Morgunblaðið - 17.07.2019, Page 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 2019
Pepsi Max-deild kvenna
Breiðablik – ÍBV....................................... 9:2
KR – HK/Víkingur ................................... 4:2
Staðan:
Valur 10 9 1 0 36:7 28
Breiðablik 10 9 1 0 36:9 28
Þór/KA 10 5 2 3 19:16 17
Selfoss 10 5 1 4 12:13 16
KR 10 3 1 6 12:20 10
Stjarnan 10 3 1 6 5:17 10
Keflavík 9 3 0 6 16:17 9
ÍBV 9 3 0 6 15:21 9
Fylkir 9 2 1 6 7:23 7
HK/Víkingur 9 2 0 7 7:22 6
Inkasso-deild karla
Þór – Njarðvík ......................................... 2:1
Rick ten Voorde 6., 46. – Jóhann Helgi
Hannesson (sjálfsmark) 11.
Keflavík – Magni ..................................... 0:3
Kristinn Þór Rósbergsson 27., Lars Óli
Jessen 35., Áki Sölvason (víti) 81.
Fjölnir – Fram.......................................... 3:1
Guðmundur Karl Guðmundsson 33., 90.,
Jóhann Árni Gunnarsson 51. – Helgi Guð-
jónsson (víti) 78.
Víkingur Ó. – Haukar ............................. 2:0
Miha Vidmar 13., Sallieu Tarawallie 45.
Leiknir R. – Afturelding......................... 3:2
Sólon Breki Leifsson 25., Stefán Árni
Geirsson 54., Sævar Atli Magnússon 80. –
Alexander Aron Davorsson (víti) 43., Andri
Freyr Jónasson 66. Rautt spjald: Arnór
Gauti Jónsson (Aftureldingu) 70.
Þróttur R. – Grótta.................................. 0:1
Óliver Dagur Thorlacius (víti) 61.
Staðan:
Fjölnir 12 8 2 2 24:11 26
Grótta 12 7 3 2 25:16 24
Þór 12 7 2 3 21:12 23
Víkingur Ó. 12 6 2 4 13:9 20
Fram 12 6 2 4 18:18 20
Leiknir R. 12 6 0 6 20:21 18
Keflavík 12 4 4 4 16:15 16
Þróttur R. 12 4 2 6 24:17 14
Haukar 12 2 5 5 16:20 11
Njarðvík 12 3 1 8 13:22 10
Afturelding 12 3 1 8 15:27 10
Magni 12 2 4 6 14:31 10
Meistaradeild Evrópu
1. umferð, seinni leikir:
HB Þórshöfn – HJK Helsinki ......... 2:2 (2:5)
Brynjar Hlöðversson lék síðustu 13 mín-
úturnar fyrir HB. Heimir Guðjónsson
þjálfar liðið.
Shkëndija – Nömme Kalju.............. 1:2 (2:2)
Saburtalo – Sheriff Tiraspol........... 1:3 (4:3)
Valletta – Dudelange ...................... 1:1 (3:3)
Rauða stjarnan – Suduva................ 2:1 (2:1)
Fernonikeli – The New Saints ....... 0:1 (2:3)
Evrópudeild UEFA
1. umferð, seinni leikir:
Banants – Cukaricki Belgrad ........ 0:5 (0:8)
KÍ Klaksvík – Riteriai ..................... 0:0 (1:1)
OFK Titograd – CSKA Sofia.......... 0:0 (0:4)
Samanlögð úrslit í svigum og feitletruðu
liðin komin áfram. Taplið í Meistaradeild
fara yfir í 2. umferð Evrópudeildar.
KNATTSPYRNA
FÓTBOLTI
Andri Yrkill Valsson
yrkill@mbl.is
Það er alveg ljóst að fylgjast þarf
grannt með 1. deild karla í knatt-
spyrnu, Inkasso-deildinni, því það
þarf nánast ekkert að gerast svo allt
fari á hvolf miðað við það jafnræði
sem er bæði í baráttunni í efri hlut-
anum og í botnbaráttunni.
