Morgunblaðið - 17.07.2019, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 17.07.2019, Qupperneq 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 2019 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Opin handavinnustofa kl. 9 - 12. Opin smíðastofa kl. 9-15. Bridge kl. 12.30. Opið hús, t.d. vist og bridge kl. 13-15. Opið fyrir innipútt og 18 holu útipúttvöll. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. s: 535-2700. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffi og blöðin við hringborðið kl. 8.50. Frjálst í Listasmiðju kl. 9-16. Hádegismatur kl. 11.30 Salatbar kl. 11.30-12.15. Miðvikufjör Jón Unnar kemur og spilar fyrir okkur. Hugmyndasamkeppninni um nafn á nýju æfingartækin lýkur í dag kl. 16. Gáfumannakaffi kl. 14.30. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411-2790. Félagsmiðstöðin Vitatorgi Postulínsmálun kl. 9. Göngutúr um hverfið kl. 13. Heitt á könnunni fyrir hádegi. Hádegismatur frá 11.30 til 12.30 alla daga vikunnar og kaffi frá 14.30 til 15.30 alla virka daga. Á morgun förum við í göngu- og kaffihúsaferð kl. 13. Nánari upplýsingar í síma 411-9450. Verið hjartanlega velkomin. Garðabæ Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10.00. Bridge í Jónshúsi kl. 13.00. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 13 félagsvist. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá 8-16, blöðin og púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45 og hádegismatur kl. 11.30. Gönguferð um hverfið kl. 13.30 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Korpúlfar Ganga kl. 10 í dag, gengið frá Borgum. Opið hús í dag í Borgum frá kl. 13 til 16; félagsvist, hannyrðir, spjallhópur og gleðileg samvera, kaffi á könnunni og kaffimeðlæti. Allir velkomnir. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, morgunleikfimi kl. 9.45, viðtalstími hjúkrunarfræðings kl. 10-12, upplestur kl. 11, hádegisverður kl. 11.30, félagsvist kl. 13.30, síðdegiskaffi kl. 14.30, Bónusbíllinn kl. 14.40, heimildarmyndasýning kl. 16. Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10:30, því miður verður ekki botsía, vatnsleikfimi í sundlaug Seltjarnarness kl. 18:30. Ungmennaráð Seltjarnarness hlakkar til að sjá sem flesta á Nikku- ballinu á morgun milli 15 og 17 við smábátahöfnina. Syngjum, dönsum, tröllum og borðum. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–16. Heitt á könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30–12.15, panta þarf matinn daginn áður. Handavinnuhópur hittist kl. 13. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30–15.30. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Vantar þig fagmann? FINNA.is Þorgeir tengdafaðir minn er fallinn frá – hann var hvíldinni feginn. Þegar ég hitti Þorgeir fyrst, þá var ég búinn að þekkja Fjólu dóttur hans í tvær vikur – óvænt þurftum við gistingu á Norðurlandi, þá var ekkert ann- að en að heimsækja Brekkugöt- una á Akureyri. Þorgeir sat í horni sínu, í blámálaða eldhús- inu, með kaffibolla á fallegri undirskál. Hann spurði mig hvað ég gerði og hver mín stefna væri í lífinu. Hann sýndi því mikinn áhuga og fannst greinilega mjög jákvætt þegar ég sagðist hafa áhuga á vísindum. Ég komst reyndar að því nýlega að á sín- um tíma varð Þorgeir sér úti um efni um efnafræði til að dýpka skilning sinn á mínu fagi. Þetta þótti mér mjög vænt um, þarna sýndi hann áhuga á starfi mínu