Morgunblaðið - 03.07.2019, Page 11

Morgunblaðið - 03.07.2019, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2019 Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Verið velkomin Útsalan er hafinSmíði á nýjum dráttarbáti fyrirFaxaflóahafnir er í fullum gangihjá skipasmíðastöðinni DamenShipyards í Hollandi. Til stendur aðafhenda bátinn í febrúar 2020. Hinn nýi bátur, sem mun leysa Magna af hólmi, verður 33 metra langur og með 80 tonna togkraft. Til samanburðar er Magni með 40 tonna togkraft. Alls bárust 15 tilboð frá átta skipasmíðastöðvum í smíði bátsins. Tilboð Hollendinganna hljóðaði upp 7.594.00 evrur, eða jafnvirði tæplega 1.040 milljóna íslenskra króna á gengi í nóvember sl. Tyrkneska skipasmíðastöðin Sanmar Shipyard Istanbul átti lægsta boðið. Tyrkirnir voru afar óánægðir með að þeirra tilboði var ekki tekið. Sendu þeir kærunefnd útboðsmála erindi og kröfðust ógildingar á útboði Faxaflóahafna sf. eða álits á mögulegum bótum. Niðurstaða kærunnar liggur ekki fyrir. Kæran hefur ekki áhrif á framgang smíðinnar. Faxaflóahafnir sf. eru með fjóra dráttar- og hafnsögubáta í sinni þjónustu. Þeir eru allir smíðaðir hjá Damen Shipyards í Hollandi. sisi@mbl.is Smíði á nýjum Magna í Hollandi er á áætlun Ljósmynd/Hung Nguyen Nang Smíðin Nýi Magni er smám saman að taka á sig mynd hjá Damen Shipyards. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Á annan tug landeigenda hefur á líð- andi ári hafið þátttöku í verkefninu Bændur græða land sem Land- græðslan hefur haldið úti síðasta ald- arfjórðunginn. Atbeini stofnunar- innar felst í ráðgjöf og svo stuðningi við áburðarkaup þátttakenda sem eru rúmlega 600 talsins. Þeir eru þá umráðamenn svæða þar sem jarðvegsrof er viðvarandi vanda- mál. Aðgerðir fel- ast oft í því að stinga niður rofa- börð og leggja í þau heyrudda eða þá að borinn er tilbúinn áburður á staðgróður sem þá kemst aftur á skrið, segir Gústav Ásbjörnsson, sviðsstjóri hjá Landgræðslunni. Að jafnaði er hver bóndi í verkefni þessu með um 10 hektara árlega und- ir í landbótastarfi sínu. Samkvæmt þumalputtareglunni þarf á slíkt svæði tvö tonn af áburði sem þátttak- andi kaupir sjálfur. Þá styrkir Land- græðslan verkefnið um helming af heildarkostnaði og leggur til fræ, sé þess þörf. Staðan er víða alvarleg „Víða um land er staðan alvarleg og brýnt að stöðva jarðvegsrof. Þetta er til dæmis raunin á eldgosbeltinu sem liggur þvert í gegnum landið,“ segir Gústav. „Utan þess beltis eru þátttakendur í verkefninu flestir í Skagafirði og Húnavatnssýslum. Einnig eru margir á Vestfjörðum, Vesturlandi og Austurlandi og því má segja að þátttakendur dreifist um allt land. Bændur þessir eru að vinna á alls um 30 þúsund hekturum sem er skref í rétta átt. Við teljum hins veg- ar að aðgerða sé þörf á að minnsta kosti 800 þúsund hekturum víða um land. Þar getur þurft til dæmis að jafna rofabörð, dreifa áburði, hugs- anlega takmarka sauðfjárbeit og svo mætti áfram telja. Verkefnið Bænd- ur græða landið er tvímælalaust eitt öflugasta verkfærið við endurheimt vistkerfa á Íslandi auk þess að leggja loftslagsmálum lið með aukinni kol- efnisbindingu í gróðri og jarðvegi.