Morgunblaðið - 03.07.2019, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2019
ER BROTIÐ Á ÞÉR?
Slys valda heilsutjóni og þjáningum. En það er ekki síður sárt þegar starfsorkan
skerðist og áætlanir um framtíðina bregðast. Því fylgir óvissa og áhyggjur.
Ef þú hefur orðið fyrir slysi þá skaltu hafa samband við Bótarétt sem fyrst.
Það kostar ekkert að kanna málið. Við metum stöðu þína og skoðum síðan málin
ofan í kjölinn. Þú getur látið þér batna á meðan við sækjum rétt þinn.
HRINGDU Í BÓTARÉTT Í SÍMA 520 5100 OG ÞÚ FÆRÐ ÞITT.
botarettur.is
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Tveir meginkostir standa eftir
varðandi 1. áfanga Sundabrautar.
Jarðgöng frá Kleppsbakka yfir í
Gufunes og lágbrú sem þverar
hafnarsvæðið við Kleppsvík,
mögulega í framhaldi af Holta-
vegi. Verði sú leið valin verður að
gera breytingar á nýtingu Sunda-
hafnar.
Þetta er niðurstaða starfshóps
sem Hreinn Haraldsson, fyrrver-
andi vegmálastjóri, leiddi. Hóp-
urinn skilaði skýrslu í gær. Hann
telur að aðrir kostir, sem skoðaðir
hafi verið undanfarna áratugi,
komi ekki til greina. Nefnir hóp-
urinn í því sambandi botngöng og
hábrú yfir Kleppsvík.
Þeir kostir sem hópurinn telur
helst koma til greinar eru misdýr-
ir. Kostnaður við jarðgöng er tal-
inn verða 52 milljarðar. Miðað er
við 3.800 metra löng göng með
gangamunna við Laugarnes í
vestri og Gufunes í austri. Helstu
kostir jarðganga er að með þeim
er áhrifum á hafnarstarfsemi í
Sundahöfn haldið í algjöru lág-
marki.
Sæbraut lögð í stokk?
Kostnaður við lágbrú er talinn
verða 35 milljarðar. Helsti ókostur
er áhrif á skipaumferð en ljóst er
að undir lágbrú, hvort sem hún er
21-26 metra há eða lægri, munu
flutningaskip ekki sigla. Alla upp-
skipun innan hennar myndi því
þurfa að leggja niður eða færa ut-
ar. Það er mat skipafélaganna að
vöruflutningar um Sundahöfn
muni aukast stórlega á næstu ára-
tugum. „Með hliðsjón af öllu ofan-
greindu leggur starfshópurinn til
að unnið verði að frekari undir-
búningi Sundabrautar í jarð-
göngum. Leitað verði leiða til að
lækka kostnað við göngin, endur-
skoða tengingar þeirra við hafn-
arsvæðið, Sæbraut og Gufunes til
að hámarka þann fjölda sem
myndi aka göngin í stað annarra
leiða. Jafnframt verði unnið að
undirbúningi þess að leggja Sæ-
braut í stokk við Vogabyggð sem
að mati hópsins er eðlilegur und-
anfari Sundabrautar,“ segir í
skýrslu starfshópsins.
Framkvæmdir við Sundabraut
eru af þeirri stærðargráðu og gerð
að starfshópurinn telur að arðbært
gæti verið að undirbúningur henn-
ar færi fram í samvinnu við einka-
aðila sem samvinnuverkefni. Slíkt
ferli, undirbúning og þróun út-
boðsgagna á fjármögnun, hönnun,
byggingu og rekstri innviða innan
höfuðborgarsvæðisins til langs
tíma, þyrfti að undirbúa mjög vel.
Mikilvægt sé að við undirbúning-
inn verði tekið tillit til áhrifa
gjaldtöku og umferðarflæðis á aðr-
ar samgönguframkvæmdir innan
höfuðborgarsvæðisins.
Sundabraut, frá Kleppsvík og
síðan alla leið upp á Kjalarnes,
hefur verið til umræðu allt frá
árinu 1975. Vegalengd milli Kjal-
arness og miðborgarinnar myndi
styttast um 7-9 kílómetra, háð
endanlegri legu brautarinnar. Auk
þess sem vænta megi greiðari um-
ferðar en nú er um núverandi
Vesturlandsveg gegnum Mos-
fellsbæ.
Sundabraut í jarðgöng-
um talin besti kostur
Lágbrú er einnig talin koma til greina Aðrir kostir
koma ekki til greina Jarðgöng eru dýrasti kosturinn
Hugmyndir um Sundabraut
JARÐGÖNG
Laugarnes
Sundahöfn
Holtagarðar
Kort: Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið
Gufunes
LÁGBRÚ
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Ég hef nú ekki fengið neinar út-
skýringar umfram það litla sem kom
fram í þessari fundargerð. Þessi
ákvörðun kom á
óvart. Ég hefði
haldið að þetta
væri borðleggj-
andi, eitthvað
sem allir myndu
græða á,“ segir
Magnús Már
Kristinsson veit-
ingamaður.
