Morgunblaðið - 17.07.2019, Page 18
18 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 2019
✝ Friðjón BjörnFriðjónsson, fv.
fjármálastjóri í Vél-
smiðjunni Héðni,
fæddist í Reykjavík
4. september 1936.
Hann lést 10. júlí
2019.
Foreldrar hans
voru Friðjón Guð-
björnsson vélstjóri,
f. 23. október 1905,
d. 29. mars 1982, og
Gunnvör Stefanía Gísladóttir
húsmóðir, f. 13. júní 1910, d. 5.
maí 2004. Friðjón ólst upp á
Grettisgötu 63, þar til hann
stofnaði eigið heimili.
Systkini Friðjóns eru: 1) Jens-
ína Sigríður (Stella), f. 3. mars
1931, d. 8. mars 2000. 2) Jón
Svavar, f. 1. nóvember 1944,
kvæntur Margréti Kristjáns-
dóttur. 3) Gísli Jens, f. 26. apríl
1947, kvæntur Hafdísi Alexand-
ersdóttur. 4) Jórunn, f. 17. mars
1951, var gift Thor Thors, d. 16.
október 2018.
Friðjón kvæntist 14. apríl
1960 Guðbjörgu Svanfríði Run-
ólfsdóttur (Svönu), f. 6. mars
jón Reynir framkvæmdastjóri, f.
18. apríl 1970. Hann er kvæntur
Elizabeth B. Lay doktorsnema,
f. 23. júlí 1976. Dætur þeirra eru
a) Karitas Telma, f. 3. septem-
ber 2003. b) Helena Marín, f. 25.
október 2006.
Friðjón Björn hóf störf hjá
Vélsmiðjunni Héðni eftir út-
skrift frá Verslunarskóla Ís-
lands árið 1954. Hann starfaði
þar alla sína starfævi, lengst af
sem fjármálastjóri. Friðjóni
gegndi ýmsum trúnaðarstörfum
fyrir Val og íþróttahreyfinguna
frá unga aldri. Hann var gjald-
keri knattspyrnudeildar Vals,
gjaldkeri aðalstjórnar Vals, í
fulltrúaráði Vals ásamt fleiri
störfum. Árið 1970 varð hann
gjaldkeri KSÍ, en hann sinnti því
hlutverki til 1984. Einnig var
Friðjón gjaldkeri ÍSÍ frá 1986 til
2004. Friðjón gegndi mörgum
öðrum trúnaðarstörfum fyrir
íþróttahreyfinguna, hann sat
m.a. í stjórn Íslenskra getrauna,
Íslenskrar getspár, Knatt-
spyrnuráði Reykjavíkur og
Íþróttanefnd ríkisins. Friðjón
hlaut margar viðurkenningar
fyrir störf sín að íþróttamálum,
en þar má nefna gullmerki Vals,
gullmerki KSÍ, heiðurskross ÍSÍ
og fálkaorðuna.
Útför Friðjóns fer fram frá
Bústaðakirkju í dag, 17. júlí
2019, klukkan 13.
1940. Foreldrar
hennar voru hjónin
Runólfur Kjart-
ansson kaupmaður,
f. 30. nóvember
1889, d. 23. apríl
1961, og Lára Guð-
mundsdóttir hús-
móðir, f. 31. októ-
ber 1896, d. 10.
janúar 1968. Börn
þeirra eru 1) Lára
Gunnvör hjúkrun-
arfræðingur, f. 23. júlí 1960.
Hún er gift Atla Gunnari Eyj-
ólfssyni hjartaskurðlækni, f. 12.
