Morgunblaðið - 03.07.2019, Síða 16

Morgunblaðið - 03.07.2019, Síða 16
16 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2019 Á þessum degi fyrir hundrað árum fæddist í Bolungarvík Ás- geir Jakobsson, sjómaður og rit- höfundur. Það er við hæfi að minnast Ásgeirs á þessum degi í Morgunblaðinu því að hann setti lengi svip sinn á blaðið og Les- bók þess með skrifum sínum um sjávarútvegsmál, málefni sjó- manna og stjórnmál. Ég minnist þess að hafa séð Ásgeir fyrst á ritstjórn blaðsins þar sem ég vann á námsárum mínum. Mér þótti maðurinn myndarlegur á velli og útlit hans vakti síðar með mér þá spurn- ingu hvort Baskar kynnu að hafa skotist inn í ættir Vestfirðinga þótt dult færi. Ásgeiri fylgdi jafnan hressilegur gustur og kímni svo sem fram kom í greina- skrifum hans, skörpum og tæpi- tungulausum, byggðum á víð- tækri þekkingu og 14 ára reynslu af sjósókn og fiskveiðum. Hann var tvímælalaust einn af þeim pennum sem gáfu Morgun- blaðinu breidd og héldu við stöðu þess sem eftirlætisdagblaðs flestra landsmanna. Bolvíkingurinn Ásgeir var snemma tápmikill og fjörugur en æskuárin voru þó mörkuð af þungri sorg og harðri lífsbaráttu. Hann var aðeins fjögurra ára að aldri þegar hann sá á eftir föður sínum, Jakobi Elíasi Bárðarsyni, formanni og útvegsbónda, í hafið. Tólf ára að aldri missti hann síð- an móður sína, Dórótheu Helgu Jónsdóttur, úr veikindum. Mun- aðarlaus pilturinn átti fárra ann- arra kosta völ en að sækja björg sína í hafið og það gerði hann ótrauður frá fimmtán ára aldri 1934. Næstu árin sótti hann sjó- inn á vélbátum en einn vetur á þessum kreppuárum fyrir stríð var hann við nám í Héraðsskól- anum á Laugarvatni. Þar hreifst hann af kommúnisma eins og títt var um unga menn á þeim árum, einkum fyrir áhrif frá bókum Halldórs Kiljan Laxness. Annan vetur gekk hann í Kennaraskóla Íslands í Reykjavík. Um það leyti sem heimsstyrj- öld hófst 1939 var Ásgeir í landi og starfaði um hríð sem verka- maður í Reykjavík. Í sjómann- inum hafði kviknað löngun til rit- starfa og skáldskapar og hann hafði, eins og Jón Óskar skáld nefndi síðar í minningum sínum, slegist í hóp róttækra ungskálda. Þeir vinirnir hann og Jón áttu það sameiginlegt að snúa síðar baki við kommúnismanum en fara annars hvor sína leið í stjórnmálum, Ásgeir til hægri. En í uppgjöri beggja við komm- únismann gætti þess sjónarmiðs að lærifeðurnir hefðu leitt þá af- vega, þeir hefðu í raun vitað eða átt að vita að fyrirheitna landið sem þeir boðuðu væri tálsýn, reist á uppspuna um allsnægta- ríkið í austri. Þótt sálufélagið við ungskáldin hafi eflaust verið uppörvandi fyr- ir Ásgeir togaði sjórinn í Vest- firðinginn og honum leiddist vinnan á mölinni. Kafbátafloti Ásgeir Jakobsson – Aldarminning Adolfs Hitlers hafði þá hafið mannskæðar árásir á íslensk skip en engu að síður munstraði Ásgeir sig á togara og sigldi allt til stríðsloka, vel þokkaður af skipsfélögum sínum. Þessum kafla í sjóferðasögu sinni, þegar gömlu ryðdallarnir íslensku færðu Bretum björg í bú með kafbátana þýsku undir sér, sprengjuflugvélar vokandi yfir sér og tundurdufl marandi í haf- skorpunni, lýsti Ásgeir í skáld- sögu sinni Grími trollaraskáldi. Þetta er fjörleg saga „um þríein- an mann: skáld, dára og haus- ara“. Eitthvað minnir það á höf- undinn. Sama dag og menn fögnuðu styrjaldarlokum í Evrópu 1945 var ,,trollaraskáldið“ á barmi ör- væntingar. Það velti því fyrir sér hvort ekki ætti að láta ölduna geyma „það skáld, sem brenndi kvæði sín, þann rithöfund, sem enga skrifaði bókina og þann togaramann, sem alltaf yrði hausari“. En hausarinn herti upp hugann, fór í Stýrimannaskólann og sýndi þar frábæran náms- árangur þótt ýmislegt glepti hann frá skólabókunum. Síðan tók við stýrimannsferill Ásgeirs sem varð styttri en hann ætlaði. Örlögin gripu í taumana, hann fótbrotnaði þegar hann var staddur norður á Akureyri, kynni