Morgunblaðið - 03.07.2019, Side 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2019
Hið íslenska U17 ára landslið
kvenna í knattspyrnu gerði í gær
magnað 3:3-jafntefli við Þýskaland í
fyrsta leik á Opna Norðurlandamótinu
sem leikið er í Svíþjóð. Þýskaland
komst í 3:0 en endurkoma Íslands
hófst á 72. mínútu þegar Hildur Lilja
Ágústsdóttir minnkaði muninn. Am-
anda Jacobsen Andradóttir skoraði
svo á 84. mínútu og Bryndís Arna
Níelsdóttir tryggði jafntefli með
marki á 89. mínútu, lokatölur 3:3.
Næsti leikur Íslands er á morgun
gegn Noregi, sem vann 5:0-sigur
gegn Danmörku í dag.
Gunnlaugur Fannar Guðmundsson
hefur verið lánaður frá úrvalsdeildar-
liði Víkings R. í knattspyrnu til fyrstu-
deildarliðs Hauka. Gunnlaugur kom til
Víkings frá Haukum og var á sínu
þriðja tímabili í Fossvoginum, en
hafði aðeins komið við sögu í tveimur
deildarleikjum það sem af er sumri.
Úrvalsdeildarlið KA í handknattleik
hefur tryggt sér þjónustu leikstjórn-
andans Patreks Stefánssonar sem
hefur samið við félagið til næstu
tveggja ára. Patrekur kemur til fé-
lagsins frá grönnunum í Þór, sem áð-
ur lék undir merkjum Ak-
ureyrar, og var með
markahæstu leik-
mönnum
liðsins
þegar
það féll
úr efstu
deild í vor.
Eitt
ogannað
HM 2019
Andri Yrkill Valsson
yrkill@mbl.is
Ekki nóg með það að ríkjandi meist-
aralið Bandaríkjanna mun leika til
úrslita á þriðja heimsmeistara-
mótinu í röð, sem er met, heldur fer
liðið í úrslitaleikinn í Frakklandi á
sunnudag eftir 11 sigurleiki í röð á
HM. Ekkert lið hefur afrekað slíkt í
sögu heimsmeistaramóts kvenna.
Bandaríkin gerðu vonir Englands
um fyrsta úrslitaleik þjóðarinnar að
engu með 2:1-sigri í undanúrslita-
viðureign þeirra í Lyon í gærkvöldi.
Þess í stað mun England leika um
bronsverðlaun annað mótið í röð, en
liðið hefði ekki getað komist nær því
að velta Bandaríkjunum af stalli fyr-
ir framan rúmlega 53 þúsund áhorf-
endur á vellinum í gærkvöldi.
Það sem hefur verið einn helsti
styrkur Bandaríkjanna er sterk
byrjun og sú var heldur betur raunin
í þessum leik. Christen Press kom
Bandaríkjunum yfir með föstum
skalla strax á 10. mínútu, en liðið
hefur skorað á fyrstu 12 mínútunum
í öllum sex leikjum sínum á mótinu
til þessa og aldrei lent undir. Banda-
ríkin hafa heldur aldrei tapað leik í
sögunni á HM eftir að hafa komist
yfir, eða alls í 40 leikjum.
Næst var hins vegar röðin komin
að tveimur markahæstu leik-
mönnum mótsins. Ellen White jafn-
aði fyrir England á 19. mínútu, áður
en afmælisbarnið Alex Morgan kom
Bandaríkjunum yfir á ný eftir rúm-
an hálftíma. Þær hafa nú báðar skor-
að sex mörk á mótinu.
Þriðja vítaspyrnan í súginn
Óhætt er að segja að dramatíkin
hafi verið mikil þegar England leit-
aði að sigurmarki, sem raunar tókst
að því er virtist. White skoraði þá
aftur eftir magnaða stungusendingu
Jill Scott, en myndbandsupptökur
úrskurðuðu að um rangstöðu hefði
verið að ræða. Umdeildur dómur,
þótt réttur hafi verið eftir endursýn-
ingu, en sóknarmaðurinn fékk ekki
að njóta vafans og gerir þessa tækni
að enn frekara þrætuepli eins og áð-
ur hefur gerst á mótinu.
