía .......................... 1:5 Ungverjaland – Wales ............................. 1:0 Staðan: Ungverjaland 4 3 0 1 6:4 9 Slóvakía 3 2 0 1 7:2 6 Króatía 3 2 0 1 5:4 6 Wales 3 1 0 2 2:3 3 Aserbaídsjan 3 0 0 3 3:10 0 H-RIÐILL: Ísland – Tyrkland..................................... 2:1 Albanía – Moldóva.................................... 2:0 Andorra – Frakkland............................... 0:4 Staðan: Frakkland 4 3 0 1 12:3 9 Tyrkland 4 3 0 1 9:2 9 Ísland 4 3 0 1 5:5 9 Albanía 4 2 0 2 5:3 6 Moldóva 4 1 0 3 2:10 3 Andorra 4 0 0 4 0:10 0 I-RIÐILL: Kasakstan – San Marínó.......................... 4:0 Belgía – Skotland ..................................... 3:0 Rússland – Kýpur..................................... 1:0 Staðan: Belgía 4 4 0 0 11:1 12 Rússland 4 3 0 1 15:3 9 Kasakstan 4 2 0 2 7:7 6 Skotland 4 2 0 2 4:7 6 Kýpur 4 1 0 3 6:5 3 San Marínó 4 0 0 4 0:20 0 J-RIÐILL: Liechtenstein – Finnland........................ 0:2  Helgi Kolviðsson þjálfar Liechtenstein. Grikkland – Armenía ............................... 2:3 Ítalía – Bosnía........................................... 2:1 Staðan: Ítalía 4 4 0 0 13:1 12 Finnland 4 3 0 1 6:2 9 Armenía 4 2 0 2 7:6 6 Grikkland 4 1 1 2 6:8 4 Bosnía 4 1 1 2 5:7 4 Liechtenstein 4 0 0 4 0:13 0 KNATTSPYRNA spennitreyju, stjórnað leiknum og sýnt bestu takta í háa herrans tíð. Síðari hálfleikurinn var í járnum. Íslenska liðið varðist vel og náði af og til ágætum skyndisóknum þó án þess að skapa sér nein dauðafæri. Tyrkir náðu nokkurri pressu síð- asta stundarfjórðung leiksins en ís- lenska vörnin og Hannes Þór Hall- dórsson fyrir aftan hana stóðu vaktina vel sem og allir íslensku leikmennirnir og þegar pólski dóm- arinn flautaði til leiksloka í blíðunni í Laugardalnum ætlaði allt um koll að keyra. Tyrkir kvörtuðu undan lítilli gestrisni Íslendinga við komuna til landsins eins og frægt er. Ekki ætla ég að blanda mér í þá umræðu en svo mikið er víst að íslensku leik- mennirnir sýndu Tyrkjunum enga gestrisni þegar út á völlinn var komið frekar en áður þegar Tyrk- irnir hafa mætt í Laugardalinn. Þar hafa þeir aldrei farið með sigur af hólmi. Eftir að hafa unnið sannfær- andi sigur á móti Frökkum um síð- ustu helgi urðu Tyrkir hreinlega undir í baráttunni á móti frábæru og samhentu íslensku liði. Breytingar til góða Erik Hamrén gerði tvær breyt- ingar á byrjunarliðinu frá sig- urleiknum á móti Albaníu og að mínu mati voru þær breytingar til góða. Emil Hallfreðsson kom inn í liðið fyrir Rúnar Má Sigurjónsson og Jón Daði Böðvarsson tók stöðu Viðars Arnar Kjartanssonar. Emil og Aron Einar Gunnarsson voru þéttir fyrir á miðsvæðinu og skil- uðu virkilega flottu dagsverki. Jón Daði lék í 65 mínútur og sá vann fyrir kaupi sínu. Selfyssingurinn gaf allt sem hann átti og lét varn- armenn Tyrkja svo sannarlega hafa fyrir hlutunum. Það var hvergi veikan hlekk að finna í íslenska lið- inu. Liðsheildin var frábær og sam- heldnin, krafturinn, baráttan, sig- urviljinn og vinnusemin var til mikillar fyrirmyndar. Þegar sá gállinn er á er okkar liði eru því all- ir vegir færir. Það var ekki að sjá að menn eins og Birkir Bjarnason, Jón Daði Böðvarsson og Emil Hall- freðsson séu búnir að spila sáralítið með félagsliðum sínum undanfarna mánuði. Þeir mættu tilbúnir til að fórna sér fyrir liðið og gefa allt sem Gamla góða Íslan  Glæsilegur 2:1 sigur gegn Tyrkjum  Tveir gullskallar Ragnars Sigurðs- sonar  Þriggja liða slagur í haust um sætin tvö í lokakeppni EM 2020 Hannes Þór Halldórsson gat ekkert gert við marki Tyrkja en sá annars um þær fáu tilraunir þeirra sem fóru á markið. Ekkert í leikjunum tveimur sem bendir til þess að hann missi sæti sitt í liðinu á næstunni. Hjörtur Hermannsson lenti sjaldnast í vandræðum í varnarhlutverkinu en hefði mátt staðsetja sig betur í ein- staka tilvikum. Tók lítinn þátt í sóknarleiknum. Kári