ágúst 1953. Börn þeirra eru a)
Margrét Lára, f. 13. júní 1985, b)
Björn Ásgeir, f. 12. október
1987, og c) Gunnar Freyr, f. 12.
apríl 1993. 2) Birgir Örn fram-
kvæmdastjóri, f. 19. febrúar
1964. Hann er kvæntur Huldu
Jónsdóttur fjármálastjóra, f. 8.
desember 1962. Dætur þeirra
eru a) Anna María, f. 21. júní
1991, sambýlismaður hennar er
Stefán Þórsson, f. 26. október
1991, sonur þeirra er Birgir
Þór, f. 15. janúar 2019. b) Svana
Björg, f. 15. mars 1999. 3) Frið-
Pabbi var góður og traustur
maður. Aldrei man ég eftir því í
uppvextinum að honum og
mömmu hafi orðið sundurorða,
hann elskaði mömmu og bar
hana á gullstól. Ég hef lært
ýmislegt af pabba í gegnum árin,
en það mikilvægasta sem hann
kenndi mér var að bera virðingu
fyrir fólki og koma fram við fólk
af virðingu. Pabbi var maður
sem var ekki að trana sér fram
eða stæra sig af því sem hann
gerði, heldur vann hann sín verk
hljótt og örugglega. Hann byrj-
aði mjög ungur að sinna trún-
aðarstörfum fyrir Val og var
treyst fyrir mörgum verkefnum
þrátt fyrir ungan aldur. Pabbi
var mikill Valsari og mátti ekki
missa af fótboltaleik hjá Val eða
landsliðinu síðustu ár, ef heilsan
leyfði. Það gaf honum mikið að
við bræður færum með hann á
leikina og honum fannst ómetan-
legt að hitta alla gömlu Valsar-
ana og spjalla við þá. Hann átti
það til að tuða á leikjum yfir
spilamennsku Valsaranna.
„Hvaða rugl er það að senda
boltann til baka, markið er í hina
áttina,“ heyrðist oft í honum. En
þetta gaf honum mikið og er ég
þakklátur fyrir að hafa átt þenn-
an tíma með honum síðustu ár.
Pabbi var gjaldkeri KSÍ frá 1970
til 1984. Á fyrstu árunum var
enginn launaður starfsmaður á
skrifstofu KSÍ, þannig að öll
vinnan var í sjálfboðavinnu
manna eins og pabba. Ég man
eftir því þegar ég fór með honum
á landsleiki á yngri árum að vera
settur í að dreifa leikskrám, fara
síðan upp í heiðursstúku og horfa
á leikinn. Pabbi kom yfirleitt
ekki fyrr en í seinni hálfleik, því
hann sat á skrifstofu vallarvarð-
ar og gerði upp miðasöluna. Síð-
ustu daga hef ég verið að heyra
ýmislegt sem ég vissi ekki en lýs-
ir pabba vel. Sem gjaldkeri ÍSÍ
beitti hann sér sérstaklega í að
greiða götu minni sérsamband-
anna. Hef ég heyrt að hann hafi
reynst Íþróttasambandi fatlaðra
mjög vel þegar það var stofnað,
eins og einn forvígismaður þess
orðaði það „hann var betri en
enginn“.
Pabbi var mikill barnakarl og
elskaði að leika við barnabörnin.
Hann skreið um gólfin og lék við
þau, og voru mamma og hann
alltaf til í að passa. Einu sinni var
hringt í okkur Huldu og spurt
hvort við þyrftum ekki að fara út
að skemmta okkur fljótlega, því
þeim fannst of langur tími liðinn
síðan stelpurnar höfðu gist.
Takk fyrir allar góðu minning-
arnar, pabbi, ég veit þú verður
með okkur í anda á öllum Vals-
leikjunum.
Birgir.
Það er skrítin tilfinning að
setja orð á blað til að minnast
föður síns og nafna. Hvernig
kemur maður orðum að því sem
er inngróið í mann frá fyrstu
stundu? Pabbi var ekki margmáll
og ég veit að ég reyndi stundum
á þolinmæði hans, við vorum
ekki líkir að lundarfari. En ég
veit líka að milli okkar var eitt-
hvað djúpt og gott, væntum-
þykja, ást föður á barni, sonar til
föður. Þegar ég hugsa til pabba í
æsku minni er þar maður sem
vann óhemjumikið, aðallega að
verkefnum sem hann fékk ekki
greitt fyrir að sinna en hafði
ástríðu fyrir. Hann á skrifstof-
unni sinni heima í Geitlandi með
færslubækur KSÍ að færa bók-
haldið og stemma af. Niður af
slætti á reiknivél og útprentun
borðans. Hann að horfa ekki á
landsleiki til enda því það þurfti
að taka saman innkomuna.
