Morgunblaðið - 17.07.2019, Síða 15

Morgunblaðið - 17.07.2019, Síða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 2019 Það má segja að einmunatíð hafi verið hjá okkur á undanförnum árum. Flest hefur gengið okkur í haginn og tíminn nýttur í að styrkja stoð- irnar. Vegna þeirrar stefnu sem fylgt hefur verið á undanförnum ár- um erum við vel í stakk búin til að takast á við tímabundna erfiðleika sem við blasa nú. Stoðir samfélagsins eru sterkar, en það högg sem við tökumst nú á við er áminning um hversu mikilvægt er að fjölga stoðunum, nýta tækifærin til frekari verðmætasköpunar. Nú er rétti tíminn til að örva fjárfestingu í mikil- vægum innviðum sem munu skapa frekari möguleika í atvinnulífi, styrkja byggðir landsins og efla hagvöxt á næstu árum. Tækifærin liggja víða. Fjárfestingar í laxeldi skipta verulegu og vaxandi máli fyrir þjóðarbúið, að ekki sé talað um þau landsvæði sem finna fyrir mestu áhrifunum. Fiskeldi er ný stoð í verðmætasköpun okkar og vægi þess á eftir að vaxa mikið á næstu árum. Spölur lauk farsælu verkefni sínu nýverið og eru nú Hvalfjarðargöngin eign þjóðarinnar. Það er löngu tíma- bært að stíga fleiri stór skref í sam- göngumálum. Við eigum að nýta reynsluna af verkefni Spalar og hrinda í framkvæmd landsátaki í samgöngu- málum á grundvelli gjaldtöku. Arðbær- ari framkvæmdir eru vandfundnar og gjaldtökuleiðin gerir okkur kleift að stíga stærri og betri skref en nokkru sinni áður. Efnahagsleg áhrif á þjóð- arbúið væru mjög mikil til skemmri og lengri tíma. Og er þá ávinningurinn af færri umferðarslysum ótalinn. Mikil umræða hefur átt sér stað um orkuauðlindir þjóðarinnar á undan- förnum misserum. Minna hefur farið fyrir umræðu um hvernig við ætlum okkur að nýta þær auðlindir sem í sjálfu sér eru lítils virði, nema til komi skynsamleg nýting. Við þær efnahags- legu aðstæður sem nú blasa við er mik- ilvægt að Landsvirkjun fari án tafar í frekari framkvæmdir. Hvammsvirkjun í neðri Þjórsá er svo til fullhönnuð og búin að fara í gegnum lögformlegt ferli. Pólitískt, efnahagslega og vegna verkefnastöðu jarðvinnuverktaka og byggingafyrirtækja væri hagkvæmt að fara af stað með þessar fram- kvæmdir í haust. Jafnframt verður að ráðast í stórátak í upp- byggingu á dreifikerfi raforku, en stöðugur ágreiningur um línulagn- ir og skortur á framtíðar- sýn í uppbyggingu raforkukerfisins hefur haft skaðleg áhrif og atvinnutækifæri tapast víða um land vegna þess. Einfaldlega vegna þess að það er ekki hægt að koma raf- orku þangað. Samhliða aukinni raforkuframleiðslu og uppbyggingu dreifikerfis verður að huga að nýjum millistórum kaupendum að raforku sem víðast um landið. Uppbygging gagnavera á að vera næsta græna stór- iðja okkar og um leið átak í að styrkja byggðirnar víða um land. Nauðsynlegt er að leggja nýjan sæstreng til gagna- flutninga sem fyrst, helst á næsta ári. Um leið munu mörg tækifæri skapast á þessum vettvangi. Við ræðum gjarnan um að þjóðin sé rík af orkulindum. Í því ljósi er fárán- legt að umræða dagsins skuli hverfast um það að stutt sé í að við þurfum að kljást við raforkuskort, eins og for- stjóri Landsnets hefur vakið eftir- minnilega athygli á. Það er augljóst að hér verður að koma til skýr framtíð- arsýn og í stað þess að ræða hvernig á að koma í veg fyrir orkuskort innan fárra ára, þurfum við að bregðast við og svara af krafti vaxandi eftirspurn eftir raforku. Raforkan er ein af grunn- stoðum þjóðfélagsins og lykillinn að verðmætasköpun til skemmri og lengri framtíðar og batnandi lífskjörum þjóð- arinnar. Nú er tíminn til að hugsa stórt í arð- bærum fjárfestingum og hefjast þegar handa. Við eigum að sækja fram: Sókn er besta vörnin. Eftir Jón Gunnarsson » Við eigum að sækja fram: Sókn er besta vörnin. Jón Gunnarsson Höfundur er þingmaður. Sókn er besta vörnin Í sjálfu sér er ákvörðunin til- tölulega einföld. Meirihluti Alþing- is getur sameinast um að