Morgunblaðið - 03.07.2019, Side 19
MINNINGAR 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2019
Stundum gerist það að óvenju
margir kostir búa í einni og sömu
manneskjunni. Þannig var það
með Millu systur sem nú kveður
þessa jarðvist.
Hún var mér systir, móðir en
fyrst og fremst góður vinur. Hún
var fyrirmynd mín og kenndi mér
margt á lífsleiðinni. Það voru tíu
ár á milli okkar og hún kom þess
vegna töluvert að uppeldinu á
mér. Þegar ég var á unglingsárum
datt Millu það í hug að gaman
væri fyrir mig að fara í vist til
Færeyja sumarlangt. Þar bjó vin-
ur hennar Sverrir Patursson frá
Kirkjubæ og hafði hann þá stofn-
að fjölskyldu. Þessi tími var frá-
bær, þroskaði mig mikið og efldi.
Ári síðar útvegaði Milla mér vinnu
í Skíðaskólanum í Kerlingarfjöll-
um. Þar vann ég um sumarið og
átti góðar minningar þaðan. Eftir
að Milla fór að búa og eignast sín
börn varði ég mörgum stundum
hjá henni.
Milla átti mjög auðvelt með að
gera sjarmerandi í kringum sig,
var framan af heimavinnandi hús-
móðir og elskaði allt heimilisstúss.
Heimilið hennar var opið öllum, til
hennar leituðu margir skyldir
sem óskyldir og oft voru tekin fyr-
ir málefni líðandi stundar. Hún
hafði sterkar skoðanir og var póli-
tísk.
Börnum mínum var hún
frænka, amma og vinur sem þau
gátu alltaf leitað til. Hún hafði
ríka réttlætiskennd og skemmti-
lega fordómalausa sýn á lífið. Allt
var mögulegt og ekkert til sem
ekki var hægt að leysa.
Við fráfall mannsins síns Gutt-
orms Jónssonar sýndi hún ein-
stakan styrk.
Á sama hátt tók hún þeim tíð-
indum að hún væri greind með
krabbamein með ótrúlegu æðru-
leysi. Sterk og tilbúin að takast á
við þau verkefni sem hennar biðu.
Hún lifði lífinu lifandi til síðasta
dags og í raun má segja að líf
Millu systur hafi verið hið full-
komna líf. Hún bjó vel að börnum
sínum og var barnabörnum sínum
sem og öðrum börnum gríðarlega
mikilvæg.
Það var gott að geta hringt í
Millu ef veikindi eða einhver
vandamál komu upp hjá okkur,
hún var mjög fróð og ráðagóð.
Milla átti marga góða vini sem
hún ræktaði af einstökum kærleik
og ástúð.
Hún var æðrulaus, raungóð,
sterk, klár og skemmtileg. Mikið
eigum við eftir að sakna hennar og
stórt skarð hefur myndast í okkar
raðir.
Hér fór ein flottasta konan í
mínu lífi, en ég er mjög þakklát
fyrir að hafa fengið að vera sam-
ferða henni í gegnum lífið.
Steinunn Árnadóttir.
Elsku besta Milla mín, frænka
og vinkona. Þín verður sárt sakn-
að.
Ég vil með fáum orðum þakka
þér fyrir allt og allt.
Við fæddumst næstum því
sama daginn, einn dagur á milli,
ólumst upp í mikilli nálægð því
mikill samgangur var á milli
heimila okkar.
Árni frændi minn og mamma
mín, Mauda, voru tvö af þeim
systkinum sem fluttu til Akranes
frá Ísafirði. Við gengum í sama
skóla, fermdumst saman, fórum á
sama tíma út í lífið, eignuðumst
börnin á svipuðum tíma og giftum
okkur á sama ári. Alltaf samgang-
ur alla tíð.
Nú ertu farin alltof hratt og
alltof snemma.
Milla var vinmörg og alltaf
tilbúin fyrir alla og sérstaklega
stóra systkinahópinn sinn og fjöl-
skylduna. Það var alltaf gott að
koma til Millu, hún hafði alltaf
pláss og tíma fyrir alla.
Við Helgi og fjölskyldur okkar
sendum Hellu, Lalla og fjölskyld-
um þeirra innilegar samúðar-
kveðjur svo og systkinahópnum
úr Suðurgötunni.
Guð og englarnir geymi þig,
elsku Milla mín.
Við leiði vinar
Ég vakna upp við
vængjaþyt fuglanna
þar sem ég stend
og stari á leiðið þitt.
Blómin rauð blá
bleik og hvít
deyja smátt og smátt
sem þú
Fætur mínir eru fastir
við foldina
þeir geta ekki gengið
gegnum daginn
(Höf. ók.)