Maður sem setti verkefnið alltaf í
fyrsta sæti. Það eru svo ótal aðr-
ar minningar, um gleði og sorg,
ferðir og heimaveru, hrós og
skammir og bara venjulegt, stöð-
ugt, traust heimilislíf í Reykja-
vík. Þá fannst mér að þannig
hlyti lífið að vera um það bil alls
staðar og hjá öllum. En vissi ekki
að þessi hógværi kraftur, vand-
virkni og ákveðni sem bjó í
pabba var ekki endilega einkenni
allra feðra. Það var ekki fyrr en
ég sjálfur komst á fullorðinsár
sem ég áttaði mig til fulls á því
hve traustur, akkúrat og einstak-
ur hann var. Enn seinna áttaði
ég mig líka á því að hann var
mýkri og í raun viðkvæmari en
sú mynd sem ég átti af honum
þegar ég var að alast upp. Hann
var flóknari en myndin sem
barnið bjó til af honum og ung-
lingurinn viðhélt. Ég skynjaði
það djúpt hve dýrmætt það var
honum þegar við Liz, Karitas og
Helena fluttum heim og í næstu
götu við pabba og mömmu. Hvað
hann elskaði það mikið að vera í
kringum stelpurnar og hafa þær
nærri sér. Ég held að það hafi
verið dýrmætasta gjöf sem ég
gat gefið honum um ævina, að
koma heim og vera svona nærri
þannig að hann gat verið stærri
hluti af lífi stelpnanna. Ást hans
á þeim var takmarkalaus. Pabbi
elskaði en sagði það ekki endi-
lega oft. Hann fór sparlega með
orðin og því höfðu þau vigt. Eftir
heilsubrestinn fyrir sjö árum
breyttist lífið. Lífsgæðum hans
hrakaði mjög og við tók nýtt
tímabil, ljósi punkturinn í því var
að við feðgarnir fórum þá saman
á leiki Vals og Íslands. Það gaf
honum mikið að fara á völlinn og
hitta gamla félaga og það gaf
mér, og Bigga bróður ábyggilega
líka, mikið að vera með honum á
þeim stundum. Valur var honum
mikilvægur og hann lagði til
dæmis mikið á sig að safna öllum
Valsblöðum sem komið höfðu út.
Þau voru svo bundin inn og í
fyrra gáfu hann, bræður og syst-
ir og fjölskyldur félaginu þau til
minningar um föður þeirra og
afa sem var órjúfanlegur hluti
útgáfu Valsblaðsins í rúm fjöru-
tíu ár. Þannig vildi hann tryggja
að sagan varðveittist sem og
minning afa. Hann bað aldrei um
viðurkenningu en var óhemju
stoltur þegar hún kom. Fálka-
orðan var honum þannig mikils
virði sem viðurkenning fyrir ára-
tuga sjálfboðastörf fyrir íþrótta-
hreyfinguna. Ósérhlífinn,
hljóður, vandvirkur og hógvær,
þannig var pabbi.
Friðjón Reynir.
Elsku afi Bjössi er fallinn frá.
Heilsu hans hafði farið hrakandi
smátt og smátt síðastliðin ár en
þó var heldur hraður aðdragandi
að andláti afa míns miðvikudags-
morguninn 10. júlí. Við foreldrar
mínir og systir náðum í tæka tíð
að fara til ömmu á líknardeildina
og vera hjá honum síðustu stund-
ir hans. Fyrir það er ég mjög
þakklát.