Lífshættan á botninum jókst
raunar til muna eftir 12. umferðina
sem leikin var í heilu lagi í gærkvöldi
þegar botnlið Magna frá Grenivík
gerði sér lítið fyrir og skellti Keflvík-
ingum suður með sjó, 3:0. Þetta var
aðeins annar sigur liðsins í sumar og
hann þýðir að þrjú neðstu liðin,
Afturelding og Njarðvík til viðbótar
við Grenvíkinga, eru öll jöfn með 10
stig og Haukar eru aðeins einu stigi
þar fyrir ofan.
Það sem gerði sigur Magna enn
sætari var einmitt það að öll liðin í
kring töpuðu sínum leikjum. Aftur-
elding tapaði fyrir Leikni R. 3:2,
Njarðvík tapaði fyrir Þór 2:1 og
Haukar töpuðu fyrir Víkingi Ólafs-
vík 2:0. Öll fjögur neðstu liðin
spiluðu á útivöllum en Magnamenn
voru þeir einu sem héldu glaðbeittir
heim, með lengsta ferðalagið fyrir
höndum.
Senuþjófarnir á Nesinu
Háspennan er ekki síður mikil á
toppnum þó að Fjölnir og Grótta
haldi áfram að skara fram úr. Fjöln-
ir vann 3:1-sigur á Fram og heldur
tveggja stiga forskoti á toppnum.
Fjölnismenn ætla sér beint upp á ný
og eru án taps í síðustu fimm leikj-
um sínum.
Grótta heldur hins vegar áfram að
stela senunni og eftir 1:0-sigur á úti-
velli gegn Þrótti R. hefur liðið leikið
átta leiki í röð án taps, en síðast tap-
aði liðið í maí. Þá hefur Gróttuliðið
skorað flest mörk allra í deildinni; 25
í 12 leikjum. Í leikjum umferðar-
innar í gærkvöldi stillti Grótta jafn-
framt upp yngsta byrjunarliðinu af
öllum tólf liðunum, 21,5 ára meðal-
aldur, sem er langt frá því að vera að
gerast í fyrsta sinn í sumar og hefur
þjálfarinn Óskar Hrafn Þorvaldsson
vakið verðskuldaða athygli fyrir
framgöngu Seltirninga í sumar.
Ekki má þó heldur afskrifa Þórs-
ara í toppbaráttunni, en þeir eru
stigi frá Gróttu. Sérstaklega fyrst
nýi lánsmaðurinn Rick ten Voorde
tók markaskóna með sér frá Víkingi
R. og skoraði bæði mörkin í 2:1-
sigrinum á Njarðvík í gær. Alvaro
Montejo er svo að snúa aftur eftir
meiðsli eftir að hafa farið mikinn í
fyrstu leikjum sumarsins og er
óhætt að segja að sóknarlína Þórs-
ara verði ein sú besta, ef ekki sú
allra besta, í deildinni.
Aðeins munar svo fjórum stigum á
liðunum í 4.-7. sæti, Víkingi Ó.,
Fram, Leikni R. og Keflavík, og það
er því engin lygi að hlutirnir geta
verið ansi fljótir að breytast með
hverjum óvæntum úrslitum seinni
hluta tímabilsins.
Háspenna ríkir
um alla deild
Magnamenn alsælir aftur norður
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Fjölnissigur Arnór Breki Ásþórsson sækir að Alex Frey Elíssyni í Fram.
„Það er mikill efniviður í liðinu og
æfingaaðstæður eru til fyrir-
myndar,“ sagði Arnar Gunnarsson,
sem í gær var ráðinn þjálfari þýska
handknattleiksliðsins HSG Krefeld.
Hann mun stýra nýliðunum í B-
deildinni þar í landi á næsta tíma-
bili, en síðast þjálfaði hann karlalið
Fjölnis hér á landi.