tókust með honum og bók- sala á staðnum, Friðriku Frið- riksdóttur (1904-1951), og úr varð hjónaband. Saman áttu þau soninn Ásgeir, þýðanda og próf- arkalesara. Aðeins um þremur árum eftir að Ásgeir settist að á Akureyri andaðist Friðrika. Ásgeir hélt hins vegar áfram rekstri Bóka- búðar Rikku og kvæntist Berg- rósu Jóhannesdóttur verslunar- stjóra (1927-1996). Þau eignuðust fjögur börn, Elsu Kar- ólínu lífeindafræðing, Jóhannes hæstaréttarlögmann, Bergrósu menntaskólakennara og Jakob, rithöfund og bókaútgefanda. Eitt sinn spurði ég gamlan norðanstúdent og starfsfélaga í Háskóla Íslands, Svein Skorra Höskuldsson, hvernig sjóarinn hefði staðið sig við bóksölu. Skorri svaraði eitthvað á þessa leið: Bókabúð Rikku var ekki bara búð, hún var menningar- miðstöð og þar var alltaf hægt að ganga að heimsbókmenntunum vísum. Bóksalinn var svo brenn- andi í andanum að hann sat oft- ast sjálfur niðursokkinn í nýj- ustu erlendu bækurnar þegar maður rakst þarna inn. Þegar frá leið þyngdist búð- arreksturinn og 1964 flutti Ás- geir með fjölskyldu sinni til Reykjavíkur. Fjármálakröggur hans urðu nú óvænt til þess að hann gat loks gefið sig að rit- störfum fullur eldmóðs kominn á fimmtugsaldur. Hann var um skeið næturvörður í fyrirtækjum og notaði vinnutímann til að skrifa og þýða bækur. Á þrjátíu ára tímabili, 1967-1996, sendi Ás- geir frá sér rösklega tuttugu rit – ævisögur, fræðirit og skáldsög- ur, auk nokkurra þýðinga og ótal blaðagreina. Nær allar bækur hans tengdust sjómennsku og sjávarútvegi og spönnuðu í heild sögu sjósóknar og útgerðar í landinu frá upphafi fram til loka- skeiðs 20. aldar. Vönduðustu ævisögur hans eru tvímælalaust á meðal bestu ævisagna frá of- anverðri öldinni. Þar á meðal eru Einars saga Guðfinnssonar, Tryggva saga Ófeigssonar, Ein- ars saga Þorgilssonar, Bíldudals- kóngurinn – Péturs saga Thor- steinssonar, Óskars saga Hall- dórssonar – Íslandsbersa. Þetta eru ekki aðeins ævisögur í þröngri merkingu, heldur jafn- framt atvinnulífs- og aldarfars- sögur. Styrkur þessara verka felst meðal annars í afstöðu höfund- arins til söguhetjanna. Hann mat þær mikils án þess þó að gerast mærðarlegur og ógagnrýninn á allar athafnir þeirra. Ásgeir naut hér uppruna síns og lífsreynslu. Hann var sprottinn úr sama um- hverfi og söguhetjurnar sem brotist höfðu úr fátækt og basli æskuáranna með takmarkalaus- um dugnaði og útsjónarsemi. Hann virti framtak þeirra, þekkti þann feiknarkraft sem getur búið í einstaklingum og skildi hve mikilvægt það var fyr- ir samfélagið að gefa slíkum mönnum eðlilegt svigrúm til at- hafna. Í öllum skrifum Ásgeirs bjó frumkraftur. Frásögn hans var jafnan hröð og hispurslaus og málfarið kjarngott. Sumir halda að vestfirskur sagnamaður eins og Ásgeir hafi áreynslulaust get- að mælt fram sögur sínar af munni fram en svo var ekki. Á bak við ótrúleg afköst hans, lif- andi og lipran texta lá þrotlaus og reglubundin vinna. Sjálfur kynntist ég Ásgeiri eftir að ég sneri heim frá námi erlendis 1978. Ég leitaði þá fljót- lega til hans um upplýsingar um sjómennsku og veiðar eins og fleiri starfsbræður við bókaritun og kom aldrei að tómum kofun- um. Við urðum fljótt mestu mát- ar og alltaf lauk maður samræð- um við hann hressari í bragði. Ásgeir hafði nefnilega þann ágæta hæfileika að sjá skoplegar hliðar á flestum málum. Mér er sem ég heyri enn prakkaralegan hlátur hans þegar við höfðum lit- ið saman yfir sviðið. Líf Ásgeirs var enginn dans á rósum. En þrátt fyrir ýmiss kon- ar mótbyr bognaði hann aldrei, heldur hélt reisn sinni og glað- værð óskertri til hinstu stundar, 16. janúar 1996. Úr þessum heimi hvarf hann sáttur við Guð og menn og var sárt saknað af vandamönnum og vinum. Eftir stendur minning um hjartahlýj- an og skarpgreindan ástríðu- mann sem vann drjúgt dagsverk á sviði sagnfræði þótt aldrei kenndi hann sig við þá fræði- grein. Þór Whitehead, prófessor emeritus í sagnfræði. