Morgunblaðið - 17.07.2019, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 17.07.2019, Qupperneq 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 2019 spyrnu. Ég bara skildi ekki hvernig hægt var að sitja við skjáinn alla laugardaga og horfa á enska boltann. Þetta voru Bjössa heilagar stundir og betra að vera ekkert að trufla þá næðisstund. Bjössi hafði afar skemmtilega kímnigáfu. Foreldrar mínir sögðu þá sögu að einhverju sinni þegar þau voru öll fjögur úti að skemmta sér og settust inn á Loftleiðabarinn, þá hefði Bjössi gengið milli manna á barnum og spurt hvort þeir væru í knatt- spyrnufélaginu Val. Svarið var náttúrlega oftar nei en já og hann vísaði því fólki umsvifalaust út af barnum. Auðvitað endaði þetta á að þau sátu ein að barnum. Ég kveð góðan mann með virðingu og væntumþykju í huga. Fjölskyldunni allri votta ég mína dýpstu samúð. Vera Ósk Valgarðsdóttir. Góður félagsmaður orðaði það svo á sínum tíma: Valur er ekk- ert annað en ég, þú og allir hinir. Og þannig er það með Val eins og önnur íþróttafélög að einstak- lingarnir móta félögin og gengi þeirra. Nú kveðja Valsmenn einn sinna allra bestu manna þegar Friðjón Björn Friðjónsson hefur lokið sinni jarðarvist. Friðjón bókstaflega fæddist inn í félagið sem sonur Friðjóns Guðbjörns- sonar sem var ötull í starfi fyrir félagið og í áratugi sá um fjár- hagshliðina á Valsblaðinu sem komið hefur út nærri linnulaust frá 1939. Friðjóni voru snemma falin trúnaðarstörf innan Vals, ekki sízt þar sem laut að fjár- málum, enda afar traustur og staðfastur og var af þeirri teg- und manna sem ávinna sér virð- ingu þeirra sem þeir umgangast. Það var sóst eftir Friðjóni og eft- ir að langvarandi stjórnarsetu lauk hjá Val sat Friðjón í langan tíma sem gjaldkeri KSÍ og seinna í sama verkefni hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Ís- lands. Honum var sýnt þakklæti með fjölda heiðursveitinga, nú síðast með fálkaorðunni 2014. Alltaf lét hann málefni Vals sig miklu varða og var duglegur að sækja leiki, atburði og fundi í Fulltrúaráðinu jafnvel eftir að heilsunni hafði hrakað og naut þá styrkrar aðstoðar sona sinna Birgis og Friðjóns sem var for- maður knattspyrnudeildar um tíma. Í öllum sínum störfum fyrir Val naut hann stuðnings eigin- konu sinnar Svönu Runólfsdótt- ur sem ávallt sýndi félaginu vin- arhug. Mér er minnisstætt símtal frá Friðjóni fyrir örfáum árum eftir leik meistaraflokks karla í Val sem var heldur slak- ur. Segðu mér, Halldór, kunna þessir drengir ekki lagið; næsta mann hvar er hann, og áfram heldur textinn, það er líf og fjör í leikjum okkar, Valsmenn. Frið- jóni fannst leikmönnum hafa tek- ist afar illa í þessum leik og vildi að ég gengi í það að kenna leik- mönnum þennan góða texta sem enn er í fullu gildi meira en hálfri öld síðar. Þó að Friðjón væri traustur sem klettur sá hann hið spaugilega og brosti bara þegar við vorum í boði hjá sendiherra Íslands í Brussel í tengslum við tvo leiki í Evrópukeppni gegn Anderlecht. Spurningin snerist um það hvort við leikmennirnir mættum þiggja bjór tveimur dögum fyrir seinni leikinn og ég spurði Friðjón um leyfi fyrir okkar hönd og