afhenda öllum Íslendingum eignarhluti í tveimur bönkum, sem þeir eiga en ríkissjóður heldur á í umboði þeirra. Með því yrði ýtt undir þátt- töku almennings á hlutabréfa- markaði og margir fengju tækifæri til að stíga fyrstu skrefin í átt að því að gerast kapítalistar. Auðvitað má búast við andstöðu á þingi og víðar við að launafólk fái afhentan eignarhlut í fyrirtækjum sem það á sameiginlega. Þeir eru enn til sem trúa því í ein- lægni að samfélaginu vegni best ef flest (öll!) at- vinnutæki eru á höndum ríkisins. Ríkishyggjan getur aldrei samþykkt hugmyndir um vald- dreifingu og auðstjórn almennings. En það gæti orðið áhugavert að fylgjast með hverjir setjast á bekk með úrtölumönnum og gerast talsmenn stjórnlyndis með því að leggja steina í götu þess að einstaklingar eignist milli- liðalaust hlut í bönkunum. Að skjóta styrkari stoðum undir fjárhagslegt sjálfstæði einstak- linga og fjölskyldna þeirra og gera Íslendinga að kapítalistum, er eitur sem enn seytlar um æðar margra, sem eru sannfærðir um að sér- eignarstefnan eigi rætur í hugsunarhætti smá- borgarans. Fjárstjórn fjöldans Almannavæðing fjármálakerfisins, líkt og hér er lagt til, er hluti af frelsisbaráttu Sjálfstæðis- flokksins í 90 ár. Barátta fyrir að gera launafólk að eignafólki, – tryggja því fjárhagslegt sjálf- stæði og frelsi til athafna. Eyjólfur Konráð Jónsson – Eykon – talaði um auðstjórn almenn- ings eða fjárstjórn fjöldans. Hans draumur var að almenningur yrði virkur þátttakandi í at- vinnulífinu og að til yrðu öflug al- menningshlutafélög með þús- undir eigenda. Með þessu yrði þjóðarauðnum dreift til sem „allra flestra borgara landsins, að auðlegð þjóðfélagsins safnist hvorki saman á hendur fárra ein- staklinga né heldur ríkis og op- inberra aðila“. Með öðrum orðum: Valdinu sem fylgir yfir- ráðum yfir fjármagni er dreift á meðal allra landsmanna. Draumurinn er að allir eigi hlut- deild í þjóðarauðnum, „en séu ekki einungis leiguliðar eða starfsmenn ríkisins“. Það var einlæg sannfæring Eykons, líkt og allra forystu- og hugsjónamanna Sjálfstæðis- flokksins fyrr og síðar, að nauðsynlegt væri að örva sem „allra flesta til þess að gerast sjálf- stæðir atvinnurekendur, hvort heldur þeir taka sér fyrir hendur að reka trillubát eða iðjuver“. Ekki fyrir fáa útvalda Davíð Oddsson mótaði þessa hugsjón sjálf- stæðismanna í nokkrum meitluðum orðum á Viðskiptaþingi Verslunarráðs í febrúar 2004: „Tilgangur baráttu okkar fyrir einstaklings- frelsinu var aldrei sá að frelsið yrði fyrir fáa út- valda. Of mikil samþjöppun í efnahagslífinu er í mínum huga óæskileg og lítt dulbúin frelsis- skerðing.“ Líkt og Davíð minnti á fyrir liðlega 15 árum kostaði það mikil pólitísk átök að ná samstöðu um nauðsyn þess að ríkið hætti að leika aðal- hlutverkið í íslensku atvinnulífi. Hann óttaðist hins vegar að stuðningur við þá stefnu myndi fjara út „ef þess er ekki gætt að jafnvægi ríki á markaðinum og ekki gíni of fáir yfir of miklu“. Grunnstef sjálfstæðisstefnunnar er frelsið – frelsi til orðs og athafna, sem er hreyfiafl allra framfara og bættra lífskjara. Frelsið virkjar hugvit og útsjónarsemi einstaklinganna. Á Við- skiptaþingi undirstrikaði Davíð Oddsson að frelsi eins mætti aldrei verða annars böl og því væri nauðsynlegt að í gildi væru skýrar reglur sem tryggðu, eins vel og kostur væri, sanngirni og heiðarleika í samskiptum manna. Þær reglur yrðu því að tryggja „að viðskiptafrelsið sé sem mest, að sem flestir fái tækifæri til að keppa og þjóðin fái notið sem ríkulegastra ávaxta af at- vinnustarfseminni“. Hlutdeild í virðisauka Ég hef áður haldið því fram að eðlilegt sé og sanngjarnt að almenningur fái að njóta með beinum hætti þess virðisauka sem hefur mynd- ast innan veggja bankanna frá endurreisn þeirra. Til þess er engin leið betri en að ríkið af- hendi hverjum og einum hlutabréf í bönkunum. