Morgunblaðið - 03.07.2019, Síða 22

Morgunblaðið - 03.07.2019, Síða 22
22 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2019 Verið velkomin í verslun okkar Opið virka daga kl. 8:30–17:00 Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is • Mjög auðvelt og fljótlegt í notkun • Tilbúið til matreiðslu á 3-4 mínútum • Afkastamikið og öflugt • Mjög góð hitastýring á kolum • Ytra byrði hitnar ekki • Færanlegt á meðan það er í notkun • Auðvelt að þrífa • Má fara í uppþvottavél • Taska fylgir • Mikið úrval aukahluta STÓRSNIÐUGT GRILL Í GARÐINN, Á PALLINN EÐA Í FERÐALAGIÐ 50 ára Steinþór er Ís- firðingur, lærði vélstjórn og rafvirkjun á Íslandi og rekstrariðnfræði í Köbenhavn teknikum og lærði síðan véla- og plasttæknifræði í IHK og var í MS-námi í véla-, orku- og umhverfisverkfræði frá DTU. Hann rekur Vélsmiðju Ísafjarðar og versl- unina Smiðjuna. Maki: Arna Björk Sæmundsdóttir, f. 1973, kennari. Börn: Lára Sigrún, f. 2000, Sædís, f. 2003, Arnar Bragi, f. 2005, og Katrín Lísa, f. 2012. Foreldrar: Bragi Magnússon, f. 1936, járnsmíðameistari, og Lára Steinþórs- dóttir húsmóðir. Þau eru bús. á Ísafirði. Steinþór Bragason Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Samskipti við maka og nána vini einkennast af hlýju og innileika þessa dagana. Tileinkaðu þér auðmýkt og þakklæti. 20. apríl - 20. maí  Naut Hertu upp hugann, þótt það sé erfitt. Hver hefur sinn djöful að draga. Það er betri tíð í kortunum. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Mundu að góðverk á ekki að gera með það í huga að fá þau endur- goldin. Þú færð eitthvað að gjöf. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Mundu að sókn er besta vörnin og sigurinn er þinn ef þú heldur rétt á spöðunum. Þú ættir að taka til fótanna út úr sambandi sem er hvorki fugl né fiskur. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það er stundum nauðsynlegt að taka áhættu til þess að koma málum fram. Reyndu að standast þá freistingu að kaupa óþarfa. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú þarft að taka áhættu vegna þess að þú veist ekki hvernig hlutirnir eiga eftir að þróast. Segðu vinum þínum frá framtíðaráætlunum þínum. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú stendur á einhvers konar tíma- mótum og þarft því að íhuga vandlega næstu skref. Lausnin er innan seilingar og kemur skemmtilega á óvart. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Mundu að þeir eru margir sem vilja leggja þér lið. Vertu opin/n fyr- ir skoðunum annarra, betur sjá augu en auga. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Gættu þess að gefa ekki lof- orð sem þú getur ekki staðið við. Sýndu samstarfsmönnum þínum þá kurteisi að tala hreint út. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú átt auðvelt með að leysa ágreining á milli fólks. Ekki veðja öllu á einn hest. Einhver finnur á þér högg- stað. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Gott ráð er að leita skjóls hjá trúnaðarvini. Greiddu allt út í hönd sem þú kaupir. Þú tekur tilboði fegins hendi. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú ert í þægilegu draumkenndu ástandi og því munu dagdraumar setja svip sinn á daginn hjá þér. Þú tekur spor í rétta átt. hafa lög hér á landi, frábær hóp- ur.“ Heiðrún útskrifaðist árið 2007 með meistaragráðu og sama ár öðl- aðist hún réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi, en hafði ráðist til starfa á LEX lögmannsstofu árið áður. Í desember síðastliðnum öðlaðist Heiðrún málflutningsrétt- einni dýrustu götu borgarinnar.