Morgunblaðið - 25.07.2019, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2019
Komið í
verlslanir!
2. HEFTI
LESTRARKENNSLUBÆKUR KYNSLÓÐANNA
Gískur fjár-
festir hefur
dregið til
baka tilboð
sitt í eyjuna
Vigur á Ísa-
fjarðardjúpi.
Þetta
herma heim-
ildir Morgun-
blaðsins en Bæjarins besta fjallaði
fyrst um málið. Þar var rætt við
Davíð Ólafsson fasteignasala, sem
sagði að þar með væri ekki víst að
Grikkinn væri hættur við kaup á
eyjunni. Þrír hefðu áhuga á henni
og könnuðu nú möguleika á fjár-
mögnun.
Þá sagði í frétt Bæjarins besta
að bæjarráð Ísafjarðarbæjar hefði
á fundi undirstrikað vilja til að
ríkið keypti Vigur. Fram kemur á
fasteignavef Morgunblaðsins að
yfir 10 þúsund gestir heimsæki
Vigur árlega. Húsakostur sé vel
yfir 700 fermetrar og bjóði upp á
mikla möguleika og tækifæri í
ferðaþjónustu. Vigur seljist í heild
sinni, að frátöldu sumarhúsi á eyj-
unni.
Grískur fjárfestir
dregur til baka
tilboð sitt í Vigur
Nýi Herjólfur hefur siglingar síð-
degis í dag. Þetta kemur fram í
fréttatilkynningu frá Vegagerð-
inni.
Þar segir að fyrsta ferð nýs Herj-
ólfs verði frá Vestmannaeyjum
klukkan 19.30. Aðstaða í Vest-
mannaeyjahöfn hefur verið bætt
svo ferjan geti hafið siglingar án
þess að tekin sé áhætta með
skemmdir á ferjunni.
„Aðstaðan í Vestmannaeyjahöfn
verður svo bætt enn frekar í haust
með uppsetningu enn öflugri „fend-
era“ sem eiga ekki bara að tak-
marka skemmdir eða aðra löskun á
nýju ferjunni heldur munu líka auð-
velda stjórnendum skipsins að
leggja að og frá. Það gæti því einn-
ig stytt þann tíma sem tekur að
leggja að. Reiknað er með að það
verk verði unnið á haustmánuð-
um,“ segir enn fremur í tilkynn-
ingu.
Nýr Herjólfur hefur
siglingar í dag
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Nýr fallturn Húsdýra- og fjölskyldu-
garðsins sem tekinn var í notkun
síðla síðasta sumars er bilaður og
hefur verið lokaður frá því á föstu-
dag. Er þetta í annað sinn sem turn-
inn bilar í sumar að sögn Sigrúnar
Thorlacius, aðstoðarforstöðumanns
Húsdýra- og fjölskyldugarðsins.
Unnið er að því að komast að því
hvað er í ólagi í turninum.
Þá hefur „sleggjan“ svonefnda,
sem fengin var úr Skemmtigarð-
inum í Smáralind sem hefur verið
lokað ekki verið gangsett, en unnið
er að því að koma henni af stað.
Fjórir af átta bílum sem yngri gestir
garðsins geta keyrt um bílabraut eru
bilaðir og beðið er eftir varahlutum.
Bílarnir eru einnig tiltölulega nýir.
Flestir gestanna afslappaðir
Ekki var hægt að hefja uppsetn-
ingu sleggjunnar fyrr en í vor, en
steypa þurfti plan undir hana og þá
þurfti frost að vera farið úr jörðu.
„Sleggjan hefur aldrei farið í
gang. Það hefur verið unnið að því að
koma henni í gang í allt sumar. Það
þarf að uppfylla alls kyns öryggis-
atriði áður en hún fer í gang. Bæði
þessi tæki eru viðkvæm og með fullt
af skynjurum og nemum. Þegar eitt-
hvað fer er svolítið flókið að komast
að því hvað er að,“ segir Sigrún. Hún
bendir á að tækin séu mörg hver
framleidd á Ítalíu, séu viðkvæm fyrir
hitabreytingum hér á landi og þar að
auki mæði mikið á þeim enda hafi
veður verið gott í sumar og aðsókn
góð. Aðspurð segir hún það von-
brigði að fallturninn hafi ekki virkað
sem skyldi enda sé um nýtt tæki að
ræða. „Þetta er nýtt tæki. Hann var
settur upp í fyrrasumar nýr og það
eru mikil vonbrigði þegar hann bil-
ar,“ segir Sigrún. Fólk sé samt al-
mennt séð rólegt og afslappað í
garðinum. Aðrir séu þó ekki jafn
ánægðir með stöðu mála.
Fallturninn nýi hefur
bilað tvisvar í sumar
Bíða varahluta
í fjóra af átta bílum
bílabrautarinnar
Morgunblaðið/Hari
Fjör Fallturninn er ekki í notkun þessa dagana sökum bilunar. Hann var
vígður undir lok síðasta sumars, en hefur bilað tvisvar í sumar.
BAKSVIÐ
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Nærri tvöfalt fleiri, á leið á milli
Eyjafjarðar og Fnjóskadals, kjósa að
aka Víkurskarð en spár Vegagerð-
arinnar gerðu ráð fyrir.