Afi minn var hlýr og yndisleg-
ur afi. Hann var ekki maður
margra orða nema þegar kom að
fótboltatali, en það var alltaf
stutt í grínið og fimmaura-
brandara. Ég skynjaði alltaf
hvað afi var stoltur af mér og
okkur öllum barnabörnunum og
það var dýrmætt að finna það
svona sterkt frá honum.
Ég á margar góðar minningar
úr barnæsku minni með ömmu
og afa. Uppáhaldið mitt var að fá
að fara í næturpössun til þeirra
og sund í afalaug daginn eftir.
Ég komst ekki að því fyrr en á
fullorðinsárum að afalaug er víst
Sundlaug Seltjarnarness. Eftir
sund í afalaug fengum við okkur
oft ís og einnig var fastur liður á
laugardögum að laumast með afa
inn í búr þar sem hann teygði sig
í fjólubláu nammikörfuna og ég
fékk að velja mér laugardags-
nammi. Mér fannst líka rosalega
gaman að fá að skoða mig um á
skrifstofunni hans afa, gramsa í
skúffunum og leika mér með
reiknivélina hans, stækkunargler
og bréfaklemmur í einhvers kon-
ar töfrandi segulmögnuðu boxi.
Þau voru aðeins öðruvísi leik-
föngin á skrifstofunni hans afa.
Ég deildi því miður ekki eins
miklum fótboltaáhuga með afa
og pabbi og systir mín en það var
alltaf gaman að hlusta á þau
ræða gengi Valsmanna eða Man-
chester United og afi var sáttur
við að ég hefði valið mér United-
mann sem lífsförunaut. Fyrir
hálfu ári kom sonur okkar, Birg-
ir Þór, í heiminn, fyrsta langafa-
barn afa Bjössa. Ég er mjög
þakklát fyrir að afi hafi aðeins
náð að kynnast Birgi Þór en á
sama tíma sorgmædd yfir því að
hann hafi ekki fengið lengri tíma
til að sjá hann vaxa úr grasi.
Elsku besti afi minn, ég mun
sakna þín alveg ógurlega mikið.
Ég mun sýna Birgi Þór mynd-
irnar af ykkur og segja honum
frá flotta langafa sínum. Ég ætla
að kveðja þig hér með sömu
kveðju og við sögðum alltaf und-
anfarin ár en nú vantar þig til að
segja á móti mér: „I love you, I
love you too, I love you three, I
love you four, I love you more.“
Anna María Birgisdóttir.
Þrátt fyrir að við höfum búið
alla okkar ævi í útlöndum hefur
afi alltaf verið stór hluti af lífi
okkar, alltaf nálægur frá því að
við fæddumst og hefur síðan
fylgt okkur inn í fullorðinsárin.
Það hefur þýtt að við höfum
ávallt haft trausta höfn að koma
til á Íslandi. Við höfum getað
komið heim og vitað að á móti
okkur yrði alltaf tekið með ástúð
og kærleika á heimili afa og
ömmu.
Við litum upp til hans vegna
þess að hann kenndi okkur að
meta það sem er mikilvægt í líf-
inu. Gjafmildi, réttlæti og að
meðhöndla hvert annað og aðra
með virðingu. Að fjölskyldan sé
það mikilvægasta sem við eigum.
Hann kenndi okkur líka að
skrifa. Hann sá til þess að við
gætum bæði lesið og skrifað á ís-
lensku, sem er mikilvægt fyrir
börn sem búa í útlöndum.
Stundum var hann sá eini sem
gat huggað okkur þegar við vor-
um leið. Góðmennska hans í okk-
ar garð var einstök.
Við hlökkuðum alltaf mest til
þess að vera hjá afa og ömmu
þegar við komum til Íslands og
tilhlökkunin var ekki minni þeg-
ar þau komu í heimsókn til okkar
í Svíþjóð. Vögguvísurnar og
barnalögin sem hann söng fyrir
okkur mörg hundruð sinnum
þegar við vorum að fara að sofa
eru vísur sem við eigum eftir að
syngja fyrir okkar börn í fram-
tíðinni. Það hafa verið hápunktar
lífsins að hafa fengið þessar
stundir með afa og ömmu. Það
væri bara hálf sagan sögð að
kalla afa okkar besta afa í heimi,
en þannig var það bara. Hann
var bestur.