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðis- flokksins, varpaði fram þessari hugmynd í ræðu á landsfundi 2015. Frá þeim tíma hefur staðan styrkst. Uppgjör þrotabúa gömlu bankanna tókst einstaklega vel, stöðugleikaframlög og sala á hlut ríkisins í Arion banka hefur aukið svig- rúmið til að láta almenning njóta ávaxtanna með beinum hætti. Það er í takt við grunntón Sjálfstæðisflokksins að senda landsmönnum beinan hlut í bönkunum. En fleira skiptir þar máli. Dreift eignarhald – auðstjórn almennings og valddreifing – mun ekki aðeins auka aðhald að mikilvægum stofn- unum samfélagsins heldur einnig styrkja tiltrú og eyða tortryggni í garð fjármálakerfisins. „Fjármálakerfið á að vera traust og þjóna samfélaginu á hagkvæman og sanngjarnan hátt,“ segir í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur. Þar er bent á að eignar- hald ríkisins á fjármálafyrirtækjum sé það um- fangsmesta í Evrópu og „vill ríkisstjórnin leita leiða til að draga úr því“. Stjórnarflokkarnir eru hins vegar ásáttir um að ríkissjóður verði „leið- andi fjárfestir í að minnsta kosti einni kerfislega mikilvægri fjármálastofnun“. Hér er um eðli- lega og sanngjarna málamiðlun þriggja ólíkra stjórnmálaflokka að ræða. Landsfundur Sjálf- stæðisflokksins vill ganga lengra og hefur árétt- að að engin þörf sé á „eignarhaldi ríkisins á fjár- málafyrirtækjum til lengri tíma litið“. Í þessu samhengi er vert að hafa í huga að umsvif rík- isins á fjármálamarkaði hér á landi eiga sér enga hliðstæðu í vestrænum ríkjum. Í lok mars nam eigið fé Landsbanka og Ís- landsbanka um 420 milljörðum króna. Verð- mæti bankanna kann að vera eitthvað lægra, en um það veit enginn fyrr en á reynir. Þessum fjármunum er betur varið í að treysta innviði samfélagsins, í samgöngumannvirki, orku- vinnslu og -dreifingu, fjarskipti, skóla, bygg- ingar og tæki fyrir heilbrigðisþjónustu og íþróttahús. Fjárfesting í traustum innviðum, sem eru forsenda hagsældar og bættra lífs- kjara, er arðbærari en að festa fjármuni í áhættusömum rekstri fjármálafyrirtækja. Mismunandi áherslur stjórnarflokkanna og ólík viðhorf til hlutverks ríkisins á fjármála- markaði kemur ekki í veg fyrir að tekin sé ákvörðun um valddreifingu – að afhenda lands- mönnum eignarhlut í bönkunum tveimur sem eru í eigu ríkisins. Um leið er fallist á sann- gjarna kröfu um að almenningur, sem tók þátt í endurreisn fjármálakerfisins, fái eitthvað í sinn hlut – 10-20% á næstu fjórum til fimm árum, samhliða því sem skipulega er dregið úr eigna- haldi ríkisins á fjármálamarkaði. Eftir Óla Björn Kárason Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Gerum alla að kapítalistum – að eignafólki » Það er í takt við grunntón Sjálfstæðisflokksins að senda landsmönnum hlut í bönkunum. Ég verð að segja þetta enn einu sinni: Það er nauðsynlegt að hafist verði handa við skipulega sölu bújarða í eigu ríkisins. Þetta hefur öllum sem til þekkja verið lengi ljóst. Um leið er mik- ilvægt að mótuð sé almenn heildstæð stefna um eignarhald jarða hér á landi og ná sáttum um hvaða kröfur eðlilegt er að gera til eigenda þeirra. Ábúðarkerfið og leigukerfið er gamalgróið og var lengst af í höndum landbúnaðarráðuneytisins, en var fært til fjármálaráðuneytisins fyrir all- mörgum árum. Það tók tíma sinn en nú er loksins búið að setja eig- endastefnu ríkisins um jarðir. Hún er ítarleg og í henni er m.a. að finna stefnumörkun um meðferð ríkisjarða. Ekki aðeins bújarða. Sú stefna er staðfest að ríkið efli og styrki byggð og búsetu við sölu og meðferð bújarða. Efla á landbúnað og sækja fram til blómlegri byggða. Með stefnunni er sérstakur viðauki sem fjallar sér- staklega um ábúðarjarðir, þ.e. jarðir sem eru í rekstri og eru mikilvægar fyrir áframhaldandi búrekstur. Aldrei skal því haldið fram að einfalt verk sé að fylgja slíkri stefnu eftir. En eigendastefnan staðfestir það markmið að stuðla eigi að aukinni byggðafestu. Í umræðu um jarðir og eignarhald hefur ríkið