Þín frænka,
Sigríður Gróa Kristjáns-
dóttir (Sigga Gróa).
Elskuleg frænka og vinkona
Emilía Petrea Árnadóttir er látin
eftir stutt en erfið veikindi og
kom andlátið okkur vinum hennar
mjög á óvart þar sem talið var að
hún hefði komist yfir þá erfið-
leika, eins og svo marga aðra sem
hún hafði tekist á við í gegnum
tíðina.
Milla Peta var samstarfskona
mín í 24 ár á Dvalarheimilinu
Höfða og þar kynntist ég vel öll-
um þeim mannkostum sem hún
var búin. Hún átti einstaklega
auðvelt með að umgangast íbúa
heimilisins og var elskuð og dáð af
þeim. Hún fór oftar en ekki óhefð-
bundnar leiðir við að leysa hin erf-
iðustu vandamál, og þar naut sín
til hlítar heilbrigð eðlisgreind
hennar.
Hún var hispurslaus í tali og
óþvinguð og lét ekki sinn hlut ef
henni fannst á skjólstæðinga sína
hallað.
Hún reyndist mér vel og gaf
góð ráð, þegar ég þurfti svo sann-
arlega á þeim að halda; hún var
einstaklega velviljuð og ráðagóð.
Margir áttu athvarf hjá Millu
Petu, bæði skjólstæðingarnir á
Höfða, sem og aðrir sem þurftu á
styrk að halda í stormi lífsins.
Hún brást ekki vinum sínum,
bæði á gleðistundum sem og í
sorg.
„Þú gekkst þína leið,- barst höfuðið
hátt,
og hataðir margt, sem var ljótt og
smátt.
Varst heil í hverju máli.
Ef heimurinn einhverjum gaf ei grið,
ef gastu, stóðstú honum djörf við hlið,
með hjartað í björtu báli!“
(Grétar Fells)
Við Jónína og fjölskylda okkar
þökkum fyrir vináttu og tryggð
alla tíð um leið og við vottum fjöl-
skyldu hennar, ættingjum og vin-
um samúðar.
Ásmundur Ólafsson.
Milla frænka.
Ég veit hreinlega ekki hvern-
ing ég á að koma orðum að því hve
stórkostleg Milla frænka var.
Orðin eru hreinlega ekki nógu
stór til að lýsa svo stórkostlegri
manneskju. En sem betur fer
nutu margir þess að þekkja hana
og kynnast því hve dásamleg
kona hún var.
Hún var mín stoð og stytta,
fyrirmynd og vinur. Ég elskaði
Millu á hæsta stigi ástar, slík ást
er bara fyrir mömmur og svo
Millu. Hún var líka viðstödd þeg-
ar ég kom í heiminn.
Milla lifði ótrúlega innihalds-
ríku lífi. Hún var sátt við sitt, já-
kvæð, kærleiksrík, nægjusöm,
hugmyndarík, úrræðagóð og
ótrúlega víðsýn manneskja. Hún
hafði alltaf tíma og ráð fyrir þann
sem leitaði eftir því. Allir voru
velkomnir til hennar. Húmor
hafði hún, hláturinn hennar var
dásamlegur og gleðin skein úr
augum hennar.
Ég er auðmjúk að hafa fæðst
inn í Suðurgötufjölskylduna, fjöl-
skylduna sem stendur að Millu
frænku. Fjölskyldan sem nú upp-
lifir stóran missi. Milla var klett-
urinn okkar.
Ég vona að það sem Milla
kenndi mér um lífið, því geti ég
miðlað áfram eins og hún gerði.
Ég er bátur
án vinds.
Þú varst vindurinn.
Var þetta leiðin ég ætlaði?
Hver spyr til leiðar
þegar ein hefur slíkan vind!
(íslensk þýðing á norsku
ljóði eftir Olav H. Hauge)
Takk fyrir elsku Milla mín að
hafa verið minn vindur í lífinu og
blásið í mitt segl. Ég sakna þín!
Þín
Íris.
Hjartkær Milla frænka er far-
in í sumarlandið.
Eftir sitjum við hnípin og sökn-
um hennar.
Efst í huga okkar er þakklæti.
Þakklæti fyrir allt sem hún gaf
af sér til okkar af sínu örláta
hjarta.
Börnin okkar Pálma elska
hana öll. Oft gaf hún okkur góð
ráð varðandi uppeldi þeirra, fyrir
nokkrum áratugum. Ég man það
svo vel því það kom sér svo vel.
Myndir og kærleiksríkar
minningar ylja okkur núna.
Þegar Pálmi minn var veikast-
ur, síðustu árin sem hann lifði,
sótti hann styrk til Millu frænku.
