Morgunblaðið - 17.07.2019, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 2019
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Amerísk heimilistæki
rafvorur.isRAFVÖRUR ehf
Þvottavélar
og þurrkarar
sem taka
10-17 kg
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Ég er ekki 17 ára lengur og ef ég fæ
ekki fjármagn til þess að þjálfa annan
í starfið er ég hrædd um að ævistarfið
glatist og Ísland verði ekki lengur í
toppsæti þegar kemur að öryggi
barna,“ segir Herdís Storgaard,
framkvæmdastjóri Miðstöðvar slysa-
varna barna. Sjóvá og IKEA útvega
fé til rekstrar Miðstöðvar slysavarna
barna en Herdís vinnur öll störf fyrir
miðstöðina í sjálfboðavinnu.
„Sem betur fer líta aðrar þjóðir til
þess góða starfs sem unnið hefur ver-
ið á Íslandi varðandi slysavarnir
barna og ég fæ launuð verkefni hjá
erlendum aðilum og get því unnið að
forvörnum og haldið ókeypis nám-
skeið fyrir foreldra ungra barna,“
segir Herdís, sem er vongóð um sam-
starf við pólska sendiráðið um nám-
skeiðahald fyrir unga pólska for-
eldra.
Slysum fækkaði mikið
„Ég hóf störf 1991 í samstarfi við
Slysvarnafélag Íslands eftir að
barnalækni sem starfað hafði í Sví-
þjóð blöskraði fjöldi slysa á börnum á
Íslandi. Starfið var síðar sett undir
heilbrigðisráðuneytið og þar hitti ég
fulltrúa úr öllum ráðuneytum mánað-
arlega þar sem farið var yfir slys á
börnum og slysahættur. Árangurinn
sem náðist með þessu starfi var mjög
mikill; slysum á börnum fækkaði til
muna og við urðum besta þjóð í heimi
þegar kom að öryggi barna í bílum.
Eftir að ég hætti sem opinber
starfsmaður var fjármagnið flutt yfir
til landlæknis en mér vitanlega sinnir
enginn sérstakur starfsmaður slysa-
vörnum barna í dag. Svo virðist sem
yfirvöld líti svo á að nóg sé að gert.
En það er ekki nóg; við megum aldrei
sofna á verðinum þegar slysavarnir
barna eru annars vegar,“ segir Her-
dís, sem reynt hefur að ná tali af fé-
lagsmálaráðherra. Það hafi ekki
gengið en hún hafi átt samtal við að-
stoðarmenn hans þar sem henni
fannst lítill skilningur vera. Henni
hafi nánast verið sagt að fara út að
leika sér. Hún segir heilbrigðisráð-
herra hafa sýnt örlítið meiri skilning
en meira þurfi til.
Meðal þess sem áunnist hefur í
slysavörnum barna, að mati Herdís-
ar, er að drukknanir heyri nánast
sögunni til og árvekni foreldra og
umsjónarmanna barna hafi aukist.
Óttast að slysavarnir
barna muni leggjast af
Áhugaleysi hjá stjórnvöldum á slysavörnum barna
,,Fólk panikerar
oft þegar hlutur
sem stendur
fastur í munni
barns lokar fyr-
ir öndunarveg-
inn og veður
með fingurinn
ofan á kok á
þeim í stað
þess að hvolfa
barninu og taka hlutinn varlega
út ef hann er laus. Ef hlutur er
fastur þarf að beita skyndihjálp
með því að banka á milli herða-
blaða barnsins eða nota Heim-
lich-takið,“ segir Herdís Stor-
gaard, verkefnastjóri hjá
Miðstöð slysavarna barna, en
hún vakti athygli á fésbókarsíð-
unni Árvekni – Slysavarnir barna
á fjölgun tilvika þar sem tappi
eða lok hafa lokað öndunarvegi
barns.
„Ég hef fengið talsvert af
ábendingum frá foreldrum og
heilbrigðisstarfsmönnum vegna
tappa og loka af ýmsum
drykkjarvörum en síðustu tvö ár
hafa fimm tilvik verið tilkynnt
þar sem tappi hindraði öndun
hjá barni. Fram að þeim tíma frá
1991 bárust níu slíkar tilkynn-
ingar,“ segir Herdís sem telur
hugsanlegt að um fleiri tilvik sé
að ræða, bæði óskráð og næst-
um-því-slysin. Hún segir að börn
geti gleypt tappa allt að 3,2 cm
að ummáli og varar sérstaklega
við að börn sem sitja í bakvís-
andi bílstólum handleiki
drykkjarvörur með tappa.
Fleiri börn sem gleypa tappa
SLYSAVARNIR BARNA
Herdís
Storgaard
Dr. Þorsteinn Ingi Sig-
fússon, prófessor og
forstjóri Nýsköpunar-
miðstöðvar Íslands,
varð bráðkvaddur að-
faranótt 15. júlí, 65 ára
að aldri.
Hann fæddist í Vest-
mannaeyjum 4. júní
1954, sonur hjónanna
Sigfúsar J. Johnsen,
kennara og félags-
málastjóra, og Krist-
ínar S. Þorsteins-
dóttur, húsfreyju og
bankastarfsmanns.