því mark- að skýra stefnu. Stefnu sem ber með sér að ekki á nokkurn hátt er ætlunin að verða til þess að veikja byggð og búsetu í sveitum. Það er ástæða til að draga þetta fram því í fréttum eru oft viðraðar áhyggjur fólks af jarðasöfnun inn- lendra og/eða erlendra auðmanna. Ríkið hefur engan hug á að selja jarðir sínar til að styðja þá þróun. En spyrja má á móti – hvaða stefnu hafa núverandi eig- endur jarða? Þarf frekari reglur um eignarhald jarða? Umræðan um eignarhald hefur verið mjög lífleg frá breytingu jarðalaga 2004. Þá var m.a. fellt á brott ákvæði um forkaupsrétt sveitarfélaga. Réttur sem var til að gefa samfélögum færi á að hafa áhrif á þróun byggðar. Sveitarfélög fara með skipulagsvaldið og hafa marg- vísleg úrræði til að hafa raunveruleg áhrif á þróun byggðar og eignarhalds á jörðum. Hvers vegna er ekki umræða um að sveitarfélögin beiti þeim? Úrræði sem m.a. felast í valdi til skattlagningar og skilgreiningar á þjónustu við fasteignaeigendur. Oft er vísað til danskra lagaákvæða um búsetu- skyldu á jörðum. Það þarf ekki að vera rangt að beita henni hér á landi í einhverjum mæli. En spyrja má líka hvort sveitarfélög hafi þegar heimildir þannig að þau geti með afgerandi hætti haft áhrif á meðferð og nýt- ingu bújarða eða hvort eigi mögulega að styrkja þær. Um þetta atriði verður að fara fram umræða. Það á ekki að vera sjálfsagt og eðlilegt að leggja niður ábúð og nýtingu bújarða. Til þess standa miklu ríkari hagsmunir en einkahagsmunir jarð- eigandans. Er kæruleysi gagnvart skyldum og hlutverki jarðeigenda? Þeirri spurningu svara ég játandi. Í mín- um huga er spurning um eignarhald – hvort sem það er í höndum innlendra eða erlendra aðila – ekki meginatriði ef jarðir eru setnar og nýttar. Miklu meira máli skiptir hvernig eigendur halda á þessum eignum sínum og nýta þær. Í lögum um fjölbýlishús eru margvísleg íþyngjandi ákvæði og skyldur fasteignaeigenda. Ég vil miklu frekar að við endurskoðun jarðalaga verði skerpt á skyldum jarðeigenda. Það er alvörumál að eiga bújörð. Meðferð hennar og nýting hefur afgerandi áhrif á möguleika þeirra sem búa í nágrenni þeirra og þar með samfélagið sem þær tilheyra Samþjöppun á eignarhaldi hlunnindajarða Ásamt fleiri þingmönnum lagði ég fram frumvarp um breytingar á ákvæðum laga um veiðifélög. Þeim er ætlað að verja og vernda jarðeigendur fyrir að lenda í þeirri stöðu að verða ofurliði bornir af aðilum sem kaupa hlunnindajarðir og ná meirihluta atkvæða í veiðifélögum, oft í þeim eina tilgangi. Auðvitað má halda því fram að slíkt ákvæði skerði eignarrétt. Það er engin að þræta fyrir það. En gleym- um ekki að megintilgangur laga um veiðifélög hefur alltaf verið að standa vörð um byggð og búsetu. Um þetta má m.a. lesa í nýlegum hæstaréttardómi. Hefur það kannski gleymst? Því miður virðist sem margir veiðiréttareigendur hafi fjarlægst meginmarkmið lag- anna eða aldrei skilið þær óskráðu skyldur sem þeir hafa undirgengist. En hver er eigendastefna bændanna sjálfra? Langflestir bændur velja að selja jarðir sínar til áframhaldandi búsetu og rekstrar – sé þess nokkur kostur. En gleymum heldur ekki að skattkerfið hefur haft eyðandi áhrif á byggð undanfarin ár. Því er nauð- synlegt að endurskoða skattalega meðferð á söluverði jarða. Um það hefur og verið lagt fram einfalt og skil- virkt frumvarp. Það má jafnvel halda því fram að skatt- lagning á söluverðmæti jarða hvetji til sölu úr búsetu og nýtingu. Verkefnið um eignarhald jarða og búsetu á þeim er margþætt og verður að ræða heildstætt með hagsmuni sem flestra að leiðarljósi. En öll þessi umræða verður þó aldrei slitin úr sam- bandi við afkomu og samkeppnishæfni landbúnaðar. Jarðir og eignarhald þeirra Eftir Harald Benediktsson » Verkefnið um eignarhald jarða og búsetu á þeim er margþætt. Haraldur Benediktsson Höfundur er 1. þingmaður NV-kjördæmis.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.