Hún hafði lag á því að hressa og
gleðja þá sem voru veikir.
Pálmi dýrkaði líka hundana
hennar og heimsótti þá meðan
hann komst á fætur.
Þegar hann var orðinn rúm-
fastur kom Milla frænka daglega
til hans og öll kærleiksríku sím-
tölin veittu honum alltaf gleði og
styrk. Við viljum tileinka Millu
frænku „Óðinn um kærleikann“:
Kærleikurinn er langlyndur, hann er
góðviljaður.
Kærleikurinn öfundar ekki, kærleik-
urinn er ekki raupsamur, hreykir sér
ekki upp.
Hann hegðar sér ekki ósæmilega, leitar
ekki síns eigin, hann reiðist ekki, er ekki
langrækinn.
Hann gleðst ekki yfir óréttvísinni, en
samgleðst sannleikanum.
Hann breiðir yfir allt, trúir öllu, vonar
allt, umber allt.
Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi.
Innilegustu samúðarkveðjur til
fjölskyldunnar.
Helga, Oliver, Pálmi Sveinn,
Vala og fjölskyldur.
Milla frænka var einstaklega
hlý og gefandi manneskja. Hún
fylgdist vel með öllu sínu fólki og
átti alltaf góð ráð, hvatningu og
knús. Það var alltaf gott að koma
til Millu, fá gott kaffi og á spari-
dögum, brúna tertu. Hún hafði
lag á að leysa allan vanda, eða öllu
heldur, hún var með ráð til að
kenna manni að leysa vandann
sjálfur. Ekkert væl og ekkert ves-
en. Hún hafði húmor fyrir lífinu
og sá alltaf björtu hliðarnar á til-
verunni. Milla var einstök kona og
mikil frænka. Við kveðjum Millu
með söknuði og þakklæti í huga.
Kossar og knús til ykkar, elsku
Hella, Lalli og fjölskyldur.
Sigríður Ása (Sigga Ása)
og Steinunn Birna (Steina
Birna).
Við kveðjum í dag hana Millu
Petu – allt of snemma þótt hún
hafi náð að fylla sjö og hálfan tug
ára. Of snemma vegna þess að
Milla var ein af því fólki sem mað-
ur gekk út frá að yrði alltaf á sín-
um stað þegar maður leitaði til
hennar eins og svo margir gerðu.
Svo kvik og lífleg, gamansöm og
ræðin og aldrei spör á heilræði
um lífsins list sem hún og Gutti
kunnu svo vel. En þegar tíminn
sem okkur er útmældur hér í
mannheimi er liðinn er hann lið-
inn og ekki við neinn að sakast um
það.
Milla tilheyrði frændgarði mín-
um á Akranesi en „Akranesfólkið
okkar“, eins og mamma mín kall-
aði það, er afar frændrækinn og
samstilltur hópur og bæði
mamma og pabbi ólu mig upp við
að kynnast því fólki, þótt við
byggjum lengst af í Reykavík.
Það eru kynni sem ég hefi notið
ríkulega af og þar fór Milla
fremst meðal jafningja.
Það voru venjulega tveir fastir
viðkomustaðir þegar við, litla fjöl-
skyldan, áttum leið um Skagann
eða gerðum okkur ferð þangað og
það var annars vegar á Grund hjá
Röggu og Jóni og hins vegar á
Bjarkargrundinni hjá Millu og
Gutta. Á báðum stöðum var okkur
vel tekið og hlýjan og væntum-
þykjan umvafði okkur um leið og
við stigum yfir þröskuldinn.
Hin síðari ár, eftir því sem
grisjaðist úr eldri kynslóðinni, tók
Milla yfir sem miðpunktur
tengsla minna við Skagann og þá
stöðu rækti hún sérlega vel;
hringdi þegar leið of langt á milli
heimsókna og spurði frétta og
sagði fréttir af fólkinu okkar og
ræktaði þannig tengslin. Tvisvar
dvaldi ég langdvölum hjá þeim
Gutta í góðu yfirlæti. Þórunni
minni og dætrum okkar tók hún
af þeirri nærgætni og góðsemi
sem henni var eiginleg.
Efst í huga mér nú við ferðalok
Millu Petu, og ég veit að margir
eru sama sinnis, er þakklæti fyrir
allt það sem hún gaf af sér af full-
komnu örlæti og óeigingirni.
Hella mín, Lalli og fjölskyldan
öll, ykkar missir er mikill og við
hugsum til ykkar með góðar
minningar að veganesti.
Bjarni Lárusson.