Þetta kemur fram á vef Vegagerð-
arinnar. Þar er greint frá því að spáin
hafi verið gerð áður en verðskrá fyrir
Vaðlaheiðargöng var gefin út en í
dag kostar ein ferð fyrir fólksbíl
1.500 krónur sem þarf að greiða raf-
rænt innan þriggja tíma.
Spáðu tólf prósentum
Samkvæmt upplýsingum frá
Vegagerðinni spáðu sérfræðingar
stofnunarinnar að aðeins um 12%
ökumanna myndu fara um Víkur-
skarð eftir opnun Vaðlaheiðarganga
sem stytta þjóðveg 1 frá Akureyri til
Húsavíkur um sextán kílómetra. Það
sem af er ári hafa þó 22% ökumanna
valið að fara lengri leiðina. Það eru að
meðaltali 400 bílar á dag það sem af
er ári en sam-
kvæmt spánni var
aðeins gert ráð
fyrir um það bil
250 bílum á dag.
Friðleifur Ingi
Brynjólfsson, sér-
fræðingur hjá
Vegagerðinni,
segist búast við að
þessi tala standi
nokkuð stöðug á
árinu að öllu
óbreyttu. „Nema það verði einhver
stór vakning,“ segir Friðleifur. „Ég
held að hlutfallið verði það sama þeg-
ar árinu lýkur, af því að meiri hluti
ársins er nú liðinn og allt er komið
fram,“ segir hann.
Eins og við er að búast hefur um-
ferð aukist yfir sumartímann en í
júní og það sem af er júlí hafa 900
bílar að meðaltali farið um Víkur-
skarð eða rúmlega 27% af umferð á
milli Eyjafjarðar og Fnjóskadals,
samkvæmt upplýsingum Vegagerð-
arinnar. „Þetta er miklu hærra en ég
hefði haldið þó að allar upplýsingar
hefðu legið fyrir,“ segir Friðleifur.
Fjöldinn olli vonbrigðum
Valgeir Bergmann Magnússon,
framkvæmdastjóri Vaðlaheiðar-
ganga, segir í samtali við Morgun-
blaðið að það hafi valdið vissum von-
brigðum að fleiri hefðu ekki farið
hlutfallslega um göngin það sem af er
ári. Hann segist þó vera þolinmóður
og bendir á að enn sé framkvæmdum
ekki lokið í göngunum og nú sé verið
að reyna að laga og bæta ýmislegt.
Segir hann að næst á dagskrá sé
að reyna að greina umferðina og
ástæður þess að fólk velur lengri
leiðina og finna leiðir til þess að fá
fleiri til að nota göngin, sem hann
bendir á að sé bæði styttri og örugg-
ari leið.
Verðið ekki endilega ástæðan
„Við vitum ekki enn hvort þetta sé
út af því að gjaldið sé svo hátt eða
vegna þess að tæknin við að inn-
heimta sé svo flókin eða vegna þess
að útlendingar eru með stillt á
Google Maps þar sem göngin eru
ekki enn skráð,“ segir Valgeir.
Hann staðfestir að það komi til
greina að endurskoða gjaldskrána en
býst ekki við að slíkt verði gert á
þessu ári. Hann bætir við að verðið
sé ekki sá þáttur sem hann telji að
hafi mest áhrif og bendir á að þegar
göngin hafi verið opnuð í desember
sl. hafi aðeins 14% ökutækja farið um
göngin þrátt fyrir að gjaldfrjálst hafi
verið að aka í gegnum þau. Hann tel-
ur að í mörgum tilvikum sé upplýs-
ingaskortur ástæðan fyrir því að fólk
fer Víkurskarð en einnig kveðst hann
vita til þess að há álagning bílaleiga á
veggjaldið hafi fælandi áhrif á ferða-
menn sem kjósi oft að aka lengri leið-
ina til að komast hjá henni.
Kveðst hann vita til þess að sumar
bílaleigur rukki ferðamenn um 4.500
krónur fyrir að fara í gegnum göng-
in. „Við erum ekki að skipta okkur af
því hvaða álagningu bílaleigurnar
setja en ég hef séð umræður þar sem
ferðamenn vara aðra við því að fara
göngin af því að bílaleigur rukki svo
hátt gjald,“ segir Valgeir.
22% velja Víkurskarð
Nærri tvöfalt fleiri en gert var ráð fyrir kjósa að aka Víkurskarð í stað Vaðla-
heiðarganga Framkvæmdastjóri ganganna leitar ráða til að fjölga ferðum í þau
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Vaðlaheiðargöng Hlutfallslega færri fara um göngin og fleiri um Víkurskarð en spár höfðu gert ráð fyrir.
Valgeir
Bergmann
12%
ökutækja áttu að aka um
Víkurskarð samkvæmt spá
Vegagerðarinnar 2011 og 2012.
22%
ökumanna hafa ekið um
Víkurskarð á árinu eða um
400 ökutæki á dag.
27%
ökutækja óku um Víkurskarð
í júní og það sem af er júlí eða
um 900 ökutæki á dag.
UMFERÐ UM VÍKURSKARÐ
»