Morgunblaðið - 03.07.2019, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 03.07.2019, Qupperneq 32
Söngkonan og lagahöfundurinn MIMRA, en það er listamannsnafn Maríu Magnúsdóttur, kemur tvisvar fram á hinni árlegu jaðarlistahátíð Reykjavík Fringe Festival sem stendur yfir þessa dagana. Í kvöld kl. 19 verður hún með tónleika í R6013 í Ingólfsstræti 20 og síð- an kemur hún fram á Dillon á föstudagskvöldið kemur kl. 22. MIMRA treður tvisvar upp á Reykjavík Fringe MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 184. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Ríkjandi heimsmeistarar Bandaríkj- anna leika til úrslita á HM kvenna í Frakklandi eftir dramatískan 2:1- sigur á Englandi í undanúrslitum í gærkvöldi. Mark var meðal annars dæmt af Englandi auk þess sem lið- ið klúðraði vítaspyrnu seint í leikn- um, en enska liðið þarf að sætta sig við að leika um bronsið annað heimsmeistaramótið í röð. »27 Heimsmeistararnir leika til úrslita á HM ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Fylkir er með fimmtán uppalda leikmenn Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Fyrir rúmum áratug opnaði Almar Þór Þorgrímsson bakari eigið bakarí í Hveragerði, Almar bakari, og skömmu fyrir mánaðamót bætti hann við öðru samnefndu bakaríi í nýrri byggingu gegnt Bónus austast á Selfossi. „Mér var boðið húsnæðið og ég trúi því að þetta sé framtíðar- staðsetning verslunar á staðnum,“ segir hann. Almar ólst upp í Reykjavík en út- skrifaðist sem bakari í Danmörku 1998 og fór síðan á flakk, eins og hann orðar það. „Ég kynntist kon- unni þegar ég vann á Hótel Loftleið- um, hún er frá Hveragerði og mér finnst Hveragerði með fallegri bæj- um á Íslandi,“ segir hann um flutn- inginn austur fyrir fjall. „Þegar ég frétti af lausu húsnæði við þjóðveg- inn sá ég fyrir mér að það væri kjör- inn staður fyrir bakarí, því ferða- mönnum ætti bara eftir að fjölga,“ heldur hann áfram spámannslega. Hugmynd Almars um vinsælt bakarí varð að veruleika, ferða- mönnum hefur fjölgað til muna og viðskiptin staðið undir væntingum og meira en það. „Þetta hefur geng- ið alveg glimrandi vel og segja má að spádómur minn hafi meira en ræst.“ Mikið úrval og gott hráefni Hjónin Almar og Ólöf Ingibergs- dóttir byrjuðu saman með rekst- urinn og unnu myrkranna á milli. „Hún var kasólétt og ég var eini bakarinn fyrstu mánuðina en við vorum sex starfsmenn þegar mest var,“ rifjar hann upp. Bakaríin eru opnuð ekki seinna en sjö á morgn- ana og er opið til sex á kvöldin. „Þetta var stanslaus vinna nær allan sólarhringinn og ég sofnaði gjarnan fyrir framan sjónvarpið um leið og ég kom heim. Nú er ég með hátt í 50 manns í vinnu, tvo bakara á hvorum stað, og fer sjálfur á milli, en vinnan er alltaf jafn skemmtileg.“ Mikill uppgangur er á Selfossi og Almar segir að hann og Gylfi Gísla- son, framkvæmdastjóri verktaka- fyrirtækisins Jáverks ehf., hafi und- anfarin fjögur ár rætt um að hann opnaði bakarí í nýju húsi á Selfossi. „Í febrúar sem leið var ákveðið að reisa húsið, okkur var boðið að koma inn og tilboðið var of gott til að segja nei.“ Ýmsir viðburðir eins og besta pip- arkökuhúsið í Hveragerði og holl- ustukökukeppni hafa tengst bakar- íinu. „Við höfum oft staðið fyrir ýmsum keppnum til þess að lífga upp á tilveruna, því lífið er þannig að við eigum að geta skipt um skoðun reglulega og breytt til. Við nennum ekki að lifa í kassa heldur viljum lifa lífinu lifandi. Það er of stutt til þess að vera njörvaður niður.“ Almar segir að frá byrjun hafi hann lagt áherslu á að vera með mikið úrval úr besta fáanlega hrá- efni. „Ég hef alla tíð reynt að blanda nýjungum saman við þetta gamla og góða. Kleinuhringirnir okkar, sem eru sambland af íslenskum snúðum og amerískum kleinuhringjum, eru eitt skemmtilegasta dæmið, hálfgert vörumerki.“ Morgunblaðið/Sigmundur Sigurgeirsson Á Selfossi Hjónin Almar Þór Þorgrímsson og Ólöf Ingibergsdóttir við nýja bakaríið austast í bænum. Opinn fyrir nýjungum  Almar bakari bæði í Hveragerði og á Selfossi  Tilboð um nýtt húsnæði austast í bænum of gott til að hafna því Fylkir hefur teflt fram fimmtán uppöldum leikmönnum í úrvals- deild karla í fótbolta á yfirstand- andi keppnistímabili og Breiðablik á fleiri leikmenn í öðrum liðum en sínu eigin. Völsungur á Húsavík hef- ur alið upp fleiri af núverandi leik- mönnum deildarinnar en þrjú af þeim félögum sem spila í deildinni. Farið er ítarlega yfir uppruna leikmann- anna á íþróttasíðum blaðsins í dag. »26

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.