Morgunblaðið - 03.07.2019, Page 25

Morgunblaðið - 03.07.2019, Page 25
ÍÞRÓTTIR 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2019 HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI Hágæða vinnuföt í miklu úrvali Sérmerkjum fyrir fyrirtæki Verkfæri og festingar Mikið úrval af öryggisvörum Nú fástS s vinnuföt í Íslensku frjálsíþróttafélögin halda áfram að skila upp afar efnilegu íþróttafólki eins og sýndi sig glögglega um helgina. Tvær stelpur, 17 og 18 ára, hlupu hraðar en nokkur íslensk kona hefur gert þegar þær slógu Íslandsmetið í 100 metra hlaupi. Það verður forvitnilegt að sjá hvað þær Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir og Tiana Ósk Whit- worth gera á Evrópumóti 19 ára og yngri í Svíþjóð síðar í þess- um mánuði. Um helgina bætti Dagbjartur Daði Jónsson líka aldurs- flokkamet sitt í spjótkasti og Birna Kristín Kristjánsdóttir ald- ursflokkamet sitt í langstökki. Dagbjartur er á leið á EM 22 ára og yngri en Birna með þeim Tiönu og Guðbjörgu á EM U20. Það er hins vegar risastórt stökk á milli þess að vera efni- legur unglingur og að vera keppandi sem á heima á ÓL og HM fullorðinna. Stærra en margir gera sér grein fyrir. Von- andi tekst einhverjum þeirra of- antöldu, og fleirum, að taka það stökk svo vel sé. Það er orðið langt síðan Ísland átti frjáls- íþróttafólk sem keppt gat um verðlaun á þeim mótum. Ásdís Hjálmsdóttir hefur staðið fremst í flokki um alllangt skeið, ásamt helst Anítu Hin- riksdóttur, og Ásdís gerði vel í að ná 11. sæti á HM fyrir tveim- ur árum. Vonandi verða þær báðar með í Doha í Katar í lok september. Íslenskir frjálsíþróttakarlar hafa ekki náð lágmarki fyrir HM eða Ólympíuleika síðan Óðinn Björn Þorsteinsson vann sér sæti í kúluvarpi á ÓL í London 2012. Sleggjukastarinn Hilmar Örn Jónsson fékk að fara á HM 2017 vegna þess að Ísland átti rétt á sæti fyrir einn karl. Hann gæti vel náð í farseðil til Doha enda ekki langt frá lágmarkinu. BAKVÖRÐUR Sindri Sverrisson sindris@mbl.is FÓTBOLTI Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Eitthvað verður undan að láta á Hlíðarenda í kvöld þegar Valur og Breiðablik mætast í leik sem gæti skipt sköpum í baráttunni um Ís- landsmeistaratitil kvenna í fótbolta í ár. Bæði lið eru með fullkominn ár- angur í Pepsi Max-deildinni hingað til í sumar, hafa unnið alla sjö leiki sína og slitið sig gjörsamlega frá öðrum liðum. Á vissan hátt mætti segja að um sé að ræða fyrri úrslitaleik liðanna, svona miðað við framgöngu þeirra í deildinni. Þau hafa hins vegar bæði sýnt að þau séu mannleg. Valur tap- aði síðasta leik sínum, bikarleik gegn Þór/KA á laugardaginn, og Blikakonur, sem féllu út úr bik- arnum með tapi gegn Fylki, voru stálheppnar að landa 2:1-sigri gegn HK/Víkingi í síðasta leik sínum. Þrjár hafa verið meiddar Ekki er annað vitað en að liðin geti stillt upp sínum bestu byrj- unarliðum í kvöld. Berglind Björg Þorvaldsdóttir missti af síðasta leik eftir að hafa meiðst í mjöðm í lands- leik gegn Finnum 17. júní, en vonir standa til þess að hún geti leitt sókn- arlínu Breiðabliks. Ásgerður Stef- anía Baldursdóttir lék aðeins fyrri hálfleik með Val gegn Þór/KA vegna hásinaeymsla en verður með í kvöld, en meiri óvissa er um Hallberu Guð- nýju Gísladóttur sem sat á vara- mannabekknum á Akureyri vegna meiðsla í læri. Í leiknum í kvöld má samt sem áð- ur ætla að sex þeirra sem byrjuðu síðasta landsleik Íslands, 2:0- sigurinn gegn Finnum, verði á Origo-vellinum. Leikurinn ætti í raun að verða það næsta sem hægt er að komast því að sjá HM-gæði á Íslandi í ár, nú þegar heimsmeist- aramótið er að ná hámarki, og hálf- gerð synd að leiktíminn stangist á við undanúrslitaleik Hollands og Svíþjóðar. Hafa má í huga að ís- lenska landsliðið var einum sigri frá því að komast á HM. Fjórtán í síðasta landsliðshóp Af þeim 23 leikmönnum sem Jón Þór Hauksson