Morgunblaðið - 17.07.2019, Síða 2

Morgunblaðið - 17.07.2019, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 2019 Hefur þú prófað nýju kjúklingasteikurnar? NÝTT OG SPENNANDI FRÁ HOLT A Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Veronika S. Magnúsdóttir veronika@mbl.is „Ég var ekki viss til að byrja með hvaða samtök ég ætlaði að hlaupa fyrir en þegar ég fór að kynna mér málið fannst mér þetta félag höfða mest til mín,“ segir Sævar Skúli Þorleifsson, sem mun hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu til styrktar Pieta-samtökunum. Hann glímdi við vanlíðan um tvítugt og talar nú opinskátt um það í fyrsta skipti, 34 ára. Sævar var á leið norður í land, þar sem foreldrar hans búa, í desember 2006 þegar hvarflaði að honum að svipta sig lífi. Hann segir að á þessum tímapunkti hafi hann verið að ganga í gegnum erfitt tímabil. Það hafi verið eftir prófatíð fyrstu annar hans í háskóla þar sem hann stundaði sálfræðinám, illa hafi gengið í prófunum og lífið ekki í réttum skorðum. „Það hljómar kannski kjánalega en bíllinn fór að skrika til í hálk- unni og það var sekúndubrot þar sem ég hugsaði hvort ég ætti nokk- uð að hafa fyrir því að bremsa; hvort ég ætti ekki bara að leyfa bílnum að fara út af og sjá til. Þetta var ekki mjög meðvituð hugsun en þetta var á dimmum tíma. Sem bet- ur fer var þetta stutt augnablik og ég tók ekki ákvörðun sem ég ætti eftir að sjá eftir,“ segir Sævar. Sævar hefur unnið sem atvinnu- bílstjóri í mörg ár og lent í ýmiss konar aðstæðum. „Þegar eitthvað svona óvænt gerist hugsar maður hvað maður ætti að gera til að lág- marka skaða og svo framvegis en akkúrat á þessum tímapunkti upp- lifði ég ekki einu sinni þá hugsun.“ Skaðleg karlmennskuímynd Sævar ólst upp á sveitabæ og þar var karlmannsímyndin í föstum skorðum. Hluti af því að vera karl- maður var að leita sér ekki að- stoðar vegna vanlíðunar og kvarta ekki undan því að lífið væri ekki eins og best yrði á kosið. „Ég held að þetta sé hættuleg menning. Það er skemmtilegt hvað Íslendingar eru frjálslyndir og opnir en á sama tíma eru gamaldags hugmyndir um karlmennsku,“ segir Sævar. „Allir ganga í gegnum erfiða tíma og ég trúi því að það séu margir, sérstaklega ungir karl- menn, sem myndu þurfa á hjálp að halda; hjálp sem Pieta-samtökin gætu veitt.“ Tekur þátt í fyrsta skipti Þetta er frumraun Sævars í Reykjavíkurmaraþoninu, en hann mun hlaupa 10 kílómetra. Hægt er að heita á Sævar á vef Reykja- víkurmaraþonsins, rmi.is, og hefur hann þegar safnað 17 þúsund krón- um. Sævar segir að hver króna skipti máli, smátt og stórt. Ein helsta ástæðan fyrir því að Sævar ákvað að hlaupa fyrir Pieta er aukin sjálfsvígstíðni ungra karl- manna en auk þess er sjálfsvíg al- gengasta dánarorsök ungra karl- manna á Íslandi. „Þetta eru samtök sem geta veitt forvarnir og fræðslu. Þeir sem þurfa helst á þeim að halda vita kannski síst af þeim; það eru helst ungir karlmenn sem eru ekki varnir að leita sér aðstoðar. Ef fólki líður vel með það og finnst í lagi að leita til þeirra þá tel ég það mikið happ,“ segir Sævar að