„Arnar er gríðarlega metnaðar-
fullur og lifir fyrir handboltann.
Það er það sem við vildum finna hjá
nýjum þjálfara,“ er haft eftir fram-
kvæmdastjóra félagsins á heima-
síðu þess. yrkill@mbl.is
Metnaður Arnars
vakti athygli
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Þýskaland Arnar Gunnarsson mun
þjálfa nýliða í þýsku B-deildinni.
Allar líkur eru á því að Viðar Örn
Kjartansson, landsliðsmaður í
knattspyrnu, muni leika í rúss-
nesku úrvalsdeildinni á leiktíðinni.
Ekki þó með Rostov þar sem hann
er samningsbundinn, heldur eru
viðræður langt komnar við Rubin
Kazan um kaup á Viðari.
Umboðsmaðurinn Ólafur Garð-
arsson staðfesti við mbl.is í gær að
nánast sé fullvíst að Viðar fari til
Kazan og líklega verði gengið frá
síðustu lausu endunum í dag.
Viðar var á láni hjá Hammarby í
Svíþjóð frá í vor og fram á sumar.
Kynna Viðar Örn
til leiks í dag?
Morgunblaðið/Eggert
Rússland Viðar Örn Kjartansson er
að færa sig um set í landinu.
Íslandsmeistarar Vals eiga afar erf-
iðan leik fyrir höndum í Slóveníu í
kvöld þegar liðið mætir Maribor í
síðari leik liðanna í 1. umferð for-
keppni Meistaradeildar Evrópu í
knattspyrnu.
Maribor vann fyrri leikinn á
Valsvellinum 3:0 í síðustu viku og
þurfa Valsmenn því að skora þrjú
mörk, hið minnsta, til þess að eiga
einhvern möguleika á að komast
áfram.
Í 27 útileikjum í Evrópukeppni í
sögu sinni hefur Valur aðeins einu
sinni skorað þrjú mörk í leik, en
það var árið 1967. yrkill@mbl.is
Valur þarf
einstakan leik
Morgunblaðið/Hari
Slóvenía Patrick Pedersen hér í
kröppum dansi í fyrri leiknum.
Strákarnir í 21-árs landsliðinu í
handknattleik lentu í óvæntum
vandræðum með Síle í fyrsta leik
sínum á heimsmeistaramótinu á
Spáni í gærmorgun. Þeir sigruðu
26:19 eftir að hafa lent þremur
mörkum undir snemma en staðan
var 10:10 í hálfleik.
Jakob Martin Ásgeirsson gerði 5
mörk, Orri Freyr Þorkelsson 4,
Bjarni Ófeigur Valdimarsson 4,
Gabriel Martinez Róbertsson 3,
Darri Aronsson 2, Örn Vésteinsson
Österberg 2, Sigþór Gunnar Jóns-
son 2, Elliði Snær Viðarsson 1, Haf-
þór Már Vignisson 1, Sveinn José
Rivera 1 og Viktor Gísli Hall-
grímsson markvörður 1.
Danir unnu Norðmenn 32:31 í
æsispennandi leik í sama riðli en
Þjóðverjar burstuðu Argentínu,
43:25. Ísland mætir Argentínu í
annarri umferð riðlakeppninnar í
dag og þar á eftir Norðmönnum á
föstudaginn. Fjögur efstu liðin í
hverjum riðli komast í sextán liða
úrslit keppninnar. Öll úrslit á
mótinu eru á bls. 27. vs@mbl.is
Lentu í basli með Sílebúa
í fyrsta leiknum á HM
Opið virka daga 10.00-18.15, laugardaga 11.00-14.00 | Gnoðarvogi 44, 104 Reykjavík | Sími 588 8686
Nýr stór humar
Glæný stórlúða
Glæný smálúða
Stór humar
Túnfiskur
Klausturbleikja
Humarsúpa