enda ræddum við mikið saman um mál sem tengdust raun- og heilbrigðisvísindum. Þetta er jafnframt ágætt dæmi um fróð- leiksþorsta Þorgeirs, metnað og forvitni vísindamannsins. Þorgeir Þorgeirsson ✝ Þorgeir Þor-geirsson fædd- ist 1. ágúst 1933. Hann lést 20. júní 2019. Þorgeir var jarð- settur 12. júlí 2019. Röng mynd birt- ist við grein um Þorgeir og er hún því endurbirt. Beð- ist er velvirðingar á mistökunum. Þorgeir hafði mikinn áhuga á list, hvort sem var myndlist, tónlist eða bókmenntir, og var fróður um sögu. Vinnuherbergið góða, þar sem hann gat setið tímunum saman og grúskað, er gott dæmi um þennan mikla áhuga. Þorgeir var jafnframt góður penni og var reglulega beðinn að yfirfara texta, skrifa greinargerðir og fleira. Í einu af þeim verkefnum sem Þorgeir tók að sér tengdist saman áhugi hans á sögu og læknisfræði, en þar fór hann m.a. í gegnum sjúkraskýrslur Jónasar Hallgrímssonar til að komast að líklegu banameini hans. Helsta ástríða Þorgeirs var samt sem áður ljóðaskrif. Hann notaði ljóð sem tjáningarform og skrifaði fjöldann allan af ljóðum um ævina. Á efri árum tók hann þá ákvörðun að safna helstu ljóð- um sínum saman og gaf alls út fjórar ljóðabækur, sú fyrsta var gefin út af Læknafélagi Íslands, síðan komu út eftir hann þrjár bækur eftir að hann settist í helgan stein. Mér er minnisstætt hvernig hann sýndi tónlistarnámi barna minna áhuga og mætti nær undantekningarlaust ásamt Kristjönu á hádegistónleika í tónlistarskóla þeirra. Þorgeir notaði m.a. lífsreynslu sína sem efnivið í ljóðabækur sínar og eru nokkur ljóð þar sem barnabörn- in hafa veitt honum innblástur, bæði úr tónlistarnámi þeirra og hversdagsleikanum. Eitt ljóð úr Dagsforminu þyk- ir mér einna vænst um, sem lýs- ir atgangi dóttur minnar við að sparka af sér stígvélum úr fangi mínu, þriggja ára gömul. Stígvél Þegar ég kom heim voru tvö lítil stígvél á tröppunum, ég get ekki gleymt því, tvö lítil stígvél, hlið við hlið rauð og blá með gulri rönd, númer 22, og mér varð hugsað til þess að sú litla er vön að sparka þeim af sér svo sokkarnir fjúka með, ákefðin leynir sér ekki og glóð augnanna, þetta og ótal margt annað hafa tvö lítil stígvél hlið við hlið að segja mér. (Þorgeir Þorgeirsson) Þorgeir var lúmskur húmor- isti sem gat séð spaugilegu hlið- ina á flestu. Síðasta bókin var ekki ljóðabók í þeim skilningi, heldur eins konar samtalsbók milli öldungs og æskunnar, þar kemur húmor Þorgeirs glöggt fram. Ég man að hann átti það til að sitja og horfa á samskipti barna sinna og barnabarna með ákveðnu brosi, greinilegt var að hann sá eitthvað sem honum þótti afar merkilegt, en um leið afar broslegt. Aðstæður leiddu til þess að við Fjóla bjuggum hjá Þorgeiri og gátum sinnt honum áður en hann fór á hjúkrunarheimili. Þrátt fyrir veikindi hans var allt- af stutt í húmorinn. Hann hélt sinni einkennandi kurteisi og hófsemi, vildi helst ekkert láta hafa fyrir sér. Heiðarlegri mann er erfitt að finna. Minning um Þorgeir lifir í huga okkar, blessuð sé minning hans. Trú Ég trúi á fegurð tilveru sálar uppljómun hugans, samhug hárra hnatta alvídd (Þorgeir Þorgeirsson) Baldur Bragi Sigurðsson. „Afi minn er vísindamaður.