Morgunblaðið - 03.07.2019, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 03.07.2019, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2019 Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi Sími 535 4300 · axis.is Vandaðar íslenskar innréttingar Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Stjórnvöld í Peking fordæmdu í gær óeirðirnar í Hong Kong í fyrradag þar sem hópur mótmælenda braut sér leið inn í þinghús borgarinnar og vann spellvirki á þingsalnum. Kröfð- ust kínversk stjórnvöld þess að yfir- völd í Hong Kong drægju þá sem hefðu staðið að hinum „alvarlegu glæpum“ til ábyrgðar. Þá fordæmdu talsmenn stjórn- valda einnig ummæli Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, sem sagði að mótmælendur væru að „leita að lýðræðinu“ en að sumar rík- isstjórnir vildu ekkert með slíkt hafa. Mun ekki stíga til hliðar Carrie Lam, héraðsstjóri Hong Kong, fordæmdi aðgerðir mótmæl- enda í gær. Sagði hún áhlaupið á þinghúsið hafa verið „öfgafulla beit- ingu ofbeldis“ og skemmdarverkin sem unnin voru á þingsalnum hefðu valdið sér miklum sárindum. Lam hafði áður gefið til kynna að hún hygðist ekki segja af sér þrátt fyrir óstöðugleika síðustu vikna. Þá hefur framgangi umdeilds frumvarps um framsalsmál, sem var kveikjan að mótmælunum, einungis verið frestað tímabundið. Þingfundum frestað til hausts Þinghús Hong Kong var lokað í gær og var unnið að því að lagfæra þau spjöll sem unnin voru á þingsaln- um. Þingmaðurinn Eddie Chu, sem styður lýðræðisumbætur, sagði AFP-fréttastofunni að sér hefði ver- ið meinaður aðgangur að skrifstofu sinni í þinghúsinu þar sem lögreglan segði allt húsið vera vettvang glæpa- rannsóknar. Þá hefur öllu þinghaldi verið frestað fram í október. Jeremy Hunt, utanríkisráðherra Bretlands, varaði Kínverja við því í gær að rjúfa skilmála samkomulags- ins sem Bretar gerðu við Kínverja um afhendingu Hong Kong og sagði að því myndu fylgja „alvarlegar af- leiðingar“. Hunt fór þó ekki nánar út í það hverjar þær afleiðingar yrðu eða í hverju þær myndu felast. Kínverjar heimta rannsókn  Carrie Lam fordæmir „öfgafulla beitingu ofbeldis“ af hálfu mótmælenda AFP Mótmæli Ungur Hong Kong-búi gengur hér framhjá miðum sem mótmæl- endur skildu eftir sig á veggjum stjórnarráðs borgarinnar í fyrradag. Þingmenn breska Brexit-flokksins á Evrópu- þinginu sneru baki sínu að ræðustólnum meðan þjóðsöngur Evrópusambandsins, Óðurinn til gleðinnar, var spilaður við setningu þingsins í gær. Nigel Farage, leiðtogi flokksins, hét því að þingmenn sínir yrðu farnir í síðasta lagi 31. október næstkomandi, þegar Bretar eiga að yfir- gefa sambandið, en í millitíðinni myndu þeir sýna af sér „gleðiríka mótspyrnu“. AFP Sneru baki við „þjóðsöng“ Evrópu Leiðtogaráð Evr- ópusambandsins náði sam- komulagi í gær um það hvaða einstaklingar ættu að fá helstu embætti sam- bandsins frá og með 1. nóvember næstkomandi eft- ir löng fundahöld. Náðu leiðtogarnir saman um að Ursula von der Leyen, varnar- málaráðherra Þýskalands, yrði út- nefnd sem eftirmaður Jean-Claudes Junckers í forsæti framkvæmda- stjórnarinnar og að Christine Lag- arde, framkvæmdastjóri Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins, yrði seðla- bankastjóri Evrópu. Lagarde sagði að útnefningin væri sér mikill heið- ur, en hún var áður fjármála- ráðherra Frakklands. Fyrri tillaga Frakka og Þjóðverja, sem lögð var fram um helgina, um að hollenski jafnaðarmaðurinn Jan Timmermans tæki við af Juncker, mætti mikilli mótstöðu meðal ann- arra leiðtoga sambandsins og varð endanlega ljóst í gær að engin sátt gæti náðst um hann. Þá var Charles Michel, forsætis- ráðherra Belgíu, útnefndur sem væntanlegur eftirmaður Donalds Tusks í forsæti leiðtogaráðsins, en Evrópuþingið mun eiga síðasta orðið í því hvort tillögur leiðtoganna ná fram að ganga. Sátt um von der Leyen og Lagarde Ursula von der Leyen  Charles Michel tekur við af Tusk Varnarmálaráðuneyti Rússlands tilkynnti í gær að fjórtán rúss- neskir sjóliðar hefðu látist í elds- voða á mánudaginn um borð í kaf- báti á vegum sjóhersins. Kafbáturinn var að sögn ráðuneyt- isins að sinna rannsóknum á land- grunni Rússlands þegar eldurinn kom upp og létust sjóliðarnir fjórt- án af reykeitrun. Kafbáturinn er nú kominn í höfn á Kólaskaga og er rannsókn þegar hafin á tildrögum slyssins. Hafði rússneska blaðið Novaya Gazeta eftir heimildar- mönnum sínum að eldurinn hefði verið um borð í kjarnorkuknúnum kafbáti af gerðinni AS-12 og að all- ir hinir látnu hefðu verið sjóliðsfor- ingjar. 14 sjóliðar látnir í eldsvoða í kafbáti RÚSSLAND Stjórnvöld í Óman höfnuðu því í gær að þau hefðu samþykkt að taka upp stjórnmálasamband við Ísrael, en Yossi Cohen, yfirmaður ísraelsku leyniþjónustunnar Mossad, gaf til kynna á mánudaginn að ríkin tvö væru að koma á fót „formlegum sam- skiptum“ og að í því fælust tækifæri til bættra samskipta við önnur araba- ríki. Þá sagði Cohen að Ísraelar væru að opna sendiskrifstofu í Óman. Í yfirlýsingu ómanska utanríkis- ráðuneytisins sagði að ríkið væri hlynnt því að liðka fyrir samskiptum milli allra viðeigandi aðila til þess að koma á friði fyrir botni Miðjarðar- hafs, sem byggðist á sjálfstæðu ríki Palestínumanna. Ríkin tvö tóku upp viðskiptasam- band á tíunda áratugnum, en Óman sleit því árið 2000 í kjölfar uppreisn- ar Palestínumanna sama ár. Benja- mín Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, fundaði svo óvænt með Qabo- os, soldáni af Óman, í október síðast- liðnum. Þvertaka fyrir samband við Ísrael ÓMAN

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.