Við erum sannarlega glöð yfir
því að hafa átt okkar afa Bjössa,
og finnum nú fyrir djúpri sorg
þegar hann er horfinn. Við mun-
um alltaf sakna hans.
Margrét Lára,
Björn Ásgeir og
Gunnar Freyr.
Elsku afi Bjössi er látinn. Ég
á margar góðar minningar um
hann, en þær sem standa upp úr
eru ferðir okkar á Hlíðarenda að
horfa á fótboltaleiki, enda var
það sameiginlegt áhugamál okk-
ar. Við fórum á eins marga Vals-
leiki og við gátum, það er að
segja ef heilsan leyfði. Honum
fannst skemmtilegast að fara
með mér á leiki Vals-Víkings og
gerði hann mikið grín að mér ef
Valur vann, þar sem ég er Vík-
ingur.
Hann var virkilega ánægður
þegar ég fór að æfa fótbolta og á
að hafa sagt að „loksins væri ein-
hver í fjölskyldunni sem horfir
ekki bara á fótbolta en getur
einnig eitthvað“. Hann hefði
frekar viljað að ég hefði æft hjá
Val en sætti sig við að ég væri í
Víkingi.
Afi var alltaf gjafmildur, hvort
sem það var að lauma til manns
litlum smarties-pökkum þegar
maður kom í heimsókn eða gefa
manni gjaldeyri áður en farið var
til útlanda.
Ég á svo margar góðar minn-
ingar um afa Bjössa sem gera
mig klökka núna, en munu síðar
láta mig brosa.
Með sömu orðum og þú
kvaddir mig svo oft með, kveð ég
þig núna, elsku af:
Áfram Valur.
Þín
Svana Björg.
Afi okkar var umhyggjusam-
ur, góður og skemmtilegur.
Stundum stríddi hann okkur
pínulítið, alltaf góðlega. Hann
passaði upp á að eiga það sem
okkur fannst best þegar við kom-
um í heimsókn, hvort sem það
var í stutt stopp eða til að gista.
Við munum sakna þess að hitta
hann og vera með honum á
Norðurbrú og við munum við
sakna ísbíltúranna. Það var líka
gott þegar við bjuggum í Garða-
bæ og gátum alltaf hlaupið yfir
til afa og ömmu. Við vitum að
hann elskaði okkur og við elsk-
uðum hann. Það var gott að eiga
hann að, að eiga hann sem afa.
Við munum alltaf sakna hans.
Karitas og Helena
Friðjónsdætur.
Góður vinur minn er látinn.
Friðjón Björn Friðjónsson (kall-
aður Bjössi af fjölskyldu og vin-
um) lést sl. miðvikudag eftir erfið
veikindi. Við nokkrir skólafélag-
ar úr Versló stofnuðum spila-
klúbb áður en við útskrifuðumst.
Bjössi gekk fljótlega til liðs við
okkur þótt hann væri lítið eitt
eldri en við hinir. Allir höfðum
við áhuga á bridsíþróttinni og
sömdum nokkur afbrigði til þess
að bæta spilamennskuna.
Við spiluðum til skiptis á
heimilum hver annars. Það leiddi
til ævilangrar vináttu ekki aðeins
milli okkar strákanna heldur líka
milli fjölskyldna okkar. Við vor-
um þakklátir eiginkonum okkar
fyrir frábærar veitingar öll þessi
nær 60 ár, eða þar til Bjössi
veiktist alvarlega. Allir áttum við
börn og það var einkar ánægju-
legt að fylgjast með þeim vaxa úr
grasi og fullorðnast og eignast
börn og barnabörn. Allir vorum
við í góðri vinnu og Bjössa voru
falin ábyrgðarmikil störf og var
fjármálastjóri Vélsmiðjunnar
Héðins um árabil. Þótt þrír af
spilafélögunum kæmu af sama
vinnustað og ég úr annarri átt
var ekki rætt um vandamál sem
ég átti stundum við að glíma
vegna starfa minna. Fyrir það
var ég ævinlega þakklátur.
