Morgunblaðið - 25.07.2019, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2019
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
595 1000
Krít
Porto Platanias Village
aaaa
Frá kr.
159.9958. ágúst í 11 nætur
Frá kr.
189.995
Frábært hótel fyrir fjölskyldur og pör
Flug frá kr.
79.900 Sæti báðar leiðirmeð tösku og handfarangri
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Það gengur vel. Við erum búnir að
taka á móti sex þúsund tonnum af
makríl á þremur vikum og erum að
frysta á Japansmarkað núna. Það
reiknaði enginn með að við gætum
fryst á Japan í júlímánuði,“ sagði
Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson,
framkvæmdastjóri Vinnslustöðvar-
innar í Vestmannaeyjum (VSV).
Vel hefur viðrað til veiða sunnan
við Eyjar þar sem skipin hafa aðal-
lega verið að og makríllinn verið
vænn. Þrjú skip leggja upp hjá VSV.
Þau eru Ísleifur VE, Kap VE og
Huginn VE. Allur aflinn er unninn
og frystur í landi.
Sigurgeir kveðst vera bærilega
bjartsýnn á markaðshorfur varðandi
makrílafurðir. Þá hafi gengi krón-
unnar verið hagstæðara útflutningi
en það var í fyrra, þótt krónan hafi
styrkst aðeins í gær.
Makrílvinnsla hófst hjá Síldar-
vinnslunni í Neskaupstað (SVN) á
laugardag en þá kom Margrét EA
með fyrsta farm vertíðarinnar, 840
tonn. Alls er búið að taka á móti tæp-
lega 3.000 tonnum til vinnslu af fjór-
um skipum síðan vertíðin hófst.
Gunnþór Ingvason, framkvæmda-
stjóri SVN, sagði að veiðarnar
gengju ágætlega. Skipin hafa verið
austur í Rósagarði og víðar á miðum
fyrir austan og einhver við Eyjar.
Bræla hafði aðeins tafið frá veiðum.
Makríllinn hefur að mestu verið stór
og vel haldinn. Reynt er að heilfrysta
sem mest hjá SVN.
Gunnþór segir að sala sé ekki haf-
in en menn séu þokkalega bjartsýnir
varðandi markaði. Auk skipa sem
lönduðu makríl til vinnslu landaði
Hákon EA 650 tonnum af frystum
makríl hjá SVN í vikunni.
Vel gengur við makrílveið-
arnar og útlitið þykir gott
Frysta á Japansmarkað í Eyjum Makríllinn vel haldinn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Makríll Það lifnar yfir í sjávarpláss-
unum þegar makrílvertíðin hefst.
Skálar eitt og tvö
í álverinu í
Straumsvík eru í
gjörgæslu, náið
er fylgst með
þeim og er öryggi
starfsmanna í
fyrirrúmi, segir
Reinhold Richter,
aðaltrún-
aðarmaður
starfsmanna, í
samtali við mbl.is um fund yfir-
stjórnar með starfsmönnum álvers-
ins í gær þar sem farið var yfir stöðu
mála í kjölfar hættuástands sem
skapaðist í kerskála þrjú á sunnu-
dag. Reinhold kveðst sáttur við við-
brögð yfirstjórnar álversins.
„Það er líka nýtt súrál sem er
betra og byrjað að blanda saman við
þetta súrál sem olli þessum vand-
kvæðum. Þannig að þetta horfir allt
til betri vegar. […] Það sem ég veit
að er í gangi núna er að ker sem eru
í gjörgæslu – út af því að þau eru lé-
leg eða veik – þau verða tekin út úr
rekstri ef það myndast óeðlilega
mikill hiti í þeim.“ Hann segir öll
störf tryggð og að ákveðið hafi verið
að stefna að því að endurræsa skála
þrjú þegar það er tímabært.
Öryggi í
fyrirrúmi í
Straumsvík
Ál Tveir kerskálar
í „gjörgæslu“.
Starfsfólki var
kynnt staða mála
Á meðan þreyttir ferðalangar settust niður á
Rauðasandi og nutu kvöldsólarinnar á dögunum
var ungur drengur í hópnum, Sindri Hrafn
Steinarsson, hugfanginn af flygildinu sem sveif
um loftið. Fylgdist hann með hverri hreyfingu
og taldi í fyrstu að þarna væri furðufugl á ferð.
Flygildin fanga huga unga fólksins
Ljósmynd/Ólafur Már Björnsson
Snorri Másson
Guðni Einarsson
Starfsmenn Olíudreifingar ehf. unnu
við það í gærkvöld að hreinsa upp
skipagasolíu sem rann úr tanki olíu-
flutningabíls sem valt á Öxnadals-
heiði um hádegisbil í gær. Slysið
varð skammt vestan Grjótár. Í bíln-
um og tengivagni hans voru 30.000
lítrar og var búið að ná rúmlega
17.000 lítrum í gærkvöld, að sögn
Harðar Gunnarssonar, fram-
kvæmdastjóra Olíudreifingar. Hann
sagði að áfram yrði unnið að því að
hreinsa upp olíuna sem fór niður
næstu daga. Búið var að koma fyrir
búnaði sem safnar olíunni saman.
„Aðgerðirnar gengu mjög vel.
Mjög fljótt kom mikill mannskapur á
vettvang og þetta gekk í raun eins
vel og hægt var í þessum aðstæð-
um,“ sagði Vigfús Bjarkason, varð-
stjóri Slökkviliðs Akureyrar.
Þegar Vigfús kom á vettvang var
stýrishús olíubílsins illa farið. Bíllinn
lá á hliðinni utan vegarins. Ekki
þurfti að beita klippum til að ná öku-
manninum út úr stýrishúsinu. Hann
komst þó ekki þaðan af sjálfsdáðum.
Ökumaðurinn var fluttur á Sjúkra-
húsið á Akureyri. Ekki fengust upp-
lýsingar um líðan hans í gærkvöld.
Skipagasolía er dísilolía ögn
minna hreinsuð en sú sem sett er á
bíla.
Lokað var fyrir umferð um Öxna-
dalsheiði vegna slyssins og henni
beint um Strákagöng, Héðinsfjarð-
argöng og Múlagöng á Tröllaskaga.
Langar biðraðir mynduðust og
stýrðu björgunarsveitarmenn um-
ferð um Strákagöng og lögreglu-
menn stýrðu við Múlagöng en hvor
tveggja jarðgöngin eru einbreið.
Umferð var síðan hleypt um Öxna-
dalsheiði þegar aðgerðum á vett-
vangi var lokið.
Olía hreinsuð upp eftir slys í gær
Lokað fyrir umferð um Öxnadalsheiði vegna slyssins Ökumaðurinn fluttur á sjúkrahús á Akureyri
Öxnadalsheiði Ökumaður slasaðist þegar olíubíllinn valt. Um 30.000 lítrar
af olíu voru í bílnum. Búið var að ná rúmlega 17.000 lítrum í gærkvöld.