Morgunblaðið - 03.07.2019, Síða 29

Morgunblaðið - 03.07.2019, Síða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2019 Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Amerísk heimilistæki rafvorur.isRAFVÖRUR ehf Þvottavélar og þurrkarar sem taka 10-17 kg Það er um 80% ódýrara að skipta um tímareim miðað við þann kostnað og óþægindi sem verða ef hún slitnar Hver er staðan á tíma- reiminni í bílnum þínum? Hringdu og pantaðu tíma í síma 577 1313 TANGARHÖFÐA 13 577 1313 - kistufell.com BIFREIÐAVERKSTÆÐIÐ Jazzhátíð Reykja- víkur verður hald- in í þrítugasta sinn í haust, dagana 4. til 8. september. Á hátíðinni verður í senn boðið upp á innlendar framvarðarsveitir í faginu, nokkur samstarfsverkefni innlendra og erlendra flytjenda, sem og „erlend atriði sem farið hafa víða og vakið athygli og hrifningu úti í hinum stóra heimi“, svo vitnað sé í tilkynningu. Sem dæmi um áhuga- verða flytjendur má nefna ensk- skandinavíska tríóið Phronesis, tríó breska saxófónleikarans Tori Free- stone og tvö samstarfsverkefni ís- lenskra og erlendra listamanna. Annars vegar samstarf Jóels Páls- sonar, sænska bassaleikarans Tor- björns Zetterbergs og portúgalska trompetleikarans Susönu Santos Silva og hins vegar samstarf Scotts McLemores og breska trompetleik- arans Lauru Jurd. Íslenskir listamenn verða annars áberandi með sveitum sínum. Karl Olgeirsson mætir til að mynda til leiks með fríðu föruneyti og leikur lög af plötunni Mitt bláa hjarta. Þá kemur gítarleikarinn Mikael Máni Ásmundsson fram ásamt tríói sínu, sem skipað er auk hans þeim Skúla Sverrissyni og Magnúsi Trygvasyni Eliassen. Leika þeir lög af fyrstu plötu Mikaels, Bobby. Dagskrá hátíðarinnar má sjá á reykjavikjazz.is en miðasala er hafin á vefnum tix.is. Dagskrá Jazzhátíðar í haust kynnt Jóel Pálsson við í það að bæta inn í einhverjum sem okkur þótti fallegt og langaði að flytja saman og hentaði konseptinu okkur þrem. Við erum þrjú og að syngja þrjú saman og erum með ein- falda uppstillingu, bara bassa, gítar og þrjá söngvara,“ segir Sigríður. Lagavalið endurspegli þau þrjú, stemninguna og íslenska sumarið. Sigríður segir að þeim þyki vera rauður þráður á plötunni. „Það sem við höfum sett fram á þessum sum- arferðum okkar,“ segir hún um þráð- inn. Kálfar á Búrfelli Og vissulega er mikil sumarstemn- ing yfir plötunni, bæði tónlist og myndefni en plötuumslagið þrýðir ljósmynd eftir Sigurð af þremur kálf- um á túni og hvítum þvotti á snúru. Sigríður segir Sigurð hafa lært ljós- myndun á Ítalíu og að hann hafi tekið allar myndirnar sem prýða plötuna, að utan sem innan. „Þetta eru þrír kálfar á Búrfelli í Miðfirði,“ segir hún um fyrirsæturnar. Framundan er tónleikaferðalag og segir Sigríður að vegna aðstæðna muni þau ekki fara í hringferð heldur fara þrisvar sinnum í ferðalag, taka þrjá leggi um ólík svæði landsins. „Okkur finnst þetta alltaf skemmti- legt, að pakka í einn bíl, setja hattana á okkur, kveikja á útvarpinu og keyra af stað.“ Ljósmynd/Ásgeir Guðmundsson GÓSS Nafn sveitarinnar er myndað úr upphafsstöfum meðlima, þeirra Guðmundar Óskars, Sigurðar og Sigríðar. Sá flóttamannastraumur semhefur verið áberandi aðundanförnu mun að öllumlíkindum aukast ef eitthvað er á næstu árum og áratugum. Því má búast við að ýmsir menningar- heimar mætist og við það geta orðið harðir árekstrar. Kvikmyndin Synir Danmerkur (Danmarks sønner), lýs- ir slíkum árekstri, árekstri danskrar menningar og þeirrar arabísku. Þetta er fyrsta kvikmynd hins 32 ára leikstjóra og handritshöfundar Ulaa Salim í fullri lengd. Í verkinu vinnur Salim með þá þróun sem orðið hefur í dönskum stjórnmálum að þjóðernissinnar láti á sér kræla og flokkar sem áður þóttu nokkuð umburðarlyndir gagn- vart innflytjendum hafi nú snúið við blaðinu til þess að auka fylgi sitt. Kvikmyndin hefst á því að fram- bjóðandi þjóðernisflokksins, Martin Nordahl, kemur fram á sjónarsviðið í kjölfar hryðjuverkaárásar í Kaup- mannahöfn og heillar dönsku þjóð- ina með loforðum um hreina, danska þjóð. Fylgi hans er óhugnanlega mikið og stefnir allt í að hann beri sigur úr býtum í komandi þingkosn- ingum. Rasmus Bjerg stendur sig vel í hlutverki stjórnmálamannsins Nor- dahl. Þó er erfitt að átta sig á því hvers vegna danska þjóðin heillast af þessum manni sem boðar hatur í stórum stíl. Og þó, rasismi hefur aukist á Vesturlöndum