“ Heiðrún kom heim haustið 2002 og hóf nám í lögfræði í Háskól- anum Reykjavík. „Ég var í fyrsta hópnum til að nema lögfræði við þann skóla og ég fullyrði að þar komu líklega saman skemmti- legustu einstaklingar sem numið H eiðrún Lind Mar- teinsdóttir fæddist 3. júlí 1979 á Akranesi og ólst þar upp. „Þegar ég var fjög- urra ára fluttist fjölskyldan til Austevoll í Noregi, þar sem for- eldrar mínir fóru til náms. Um er að ræða litla eyju rétt utan við Bergen. Þar var hreint yndislegt að alast upp – smæðin, sjórinn og náttúran. Þar bjó ég til átta ára aldurs og eignaðist vinkonur fyrir lífstíð. Þegar við fluttum aftur heim hófust metnaðarfullar fótboltaæf- ingar, enda því sem næst skylda að hafa áhuga á fótbolta þegar maður býr á Skaganum. „Samhliða fót- boltanum var Heiðrún líka í Dans- skóla Jóhönnu Árnadóttur, en þær Jóhanna eru bræðradætur. Heið- rún æfði bæði og keppti í sam- kvæmisdönsum og Freestyle og var í KFUM&K og skólakórnum í Grundaskóla. „Á tímabili reyndi ég líka fyrir mér í handbolta en sá ferill varð ekki langlífur og það skal alveg viðurkennast að hæfi- leikinn var einfaldlega enginn á því sviði. En það má eiginlega segja að þar sem eitthvað var um að vera á Akranesi, þá var ég mætt.“ Heiðrún hætti í fótboltanum rétt áður en hún fluttist til Reykjavíkur og hóf nám í Menntaskólanum í Reykjavík. „Áhuginn á boltanum dvínaði einfaldlega þegar spenn- andi líf unglingsáranna brast á. Ég hef hins vegar enn mjög gaman af því að horfa á fótbolta. Það hefur komið sér mjög vel eftir að ég kynntist manninum mínum. Ef ég ætti að slá gróflega á það þá nýtir hann líklega um 90% heilans í að hugsa um fótbolta. Ég er því orðin fundarfær í flestum deildum knatt- spyrnunnar hér heima – og jafnvel utandeildum erlendis. Eftir MR fluttist ég til London. Ég ætlaði að stoppa þar stutt við, rétt á meðan ég væri að ákveða næstu skref á framabrautinni. Það stóð hins vegar aðeins á þeirri ákvörðun og ég ílengdist þar til tveggja ára og vann sem versl- unarstjóri í skóbúð á Sloane Street, indi fyrir Hæstarétti. Hún hefur einnig lokið prófi í verðbréfa- viðskiptum. Heiðrún var í hluthafahópi LEX 2012-2016 og vann þar aðallega við málflutning á sviði samkeppn- ismála, verktaka- og útboðsréttar og félagaréttar. Heiðrún sinnti einnig um tíma kennslustörfum við lagadeild Háskólans á Bifröst á sviði samkeppnisréttar, auk þess að hafa komið að kennslu nám- skeiðs til öflunar málflutningsrétt- inda fyrir héraðsdómi. Frá 2016 hefur Heiðrún verið framkvæmdastjóri Samtaka fyrir- tækja í sjávarútvegi. „Þetta hefur verið ótrúlega skemmtilegt starf frá fyrsta degi. Það er gefandi að vinna við grundvallaratvinnuveg þjóðarinnar og fyrir fjölskyldu- fyrirtæki. Maður finnur að það eru sterkar rætur í hverju fyrirtæki sem maður hefur samskipti við, þannig að virðingin fyrir því sem verið að er að gera er mikil. Þetta er hluti af lífi og sál þerra sem starfa í sjávarútvegsfyrirtækj- unum.“ Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS – 40 ára Fótboltaseníin Hjörvar og Heiðrún ekki á leiðinni á völlinn. Sterkar rætur í sjávarútveginum Eins árs afmæli Henrik Einar, Heiðrún Lind og Kári. Í Hæstarétti Síðasta prófmál Heiðrúnar til öflunar málflutningsréttinda fyrir Hæstarétti. F.v.: Stefán A. Svensson, Heiðrún og Einar Karl Hallvarðsson. 30 ára Snædís fædd- ist í Reykjavík og ólst þar upp þar til hún varð sex ára en flutti þá í Stykkishólm og býr þar. Hún er með BS-gráðu í rekstrar- verkfræði frá Háskól- anum í Reykjavík. Hún er útskipunar- stjóri hjá Marz Seafood, en þar ráða eingöngu konur ríkjum. Sonur: Breki Þór Kristjánsson, f. 3.7. 2016. Foreldrar: Erla Björg Guðrúnardóttir, f. 1972, eigandi Marz Seafood, og Benedikt Þór Guðmundsson, f. 1967, bús. í Kópa- vogi. Stjúpfaðir Snædísar er Sigurður Ágústsson, 1965, framkvæmdastjóri Agustson. Snædís Sif Benediktsdóttir Til hamingju með daginn Tombóla Eva Margrét Halldórsdóttir og Kristófer Máni Halldórsson héldu tombólu fyrir framan Krónuna í Garðabæ og færðu Rauða krossinum ágóðann, alls 9.760 kr. Rauði krossinn þakkar þeim kærlega fyrir framlag þeirra til hjálpar- og mannúðarstarfs.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.