Morgunblaðið - 17.07.2019, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 17.07.2019, Blaðsíða 25
ÍÞRÓTTIR 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 2019 hafðu það notalegt handklæðaofnum Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidja.is - sími 577 5177 Eigum úrval af Hvað veldur því að aðsóknin er mun betri á leikina í úrvals- deild karla í fótbolta á þessu sumri en undanfarin ár? Ýmsar ástæður hafa verið tilgreindar. Betri fótbolti, fleiri ungir og efnilegir leikmenn, betra veður. Já, þetta hefur allt saman áhrif en stundum hefur áhugi og aðsókn dvínað þegar liðið hefur á sumarið og fækkað hefur í stúkunum með haustlægðunum. Það mun ekki gerast í ár. Skýringin á því er einföld. KR er á toppnum og verður í bar- áttu um meistaratitilinn fram á haust, að öllu óbreyttu. Góðu gengi KR fylgir góð að- sókn í deildinni. Það sést vel þegar áhorfendatölur aftur í tím- ann eru skoðaðar. Vestur- bæingar flykkjast á völlinn þegar þeir sjá möguleika á titli, bæði á sína Meistaravelli og fylgja liðinu vel í útileikina. Þegar KR vann titilinn á ný eftir 31 árs bið árið 1999 var sett aðsóknarmet sem seint verður slegið en 2.501 áhorfandi mætti að meðaltali á leiki liðsins það sumar. KR fór líka yfir tvö þúsundin að meðaltali meistaraárin 2000 og 2003. Síðast þegar KR var með besta aðsókn í deildinni er einmitt síðasta meistaraár KR til þessa, 2013. Aðsókn á heimaleiki KR hefur aukist jafnt og þétt síðan í maí, úr 860 í 1.099, í 1.396, í 2.280 og síðast mættu 3.012. Gjaldkerar þeirra félaga sem eiga eftir að fá KR í heim- sókn seinni hluta tímabilsins geta farið að hlakka til að telja upp úr kössunum! BAKVÖRÐUR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is FRJÁLSAR Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is „Ég er að fara út á þriðjudaginn og ég ákvað það í samráði við þjálfarann minn að nýta þetta mót bara í tvo stífa spretti og star- tæfingu,“ sagði spretthlauparinn ungi Guð- björg Jóna Bjarnadóttir í samtali við Morgun- blaðið á Meistaramóti Íslands á Laugardalsvelli um helgina. Guðbjörg fagnaði öruggum sigri í 200 metra hlaupi þar sem hún kom í mark á tím- anum 24,51 sekúnda sem er talsvert frá Ís- landsmeti hennar í greininni sem hún setti í júní á þessu ári þegar hún hljóp á tímanum 23,45 sekúndur á ungmennamóti MÍ á Sel- fossi. „Startið hjá mér gekk mjög vel og það sem ég var að leggja áherslu á í hlaupinu var ein- faldlega að halda mjög háu tempói allan tím- ann. Tímarnir voru ekki góðir, miðað við mig, og aðstæðurnar voru ekkert frábærar þannig að það var bara mjög gott fyrir mig að fá góða æfingu út úr þessu. Eina ástæðan fyrir því að ég ákvað að keppa á mótinu var að komast of- ar á stigalistann því ég vil koma mér inn á Ól- ympíuleikana. Ég er í nokkuð góðri stöðu á stigalistanum þannig að það er um að gera að nýta öll tækifæri sem maður fær til þess að koma sér ennþá of- ar á listann.“ Líkaminn í frá- bæru standi Guðbjörg er í frábæru formi þessa dagana enda hugsar hún afar vel um sig en hún er einungis 17 ára gömul. „Líkaminn er í mjög góðu standi eins og staðan er í dag en ég hugsa líka mjög vel um mig. Ég er dugleg bæði að teygja og rúlla en auðvitað finnur maður stund- um fyrir ákveðnum stífleika hér og þar eins og í bakinu og mjöðmunum. Ég er hins vegar búin að vinna vel í sjálfri mér og vera dugleg hjá sjúkraþjálfara þannig að mér líður mjög vel þessa dagana.“ Guðbjörg er Evrópumeistari U18 ára en það er nóg framundan hjá þessari öflugu hlaupakonu sem er á leið á EM U20 sem fram fer í Borås í Svíþjóð um næstu helgi. „Ég fer út á EM á þriðjudaginn (í gær) þar sem ég keppi á föstudaginn og laugardaginn, svo er það Evrópu- bikarinn og svo Norðurlandamótið og þá ætti þetta að vera komið hjá mér í ár myndi ég halda en það er nóg fram undan í það minnsta,“ sagði Guðbjörg Jóna í samtali við Morgunblaðið. Íslandsmeistarinn Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir er á leið á Evrópumót U20 ára í Borås þar sem hún keppir í undanrásum á föstudag- inn.  