Pirringur þeirra ensku út í mynd-
bandadómgæsluna breyttist hins
vegar í gleði skömmu síðar þegar
White var rænd dauðafæri fyrir
opnu marki og eftir langa yfirlegu
dómarans var dæmd vítaspyrna.
Spyrna fyrirliðans Steph Houghton
eftir stutt tilhlaup var hins vegar
slök, Alyssa Naeher svo til greip
boltann og gerði draum enska liðsins
að engu. Þetta var fjórða víta-
spyrnan sem England fær á HM í ár
og um leið þriðja vítaspyrnan sem
fer í súginn.
Alltaf leikið um verðlaun
Bandaríkin eru nú á leið í sinn
fimmta úrslitaleik frá fyrsta heims-
meistaramóti kvenna árið
1991, en liðið hefur aldrei
komist styttra en í undanúrslit.
Í kvöld kemur svo í ljós hvort mót-
herjinn í úrslitaleiknum í París á
sunnudag verði Svíþjóð, sem hefur
einu sinni spilað til úrslita árið 2003,
eða Evrópumeistarar Hollands, sem
eru aðeins í annað sinn með á heims-
meistaramóti eftir magnaðan upp-
gang síðustu ár.
Í úrslit á sögulegu skriði
Bandaríkin leika til úrslita á þriðja heimsmeistaramótinu í röð Settu nýtt
met með því að vinna 11. leikinn í röð á HM England leikur aftur um bronsið
AFP
Úrslit Alex Morgan brosir breitt eftir mark sitt í gærkvöld, umvafin fagnandi liðsfélögum hjá Bandaríkjunum.
Fimm íslenskar frjálsíþróttastúlkur eru á meðal þeirra
tíu bestu í Evrópu á árinu í sínum aldursflokki.
Elísabet Rut Rúnarsdóttir er önnur á Evrópulistanum
í sleggjukasti stúlkna yngri en 18 ára en efst þegar
árangur með 4 kg sleggju er skoðaður með kast upp á
62,16 metra. Erna Sóley Gunnarsdóttir er þriðja á listan-
um í kúluvarpi yngri en 20 ára, en 16,13 metra kast
hennar er aldursflokkamet 18-19 og 20-22 ára.
Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir er fjórða í 200 metra
hlaupi, 20 ára og yngri, á Íslandsmeti sínu, 23,45 sek-
úndum. Fyrir Íslandsmet sitt í 100 metra hlaupi frá því
um helgina, 11,56 sekúndur, er hún í fimmta sæti. Tiana
Ósk Whitworth, sem hljóp á 11,57 sekúndum, er í áttunda sæti.
Birna Kristín Kristjánsdóttir er svo í sjöunda sæti á Evrópulistanum 18
ára og yngri í langstökki eftir að hafa stokkið 6,12 metra og sett aldurs-
flokkamet 16-17 ára. yrkill@mbl.is
Fimm íslenskar eru á topp 10
Elísabet Rut
Rúnarsdóttir
Alex Freyr Hilmarsson, leikmaður
KR í knattspyrnu, verður frá næstu
mánuðina vegna meiðsla. Hann
sagði við Vísi í gærkvöldi að 99%
líkur væru á því að krossband í hné
væri slitið eftir meiðslin sem hann
hlaut í toppslagnum gegn Breiða-
bliki í fyrrakvöld. Alex var borinn
þungt haldinn af velli og sagði við
mbl.is að hann hefði heyrt smell í
hnénu.
Alex Freyr kom til KR frá Vík-
ingi R. í vetur og var búinn að
stimpla sig vel inn en KR-ingar
hafa unnið sjö deildarleiki í röð.
Krossband
slitið hjá Alex
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Meiddur Alex Freyr Hilmarsson á
sjúkrabörum í leiknum í fyrrakvöld.
NÝ ÞJÓNUSTA
FYRIR ÁSKRIFENDUR
HLJÓÐMOGGI FYRIR
FÓLK Á FERÐ