landsliðsþjálfari valdi í Finnlandsförina í júní, í síðustu leikina áður en undankeppni EM hefst í lok ágúst, voru heilir 14 leik- menn úr röðum Vals og Breiðabliks, sjö úr hvoru liði. Hér að neðan má sjá líkleg byrjunarlið í kvöld og leikjafjölda þeirra leikmanna með A- landsliðinu og yngri landsliðum. All- ir leikmennirnir hafa klæðst ís- lensku landsliðstreyjunni og aðeins fjórir eiga ekki að baki A-landsleik. Í liði Vals eru fjórar landsliðskonur með yfir 100 A-landsleiki á fer- ilskránni. Valur: (4-4-2) Mark: Sandra Sig- urðardóttir (23 A, 15 U). Vörn: Elísa Viðarsdóttir (36 A, 8 U), Guðný Árnadóttir (4 A, 40 U), Lillý Rut Hlynsdóttir (34 U), Hallbera Guðný Gísladóttir (105 A, 18 U). Miðja: Hlín Eiríksdóttir (8 A, 45 U), Dóra María Lárusdóttir (114 A, 46 U), Ásgerður S. Baldursdóttir (10 A), Fanndís Friðriksdóttir (102 A, 32 U). Sókn: Margrét Lára Viðarsdóttir (121 A, 43 U), Elín Metta Jensen (42 A, 35 U). Breiðablik: (4-3-3) Mark: Sonný Lára Þráinsdóttir (7 A, 1 U). Vörn: Ásta Eir Árnadóttir (7 A, 25 U), Kristín Dís Árnadóttir (29 U), Heið- dís Lillýjardóttir (19 U), Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir (2 A, 24 U). Miðja: Hildur Antonsdóttir (40 U), Selma Sól Magnúsdóttir (14 A, 26 U), Alexandra Jóhannsdóttir (3 A, 45 U). Sókn: Karólína Lea Vil- hjálmsdóttir (1 A, 40 U), Berglind Björg Þorvaldsdóttir (41 A, 38 U), Agla María Albertsdóttir (25 A, 27 U). HM-bragur á topp- slagnum á Hlíðarenda  Sex úr byrjunarliði Íslands væntanlega með í uppgjöri Vals og Breiðabliks Morgunblaðið/Hari Langefst Valur og Breiðablik eru með 21 stig eftir sjö umferðir, átta stigum á undan næsta liði fyrir leikinn í kvöld. Tveir leikmenn úr Pepsi Max-deild karla í knattspyrnu voru í gær úrskurðaðir í leikbann á reglubundnum fundi aga- og úrskurðarnefndar KSÍ. Þetta eru þeir Arnar Sveinn Geirsson, leikmaður Breiðabliks, og Stefán Teit- ur Þórðarson, leikmaður ÍA. Báðir fá þeir eins leiks bann vegna fjögurra gulra spjalda. Stefán Teitur missir af leik ÍA og Fylkis á laugardag en Arnar Sveinn verður fjarri góðu gamni þegar Blikar taka á móti grönnum sínum í HK á sunnudaginn. Eftir brotthvarf Jonathans Hendrickx til Belgíu í lok síðasta mánaðar er hinn tvítugi Davíð Ingvarsson eini bakvörð- urinn sem hefur spilað deildarleik í sumar sem verður til taks hjá Blikum í leiknum. Hinn 17 ára gamli Karl Friðleifur Gunnarsson er einnig bakvörður, en hann hefur spilað 15 mínútur í efstu deild á ferlinum þegar hann kom inn á sem varamaður í einum leik í fyrra. Þá var 1. deildar lið Fram sektað um 20 þúsund krónur vegna framgöngu liðsins gegn Þrótti R. á dögunum. Framarar fengu þá átta refsistig, þar af tvö rauð spjöld – meðal annars á Jón Þór Sveinsson þjálfara. yrkill@mbl.is Missir af Kópavogsslagnum Arnar Sveinn Geirsson Skylmingakappinn ungi Daníel Þór Líndal Sigurðsson vann til gullverðlauna á Fimmþjóðaleikum unglinga í skylmingum í Dublin um helgina. Á mótinu keppir skylmingafólk frá Englandi, Írlandi, Wales, Skotlandi og Norður-Írlandi en Daníel, sem er 17 ára og á íslenska foreldra, er einmitt búsettur í Belfast á Norður-Írlandi. Daníel hefur æft skylmingar með stungusverði frá 11 ára aldri en hann sigraði í einstaklingskeppni á laugar- daginn og varð svo í 2. sæti með norðurírska liðinu í liða- keppninni á sunnudag. Þetta var síðasta mót keppnis- tímabilsins en Daníel hafði áður náð 2. sæti á breska unglingameistaramótinu í maí. Hann stefnir á að fara í æfingabúðir í Danmörku og Tékklandi í ágúst áður en nýtt keppnistímabil hefst þar sem hann ætlar sér að keppa á alþjóðlegu heimsbikarmótaröðinni í haust. Daníel, sem er með tvöfaldan ríkisborgararétt, keppir fyrir Ísland á alþjóðlegum mótum en getur einnig keppt á breskum innanlandsmótum. Daníel fékk gull í Dublin Daníel Þór Líndal Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.