Árnason hefur oft tengt betur við samherja sína með löngum spyrnum úr vörninni. Nokk- uð öruggur í varnarleiknum og ógn- andi í föstum leikatriðum. Ragnar Sigurðsson gerði mjög vel í báðum skallamörkum sínum. Öryggið upp- málað í varnarleiknum, las vel í sendingar Tyrkjanna og greip inn í, og angraði Yilmaz mikið. Ari Freyr Skúlason hélt sig aftarlega og lenti aldrei í vandræðum. Varð að játa sig sigraðan eftir 70 mínútur enda ekki spilað í tvo og hálfan mán- uð fyrir landsleikina tvo. Jóhann Berg Guðmundsson lagði upp mark með frábærri aukaspyrnu. Mjög ógnandi í fyrri hálfleik og skilaði alltaf sínu í vörn. Harkaði af sér í 80 mínútur þrátt fyrir kálfameiðsli. Aron Einar Gunnarsson batt miðjuna vel saman og vernd- aði vítateiginn allan leikinn. Frískur framan af leik og tók sinn þátt í fjölda sókna Íslands í fyrri hálfleik. Gylfi Þór Sigurðsson var stórkostlega vinnusamur, jafnvel á eigin mælikvarða. Átti marg- ar hættulegar spyrnur, bæði send- ingar og skot, og stóran þátt í seinna marki Íslands. Emil Hallfreðsson tengdi vel við Aron á miðjunni, yfirvegaður með boltann og lét finna vel fyrir sér án hans. Valdi skynsamlega hlaup fram og hafði orku til að klára leikinn vel. Birkir Bjarnason sýndi að hann ræður enn vel við tvo leiki í röð þrátt fyrir ekkert leikform. Afar dug- legur, óheppinn að fá ekki víti og skallaði á Ragnar í marki tvö. Gult spjald og leikbann vegna óþarfs brots. Jón Daði Böðvarsson skellihló að hugtakinu „leikform“ með frábærum leik; gríð- arlegum dugnaði, endalausum hlaup- um sem skiluðu miklu vegna styrks hans, tækni og útsjónarsemi. Vann mörg skallaeinvígi og opnaði svæði fyrir félaga sína. Kolbeinn Sigþórsson kom inn á fyrir Jón á 64. mínútu. Ekki með sömu yf- irferð og hafði hægt um sig. Hörður B. Magnússon kom inn á fyrir Ara á 68. mínútu. Frekar óöruggur og komst illa í takt við leikinn. Arnór Ingvi Traustason kom inn á fyr- ir Jóhann á 80. mínútu. Hljóp mikið og reyndi að búa eitthvað til. Frammistaða leikmanna Íslands Birkir Bjarnason verður ekki með í næsta leik Íslands í undankeppni EM í knattspyrnu en hann er gegn Moldóvu á Laugardalsvellinum 7. september. Birkir fékk gula spjald- ið í leiknum við Tyrki og er þar með kominn með tvö slík í undankeppn- inni en það þýðir eins leiks bann. Birkir í banni í næsta leik Í LAUGARDAL Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Gamla góða Ísland er mætt aftur til leiks. Eftir brösótt gengi á síðasta ári, hundleiðinlega og slaka frammistöðu í Þjóðadeildinni og í kjölfarið vondan skell á móti heims- meisturum Frakka erum við farin að kannast við strákana okkar og sjá þá spila í líkingu við það sem þeir sýndu okkur í síðustu tveimur undankeppnum. Ísland vann sann- gjarnan 2:1 sigur gegn Tyrkjum á Laugardalsvellinum í gærkvöld og eftir fjórar umferðir í riðlinum eru Íslendingar jafnir Tyrkjum og heimsmeisturum Frakka með níu stig og ljóst að baráttan um tvö efstu sætin og þar með farseðil í úr- slitakeppni EM á næsta ári stendur á milli þessara þriggja liða. Miðvörðurinn Ragnar Sigurðs- son skorar ekki á hverjum degi fyr- ir íslenska landsliðið en hann gerði sér lítið fyrir og skoraði bæði mörk Íslands með skalla í fyrri hálfleik eftir föst leikatriði og kappinn var ekki langt frá því að fullkoma þrennuna í seinni hálfleik þegar kollspyrna hans fór fram hjá mark- inu í góðu færi. Ragnar hefur þar með skorað fimm mörk fyrir ís- lenska landsliðið, einu marki minna en hinn frábæri miðvörðurinn í lið- inu, Kári Árnason. Fyrri hálfleik- urinn að hálfu íslenska liðsins var hreint út sagt magnaður og nánast fullkominn en það eina sem skyggði á glæsilega frammistöðu í fyrri hálfleik var mark Tyrkjanna sem leit dagsins ljós á 40. mínútu eftir hornspyrnu. Fram að því höfðu Ís- lendingar haft Tyrkina í algjörri

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.