Að loknu stúdentsprófi frá MH
1973 nam Þorsteinn Ingi eðlisfræði
og stærðfræði við Kaupmannahafn-
arháskóla 1973-78 og lauk doktors-
prófi frá Cambridge-háskóla á Eng-
landi 1982. Þar hlaut hann verð-
launastyrk Clerk-Maxwell og var
kjörinn „Research
Fellow“ við Darwin
College 1981.
Þorsteinn Ingi fékk
stöðu sem fræðimaður
við Raunvísindastofnun
Háskóla Íslands (HÍ)
1983 og var prófessor í
eðlisfræði við HÍ frá
1989. Hann var stjórn-
arformaður Raunvís-
indastofnunar 1986-90,
formaður rannsóknar-
ráðs 1996-99 og for-
maður tækniráðs
Rannís 2008-2013. Þorsteinn vann að
tengingu fræðasamfélagsins við at-
vinnulífið og tók þátt í stofnun
margra sprotafyrirtækja, t.d. Vaka-
fiskeldiskerfa, Al-álvinnslu og Ís-
lenskrar NýOrku. Hann var einnig
formaður framkvæmdanefndar al-
þjóðavetnissamtakanna (IPHE).
Þorsteinn Ingi var ráðinn forstjóri
Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands við
stofnun hennar 2007.
Hann var sæmdur riddarakrossi
fálkaorðunnar 2004 og hlaut rúss-
nesku alheimsorkuverðlaunin, Glob-
al Energy Prize, 2007 fyrir framlag
sitt til vetnismála. Í framhaldi af því
stýrði hann stóru rannsóknarverk-
efni við Tomsk-háskóla.
Eftir Þorstein Inga liggur fjöldi
ritrýndra vísindagreina auk annarra
skrifa. Afmælisritið „Þekkingin
beisluð – nýsköpunarbók“ kom út í
tilefni af sextugsafmæli hans árið
2014.
Eftirlifandi eiginkona Þorsteins
Inga er Bergþóra Karen Ketils-
dóttir, forstöðumaður. Þau eign-
uðust þrjú börn; Davíð Þór, lækni, f.
1980, Dagrúnu Ingu, lækni, f. 1988,
og Þorkel Viktor, tölvunarfræðing, f.
1992. Barnabörnin eru þrjú.
Andlát
Þorsteinn Ingi Sigfússon
Húsin á Hlíðarenda í Vatnsmýri
rísa hratt um þessar mundir. Verk-
takar og vinnuvélar í tugatali eru
að störfum en samkvæmt deili-
skipulagi er gert ráð fyrir um 600
íbúðum á svæðinu. Í mörgum hús-
um er reiknað með atvinnuhúsnæði
á jarðhæð í götuhæð. Einnig hyggj-
ast Valsmenn byggja þar knatthús
og fjölnota íþróttamannvirki.
Svæðið er í mikilli nálægð við
Reykjavíkurflugvöll, eins og mynd-
in hér til hliðar ber með sér, og
gömlu neyðarbrautina þar sem
einkaþotum er nú lagt. Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hlíðarendi
ofan í
þotunum
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Ekkert barn liggur inni á Barna-
spítala Hringsins af völdum E.coli-
smits og engin ný tilfelli komu fram
í gær, að því er fram kom á heima-
síðu landlæknis. Sýni úr níu ein-
staklingum voru rannsökuð í gær og
greindist enginn með sýkinguna.
Alls hafa 19 börn greinst frá því að
faraldurinn hófst og enn er beðið
frekari staðfestingar á greiningu hjá
barni í Bandaríkjunum þar sem
grunur leikur á um alvarlega E.
coli-sýkingu. Búist er við að farald-
urinn sé að renna sitt skeið en
næsta vika mun að líkindum skera
úr um það.
Gestir meðvitaðri
Þorgrímur Guðbjartsson, eigandi
Erpsstaða í Dölum, hefur ekki orðið
var við fækkun ferðamanna en á
bænum er bæði skepnuhald og ís-
framleiðsla. Hann segir gesti með-
vitaðri um að fara gætilega í sam-
búð skepna og matvæla. Þorgrímur
segir fólk duglegra að þvo sér um
hendur og spritta sig eftir að E. coli-
smitið kom upp í Efstadal II. Á
Erpsstöðum hafi upplýsingum um
hvar hægt væri að þvo sér og spritta
verið komið skýrar á framfæri.
Guðrún Egilsdóttir, einn eigenda
Holtsels í Eyjafirði, hefur ekki orðið
vör við fækkun gesta vegna umræðu
um E. coli-smit en eftir smitið í
Efstadal II hafi verið settur upp
standur með spritti og fólk sé nú
sem áður hvatt til þess að þvo sér
um hendur áður og eftir að það
snertir dýr.
Björgvin Jóhannesson, einn eig-
enda Efstadals II, segir að gestum í
mat og gistingu hafi ekki fækkað en
eðlilega komi færri þangað að kaupa
ís í ljósi liðinna atburða. Ís sem nú
sé seldur á staðnum sé aðkeyptur og
kálfastíunni, sem bakterían fannst í,
hafi verið lokað og verði ekki opnuð
aftur.
Morgunblaðið/Hari
Efstidalur E.coli-smitið hefur eðlilega haft sín áhrif á íssöluna.
Ekkert barn inni-
liggjandi lengur
E. coli-faraldurinn að renna sitt
skeið Ferðamönnum ekki fækkað