hann samþykkti einn bjór á mann til að skála fyr- ir sendiherranum. Það er skemmst frá því að segja að eitt- hvað klikkaði talningin og við fórum syngjandi frá sendiherr- anum en stóðum okkur flott í leiknum gegn hinu frábæra liði Anderlecht. Það var afar ánægjulegt þegar Gísli, bróðir Friðjóns, gaf félaginu endur- gerðan „járnfuglinn“ sem gerður var á sínum tíma af Sigurjóni Ólafssyni enda varla fært að end- uropna Fjósið, félagsheimili Vals, án fuglsins sem horfið hafði einhverjum árum áður. Það var síðan falleg stund við enduropn- un Fjóssins á síðasta ári þegar Friðjón og fjölskylda færði félag- inu innbundin í skinnband öll Valsblöðin frá 1939, sannarlega vitnisburður um ræktarsemi þessarar góðu fjölskyldu við sitt gamla félag. Samúðarkveðjur eru hér færðar fjölskyldu og vinum. Halldór Einarsson, f.h. Fulltrúaráðs Vals. Kveðja frá Knattspyrnu- sambandi Íslands Knattspyrnuhreyfingin kveð- ur í dag mikinn heiðursmann og góðan félaga. Friðjón B Frið- jónsson var um langt skeið, eða árin 1971-1984, gjaldkeri KSÍ. Áður hafði hann sinnt trúnaðar- störfum hjá knattspyrnufélaginu Val um árabil eftir að hafa leikið með yngri flokkum félagsins. Hann var einnig gjaldkeri ÍSÍ í áratug. Fyrir þessi störf sín hlaut Friðjón silfur-, gullmerki og heiðurskrossa, sem endurspegl- aði hans óeigingjarna starf fyrir íþróttahreyfinguna í áratugi. Friðjón var í miklum metum þeirra sem með honum störfuðu. Hann var einstaklega fórnfús og samviskusamur í sínum störfum og taldi það ekki eftir sér að sinna viðamiklu bókhaldi KSÍ á kvöldin og um helgar í skrif- stofuherberginu á heimili sínu í Fossvoginum. Þessu kynntist ég sem strákur þegar ég heimsótti minn góða vin Birgi, son Frið- jóns. Knattspyrnuhreyfingin hefur verið rík að eiga svona menn að eins og Friðjón. Það var ómetanlegt að vita af bókhaldinu í þeim traustu hönd- um Friðjóns öll þessi ár. Friðjón hafði aldrei þörf á því að hampa sínum fjölmörgu verkum fyrir KSÍ, Val og ÍSÍ heldur lét hann verkin tala. Ég fann það einnig sjálfur, sem fjölskylduvinur, hvað Friðjón var einstaklega traustur og góður maður sem hugsaði alla tíð vel um fjölskyldu sína. Það vissu allir að Friðjón var maður sem hægt var að reiða sig á. Eftir að Friðjón veiktist fyrir nokkkrum árum hélt hann tengslum við fótboltann og var ötull að mæta á völlinn, bæði á landsleiki og á Hlíðarenda á Valsleiki. Það var ljúft að sjá þá feðga mæta á völlinn saman og syni hans passa upp á að pabbi þeirra gæti mætt sem oftast þrátt fyrir heilsubrest. Þetta hef- ur gefið þeim dýrmætar stundir saman. Nú er komið að kveðjustundu hjá Friðjóni. Mig langar til þess að þakka honum fyrir hönd knattspyrnuhreyfingarinnar hans frábæra og fórnfúsa starf í gegnum árin. Ég vil líka þakka honum samfylgdina og þá hlýju og stuðning sem hann sýndi mér alla tíð. Það var alltaf gott að hitta á fjölskylduna í Geitlandinu í þá daga sem nú og ykkar miss- ir, kæra fjölskylda, er mikill. En eftir stendur falleg minn- ing þess mæta manns Friðjóns B. Friðjónssonar sem gaf svo mikið og hugsaði vel um sitt fólk alla tíð. Sorgin í dag endurspegl- ar það góða líf sem Friðjón lifði með fjölskyldu