Bjössi stundaði knattspyrnu á
sínum yngri árum og náði góðum
árangri. Hann var var mikill
Valsari og velgengni félagsins á
knattspyrnuvellinum skipti hann
miklu máli enda valdist hann
fljótlega til forystustarfa fyrir fé-
lagið. Í Valsheimilinu áttum við
margar ánægjustundir því sumir
okkar spiluðum þar badminton
okkur til ánægju og heilsubótar.
Það jók á gleðina þegar Úlfar
augnlæknir bættist í hópinn,
vegna forfalla einhvers okkar, og
dæmdi alla vafabolta inni hjá sér
en alla bolta úti hjá þeim sem
spiluðu gegn honum. Fyrr á ár-
um áttum við þrír félagar sam-
eiginlegt áhugamál; að spila golf.
Það veitti okkur margar ánægju-
stundir og þar sýndi Bjössi mikla
hæfileika.
Það átti fyrir Bjössa að liggja
að starfa mikið fyrir íþrótta-
hreyfinguna. Hann sat í stjórn-
um KSÍ og Íþróttasambands Ís-
lands um langa hríð og naut þar
mikils trausts. Hann var gjald-
keri beggja sambandanna enda
vandfundinn áreiðanlegri maður
til að annast fjármál svo fjöl-
margra sambanda en Bjössi.
Það kom því ekki á óvart að
hann skyldi sæmdur hinni ís-
lensku fálkaorðu fyrir störf sín í
þágu íþróttahreyfingarinnar.
Bjössi var mikill gæfumaður í
einkalífinu. Hans ágæta eigin-
kona, Svana Runólfsdóttir, er
mikil sómakona og tókst vel að
ala upp þrjú börn sem öll eru hin
vænlegustu og hefur farnast vel í
lífinu. Mjög hefur reynt á Svönu í
þeim erfiðu veikindum sem
Bjössi hefur þurft að ganga í
gegnum frá því að hann varð fyr-
ir því að fá heilablæðingu. Fyrir
ást hennar og umhyggju erum
við vinir þeirra ævinlega þakk-
látir.
Blessuð sé minnig Bjössa og
færi ég Svönu og börnum þeirra
og barnabörnum hugheilar sam-
úðarkveðjur.
Kristján Ragnarsson.
Bjössi var ekki maður margra
orða. Hljóður, íhugull, kíminn
sem elskaði fjölskylduna sína
meira en allt.
Ég varð þeirrar gæfu aðnjót-
andi að dvelja á heimili þeirra
Svönu frænku á menntaskólaár-
um mínum. Það voru góð ár. Með
okkur myndaðist góð og náin
vinátta. Traustari mann en
Bjössa var vart að finna og gott
að leita til hans. Þessi ár sem ég
var hjá þeim í Geitlandinu var
Bjössi sívinnandi. Hann starfaði
fyrir KSÍ í hjáverkum og ég
minnist þess þegar ég var í próf-
lestri niðri í herbergi og hann í
bókhaldsvinnu fyrir KSÍ uppi að
heyra tikkið í reiknivélinni ber-
ast niður til mín. Langt fram á
nótt og ég ákvað að lesa á meðan
tikkið heyrðist. Læddist öðru
hvoru upp til að segja hæ og
snáfaði svo niður aftur til að læra
meira.
Í Geitlandinu kynntist ég fyrst
ótrúlegum áhuga á enskri knatt-
Friðjón Björn
Friðjónsson
Sálm. 16.11
biblian.is
Kunnan gerðir þú
mér veg lífsins,
gleðignótt er fyrir
augliti þínu, yndi í
hægri hendi þinni
að eilífu.