Morgunblaðið - 17.07.2019, Page 12

Morgunblaðið - 17.07.2019, Page 12
12 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 2019 Þurrkgrindur Innan- og utandyra Opið virk a dag a frá 9-18 lau frá 1 0-16 Laugavegi 29 | sími 552 4320 | verslun@brynja.is | brynja.is 60 cm x 3,6 lm, ber 10 kg Verð kr. 5.740 80 cm x 6,7 lm, ber 20 kg Verð kr. 9.850 100 cm x 8,5 lm, ber 20 kg Verð kr. 10.980 3 stærðir Vefverslun brynja.is Fagmennska í 100 ár París. AFP. | Dauðsföllum sem tengjast alnæmi fækkaði í 770.000 á síðasta ári og þau voru um 33% færri en árið 2010, að sögn embætt- ismanna Sameinuðu þjóðanna í gær. Þeir vöruðu þó við því að til- raunir til að uppræta sjúkdóminn hefðu tafist vegna fjárskorts. Talið er að 37,9 milljónir manna séu með HIV-veiruna sem veldur alnæmi og 23,3 milljónir þeirra hafa aðgang að einhvers konar fjöllyfja- meðferð við sjúkdómnum, að því er fram kemur í ársskýrslu UNAIDS, alnæmisvarnastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Fækkaði mjög í Afríku Dauðsföllum sem tengjast al- næmi fækkaði í 770.000 í fyrra úr 800.000 frá árinu áður. Þau voru 1,2 milljónir árið 2010 og þeim hefur því fækkað um rúman þriðjung síð- an þá. Sjúkdómurinn er skæðastur í Afríku en dauðsföllunum þar hefur fækkað mjög á síðustu tíu árum. Þeim hefur hins vegar fjölgað um 5% í Austur-Evrópu og um 9% í Mið-Austurlöndum og Norður-Afr- íku. Nýjum smittilfellum fjölgaði um 29% í Austur-Evrópu og 10% í Mið-Austurlöndum og Norður-Afr- íku á milli ára. 35 milljónir manna dóu Gunilla Carlsson, framkvæmda- stjóri UNAIDS, sagði að brýnt væri að ráðamenn létu baráttuna gegn alnæmi meira til sín taka en áður. „Hægt er að uppræta alnæmi ef við einbeitum okkur að fólkinu en ekki sjúkdómnum … og lítum á það sem lið í baráttunni fyrir mann- réttindum að ná til fólksins sem verður mest fyrir barðinu á HIV- veirunni,“ sagði hún. Talið er að alls hafi nær 80 millj- ónir manna smitast af HIV-veirunni og 35 milljónir manna dáið úr sjúk- dómnum frá byrjun níunda ára- tugarins. Embættismenn UNAIDS segja að rúmur helmingur nýsmit- aðra komi úr helstu áhættuhópun- um. Þeir eru fíkniefnaneytendur sem nota sprautur, hommar, trans- fólk, fólk sem stundar vændi og fangar, að sögn stofnunarinnar. Hún segir að í rúmum helmingi landa heims hafi minna en 50% þeirra sem eru í þessum áhættu- hópum fengið nauðsynlega for- varnaþjónustu. Markmiðin náðust ekki Embættismenn UNAIDS segja að árlegur fjöldi nýsmitaðra hafi aðeins minnkað um 16% frá 2010 en stefnt hafi verið að því að hann minnkaði um 75% ekki síðar en á næsta ári. Stefnt hafði verið að því að nýju smittilfellin meðal barna yrðu ekki fleiri en 40.000 á ári en það mark- mið náðist ekki. Í skýrslunni kemur fram að rúmlega 160.000 börn greindust með HIV-veiruna á síð- asta ári, um 41% færri en árið 2010. Dauðsföllunum fækkaði um 33%  770.000 manns dóu úr alnæmissjúkdómnum á síðasta ári Mismikill aðgangur að meðferð við alnæmi Heimild: UNAIDS, tölur fyrir árið 2018 37,9 milljónir manna í heiminum eru með HIV-veiruna og 23,3 milljónir þeirra hafa aðgang að lækningarmeðferð 20,6 67% Austur-/ sunnanverð Afríka 54%5,9 Asíu- og Kyrrahafslönd 5,0 52% Vestur-/Mið- Afríka 1,9 63% Rómanska Ameríka 0,34 55% Karíbahafseyjar 0,24 33% Mið-Austurlönd og Norður-Afríka 1,7 38% Austur-Evrópa og Mið-Asía 2,2 milljónir með HIV 77% hafa aðgang að meðferð Vestur- og Mið-Evrópa og Norður-Ameríka Ósló. AFP. | Lögreglan í Noregi hef- ur handtekið umdeildan íslamskan