og vinum. Ég sendi Svönu eiginkonu Friðjóns og börnum þeirra Láru, Birgi og Friðjóni ásamt tengda- börnum, barnabörnum og öðrum ástvinum mínar innilegustu sam- úðarkveðjur. Blessuð sé minning Friðjóns B. Friðjónssonar. Guðni Bergsson, formaður KSÍ. Íþróttahreyfingin kveður nú Friðjón B. Friðjónsson, heiðurs- félaga ÍSÍ. Friðjón var gjaldkeri fram- kvæmdastjórnar ÍSÍ frá árinu 1986 til 2004 en áður sinnti hann leiðtogastörfum fyrir Knatt- spyrnufélagið Val og Knatt- spyrnusamband Íslands. Friðjón var sæmdur Gullmerki ÍSÍ árið 1982 og Heiðurskrossi ÍSÍ árið 1996, fyrir frábær störf í þágu íþróttahreyfingarinnar og var svo kjörinn heiðursfélagi ÍSÍ, sem er æðsta viðurkenning íþróttahreyfingarinnar, á 67. íþróttaþingi ÍSÍ árið 2004. Friðjón sinnti fjölmörgum ábyrgðarstörfum fyrir íþrótta- hreyfinguna í gegnum árin og sinnti þeim öllum af mikilli sam- viskusemi og alúð. Það felst mikil ábyrgð og vinna í starfi gjald- kera ÍSÍ og vinnustundirnar sem Friðjón vann í sjálfboðaliðastarfi fyrir sambandið þau átján ár sem hann gegndi því embætti eru óteljandi. Hann var rólegur og ljúfur maður og enginn asi eða læti í kringum hann. Friðjón kom reglubundið við á skrifstofu ÍSÍ um hádegisbilið, þegar hann sat í stjórn ÍSÍ, og kom þá gjarn- an flautandi inn ganginn þannig að allir viðstaddir vissu að hann væri mættur á svæðið. Hann sýndi ÍSÍ alla tíð mikla tryggð og mætti á alla viðburði á vegum sambandsins þegar hann hafði heilsu til. Alltaf urðu fagnaðar- fundir þegar Friðjón kom á stað- inn enda átti hann marga vini í höfuðstöðvunum í Laugardal. Svana, eiginkona hans, og fjöl- skyldan öll var óþreytandi að að- stoða hann við að mæta á knatt- spyrnuleiki og á viðburði ÍSÍ eftir að heilsan var farin að gefa sig. Þannig náði hann að fylgjast áfram með starfinu og hitta fé- laga sína úr hreyfingunni. Það er með söknuði sem við kveðjum góðan vin og félaga og þökkum áratuga samleið og ómetanlegt framlag til íþrótta- starfs á Íslandi. Stjórn og starfsfólk ÍSÍ sendir fjölskyldu Friðjóns og aðstand- endum öllum innilegar samúðar- kveðjur. Minning hans mun lifa. Lárus L. Blöndal, forseti ÍSÍ. Einn af helstu höfðingjum Knattspyrnufélagsins Vals er fallinn frá. Saga Friðjóns B. Friðjónssonar og Vals hefur ver- ið samtvinnuð áratugum saman en hann ólst upp á Grettisgötu, eins og fjölmargir aðrir Vals- menn, og tilheyrði hjartahlýrri og traustri Valsfjölskyldu. Frið- jón var einstakur liðsmaður í fé- laginu en sem keppnismaður fór hann með 2. flokki til Þýskalands árið 1954. Sú ferð var rómuð. Í kjölfar þess gegndi hann ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Val, síðar KSÍ og ÍSÍ, og var eftirsóttur sem slíkur enda nákvæmari, heiðarlegri og traustari einstak- lingur vandfundinn. Friðjón var í fyrsta ungling- aráði Vals árið 1958, sat í að- alstjórn fyrir deildaskiptinguna og síðar í um fimm ár í stjórn knattspyrnudeildar. Hann var einn þeirra sem gáfu Valsblaðinu líf þegar það var að lognast út af og fjármagnaði það upp á eigin spýtur. Þá sat hann í fulltrúaráði Vals allt til dauðadags. Friðjón vann alla tíð hjá Vél- smiðjunni Héðni og gamall sam- starfsfélagi hans