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Ásgeir Jakobsson rithöfundur við ritvélina árið 1979. Hreinn og beinn, ætli það lýsi ekki mín- um gamla vini vel, kom alltaf til dyranna eins og hann var klæddur. Ég var svo heppin að byrja að vinna í Stálvík 16 ára gamall, þar kynntist ég bæði Sigurjóni og Sigurjón Rósants Stefánsson ✝ Sigurjón RósantsStefánsson fædd- ist 30. ágúst 1946. Hann lést 20. júní 2019. Útförin fór fram 28. júní 2019. Maddý. Og þann- ig er það í mínum huga, Sigurjón og Maddý, sam- heldin hjón sem reyndust okkur Sigrúnu sannir vinir. Hjón sem voru okkur góðar fyr- irmyndir, dug- leg, sanngjörn, glaðleg og um- fram allt hrein og bein í allri framkomu. Sannarlega var Sigurjón gæfu- maður í einkalífinu, auk þess að vera vel giftur var barnalánið hjá þeim hjónum mikið. Það kom allt- af sérstakur blær í röddina þegar börnin, tengdabörnin og ekki síst barnabörnin bárust í tal. Nokkur aldursmunur var á okkur Sigurjóni en aldrei fann ég til þess, Sigurjón kom eins fram við alla. Hann hafði mikil áhrif á mig sem ungan mann, lagði áherslu á að það var allt í lagi að vera ekki sammála. Mikilvægi þess að ræða og þess vegna þvarga aðeins um málin, það var bara gaman, hlusta á hvað sagt var og meta síðan með og á móti. Allir ættu rétt á að velja sér sína leið í lífinu, en enginn ætti rétt á að ganga á rétt annarra. Þegar við Sigrún fluttum upp á Skaga breyttust samskiptin óneitanlega, síminn var meira notaður og þau gátu orðið nokkuð löng sum símtölin, sérlega eftir að Sigrún veiktist. Þau kvöld sem ég átti þessi símtöl við Sigurjón hjálpuðu mér mikið og verða mér alltaf verð- mæt. Maddý, börnum, tengdabörn- um og barnabörnum sendi ég samúðarkveðjur Gamli vinur, hvíl í friði. Sveinn Jóns. Minningar Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, GÍSLI JÓNSSON viðskiptafræðingur, lést á líknardeildinni í Kópavogi laugardaginn 22. júní. Útför fór fram í kyrrþey að ósk hins látna. Anna Guðrún Guðnadóttir Sigurjón Ólafsson Jón Gíslason Hulda Gísladóttir og barnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, RAGNHEIÐUR STURLUDÓTTIR, lést hinn 28. júní á Hrafnistu í Hafnarfirði. Útförin fer fram föstudaginn 5. júlí klukkan 13 frá Grafarvogskirkju. Þórunn Þorláksdóttir Þorgeir Jónsson Herborg Þorláksdóttir Guðsteinn Þorláksson Lindsey Miller-Tate Ólafur Magnússon Ragnheiður Magnúsdóttir barnabörn og langömmubörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og besti vinur, ATLI FREYR GUÐMUNDSSON, fyrrverandi skrifstofustjóri í iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu, lést laugardaginn 15. júní. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum auðsýnda samúð. Þorgerður Jónsdóttir Svava María Atladóttir Guðmundur Páll Atlason Sigríður Arna Sigurðardóttir tengdabörn og barnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, KRISTÍN HAGALÍNSDÓTTIR húsmóðir, Skólavörðustíg 26, lést á líknardeild Landspítalans mánudaginn 1. júlí. Jarðarförin auglýst síðar. Guðrún Haraldsdóttir Einar Ólafur Haraldsson Helga Hrönn Elíasdóttir Ómar Ingi Magnússon Guðrún Kristín Einarsdóttir Eydís Björk Einarsdóttir Karen María Einarsdóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SVEINN MAGNÚSSON, Markholti 8, Mosfellsbæ, lést á Landspítalanum við Hringbraut laugardaginn 22. júní. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Gunnhildur Valtýsdóttir Valdís Svava Sveinsdóttir Þorgeir Þorgeirsson Svanhvít Sveinsdóttir Ásmundur Vilhelmsson barnabörn og langafabarn Ástkær eiginmaður minn, HAFSTEINN STEINSSON rennismiður frá Hrauni á Skaga, síðast til heimilis á Suðurlandsbraut 58, lést á Landspítalanum Fossvogi þriðjudaginn 25. júní. Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 5. júlí klukkan 13. Kristín Þórdís Davíðsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.