Morgunblaðið - 12.06.2019, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 12.06.2019, Blaðsíða 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 2019  Dzsenifer Marozsán, miðjumaður þýska landsliðsins í knattspyrnu og Evrópumeistara Lyon, missir af tveim- ur síðari leikjum Þjóðverja í riðla- keppni HM í Frakklandi vegna meiðsla. Hún tábrotnaði í fyrsta leik gegn Kín- verjum og spilar ekki gegn Spáni í dag eða Suður-Afríku á mánudag. Vonir standa til að hún geti leikið í útslátt- arkeppni mótsins.  Lærisveinar Guðjóns Þórðarsonar í færeyska knattspyrnuliðinu NSÍ Runa- vík, drógust í gær gegn Ballymena frá Norður-Írlandi í forkeppni Evr- ópudeildar UEFA. Leikið er um sæti í 1. umferð en þar hefja Breiðablik, Stjarnan og KR keppni.  Spánverjinn David Pisonero hefur verið ráðinn þjálfari Vardar Skopje frá Makedóníu, nýkrýndra Evrópumeist- ara karla í handknattleik. Hann kemur í staðinn fyrir landa sinn, Roberto García, sem hefur verið ráðinn þjálfari karlalandsliðs Egyptalands.  Norður-Írinn Rory McIlroy er kom- inn í þriðja sæti heimslistans í golfi eftir sigur á Opna kanadíska meist- aramótinu um síðustu helgi. Brooks Ko- epka er efstur þrett- ándu vikuna í röð og Dustin John- son er annar. Á eftir McIlroy koma Just- in Rose og Tiger Wo- ods. Þessir eru allir á leið á US Open sem hefst í Kali- forníu á morg- un. Eitt ogannað HANDBOLTI Ívar Benediktsson iben@mbl.is Íslenska landsliðið í handknattleik karla fer langt með að tryggja sér keppnisrétt í lokakeppni Evr- ópumeistaramótsins á næsta ári tak- ist því að vinna landslið Grikkja í kvöld þegar liðin leiða saman hesta sína í bænum Kozani í norðurhluta Grikklands. Reyndar fylgir sá bögg- ull skammrifi að á sama tíma verður lið Norður-Makedóníu að leggja landslið Tyrkja að velli í Eskisehir í Tyrklandi. Framundan eru tvær síð- ustu umferðir riðlakeppninnar en auk leiksins í Grikklandi tekur ís- lenska landsliðið á móti Tyrkjum í Laugardalshöll síðdegis á sunnudag- inn. Vinni Tyrkir lið Norður- Makedóníu í dag og Ísland leggi Grikkland bíður íslenska landsliðs- ins úrslitaleikur í Laugardalshöll á sunnudaginn. Fyrir lokaleikina í þriðja riðli und- ankeppninnar hafa landslið Íslands og Norður-Makedóníu fimm stig hvort. Tyrkir eru stigi á eftir og Grikkir reka lestina með tvö stig og geta vart talist hafa möguleika á blanda sér í baráttuna um sæti í lokakeppni EM sem fram fer í Aust- urríki, Svíþjóð og Noregi í janúar á næsta ári. Grikkir sóttu ekki gull í greipar ís- lenska landsliðsins í fyrri viðureign- inni sem fram fór í Laugardalshöll 24. október sl. Íslenska landsliðið vann leikinn með 14 marka mun, 35:21, eftir að hafa farið á kostum í síðari hálfleik. Munurinn að loknum fyrri hálfleik var fjögur mörk, 17:13. Grikkir virðast harðskeyttari á heimavelli. Þeir gerðu sér lítið fyrir og lögðu granna sína frá Norður- Makedóníu óvænt í Kozani í byrjun vetrar, 28:26. Þeim tókst ekki að fylgja sigrinum eftir í næsta heima- leik. Þá töpuðu Grikkir fyrir Tyrkj- um, 26:22. Voru þau úrslit ekki síður óvænt en sigurinn á landsliði Norð- ur-Makedóníu. Þar með dofnaði hressilega yfir möguleikum Grikkja á að blanda sér í baráttuna um sæti í lokakeppni EM en svo langt hefur gríska landsliðið aldrei náð. Reynslan er Íslandsmegin Greinilegt var á fyrri leik liðanna í Laugardalshöll í lok október að munurinn er talsverður á liðunum,. Ekki síst eru leikmenn íslenska landsliðsins betur þjálfaðir auk þess sem