þar og hjá Val sagði að honum væri best lýst með þremur orðum: Traustur, tryggur og trúr sínu félagi. Þrátt fyrir veikindin naut Friðjón þess augljóslega að koma á Hlíðarenda og var þar reglulegur gestur allt þar til yfir lauk. Persónulega þótti mér ánægjulegt að sjá hversu mik- illar virðingar hann naut. Glampinn í augum hans sagði allt sem segja þurfti um það að fá að anda að sér Valsandrúms- loftinu á heimavelli í góðra vina hópi. Það sem Friðjón stóð fyrir alla ævi er það sem Knatt- spyrnufélagið Valur vill ævin- lega standa fyrir. Við Valsmenn stöndum í þakkarskuld við Friðjón fyrir þann kærleik sem hann sýndi fé- laginu, tryggðina og traustið, og andi hans mun svífa yfir Hlíð- arenda. Við í Val vottum fjölskyldu Friðjóns og vinum samúð okkar og þökkum fyrir ferðalagið. F.h. Knattspyrnufélagsins Vals, Þorgrímur Þráinsson. Hugurinn reikar rúmlega 30 ár aftur í tímann. Ég, nýráðinn til ÍSÍ, hitti þar fyrir Friðjón gjaldkera sambandsins. Hann var alvarlegur, brúnaþungur og fámáll. Mér var nokkuð brugðið ef satt skal segja og ekki alveg viss um hvernig okkar samstarf yrði eftir þessi fyrstu kynni. Þær áhyggjur hurfu fljótt því að við smullum saman og úr varð ein- stök samvinna og vinátta sem hefur varað æ síðan. Glöggur, fjölfróður, heiðarlegur, traustur, áreiðanlegur og einstaklega skemmtilegur þegar hann vildi það við hafa. Allt eru þetta lýs- ingar á Friðjóni vini mínum sem við kveðjum í dag. Friðjón var öflugasti sjálf- boðaliði í íþróttahreyfingunni sem ég hef kynnst. Hann var alltaf valinn til að stýra og bera ábyrgð á fjármunum sem segir mikið um mannkosti hans. Gjaldkeri KSÍ í 13 ár og gjald- keri ÍSÍ í 18 ár, sat í stjórnum Íslenskra getrauna og Íslenskr- ar getspár fyrir samtökin í ára- raðir. Allt í sjálfboðavinnu. Á þessum tíma voru ekki margir starfsmenn sem störfuðu á skrif- stofum sambandanna. Friðjón tók því bókhald sambandanna með sér heim til sín og merkti fylgiskjöl fyrir bókarann, reikn- aði út lottóið o.s.frv. Allt á stofu- borðinu í Geitlandi. Fyrir frábær störf sín fékk Friðjón æðstu við- urkenningar íþróttahreyfingar- innar og hina íslensku fálkaorðu. Fáir menn hafa haft jafn mikil og mótandi áhrif á mig og Frið- jón á lífsleiðinni. Hann var góður vinur, leiðbeindi og kenndi. Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið að ferðast með og kynnast þess- um góða dreng. Friðjón var mikill fjölskyldu- maður og stoltur af sínu fólki. Við Vala sendum Svönu, Láru, Bigga, Friðjóni og þeirra fjöl- skyldum innilegar samúðar- kveðjur. Minning hans lifir. Stefán Snær Konráðsson. Gústaf Óskars- son kennari og einn af okkar bestu og virkustu fé- lögum í Félagi eldri borgara í Hveragerði er látinn. Þegar við Ragnheiður kona mín fluttum hingað austur í Hveragerði fyr- ir fjórtán árum gengum við strax í þetta ágæta félag. Krist- björg Markúsdóttir kona Gúst- afs og frænka konu minnar var þá formaður þess. Ég man ennþá hvað allir tóku vel á móti okkur og vildu allt fyrir okkur gera. Það kom brátt í ljós að við höfðum svipuð áhugamál, en það voru söngur og bók- menntir. Það leið ekki á löngu þar til Gústaf fékk mig til að mæta á söngæfingu