end- ingu. Morgunblaðið/Hari Styrkur Sævar telur mikilvægt að leggja Pieta-samtökunum lið í Reykjavíkurmaraþoninu sem verður 24. ágúst. Aukin sjálfsvígstíðni vakti Sævar til umhugsunar  Hleypur í Reykjavíkurmaraþoninu fyrir Pieta-samtökin  Glímdi við andlega vanlíðan og íhugaði að svipta sig lífi Allar líkur eru á því að engar upplýs- ingar verði í álagningarskrá Ríkis- skattstjóra, RSK, um bætur einstak- linga. Þá verða ekki birtar þar upplýsingar um útvarpsgjald, en upplýsingar um tekjuskatt og útsvar verða á sínum stað. Þetta segir Snorri Olsen ríkis- skattstjóri í samtali við mbl.is, en í síðustu viku birti Persónuvernd álit sitt á spurningum ríkisskattstjóra í tengslum við framlagningu álagn- ingarskrár. Þá munu engar upplýs- ingar birtast af hálfu ríkisskattstjóra sjálfs um hæstu greiðendur, en slíkir listar hafa verið sendir fjölmiðlum um árabil. Fjölmiðlar hafa um árabil áætlað tekjur fólks með hliðsjón af álagn- ingarskránni. Í fyrirspurn RSK var m.a. spurt um ábyrgð RSK á slíkri birtingu og hvaða upplýsingar gæti talist réttmætt og málefnalegt að birta. Snorri segir ástæðu til að skoða þetta eftir að Persónuvernd komst að þeirri niðurstöðu að vefsíð- unni tekjur.is hefði verið óheimilt að birta upplýsingar úr skattskrám gegn gjaldi. Engar upplýsingar um bætur „Þetta hjálpar okkur við að ákveða endanlega hvernig álagningarskráin lítur út, en hún verður lögð fram 19. ágúst,“ segir Snorri. Vanalega hefur skráin verið lögð fram í tengslum við álagningu og hefði átt að vera lögð fram fyrri hluta júní en vegna áður- greindra vafamála frestast það. Snorri segir að ýmsar breytingar verði á birtingu skráarinnar. Þar verða hvorki upplýsingar um út- varpsgjald né hvort fólk óskar eftir tryggingu við heimilisstörf. „Síðan eru allar líkur á að þarna verði engar upplýsingar um bætur,“ segir hann. „Skráin verður breytt en hún verður þó með þær upplýsingar sem skipta mestu fyrir þá sem hafa haft áhuga á upplýsingum um tekjur einstak- linga. Þarna verða upplýsingar um tekjur og álagt útsvar.“ jbe@mbl.is Breytingar verða á álagningarskrá í ár Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Hugsanleg kaup erlends aðila á Vigur í Ísafjarðardjúpi eru áhyggju- efni,“ segir Halla Signý Kristjáns- dóttir, þingmaður Framsóknar- flokksins í Norðvesturkjör- dæmi. Þegar eyjan var fyrst auglýst til sölu á síðasta ári varp- aði Halla Signý fram þeirri hug- mynd að ríkið keypti staðinn, enda hefði hann mikið gildi fyrir arfleifð, menn- ingu og sögu Vestfjarða. Tillögu þessa segir þingmaðurinn hafa fengið lítil viðbrögð, en málið hafi þó verið skoðað og rætt á vett- vangi sveitarstjóra vestra. Megi þar þó nefna að bæjarstjórn Ísafjarðar- bæjar skoraði í ályktun síðasta vet- ur á umhverfis- og auðlindaráðherra og ríkisstjórn Íslands að freista þess að kaupa eyjuna Vigur í Ísafjarðar- djúpi og tryggja þannig aðgengi að henni. „Ég veit að sveitarfélög hér á norðanverðum Vestfjörðum hafa skoðað hugsanleg kaup á Vigur og eru full áhuga. En hvort þau keppi við erlenda auðjöfra veit ég ekki,“ segir Halla Signý. „Óskastaðan væri sú að ríkið eða sveitarfélögin hefðu keypt Vigur, stað sem skiptir miklu máli. Þar er jafnframt starfrækt ferðaþjónusta og svo eru bæði vind- myllan í eyjunni og svonefnt Vikt- oríuhús í eigu Þjóðminjasafnsins. Það hryggir mig því ef Vigur kemst í eigu útlendinga, sem við vitum ekk- ert hvaða ráðstafanir gera varðandi aðgengi almennings á staðnum.