klerk, múlla Krekar, eftir að hann var dæmdur í fangelsi á Ítalíu fyrir aðild að samsæri hryðjuverka- manna, að sögn norsku öryggislög- reglunnar PST í gær. Krekar, réttu nafni Najumuddin Ahmad Faraj, er 63 ára og hefur dvalið í Noregi sem flóttamaður frá árinu 1991. Yfirvöld á Ítalíu saka hann um að fara fyrir Rawti Shax, kúrdískri hreyfingu sem talin er tengjast Ríki íslams, samtökum íslamista. Dómstóll í Bolzano á Norður-Ítalíu dæmdi múlla Krekar í tólf ára fangelsi á mánudaginn var fyrir aðild að samsæri hryðjuverka- manna. Fimm aðrir voru einnig dæmdir í fangelsi í málinu. „PST, með aðstoð lögreglunnar í Ósló, handtók múlla Krekar á mánu- dagskvöld í samræmi við alþjóðlega leitarheimild og handtökuheimild frá Ítalíu,“ sagði norska öryggislögregl- an á Twitter. Krekar á að koma fyrir dómara í dag vegna beiðni lögregl- unnar um að hann verði úrskurðaður í gæsluvarðhald. „Hann er ekki í neinum tengslum við Ríki íslams,“ sagði lögmaður Krekars, Brynjar Meling, eftir dómsuppkvaðninguna á Ítalíu. „Eina markmið hans er að fara aftur til Kúrdistans í Írak til að geta haslað sér völl í stjórnmálunum þar, stofnað stjórnmálaflokk sem frjáls maður.“ Krekar hefur verið álitinn ógn við þjóðaröryggi og er á listum Samein- uðu þjóðanna og Bandaríkjanna yfir meinta hryðjuverkamenn. Hann hef- ur átt yfir höfði sér brottvísun úr landi frá árinu 2003 en norsk lög hafa hindrað hana vegna þess að hugsan- legt er að hann verði dæmdur til dauða í Írak verði hann sendur þang- að. Yfirvöld á Ítalíu afturkölluðu beiðni um að Krekar yrði framseldur þangað árið 2016. Hann var í nokkur ár í fangelsi í Noregi fyrir að hvetja til ofbeldis en var látinn laus í nóvember 2016 eftir að framsals- beiðni Ítalíu var afturkölluð. Múlla Krekar handtekinn  Dæmdur í tólf ára fangelsi á Ítalíu AFP Íslamisti Múlla Krekar hefur verið dæmdur fyrir hryðjuverkasamsæri. Ursula von der Leyen, varnarmálaráðherra Þýska- lands, var kjörin forseti framkvæmdastjórnar Evrópu- sambandsins, fyrst kvenna, með naumum meirihluta í leynilegri atkvæðagreiðslu á Evrópuþinginu í gær. Hún tekur við embættinu 1. nóvember af Jean-Claude Juncker. Leyen þurfti að fá minnst 374 atkvæði til að ná kjöri eftir að leiðtogaráð ESB tilnefndi hana í emb- ættið og svo fór að hún fékk 383 atkvæði gegn 327. Leyen er sextug, fæddist í Brussel, á sjö börn og var kvensjúkdómalæknir áður en hún haslaði sér völl í stjórnmálunum. Hún er kristilegur demókrati og hefur m.a. lofað að beita sér fyrir því að Evrópusambandið gegni auknu hlutverki í baráttunni gegn fátækt. VERÐUR FORSETI FRAMKVÆMDASTJÓRNAR ESB, FYRST KVENNA Leyen kjörin með naumum meirihluta Ursula von der Leyen Talningarmenn mæla hnúðsvan og unga hans á árlegri svanatalningu á ánni Thames, nálægt Lundúnum. Athöfnin er rakin til tólftu aldar þegar algengt var að konungsfólk borðaði svani og drottning Eng- lands sló eign sinni á alla hnúðsvani í ám og vötnum landsins. Talningin fer fram þriðju vikuna í júlí ár hvert og eru þá svanir veiddir, merktir og látnir lausir undir stjórn sérlegs fulltrúa drottningar sem gegnir því hlutverki að telja svans- unga og sjá til þess að svönum fækki ekki. Einnig er leitað að merkjum um meiðsli eða sjúkdóma á svönunum til að kanna ástand stofnsins. Hnúðsvönum hefur lítið fækkað í ánni frá miðri nítjándu öld, að sögn talningarmannanna. Árleg svanatalning á ánni Thames AFP Ástand hnúðsvana- stofnsins kannað

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.