Morgunblaðið - 25.07.2019, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2019
Okkur hættir til að kynda undirspennu og eftirvæntingu
vegna atburða eða uppákoma sem
eru á döfinni og þykir stundum
ómissandi hluti af dæminu. Hver
hefur ekki verið í
erlendum stórmark-
aði þar sem þeir
spila Jingle Bells á
hæsta strax í októ-
ber, og það í löndum
sem ljúka jólunum
af á dagsparti.
Slíkur uppþembdur útblásturvæntinga er örugglega til þess
fallinn að valda fráhvarfs-
einkennum hjá börnum, sem trúa
því tveimur mánuðum síðar að jólin
séu loks komin og enn síður svo
horfin samdægurs.
Þannig andrúmsloft var uppi íbandarískri pólitík síðustu vik-
ur um boðaða þingyfirheyrslu yfir
Robert Mueller saksóknara sem
rannsakaði „rússagaldurinn“ í tvö
ár með 50 hjálparkokkum.
Demókratar og fjölmiðlar þeirraspiluðu tilheyrandi Jingle
Bells frá morgni til kvelds vikum
saman.
En í lok aðventu Muellers varengu líkara en að einhver
hefði stolið jólunum frá þeim.
Mueller hafði fyrir löngu skilað
doðranti sem fáir lásu. Og nú átti að
búa til bíómynd upp úr honum. Það
varð hreint flopp. Ekkert mynd-
rænt gerðist og saksóknarinn var
ekki meira en svo með á nótunum í
yfirheyrslunni, sem enn stendur.
Mueller á glæsilegan feril aðbaki en haft er á orði vestra
að demókrötum hafi tekist að hafa
hann af honum á lokametrunum.
Það var ekki fallega gert. Og ekki
ætlunin.
Robert Mueller
Vond stjórn
væntinga
STAKSTEINAR
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is
Mán.–Fös. 09–17
Glæsilegar danskar
innréttingar í öll
herbergi heimilisins
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Samstarfsnefnd um sameiningu Borgarfjarðar-
hrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og
Seyðisfjarðarkaupstaðar hefur tilkynnt að at-
kvæðagreiðsla um sameiningu sveitarfélaganna
fari fram hinn 26. október 2019 og verður kosið
sama dag í öllum sveitarfélögunum.
Fram kemur í tilkynningu í Lögbirtingablaðinu
að atkvæðagreiðslan fari fram eftir ákvæðum laga
um kosningar til sveitarstjórna eftir því sem við
getur átt. Helstu forsendur fyrir sameiningu
sveitarfélaganna er að finna á vefnum svaustur-
land.is og verða þær kynntar í aðdraganda at-
kvæðagreiðslunnar á prentmiðlum, vefmiðlum og
á íbúafundum, segir í tilkynningunni.
Sameining þessara fjögurra sveitarfélaga á
Austurlandi hefur verið til skoðunar undanfarin
misseri. Í skýrslunni Sveitarfélagið Austurland –
stöðugreining og forsendur tillögu um sameiningu
má finna greiningu og hugmyndir um mögulega
framtíðaruppbyggingu sveitarfélagsins, verði
sameining samþykkt. Greiningin er m.a. byggð á
upplýsingum frá sveitarfélögunum, vinnu starfs-
hópa og vinnu á íbúafundum. sisi@mbl.is
Kosið um sameiningu í október
Fjögur sveitarfélög á
Austurlandi sameinuð?
Morgunblaðið/Golli
Seyðisfjörður Eitt fjögurra sveitarfélaga á Aust-
urlandi sem mögulega verða sameinuð í haust.
Smíði tveggja nýrra gámaskipa
Eimskips stendur yfir í Kína. Skipin
hafa fengið nöfnin Brúarfoss og
Dettifoss.
Búarfoss verður fyrr afhentur og
síðan Dettifoss. Skipstjóri á Brúar-
fossi verður Bragi Björgvinsson,
sem nú er skipstjóri á Goðafossi.
Bragi og áhöfn hans munu sigla
skipinu heim til Íslands og er áætl-
að að heimferðin taki einn mánuð.
Morgunblaðið fékk þær upplýs-
ingar í gær hjá Eimskip að smíðin
væri í takt við væntingar og af-
hending yrði á fjórða ársfjórðungi
þessa árs. „Það er ljóst að afhend-
ing skipanna hefur eitthvað tafist
frá upphaflegum plönum og eru
margar ástæður fyrir því eins og
gengur og gerist í skipasmíði,“ seg-
ir í svari Eimskips.
Eimskip undirritaði samning um
smíðina við kínversku skipasmíða-
stöðvarnar í janúar 2017. Samn-
ingsverð hvors skips nemur um 32
milljónum dollara, sem er um 4.000
milljónir íslenskra króna á gengi
dagsins í dag. sisi@mbl.is
Tekur mánuð að sigla
Brúarfossi til Íslands
Ljósmynd/Eimskip
Nýsmíði Nýju skipin verða stærstu skip íslenska flotans, 26.500 brúttótonn.