með vaxandi straumi innflytjenda og því líklega aðeins tímaspursmál hvenær sjóði upp úr. Hægriöfgahópurinn Synir Danmerkur heillast af orðræðu og boðskap Nordahls og dregur mynd- in nafn sitt af þeim hópi. Hinn danski almenningur sem styður Nordahl er að öðru leyti ósýnilegur en gegnir þó lykilhlutverki í mynd- inni og má segja að ádeila myndar- innar beinist einna helst að dönskum kjósendum. Að Bjerg undanskildum eru burð- arhlutverk myndarinnar í höndum Dana af erlendu bergi brotnum. Í samfélagi innflytjenda kraumar óánægja og hræðsla við afleiðingar þess að Nordahl leiði ríkisstjórn Danmerkur og þjóðina í heild. Hinn 19 ára Zakaria (Mohammed Ismail Mohammed) ákveður því að slást í hóp með mönnum sem hyggjast grípa til aðgerða og kynnist þar hinni aðalpersónu myndarinnar, Ali (Zaki Youssef). Afleiðingarnar verða hins vegar ekki eins og lagt var upp með og við tekur spennandi atburða- rás þar sem margt kemur á óvart. Myndin er kölluð pólitískur tryllir og er það réttnefni, söguþráðurinn heldur manni í heljargreipum og maður getur aðeins verið viss um eitt; að það stefnir í óefni. Eftir því sem lengra líður á myndina verður andrúmsloftið meira kæfandi með hverri mínútunni. Drungi umfjöll- unarefnisins er dreginn fram með drungalegri lýsingu en þó birtir að- eins til þegar sýnt er frá fallegum fjölskyldustundum. Þær undirstrika hve mikið er í húfi fyrir aðal- persónur myndarinnar sem gerir myndina enn erfiðari áhorfs. Eitt af því fáa sem dregur úr ágæti þessarar myndar er að kven- hlutverkin eru afar fátækleg. Kon- urnar sem sjást hafa einungis það hlutverk að vera eiginkonur og mæður karlmannanna sem myndin fjallar um. Eini tilgangur kvenper- sónanna virðist vera að sýna karl- mennina sem feður, eiginmenn og syni sem gerir þá mannlega og vek- ur samúð áhorfenda með þeim. Það vissulega fellur að titli mynd- arinnar, Synir Danmerkur, að karl- menn séu í forgrunni og því kannski viljaverk. Þetta er kvikmynd sem fjallar um baráttu karla um völd og virðingu en það er engu að síður merkilegt að í danska nútíma- eða framtíðarsamfélaginu sem er lýst í myndinni fái konur svo lítið pláss. Ein skýring gæti verið að leikstjór- anum þætti þetta lýsandi fyrir þá hlutverkaskiptingu sem ríkir í sam- félögum innflytjendanna sem mynd- in sýnir frá en það er þó ekki nægi- legt til þess að skýra það að hvergi bregði fyrir sterkri kvenpersónu sem hefur annað hlutverk en að styðja við karlmennina, elda ofan í þá og ala upp börn þeirra. Leikstjórinn Ulaa Salim er fædd- ur og uppalinn í Danmörku en báðir foreldrar hans eru íraskir innflytj- endur og því þekkir hann það að öll- um líkindum vel að vera á mörkum tveggja menningarheima eins og persónur myndarinnar. Salim virðist vera rétti maðurinn til þess að tak- ast á við þetta mikilvæga málefni og útkoman er eftir því. Með tvítyngda leikara með sér í liði tekst Salim að skapa trúverðugan heim innflytj- enda þar sem arabíska tungan fær mikið pláss. Aðalpersónurnar eru strákar sem hafa alist upp í Dan- mörku, tala dönsku sín á milli en arabísku við foreldra sína. Tungu- málin fléttast fallega saman í sam- skiptum drengja á mörkum tveggja heima. Þeir upplifa kynþáttahatrið vaxa í dönsku samfélagi og fyllast reiði og hræðslu. Kvikmyndin varpar fram spurn- ingum um hverjir séu raunverulega Danir, hvort danskir drengir af arabískum uppruna fái að tilheyra samfélaginu sem þeir hafa alist upp í. Hverjir eru synir Danmerkur? Eru það meðlimir hægriöfgahópa eða múslímskir innflytjendur? Salim virðist takast ætlunarverk sitt með ágætum; að vekja áhorf- endur til umhugsunar um ástandið sem er rakið að skapist ef allt fer á versta veg í þeirri heimsmynd sem blasir við okkur. Leikstjórinn dreg- ur upp grimmilega framtíðarsýn sem er þörf áminning til okkar Vesturlandabúa um mikilvægi þess að sýna umburðarlyndi og náunga- kærleik nú sem aldrei fyrr. Frambjóðandi Rasmus Bjerg í hlutverki hins vinsæla frambjóðanda Martins Nordahls sem boðar útlendingahatur og hugmyndir um hreina danska þjóð. Hverjir eru synir Danmerkur? Bíó Paradís Synir Danmerkur bbbbn Leikstjóri og handritshöfundur: Ulaa Salim. Aðalleikarar: Mohammed Ismail Mohammed, Zaki Youssef, Imad Abul- Foul, Rasmus Bjerg. Danmörk, 2019. 120 mín. RAGNHEIÐUR BIRGISDÓTTIR KVIKMYNDIR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.