Magnús sótti
um leyfi hjá
Reykjavíkurborg
um aðstöðu fyrir pylsuvagn við
Sundhöll Reykjavíkur. Erindi
Magnúsar var tekið fyrir hjá menn-
ingar-, íþrótta- og tómstundaráði
sem komst að þeirri niðurstöðu að
ekki væri „heppilegt“ að hafa pylsu-
vagn við Sundhöllina og að allmörg
kaffihús, veitingastaðir og skyndi-
bitastaðir væru í nágrenninu. Áður
hafði úthlutunarnefnd götu- og torg-
sölu bent á að ekki væri aðgangur að
rafmagni þar sem Magnús hafði ósk-
að eftir aðstöðu.
Magnús segir í samtali við
Morgunblaðið að rík hefð sé fyrir
veitingasölu við sundlaugar borg-
arinnar og því veki þessi ákvörðun
furðu. Nefnir hann í því sambandi
Hagavagninn við Sundlaug Vestur-
bæjar og pylsuvagninn við Laugar-
dalslaugina. Vart þarf að nefna að
pylsuvagnar voru reknir fyrir fram-
an Sundhöllina um langt árabil en
ríflega áratugur er síðan sá síðasti
lagði upp laupana. Óhætt er að full-
yrða að margir telja það órjúfan-
legan hluta sundferðarinnar að fá
sér hressingu eftir á.
„Ég var að vinna í Sundhöllinni
um tveggja mánaða skeið fyrir
skemmstu og þá voru gestir, aðal-
lega erlendir ferðamenn, sífellt að
spyrja hvar þeir gætu fengið sér bita
eftir sundferðina. Mér datt því í hug
að þetta væri sniðugt og ákvað að
gera þetta sjálfur,“ segir Magnús
sem hafði fengið Ragnar Eiríksson,
fyrrverandi yfirkokk af Dilli, með
sér í lið og hafði hann útfært nýja
pylsu sem átti að selja. „Okkur
fannst fyndið að hafa michelin-kokk
í íslenskum pylsuvagni. Þessar pyls-
ur áttu að vera öðruvísi en þær hefð-
bundnu íslensku, enda margir sem
gera þær vel.“
Morgunblaðið/Hari
Árið 2019 Magnús Már Kristinsson sótti um leyfi til að setja upp pylsuvagn
við horn viðbyggingar Sundhallarinnar. Hann fékk synjun hjá borginni.
Michelin-kokkur
útbjó uppskriftina
Magnús Már
Kristinsson
Morgunblaðið/Gísli Sigurðsson
Árið 2005 Þá rak popparinn Biggi
Nielsen pylsuvagn á staðnum.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Árið 2000 Margir muna eftir þess-
um pylsuvagni við Sundhöllina.
Endurgreiðslur Sjúkratrygginga
Íslands á ferðakostnaði sjúklinga
sem hafa leitað sjúkdómsmeðferð-
ar á höfuðborgarsvæðinu jukust
um 21,6 milljónir á árinu 2018.
Anna Kolbrún Árnadóttir, þing-
maður Miðflokksins, sendi heil-
brigðisráðherra fyrirspurn þessa
efnis. Fram kom í svari ráðherra
að 449,8 milljónir hefðu verið end-
urgreiddar árið 2018 en 428,2
milljónir árið 2017. Þá fengu 7.436
einstaklingar endurgreiddan
ferðakostnað árið 2017 en 7.591 ár-
ið 2018
Anna segir
svörin endur-
spegla að sér-
greinalækna
vanti á lands-
byggðinni.
„Þetta sýnir að
fólk þarf að
ferðast til að
sækja sér þessa
sérfræðiþjón-
ustu. Svarið undirstrikar að það er
rétt,“ segir hún.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigð-
isráðherra hefur gefið út að hluti
af samningsmarkmiðum ríkisins og
Sjúkratrygginga Íslands við sér-
greinalækna sé að þeir hafi starf-
semi á fleiri svæðum en höfuð-
borgarsvæðinu og tilteknum
þéttbýlissvæðum.
Anna segir að gangi þetta eftir
ættu upphæðirnar að lækka og
sömuleiðis fjöldi einstaklinga sem
sækja sér þjónustuna.
„Það er sjálfsagt að ná niður
þessum kostnaði og minnka óþæg-
indi sem fólk kann að verða fyrir
vegna þessa, sem og vinnutap,“
sagði Anna. veronika@mbl.is
Endurgreiðslur SÍ hækka
SÍ endurgreiddi 21,6 milljónum meira árið 2018 en 2017
Anna Kolbrún
Árnadóttir