Morgunblaðið - 25.07.2019, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 25.07.2019, Blaðsíða 10
SVIÐSLJÓS Teitur Gissurarson teitur@mbl.is Flugvéladróni frá Siglingaöryggis- stofnun Evrópu af gerðinni Hermes 900 hefur nú í nokkra mánuði verið í umsjá Landhelgisgæslu Íslands (LSH) sem hefur notað hann í eftirlit á Austurlandi. „Þetta er ísraelskt apparat með fjórtán metra vænghaf og er um 1,2 tonn að þyngd,“ segir Georg Kr. Lárusson, forstjóri LSH, í samtali við Morgunblaðið, spurður um tryllitækið. „Hann getur flogið 800 kílómetra frá stjórnstöð og aftur til baka,“ segir Georg sem segir að LSH hafi í um ár unnið að því að fá drónann hingað til lands til próf- unar og eftirlits. „Við höfum notað þetta til að hafa eftirlit með sjónum, umferð á miðum og meng- un.“ Inntur eftir frekari upplýsingum um þetta segir Georg að græjan góða hafi nýst í eft- irlit „með brottkasti til dæmis, í eftir- lit með ferðum skipa og báta, hvar menn hafa verið á veiðum og svoleið- is, og sömuleiðis til að taka myndir af hugsanlegri mengun“. Ætla að fá dróna aftur „Við höfum leyfi til að fljúga þessu á og út frá norðausturhorninu,“ segir Georg en eins og oft er með viðlíka flugtilraunir gilda víðtækar takmark- anir á því hvar dróninn má fljúga. „Við gerum ráð fyrir því að það muni þróast með tímanum, og að það verði meira tillit tekið til þessara tækja. Eins og er megum við fljúga út frá Egilsstöðum og út á norðausturhorn landsins.“ Spurður um yfirráð yfir tækinu og hvort von sé á að LSH fái varanleg umráð yfir því kveður Georg nei við og segir: „Við höfum verið með tækið frá því í apríl og verðum með það út ágúst.“ Spurður hvort það felist ekki mikið hagræði í því að geta notað drónann fremur en að þurfa að nota mannaðar flugvélar í aðgerðirnar segir Georg að mjög vel hafi gengið að vinna með drónann en að það krefjist hins vegar töluverðs mannafla. „Þá í að stjórna þessu, vinna úr gögnum, sinna við- haldi og svo framvegis.“ Segir hann að nokkur hópur sé á Egilsstöðum í tengslum við dróna- verkefnið, og segir að LSH líti á þetta sem „gríðargóða reynslu“ og „mikinn feng að fá að taka þátt í þessu“. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum er dróninn sem um ræðir engin smásmíði, og ekki hinn hefð- bundni áhugamannadróni. Segir Georg að því sé nauðsynlegt að hafa flugbraut til afnota þegar dróninn er settur á loft, þó hún þurfi ekki að vera sérstaklega löng. Aðspurður segir Georg að vonir séu bundnar við að þetta sé ekki í síð- asta skipti sem viðlíka dróni verður á Fróni: „Við sjáum fyrir okkur að í framtíðinni muni þetta hugsanlega leysa af hólmi hefðbundna flugvél LSH, en það gerist ekki alveg á næstu árum.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Tryllitækið Mögulegt er að í framtíðinni leysi slíkt tæki af hefðbundna flugvél Landhelgisgæslunnar. Nokkur mannskapur fylgir drónanum, enda ekki fyrir hvern sem er að vinna með slíka græju. Ísraelskur dróni í eftirliti á Íslandi  Flýgur 800 kílómetra frá stjórnstöð  Er með fjórtán metra vænghaf  Vegur 1.200 kílógrömm Á flugi Ísraelski dróninn getur flogið 800 kílómetra frá stjórnstöðinni. Georg Kr. Lárusson Fyrir austan Myndarlegur mannlaus dróninn er dreginn út á flugbraut á Egilsstaðaflugvelli fyrr í vikunni. 10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2019 m. M18 FUEL™ skilar afli til að saga á við bestu bensínknúnu keðjusagirnar. POWESTATE™ mótor. REDLINK PLUS™ yfirálagsvörn. REDLITHIUM-ION™ rafhlaða. Sveigjanlegt rafhlöðukerfi sem virkar með öllum Milwaukee ® M12™ rafhlöðu M18 FCHS Alvöru keðjusög fráMilwaukee vfs.is VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • DALSBRAUT 1, AKUREYRI • S: 560 8888
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.