Morgunblaðið - 17.07.2019, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 2019
FORNUBÚÐUM 12, 220 HAFNARFJÖRÐUR | S: 555 0800 | SIGN@SIGN.IS
Fréttablaðið, sem er orðiðgrímulausara stuðningsblað
Evrópusambandsaðildar Íslands
eftir eignarhalds-
breytingar, fagnaði
á sinn hátt í gær tíu
ára afmæli aðildar-
umsóknarinnar.
Fram kom að haft
hefði verið „sam-
band við bæði Jó-
hönnu og Össur en
hvorugt þeirra vildi
ræða þessi tímamót“. Það kemur
ekki á óvart enda varð umsóknin
hvorugu þeirra til framdráttar.
En Fréttablaðið fann Jón Stein-dór Valdimarsson, þingmann
Viðreisnar, og leitaði álits hans.
Ekki stóð á svari: „Þó að ferlið hafi
verið stöðvað þá verður að líta svo á
að Ísland sé enn þá með umsókn
inni. Það ætti að vera hægt að
endurræsa það án þess að fara í
gegnum allt upphafsferlið Evrópu-
sambands megin.“
Og Fréttablaðið spurði hvort að-stæður í dag væru betri eða
verri til inngöngu. Jón Steindór
svaraði: „„Röksemdirnar eru sterk-
ari í dag. Staðan í heimsmálunum
er þannig að við ættum að skipa
okkur í flokk með þeim þjóðum sem
við viljum tilheyra.“
Þetta er fráleit uppstilling áESB-aðild en kemur ekki á
óvart. Allar gerviröksemdir verða
áfram nýttar til að reyna að koma
Íslandi inn í þetta verðandi sam-
bandsríki.
Svör þingmannsins eru þó gagn-leg því að þau minna á nauðsyn
þess að draga umsóknina til baka
fyrst það misheppnaðist í fyrra
skiptið. Engin ástæða er til að leyfa
ESB-flokkunum að misnota aðstöðu
sína komist þeir aftur til áhrifa.
Jón Steindór
Valdimarsson
Áminning um
aðildarumsókn
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Mikil tímamót urðu í dómstólasög-
unni 10. júlí sl. þegar fyrsta ákæran
ásamt gögnum frá héraðssaksókn-
ara fór til Héraðsdóms Reykjavíkur í
gegnum rafræna gátt.
Þetta skref markar tímamót í raf-
rænum samskiptum í dómskerfinu
en dómstólasýslan stefnir að því að
allir héraðsdómstólarnir verði
komnir með rafræn samskipti við
héraðssaksóknara, lögreglu og verj-
endur innan fárra mánaða, segir í
frétt á heimasíðu dómstólasýsl-
unnar.
Haustið 2017 var hleypt af stað til-
raunaverkefninu „rafrænn dómari“
með héraðssaksóknara en það fól í
sér að hann afhenti mál á pdf-formi
til Héraðsdóms Reykjavíkur á minn-
islyklum ásamt frumriti málsgagna.
Síðan afhenti dómurinn verjendum
minnislykla með gögnum mála, en
gríðarlegt pappírsmagn sparaðist
með þessu.
Á þessum tíma var ekki komin
örugg leið til að senda gögn rafrænt
milli aðila en dómsmálaráðuneytið
setti síðan fjármuni í gerð rafrænnar
gáttar fyrir réttarvörslukerfið, sem
nú er tilbúin. Það var Ólafur Þór
Hauksson héraðssaksóknari sem
sendi fyrsta rafræna sakamálið og
Símon Sigvaldason, dómstjóri Hér-
aðsdóms Reykjavíkur, tók á móti því
í tölvu sinni.
Nú skapast tækifæri til að feta
næstu skref, sem verður m.a. að lög-
menn í einkamálum og ágreinings-
málum munu senda dóminum gögn
með sama hætti og að tekið verði við
áfrýjun mála, segir á vef dómstóla-
sýslunnar. sisi@mbl.is
Rafræn gátt fyrir dómsskjöl opnuð
Tímamót Fyrstu rafrænu dóms-
skjölin ferðast hér á milli tölva.
Fyrri hluti júlímánaðar hefur verið
hlýr og rakur en sólarlítill miðað við
fyrri hluta sumars.
Sólskinsstundir hafa mælst 90,8 í
Reykjavík fyrstu 15 daga júlí, rétt
ofan meðallags, samkvæmt saman-
tekt Trausta Jónssonar veðurfræð-
ings. Þetta er þó hátíð miðað við
sömu daga sumarið 2018. Þá mæld-
ust aðeins 18 sólskinsstundir í
Reykjavík.
Þrír síðustu dagarnir til og með
15. júlí voru algjörlega sólarlausir í
Reykjavík og síðustu sex daga hafa
aðeins mælst 0,8 sólskinsstundir.
Þetta eru mikil umskipti frá því sem
var dagana næst þar á undan, segir
Trausti. Þá skein sólin skært sunn-
an- og suðvestanlands.
Þegar hálfur júlí er að baki reyn-
ist meðalhiti hans í Reykjavík 12,1
stig, +1,7 stigum ofan meðallags
sömu daga árin 1961-1990, +0,6 stig-
um ofan meðallags. Á Akureyri er
meðalhiti fyrri hluta júlí nú 10,9 stig,
+0,6 stigum ofan meðallags áranna
1961-1990.
Aðfaranótt 15. júlí var sérlega hlý,
meðallágmarkshiti á landinu hærri
en 10 stig. Nóttin var sú hlýjasta
sem vitað er um í júlí á fjölmörgum
sjálfvirku stöðvanna, þar á meðal
allmörgum sem athugað hafa í 20 ár
eða lengur, meðal annars í Reykja-
vík og nágrenni.
Loft var einnig óvenjurakt, dagg-
armark hefur víða verið hátt og júlí-
met slegin á fáeinum stöðvum. Þar á
meðal á Hvanneyri, Gufuskálum og í
Súðavík og Ásbyrgi, en á öllum þess-
um stöðvum hefur verið athugað í
meira en 20 ár.
Úrkoma í júlí hefur mælst 24,2
millimetrar í Reykjavík og er það í
meðallagi, en 28,4 mm á Akureyri,
vel ofan meðallags. Júlí í fyrra var
enn blautari. Þá mældust 38,8 mm í
Reykjavík. sisi@mbl.is
Methlýindi mældust
aðfaranótt hins 15.
Sólin fór í felur en
hefur þó skinið mun
meira en í júlí 2018
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Högg slegið Meira hefur rignt á
kylfinga í júlí en fyrri hluta sumars.