“ Þessa setningu sagði ég ósjaldan við vini mína þegar ég var lítil. Vísindamenn voru vinsælir kar- akterar í barnaefni á þeim tíma og það að afi minn væri einn slíkur var vægast sagt mjög svalt. Ekki nóg með það, hann krufði lík og geymdi innyflin í krukkum! Afi lifði svo sannarlega inni- haldsríku og spennandi lífi. Utan þess að vera partur af heimi vís- indanna þá spilaði hann djass á píanó, skrifaði ljóð og las gæða- bækur í frítíma sínum. Það er huggun að hugsa til þess að afi og amma séu nú kom- in á sama stað. Þau lifðu lífinu til fulls og fylltu það af myndlist, tónlist, bókmenntum, vísindum og framandi ferðalögum. Afi var góð fyrirmynd fyrir mig, bæði sem barn og fullorðna manneskju. Þó að maður velji vísindi fram yfir list eða öfugt í starfsferli sínum þá sannaði afi að það er alveg hægt að finna nægan tíma fyrir hvort tveggja. Líkkrufningar og djass geta ver- ið ágæt blanda! Vigdís Bergsdóttir. Í æviágripi um Oddnýju Línu Sigurvinsdóttur sem birt var 13. júlí sl. féll niður ein setning sem hljóðar svo: Hún starfaði sem geðhjúkrunarfræðingur úti í Noregi og félagsliði hér heima en Oddný hafði einstakt lag á einstaklingum með geðræn vanda- mál eða þroskaskerðingu af ýmsu tagi og hóf tvívegis nám því tengt en varð frá að hverfa vegna sinna eigin veikinda. LEIÐRÉTT Árið var 1962 í maímánuði sem mér var komið fyrir í pössun hjá móður- fólki en saknaði mömmu mikið og skildi ekki hvers vegna ég mátti ekki vera hjá henni. Það var farið með mig í Laugardalinn á leikjanámskeið en ég strauk þaðan og tók strikið í átt að Gnoðarvogi 24 sem var heilmikið ferðalag fyrir tæplega 5 ára gutta. Þegar ég kom hringdi ég bjöllunni og ókunnug kona Fjölnir Lúðvígsson ✝ Fjölnir Lúð-vígsson fæddist 30. maí 1962. Hann lést 8. júlí 2019. Fjölnir var jarð- sunginn 15. júlí 2019. svaraði. Að sjálf- sögðu kallaði ég: „Mamma, mamma!“ og var mér hleypt upp. Mamma kallaði í konuna: „Guð minn góður! Biggi!“ en sagði svo með lægri röddu: „Komdu inn, Biggi minn.“ Þegar inn var komið í myrkvað herbergið sá ég vöggu og pínu- lítil mannvera lá í henni. Ég stóð þarna agndofa og horfði, þarna vissi ég að ég myndi elska þennan litla bróður minn alla mína ævi. Nú ertu, elsku hjartans bróðir minn, farinn frá okkur öllum allt- of alltof fljótt. Þótt þú hafir vitað í hvað stefndi varstu samt alltaf að plana fram í lokin allskonar hluti; sólpall við húsið, verkfæraskúr, hænsnakofa og ýmislegt annað. Það eru bara fáeinir dagar síðan þú hringdir til að ræða við mig um „koi“-fiskatjörn sem þú ætl- aðir að hafa í garðinum, en við bræður deildum áhuga á fiskum. Mikill gæfumaður varstu þeg- ar þú nældir í hana Ingibjörgu þína og áttuð þið saman þrjú gæfuleg börn, en úti í Ástralíu átt þú frá fyrra sambandi einn son og svo afastráka þar. Mikið var það gleðilegt þegar hann Dane, sonur þinn í Ástralíu, kom óvænt til Ís- lands til að hitta þig þegar þú varst orðinn veikur. Það gladdi ykkur hjónin mikið. Elsku bróðir minn, ég hefði svo sannarlega viljað eiga með þér miklu lengri tíma en ekki gat orðið af því. Elsku Ingibjörg mín, Dane, Rúnar Máni, Birta Líf og Helga Lind, megi öll gæfa, styrk- ur og ást fleyta ykkur öllum í gegnum þessa miklu sorg. Birgir F. Lúðvígsson, stóri bróðir. Elsku Fjölli, mágur minn og vinur, er látinn eftir hatramma baráttu við krabbamein. Upp í hugann koma ljúfar minningar og þakklæti. Þau Ingibjörg systir mín voru samstiga í lífinu þótt vegurinn væri oft og tíðum allt annað en beinn og breiður. Kærleikurinn sem hjónaband þeirra bar með sér var fallegur og einlægur. Ástríkur eiginmaður, pabbi, afi með stórt hjarta hefur kvatt og hans verður sárt