Guðbjörg Jóna farin til Svíþjóðar til að keppa á EM  Vill nýta öll tækifæri „Ég vil koma mér inn á Ólympíuleikana“ Morgunblaðið/Eggert HANDBOLTI Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Kvennalið Vals fer til Svíþjóðar, karlalið FH til Belgíu og karlalið Hauka til Tékklands. Það var nið- urstaðan úr fyrsta drættinum fyrir Evrópumótin í handknattleik 2019- 20 sem fram fór í Vínarborg í gær en liðin leika í 1. umferð mótanna tvær fyrstu helgarnar í september. Selfyssingar sitja hjá í 1. umferð EHF-bikars karla en mæta Malmö frá Svíþjóð eða Spartak Moskva frá Rússlandi í 2. umferð í október. Karlalið Vals situr hjá í 2. um- ferð Áskorendabikarsins og það skýrist í haust hverjum það mætir í 3. umferð sem er leikin í nóvem- ber. Eva er mótherji Vals Valur er eina íslenska kvennalið- ið í Evrópumótunum og mætir Skuru frá Stokkhólmi í fyrstu um- ferð EHF-bikarsins. Eva Björk Davíðsdóttir landsliðskona gekk á dögunum til liðs við Skuru sem varð í öðru sæti sænsku úrvals- deildarinnar í fyrra og tapaði ein- víginu um meistaratitilinn. Skuru hefur þrisvar orðið sænskur meistari og er það félag sem hefur spilað flesta leiki frá upphafi í sænsku úrvalsdeildinni. Liðið lék síðast í Evrópukeppni fyrir þremur árum og féll þá naumlega út í 1. umferð gegn Slavia Prag frá Tékklandi, 44:45 samanlagt.  Sigurliðið í einvígi Vals og Skuru mætir Zvezda Zvenigorod frá Rússlandi í 2. umferð. Vann bestu lið Hollands Visé, mótherji FH, er frá 18 þús- und manna samnefndum bæ í aust- urhluta Belgíu, aðeins 12 kílómetra frá Maastricht í Hollandi. Liðið leikur í BeNe-deildinni, sameig- inlegri úrvalsdeild Hollands og Belgíu, og endaði þar í 2. sæti síð- asta vetur, en tapaði svo fyrir lönd- um sínum í Bocholt í úrslitaleik um meistaratitilinn. Visé hefur talsverða reynslu af Evrópukeppni en liðið hefur undanfarin fimm ár spilað í Áskor- endabikarnum. Þar náði Visé sín- um besta árangri síðasta vetur þegar það sló út Kastrioti frá Kós- óvó, 71:47 samanlagt, og Masheka frá Hvíta-Rússlandi, 68:65 saman- lagt, en steinlá síðan fyrir Neva Pétursborg frá Rússlandi í átta liða úrslitum, 41:19 úti og 33:26 heima. Tímabilið 2017-18 tapaði Visé fyrir rúmenska liðinu Potaissa Turda, 44:24, á útivelli en vann heimaleikinn 29:24. Valur og ÍBV þekkja vel til Turda eftir jafna leiki gegn því á síðustu árum.  FH-ingar eiga líklega bestu möguleika íslensku liðanna í 1. um- ferð og með sigri á Visé mæta þeir Arendal frá Noregi í 2. umferð. Plzen meistari í vor Talant Plzen, mótherji Hauka, hefur leikið í EHF-bikarnum undanfarin fimm ár og liðið varð tékkneskur meistari í vor þegar það vann Karviná 3:2 í úrslita- einvíginu. Liðið varð jafnframt deildarmeistari. Plzen hefur ekki náð langt í Evrópukeppninni og ávallt fallið út í 2. eða 3. umferð. Í fyrra vann það Glasgow HC frá Skotlandi 69:24 samanlagt en tap- aði síðan fyrir Dobrogea Constanta frá Rúmeníu, 23:29 og 21:28 í 2. umferð. Fyrir tveimur árum tapaði Plzen með 26 mörkum samanlagt gegn Kolding frá Danmörku.  Takist Haukum að sigra Plzen mæta þeir Hapoel Ashdod frá Ísr- ael í 2. umferð. FH-ingar eiga líklega mestu möguleikana Á fundi aga- og úrskurðarnefndar KSÍ í gær voru sex leikmenn efstu deildar karla úrskurðaðir í eins leiks bann og verða frá í næstu umferð. HK-ingarnir Ásgeir Marteinsson og Bjarni Gunnarsson verða í banni gegn FH. Ásgeir fær leikbann vegna fjög- urra gulra spjalda en Bjarni fékk rautt í síðasta leik. Þeir Sigurður Arnar Magnússon og Víðir Þorvarðarson verða svo ekki með ÍBV gegn Fylki, en Víðir var rekinn af velli í síðasta leik og Sigurður fékk sitt fjórða gula spjald. Víkingur R. verður án Erlings Agn- arssonar gegn Val vegna brottvísunar og Steinþór Freyr Þorsteinsson verð- ur ekki með KA gegn ÍA af sömu sök- um. yrkill@mbl.is HK og ÍBV missa tvo í bann

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.