hjá Hvera- fuglum og við höfum síðan sungið saman í tenórnum alla tíð þar til nýlega að hann varð að hætta vegna heilsuleysis. Gústaf var mjög músíkalskur maður og tónmenntaður, hafði sungið lengi í mörgum kórum og var því okkar fyrirmynd í öllu sem söngnum tilheyrði. Við sungum víða í bæjunum á Suð- urlandi og víðar og einu sinni fórum við til Færeyja sællar minningar og sungum þá í Friðrikskirkjunni og gerðum víðreist um eyjarnar. En það var meira en söng- urinn sem sameinaði okkur. Fljótlega var stofnaður nýr bókmenntahópur hjá félaginu og við Ragna vorum fengin til að sjá um hann fyrstu árin. Þar mættu þau hjón bæði og hafa Gústaf Óskarsson ✝ Gústaf Ósk-arsson fæddist 3. júlí 1933. Hann lést 2. júlí 2019. Útför hans fór fram 12. júlí 2019. tekið virkan þátt í störfum hans alla tíð síðan. Það fór ekki fram hjá nein- um að þarna kom Gústaf mjög sterk- ur inn. Hann lagði sig fram við að lesa upp úr bókum sem hann hafði dá- læti á og einkum las hann vel upp ljóð. Það var sér- staklega eitt ljóð sem hann las upp með slíkum hætti að það lá við að tárin rynnu niður kinn- arnar. Það var ljóðið Karl faðir minn eftir föður minn Jóhann- es úr Kötlum. Engan mann hef ég heyrt lesa það af meiri inn- lifun. Gústaf átti ættir að rekja til Færeyja, þess ágæta lands, en faðir hans Óskar Jensen prent- ari var sonur færeysks sjó- manns á Ísafirði, Jens Friðriks Jensens. Óskar varð meira en 102 ára gamall og varð því með elstu prenturum landsins. Bróðir Gústafs er líka prentari og listelskur maður, en hann heitir Ómar Óskarsson, hinn þekkti blaðaljósmyndari Morg- unblaðsins, og hefur sérhæft sig í að taka myndir af fuglum. Þeim sem vilja vita meira um Gústaf er bent á að fara inn á vefsíðuna en þar er hann á tímalínu listamanna í Hvera- gerði. Einnig er hann á vefsíð- unni í þættinum Ljóðið mitt og fjallar hann þar lítillega um ljóðið Karl faðir minn og skáldið. Gústaf var jarðsunginn frá Hveragerðiskirkju 12. júlí sl. og við Ragna þökkum honum fyrir samfylgdina og sendum Kristbjörgu og allri fjölskyld- unni innilegar samúðarkveðjur. Svanur Jóhannesson. Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Elsku mamma mín og besti vinur, JÓFRÍÐUR BJÖRNSDÓTTIR, Snorrabraut 56 b, Reykjavík, lést mánudaginn 8. júlí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. F.h. fjölskyldunnar, Inga Rún Kristinsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SÓLVEIG ÞRÁNDARDÓTTIR, Mararbraut 5, Húsavík, lést mánudaginn 8. júlí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að hennar eigin ósk. Sérstakar þakkir eru færðar til starfsfólks HSN, Húsavík, fyrir einstaka alúð og umhyggju. Ása Kristín Jónsdóttir Einar Sighvatsson Þórný Jónsdóttir Helgi Jóhannesson Þorgrímur Fr. Jónsson Ásdís Brynja Jónsdóttir Arnar Sigurðsson barnabörn og barnabarnabörn Maðurinn minn og besti vinur, INGVAR SIGMUNDSSON, lést 29. júní á Heilbrigðisstofnun Vesturlands Akranesi. Jarðað var í kyrrþey 11. júlí frá kapellu HVE. Þökkum veitta aðstoð. Steinunn Kolbeinsdóttir Ásta og Allan Helga og Einar Kolbrún Sigmundur Ingvar og Fríða og fjölskyldur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.