“ Skoðist í samhengi Fyrirhugaða sölu á Vigur segir Halla Signý að skoða beri í sam- hengi. Jarðakaup Bretans Jims Rat- cliffes á norðausturhorninu til að ná yfirráðum yfir laxveiðiám hafi vakið marga til umhugsunar um að Íslend- ingar séu að tapa yfirráðum yfir eig- in landi. Gegn slíku verði að sporna – og setja þurfi löggjöf um þetta efni. Erlend eign á landi er áhyggjuefni  Hryggir ef útlendingar eignast Vigur Halla Signý Kristjánsdóttir Rósa Margrét Tryggvadóttir Þórunn Kristjánsdóttir Ljóst er að framkvæmdaráð Pírata mun þurfa að skipa þriðja fulltrú- ann í trúnaðarráð flokksins aftur á næstunni. Þetta staðfestir Róbert Ingi Douglas, upplýsingastjóri Pír- ata, í samtali við Morgunblaðið. Birgitta Jónsdóttir var tilnefnd til að sitja í ráðinu en hlaut ekki næg- an stuðning á félagsfundi Pírata í fyrradag. Róbert Ingi segir að ann- ar félagsfundur muni fara fram fljótlega þar sem aftur verða greidd atkvæði um hvort tilnefning fram- kvæmdaráðs verður samþykkt eða ekki. Hann segir að enn sé ekki ákveðið hvenær fundurinn fer fram en það verði á næstunni. Tilnefndi ekki sjálfa sig Á félagsfundi Pírata í fyrradag greiddu 13 fundarmenn atkvæði með Birgittu eða 19,12% en 55 greiddu atkvæði gegn setu hennar og einn sat hjá. Agnes Erna Esterardóttir og Hrannar Jónsson voru valin til setu í ráðinu. Skipað er í trúnaðarráðið þannig að framkvæmdaráð Pírata óskar eftir tilnefningum um þrjá fulltrúa. Í framhaldinu er haft samband við þá og þeim boðið að gefa kost á sér til setu. Á félagsfundi eru svo greidd atkvæði um tilnefningarnar og gert er ráð fyrir að þrír sitji í trúnaðarráði. Upptaka af fundinum var birt á YouTube síðu Viljans í gær. Þar sagði Birgitta að hún upplifði „ákveðið mannorðsmorð“. „Og það er ekki fallegt,“ sagði Birgitta eftir að Helgi Hrafn Gunnarsson, þing- maður Pírata, sem greiddi atkvæði gegn setu Birgittu, fór ófögrum orð- um um hana í ræðu sinni á fund- inum. Birgitta sögð búa til ósætti Sagði hann meðal annars um Birgittu að hún byggi til „ósætti fremur en sætti og stærði sig af því“ og ætti ekki erindi sem fulltrúi flokksins í trúnaðarráði. Hvatti hann aðra til að kjósa hana ekki af fenginni reynslu af samstarfi með henni. Birgitta steig sjálf í pontu eftir að Helgi Hrafn hafði útlistað ókosti hennar. Sagðist hún ekki ætla að sitja undir þessu og viðurkenndi að hún væri slæm en ekki svona. Jafn- framt þakkaði hún þeim sem höfðu kjark til að tilnefna sig til starfa fyr- ir flokkinn. Birgitta hefur ekki viljað tjá sig við fjölmiðla eftir fundinn. Þurfa að skipa þriðja fulltrúann Róbert Ingi Douglas Birgitta Jónsdóttir  Birgitta sagðist upplifa mannorðsmorð á fundinum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.