saknað. Innilegar samúðarkveðjur, elsku Ingibjörg systir, Dane, Rúnar Máni, Birta Líf, Helga Lind, tengdabörn og barnabörn. Fugl, þú einn flýgur hátt felur þig skýið grátt. Hávær óma harmakvein horfir nið’rá gráan stein. Fugl, þú einn fellir tár fortíð kveður, nýtt er ár. Hnitar hringi yfir breið. Heldur þú svo þína leið? Vængir þandir, vindur hvín vegsemd ár og daga. Hátt þér heilsar sól sem skín. Hvernig er þín saga? Fugl, þú einn flýgur lágt, fagurt land og hafið blátt. Sveiflan mjúk uns allt er hljótt. Söngur inn í dimma nótt. (Abbey Lincoln. Ísl. þýð. GR.) Guðfinna Rúnarsdóttir. Elsku Fjölli okkar. Það myndaðist stórt skarð í okkar samheldnu fjölskyldu þeg- ar þú kvaddir. Þín verður sárt saknað. Í dimmum skugga af löngu liðnum vetri mitt ljóð til þín var árum saman grafið. Svo ungur varstu, er hvarfstu út á hafið hugljúfur, glæstur, öllum drengjum betri. Og því varð allt svo hljótt við helfregn þína sem hefði klökkur gígjustrengur brostið. Og enn ég veit margt hjarta, harmi lostið, sem hugsar til þín alla daga sína. En meðan árin þreyta hjörtu hinna, sem horfðu eftir þér í sárum trega, þá blómgast enn, og blómgast ævin- lega, þitt bjarta vor í hugum vina þinna. Og skín ei ljúfast ævi þeirri yfir, sem ung á morgni lífsins staðar nemur, og eilíflega, óháð því, sem kemur, í æsku sinnar tignu fegurð lifir? Sem sjálfur Drottinn mildum lófum lyki um lífsins perlu í gullnu augnabliki – (Tómas Guðmundsson) Góða ferð í sumarlandið, elsku Fjölli. Jörundur Kristjánsson, Halla Hrund Birgisdóttir, Guðmundur Eyberg Kristjánss., Haraldur Blöndal Kristjánsson, Berglind Matthíasdóttir, Hildur Guðbjörg Kristjánsd., Arnar Gauti Markússon, Ingólfur Eyberg Kristjánsson, Agnieszka Stefania. Elsku Stína frænka mín, nú geng ég Skóla- vörðustíginn án þess að koma við hjá þér. Þú studdir við mig þegar ég ung stúlka var í ljósmóður- námi. Fékk ég að gista og dvelja hjá þér. Þú tókst alltaf vel á móti mér, með hlýju og kærleika. Vin- skapur okkar hefur verið sterkur síðan. Nú sefur jörðin Nú sefur jörðin sumargræn. Nú sér hún rætast hverja bæn Kristín Hagalínsdóttir ✝ Kristín Haga-línsdóttir fæddist 28. desem- ber 1933. Hún lést 1. júlí 2019. Útförin fór fram 15. júlí 2019. og dregur andann djúpt og rótt um draumabláa júlínótt. Við ystu hafsbrún sefur sól, og sofið er í hverjum hól. Í sefi blunda svanabörn og silungur í læk og tjörn. Á túni sefur bóndabær, og bjarma á þil og glugga slær. Við móðurbrjóstin börnin fá þá bestu gjöf, sem lífið á. Nú dreymir allt um dýrð og frið við dagsins þögla sálarhlið, og allt er kyrrt um fjöll og fjörð og friður drottins yfir jörð. (Davíð Stefánsson frá Fagraskógi) Ég kveð þig með söknuði og þakklæti, Sveina. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vin- samlega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi lið- ur, „Senda inn minningar- grein,“ valinn úr felliglugg- anum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef út- för er á mánudegi eða þriðju- degi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skila- frestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja við- hengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systk- ini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Undirskrift | Minningargreina- höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stutt- nefni undir greinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.