Fleiri minningargreinar
um Emilíu PetreuÁrnadótt-
ur bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga.
hún nokkra daga í Róm og viku í
húsi í Toskana með Bjössa sínum
og öllum afkomendum þeirra.
Tengdamóðir mín var tilfinn-
ingarík og það var aldrei erfitt að
sjá hvernig henni leið. Hún var
frekar alvörugefin að eðlisfari, og
það gat þyngst í henni ef henni
mislíkaði. Að sama skapi ljómaði
hún þegar hún var glöð og sátt.
Hún var mikil amma og lagði
mikla áherslu á að gera ekki upp
á milli barnabarnanna sinna.
Hún átti mikinn kærleika að
gefa og eru þónokkrir sem hafa
gefið mér vitnisburð um það.
Hún fann til með þeim sem áttu
um sárt að binda, hún dæmdi
engan, en umvafði með hlýjum
uppörvunarorðum.
Vertu sæl, kæra tengda-
mamma, þær gerast ekki betri
Bjarnsteinn Þórsson.
Einmitt í dag er afmælisdagur
Sillu vinkonu okkar, hún hefði
orðið 89 ára. Ég hef oft á þessum
degi sent henni eina og eina af-
mælisvísu og stöku sinnum jafn-
vel fleiri. Ég hef haft gaman af
þessu og svei mér þá, ef minni
elskulegu vinkonu hefur ekki
þótt vænt um það. Nú verða af-
mælisvísurnar ekki fleiri, en mig
langar til að fylgja henni úr hlaði
með nokkrum orðum. Vinátta
okkar hjóna við þau Sillu og
Bjössa hafði staðið í mörg ár og
aldrei borið minnsta skugga þar
á. Kristín kona mín féll frá í sept-
ember á síðasta ári, en þær voru
alltaf mjög góðar vinkonur. Nú
þykist ég vita að þær séu búnar
að hittast og hefur það eflaust
orðið fagnaðarfundur. Ég minn-
ist margra ferða með þeim hjón-
um ásamt sameiginlegum vinum,
bæði á suðrænar sólarstrendur
og hér heima í sumarbústaði.
Silla var afar falleg kona með ein-
staklega „sjarmerandi“ bros og
aldrei man ég hana öðruvísi en
heilsuhrausta þangað til síðustu
vikurnar eða mánuðina. Þá var
hún svo óheppin að detta hvað
eftir annað og beinbrotna og síð-
ast örfáum dögum áður en hún
dó, en þá hefur hún vísast orðið
hvíldinni fegin. Að lokum langar
mig að láta fylgja með vísur til
Sillu sjötugrar.
Manni verður um og ó
hve áfram fleygir tímanum,
með ólíkindum þykir þó
að þú sért hætt hjá Símanum.
En nú er síst á þér að sjá
að sífellt hækki aldurinn,
svo gjarnan viljum við því fá
að vita hver er galdurinn.
Hér skal treysta tryggðabönd
í tilefni af deginum.
Gangið lengi hönd í hönd
hjón á æviveginum.
En nú er því miður lokið sam-
eiginlegri göngu þeirra hjóna
Sillu og Bjössa. Ég votta honum
og allri þeirra fjölskyldu samúð
mína og minnar fjölskyldu. Guð
blessi minningu Sillu.
Sigurður Jónsson.
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
Ástkær faðir okkar, fósturfaðir, afi
og langafi,
GUÐBJÖRN KRISTMANNSSON
útgerðarmaður
Eyrargötu 4, Suðureyri,
lést á Sjúkrahúsi Ísafjarðar 25. júní.
Útförin fer fram frá Suðureyrarkirkju laugardaginn 6. júlí
klukkan 14.
Hjördís Harðardóttir Ragnar Guðleifsson
Þorsteinn H. Guðbjörnsson
Guðbjörg Guðbjörnsdóttir Sigurður Þórisson
Kristbjörg M. Guðbjörnsd. Steingrímur Á. Guðmundsson
Lilja Guðbjörnsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Sálm. 6.3
biblian.is
Líkna mér, Drottinn,
því að ég er
magnþrota,
lækna mig, Drottinn,
því að bein mín
tærast af ótta.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
LAUFEY GUÐBJÖRG
JÓHANNESDÓTTIR,
Aðalgötu 1, Reykjanesbæ,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
29. júní. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju
þriðjudaginn 16. júlí klukkan 13.
Jóhannes M. Ingiþórsson Guðbjörg Magnea Jónsdóttir
Margrét Ingiþórsdóttir Jóhann Ingi Grétarsson
Ragnheiður Ása Ingiþórsd. Gunnar Einarsson
Heiðar Ingiþórsson
barnabörn og barnabarnabörn
Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírn-
arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Minningargreinar