þeir eru vanari alþjóðlegum handknattleik. Íslenska liðið er reyndara og betur samæft en það gríska sem byggt er upp á leik- mönnum með félagsliðum í heima- landinu sem að AEK undanskildu hefur ekki náð teljandi árangri á Evrópumótum félagsliða. Viðbúið er hinsvegar að Grikkir reyni hvað þeir geta fram eftir leikn- um í dag fyrir framan stuðnings- menn sína en heimaleikirnir tveir fram til þessa voru vel sóttir af áhorfendum enda er nokkur áhugi fyrir handknattleik í norðurhluta Grikklands, nærri landamærunum við Norður-Makedóníu. Skarð er fyrir skildi að Ómar Ingi Magnússon getur ekki tekið þátt í leiknum í kvöld eftir að hafa farið á kostum í dönsku úrvalsdeildinni á leiktíðinni með meistaraliðinu Aal- borg Håndbold. Hann glímir enn við afleiðingar höfuðhöggs í kappleik undir lok síðasta mánaðar. Aðeins ein hefðbundin örvhent skytta er í hópnum, Teitur Örn Ein- arsson. Hann verður þar af leiðandi ekki leystur af hólmi nema í staðinn komi hægri handar skytta. Af þeim er hinsvegar nóg í hópnum. Mark- verðirnir ungu, Ágúst Elí Björg- vinsson og Viktor Gísli Hall- grímsson, munu standa vaktina eins í leiknum við Norður-Makedóníu í lok mars. Ágúst Elí kemur til leiks fullur sjálfstrausts eftir að hafa unn- ið sænska meistaratitilinn fremur óvænt á dögunum. Uppistaðan í íslenska liðinu eru leikmenn sem lék fyrir Íslands hönd á HM. Reynslan er fyrir hendi. Að sækja stig til Kozani  Íslenskur sigur í kvöld fer langt með að tryggja þátttökurétt á 11. lokamóti EM í röð  Reynslan er meiri Íslandsmegin en Grikkir bíta frá sér á heimavelli Morgunblaðið/Eggert Sækir Aron Pálmarsson sækir að grísku vörninni í leik Íslands og Grikk- lands í Laugardalshöll í október. Aron verður í eldlínunni í Kozani síðdegis. Bandaríkin unnu í gærkvöld sann- kallaðan risasigur á Taílandi, 13:0, í síðasta leik fyrstu umferðarinnar á heimsmeistaramóti kvenna í knatt- spyrnu í Reims í Frakklandi. Stað- an var 3:0 eftir 50 mínútur en eftir það hrundi leikur Taílendinga gjör- samlega. Alex Morgan skoraði fimm markanna en bandaríska liðið setti með þessu met í lokakeppni HM. Þýskaland vann áður stærsta sigurinn, 11:0 á Argentínu árið 2007. Svíar lentu í basli með Síle í sama riðli en náðu að skora tvisvar undir lokin og sigruðu 2:0. Evrópumeistarar Hollands lögðu Nýja-Sjáland að velli, 1:0, í E-riðli í Le Havre þarsem Jill Roord, leik- mðaur Arsenal, skoraði sig- urmarkið í uppbótartíma. KR- ingurinn Betsy Hassett lék fyrstu 67 mínúturnar á miðjunni hjá Nýja- Sjálandi. Holland og Kanada eru því með þrjú stig eftir fyrstu um- ferð riðilsins. vs@mbl.is AFP Sigurmark Jill Roord fagnar eftir að hafa tryggt Hollendingum sigur á Nýsjálendingum með marki á lokasekúndum í uppbótartímanum. Þrettán marka metsigur í Reims Toronto Raptors nýtti sér ekki tækifærið sem liðið fékk á heimavelli í fyrrinótt til að tryggja sér sinn fyrsta NBA-meistaratitil í körfuknattleik. Golden State vann, 106:105, og getur því jafnað metin í 3:3 á sínum heimavelli annað kvöld. Toronto fengi þó eftir sem áður annað tækifæri á heimavelli í oddaleiki. Meiðsli Kevin Durant skyggðu á annað í leiknum. Hann lék sinn fyrsta leik í nokkrar vikur með Golden State en slas- aðist á hásin. Stephen Curry skoraði 31 stig fyrir Golden State og Kawhi Leonard 26 fyrir Toronto. vs@mbl.is Meiðsli Durant skyggðu á sigur AFP Hásin Kevin Durant studdur af velli í leiknum í Toronto.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.