Morgunblaðið - 03.07.2019, Síða 23

Morgunblaðið - 03.07.2019, Síða 23
DÆGRADVÖL 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2019 „ÉG VIL MINNA VITNIÐ Á AÐ ÞAÐ ER ALVÖRUMÁL AÐ FELA SANNLEIKANN FYRIR RÉTTVÍSINNI.” „FYRST HÉLT ÉG AÐ ÞÚ VÆRIR DAUÐUR EN HLUSTUNARPÍPAN ER LÍKLEGA FARIN AÐ KLIKKA.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... þegar hrósi rignir yfir þig. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann SKO? ÞETTA ER EKKI ERFITT ÞÚ ÆTTIR AÐ LIFA LÍFI ÞÍNU EINS OG ÉG! VEGIR GUÐS ERU ÓRANNSAKANLEGIR! ELDURINN BREIDDIST ÚT OG KRÁIN BRANN LÍKA! VEGIR GUÐS ERU ÓRANNSAKAN- LEGIR! KLAUSTRIÐ BRANN TIL KALDRA KOLA Í MORGUN! Áhugamál Heiðrúnar eru hreyf- ing af öllu tagi og útivist. „Ég reyni að hreyfa mig daglega og stunda fjallgöngur. Það varð hlé á göngunum við að eignast barn en ég er að trekkja mig aftur í gang á því sviði,“ segir Heiðrún að lokum, en hún var einmitt í fjallgöngu þegar blaðamaður ræddi við hana. Fjölskylda Sambýlismaður Heiðrúnar er Hjörvar Hafliðason, f. 6.10. 1980, fjölmiðlamaður. Foreldrar hans eru hjónin Hafliði Þórsson, f. 10.4. 1949, fyrrverandi útgerðarmaður, og Hulda Emilsdóttir, f. 25.2. 1948, húsmóðir. Þau eru búsett í Kópa- vogi. Sonur Heiðrúnar og Hjörvars er Kári Hjörvarsson, f. 17.2. 2018, og stjúpsonur Heiðrúnar er Henrik Einar Hjörvarsson, f. 25.9. 2007. Systkini Heiðrúnar eru Kristrún Dögg Marteinsdóttir, f. 6.2. 1973, deildarstjóri í Grundaskóla á Akra- nesi, og Andri Már Marteinsson, f. 15.2. 1989, forritari á Akranesi. Foreldrar Heiðrúnar eru hjónin Marteinn Grétar Einarsson, f. 3.8. 1953, hafnsögumaður á Akranesi, og Guðrún Guðbjörg Sigurbjörns- dóttir, f. 16.10. 1955, fótaaðgerða- fræðingur á Akranesi. Heiðrún Lind Marteinsdóttir Halla Guðrún Markúsdóttir húsmóðir á Seltjarnarnesi Guðmundur Illugason hreppstjóri á Seltjarnarnesi Lilja Guðmundsdóttir húsmóðir á Akranesi Sigurbjörn Aðalsteinn Haraldsson verkamaður á Akranesi Guðrún Guðbjörg Sigurbjörnsdóttir fótaaðgerðafræðingur á Akranesi Guðrún Björnsdóttir húsmóðir á Reyni Haraldur Jónsson bóndi á Reyni í Innri-Akraneshreppi Jón Þór Hauksson þjálfari kvennalandsliðsins í fótbolta Haukur Sigurbjörnsson sjómaður á Akranesi Gunnar Einarsson fv. skipstjóri á Akranesi Haraldur Benediktson alþingismaður og bóndi á Vestri-Reyni Benedikt Haraldsson bóndi á Vestri-Reyni Margrét Guðmundsdóttir forstöðukona fæðingardeildar Landspítalans Guðríður Guðmundsdóttir húsmóðir á Steinsstöðum Gunnar Lárentínus Guðmundsson bóndi og vélstjóri á Steinsstöðum á Akranesi Halldóra Gunnarsdóttir húsmóðir á Akranesi Sigurður Gunnarsson fv. garðyrkjubóndi á Akranesi Sigurlín Gunnarsdóttir hjúkrunarforstjóri í Rvík Ármann Gunnarsson vélvirki á AkranesiBjarni Ármannsson fjárfestir og Everest-fari Einar Árnason útgerðarmaður á Akranesi Halldóra Halldórsdóttir húsmóðir í Sóleyjartungu Árni Sigurðsson skipstjóri í Sóleyjartungu á Akranesi Úr frændgarði Heiðrúnar Lindar Marteinsdóttur Marteinn Grétar Einarsson hafnsögumaður á Akranesi Árni Einarsson fv. skipstjóri á Akranesi Jóhanna Árnadóttir danskennari Davíð Hjálmar í Davíðshagasegir frá því á Leir að um helgina hafi hann dvalist í sum- arhúsi í Garðshorni, nálægt Sel- fossi. Þessi vísa fór í gestabókina: Í Garðshorni er gott og fátt að ugga er gælin sólin kyssir vanga þinn en lúsmý bíður lágnættis við glugga og laumast þá í svefnherbergið inn. „Besta ráðið!“ sagði Hjálmar Freysteinsson á heimasíðu sinni á sunnudag: Menn sem ýkja og margfalda og margskonar staðleysum fram halda, eru gagnlegir víst ef geta þeir nýst til að gera lúsmý að úlfalda. Og bætti síðan við: „Allir kunna að gera úlfalda úr venjulegri mý- flugu en lúsmýið er trúlega erf- iðara og ekki á allra færi.“ Ingólfur Ásgeir Jóhannesson svaraði með því að segja: „Tja, ef það er ekki á færi Mývetnings að gera lúsmý að úlfalda þá gætum við þurft að leita lengi, lengi, ekki satt?“ Ingólfur Ómar Ármannsson yrk- ir „morgunvísu“ á Boðnarmiði: Risinn er nú dýrðardagur dögg á grasi merlar skær, logar himinn ljós og fagur laufið strýkur þíður blær. Sumarglaðir söngvar óma sólin bliki á fjöllin slær, gefur jörðu gullin ljóma gleðin dátt í sinni hlær. Guðmundur Arnfinnsson fagn- ar sumardeginum: Fagur dagur foldu prýðir, fagna bæði dýr og menn. Varmir anda vindar þýðir, vaknar þrá til lífsins enn. Magnús Geir Guðmundsson er í öðrum og háleitari hugleið- ingum: Hugsýn mín er heldur lág, hún ei skín við sjónarrönd. Birta dvín svo bregður á, brosin þín frá Vonarströnd. Hallmundur Guðmundsson yrkir við mynd: Við suðurgaflinn sitja nú, sauðurinn og tíkin. Þeim er líkast sælan sú að sólar eru fíkin. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Að gera lúsmý að úlfalda

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.