Morgunblaðið - 25.07.2019, Síða 1

Morgunblaðið - 25.07.2019, Síða 1
F I M M T U D A G U R 2 5. J Ú L Í 2 0 1 9 Stofnað 1913  173. tölublað  107. árgangur  Láttu lífið leika við þig í sófa frá Vogue fyrir heimilið. Komdu og skoðaðu, mikið úrval. Síðumúla 30 - Reykjavík Hofsbót 4 - Akureyri NOMA 3 SÆTA AFAR FORN KALEIKUR MEÐ LÆKNINGAMÁTT END OF SENTENCE ATVINNUBLAÐ MORGUN- BLAÐSINS KVIKMYND 64 FINNA VINNUBREIÐABÓLSTAÐUR 16 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Um 520 herbergi bætast við hótel- markaðinn í Reykjavík frá júní til áramóta. Þá bætist við að minnsta kosti 51 hótelíbúð á tímabilinu. Þetta kemur fram í samantekt í Morgunblaðinu í dag. Staðan var könnuð hjá fimm nýjum hótelum en í tveimur tilvikum er verið að fjölga herbergjum á núverandi hótelum. Nærri flugvellinum Þá er áformað að opna 150 her- bergja Marriott-hótel við Leifsstöð í haust. Alls eru þetta 670 herbergi. Verkefnin voru hafin þegar tví- sýnt varð um WOW air. Eina breyt- ingin er að ekki verður af samnýt- ingu tveggja húsa í Skipholti undir hótel. Að öðru leyti virðast áformin vera óbreytt í meginatriðum. Miðað við að hvert hótelherbergi í miðborginni kosti 25 milljónir í byggingu hleypur fjárfestingin á 12- 13 milljörðum. Við það bætist kostn- aður við yfir 50 nýjar hótelíbúðir. Samkvæmt tölum Hagstofunnar lækkaði nýtingarhlutfall hótelher- bergja á landinu í maí úr 58% í 56% en framboðið jókst um 13%, úr 9.200 herbergjum í 10.500 herbergi. Sama staða í Kaupmannahöfn Jóhannes Þór Skúlason, fram- kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjón- ustunnar, segist vænta þess að eftir- spurnin aukist í kjölfar aukins framboðs á hótelherbergjum. Þar til jafnvægi næst geti aukin samkeppni leitt af sér hagstæðara verð á gist- ingu. Til dæmis sé svipuð staða nú fyrirséð í ferðaþjónustu í Kaup- mannahöfn. Flugframboð muni hafa mikil áhrif á hversu langt þetta tíma- bil verður á Íslandi. Fjöldi nýrra hótela að koma í notkun  Um 670 hótelherbergi bætast við á markaðinn á hálfu ári Ný veitingahús » Á næstum vikum verða veit- ingahúsin Lóa og Stökk opnuð við nýtt CenterHótel á Lauga- vegi 95-99 við Snorrabraut. » Áformað er að opna fleiri veitingahús á nýju hótelunum sem eru að koma á markað. MFjöldi nýrra hótela … »6  „Seðlabanki Íslands stendur vel og ég tek við mjög góðu búi hvað varðar efnahagsstjórnina og al- menna stöðu þjóðarbúsins,“ sagði dr. Ásgeir Jónsson hagfræðingur, sem forsætisráðherra skipaði í gær í stöðu seðlabankastjóra til fimm ára. Skipunin tekur gildi 20. ágúst. Embætti seðlabankastjóra var auglýst 20. febrúar sl. Sextán um- sóknir bárust og drógu þrír um- sóknirnar til baka. Umsækjendur voru því 13, ellefu karlar og tvær konur. Hæfnisnefnd mat þá Arnór Sighvatsson, Ásgeir Jónsson, Gylfa Magnússon og Jón Daníelsson mjög vel hæfa til að gegna embættinu. Forsætisráðherra boðaði níu um- sækjendur í viðtöl. »36 Morgunblaðið/Hari Seðlabankastjóri Tekur við 20. ágúst. Dr. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri Nokkur reynsla er nú komin af dróna frá Siglingaöryggisstofnun Evrópu sem Land- helgisgæsla Íslands (LHG) hefur notað um mengun. Hann hefur einnig nýst til að fylgj- ast með brottkasti og hvar menn hafa verið að veiðum. »10 prófunar og eftirlits. Dróninn hefur m.a. ver- ið notaður til að fylgjast með umferð á mið- unum og til að taka myndir af hugsanlegri skeið til eftirlits úti fyrir Austurlandi. Georg Lárusson, forstjóri LHG, sagði að stofnunin hefði unnið að því að fá drónann hingað til Morgunblaðið/Árni Sæberg Mannlaus dróni hefur auga með fiskimiðunum  Svo getur farið að Icelandair Group verði ekki til í þeirri mynd sem við þekkjum fyrirtækið nú ef ekki tekst að auka framlegð á vettvangi fyrir- tækisins. Þetta segir Jón Karl Ólafsson, fyrr- verandi forstjóri fyrirtækisins og núverandi stjórnarformaður TravelCo, í samtali sem birt hefur verið í Viðskiptapúlsinum, hlað- varpi ViðskiptaMoggans. Hann segir að laun flugstéttanna séu í raun ekki of há en að Ice- landair sé í þeirri stöðu, sökum þeirra kjarasamninga sem félagið er bundið af, að flugmenn og flug- freyjur skili of fáum vinnustundum miðað við keppinauta fyrirtækisins erlendis. Segist hann trúa því að forsvars- menn fyrirtækisins rói nú öllum ár- um að því að ná fram breytingum á samningunum enda sé það ekki að- eins fyrirtækinu heldur viðsemj- endum þess einnig fyrir bestu. Auka þarf framlegð hjá Icelandair Group Jón Karl Ólafsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.