“ Sjálfsáningin óviðráðanleg Sú áherslubreyting hefur nú verið gerð hjá Landgræðslunni að hætt er að sá lúpínufræi á þeim upp- græðslusvæðum sem stofnunin hefur umsjón með. Jurtin hefur í áratugi verið mikið notuð til jarðvegsbind- ingar og þykir góður undanfari ann- ars gróðurs, en hröð útbreiðsla blá- blómans sem nú myndar breiður sem eru jafnvel tugir hektara að flat- armáli og fara stækkandi réði því að sáningu var hætt frá og með þessu ári. „Fólk taldi lengi vel að lúpínan væri gallalaus kraftaverkajurt sem dygði öllu betur í uppgræðslu. Þetta getur átt við að hluta, en staðreyndin er samt sú að lúpínan er mjög vand- meðfarin í allri notkun. Sjálfsáningin getur líka verið mjög hröð og er allt að því óviðráðanleg,“ segir Gústav. Í Morgunblaðinu á sl. ári sagði Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri frá því að lúpínan hefði nú í raun og veru lokið hlutverki sínu í land- græðslustarfinu, engin stór sand- svæði væru eftir sem hentaði að nota hana á. Þá væri ógnvænlegt að sjá út- breiðslu lúpínunnar inn á svæði sem hún átti alls ekki að fara á. Lúpína var lengi vel mikið notuð við uppgræðslu á eldgosabeltinu sem liggur þvert yfir landið; syðra til dæmis á Mýrdalssandi og á Heklu- svæðinu og nyrðra til dæmis á Mý- vatnsöræfum og Hólasandi. Gróðurþekjan aftur sjálfbær „Nú teljum við rétt að stoppa og endurskoða áherslur, lúpínan getur verið ansi skæð,“ segir Gústav og getur þess að nú sé landbótastarfinu að mestu leyti sinnt af bændum og árangurinn af því sé góður. „Árangurinn er góður. Víða um landið höfum við séð mikla end- urheimt landgæða, þar sem upp- blástur er stöðvaður og gróð- urþekjan aftur orðin sjálfbær,“ segir Gústav. Bændurnir binda kolefni  Árangursríkt landgræðslustarf 600 bænda  Margir í Skagafirði og Húna- vatnssýslum  Lúpínan er vandmeðfarin og sáningu hefur nú verið hætt Morgunblaðið/Sigurður Bogi Landbótastarf Hey af rúllu sett í rofabarð í viðkvæmum gróðri á uppblásturslandi í Bláskógabyggð á Suðurlandi. Lúpína Fagurblá gróðurbreiða á Nöfunum ofan byggðar á Sauðárkróki. Gústav Ásbjörnsson Egill Skalla- grímsson verður umfjöllunarefni Guðna Ágústs- sonar, fv. ráð- herra, í fræðslu- göngu á Þingvöllum á morgun, fimmtu- dagskvöldið 4. júlí. Fróðir menn segja frá í göng- um þessum, sem eru öll fimmtudags- kvöld framan af sumri og njóta vin- sælda. Guðni hefur sagt frá í göngum undanfarin ár og sagt þar meðal annars frá hetjum úr Njálu; Skarphéðni Njálssyni og Hallgerði Höskuldsdóttir langbrók, og svo Gissuri jarli Þorvaldssyni sem grein- ir frá í Sturlungu. Nú verður hins vegar róið á önnur mið. „Ég hlakka mikið til þess að fjalla um Eglu, sem skráð var af Snorra Sturlusyni sem er tvímælalaust mesti rithöfundur sem Íslendingar hafa nokkru sinni átt. Í upphafi göngunnar ætla ég svo að dreifa silfri rétt eins og Egill hugðust forð- um – þó ekki vaki fyrir mér það sama og Agli að úr verði blóðug átök. Svo mun ég í göngulok segja hvað í raun og sann varð um silfur Egils, sem sögur herma að hafi verið grafið í Mosfellsdalnum. Það er því af mörgu áhugaverðu að taka í Eg- ilssögu,“ segir Guðni sem er vel les- inn í Íslendingasögunum og átti sæti í Þingvallanefnd um árabil. Fræðslugangan á Þingvöllum annað kvöld hefst kl. 20 og verður lagt af stað frá Hakinu og gengið að kirkjunni. Í göngunni mun Karlakór Kjalnesinga syngja nokkur lög. Auk frásagnar Guðna mun Ragn- ar Önundarson svo flytja erindi sem ber yfirskriftina Var höfundur Eglu platónisti? Ragnar hefur í hartnær 40 ár veitt athygli táknum, tölum og myndmáli í Eglu sem hann rekur til kristins höfundar með klassíska menntun samtíðar. sbs@mbl.is Dreifir silfri á Þingvöllum  Gengið með Guðna Ágústssyni Guðni Ágústsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.