Morgunblaðið - 25.07.2019, Page 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2019
HLUTHAFAFUNDUR
HluthafafundurHBGranda hf. verður haldinnfimmtudaginn
15. ágúst 2019 í höfuðstöðvum félagsins aðNorðurgarði 1,
101Reykjavík og hefst hann klukkan17:00. Fundurinn fer framá íslensku.
Dagskrá
1. Tillaga umað staðfesta ákvörðun stjórnar um kaup félagsins á öllu hlutafé í sölufélögum í Japan, Hong
Kong og ámeginlandi Kína, sem og þjónustufélagi á Íslandi með útgáfu nýrra hluta í HBGranda hf.
2. Tillaga stjórnar til breytinga á grein 1.1. samþykkta félagsins þess efnis að nafn félagsins verði Brim hf.
3. Önnurmál.
Aðrar uppýsingar
Hver hluthafi á rétt á að fá ákveðin mál tekin til
meðferðar á hluthafafundi ef hann gerir um það
skriflega eða rafræna kröfu til félagsstjórnar á
netfangið hluthafafundur@hbgrandi.ismeð það
löngum fyrirvara að unnt sé að taka málið á dagskrá
fundarins. Þannig skulu óskir hluthafa liggja fyrir eigi
síðar en kl. 17:00 mánudaginn 5. ágúst 2019, þ.e. 10
dögum fyrir fundinn.
Á hluthafafundum fylgir eitt atkvæði hverri einni
krónu í hlutafé. Eigin bréf félagsins njóta ekki
atkvæðisréttar.
Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á
fundarstað.
Hluthafar sem ekki eiga kost á að sækja fundinn geta:
a) veitt öðrum skriflegt umboð
b) greitt atkvæði skriflega
Þeim hluthöfum sem hyggjast nýta sér annan hvorn
þessara kosta er bent á að kynna sér á heimasíðu
félagsins hvernig þeir skuli bera sig að. Þar er að finna
leiðbeiningar um skráningu og form skjala og hvernig
þeim skuli skilað til félagsins.
Dagskrá, tillögur og öll skjöl sem lögð verða fyrir
fundinn eru hluthöfum tiltæk á íslensku, á heimasíðu
félagsins og á skrifstofu félagsins á venjulegum
skrifstofutíma. Endanleg dagskrá og tillögur verða
birtar viku fyrir fundinn.
Allar nánari upplýsingar um fundinn má finna á vefsíðu
félagsinswww.hbgrandi.is
Stjórn HBGranda hf.
Þórsmörk finnst mér verafallegasti staður á Ís-landi. Þetta er einstök vinumlukin jöklum og þang-
að er ekki fært nema fara yfir
straumþungar ár á vaði. Ferðir í
þessa fallegu náttúruvin verða því
alltaf talsverð ögrun, en þær gera
Merkurtúra líka að ævintýrum
sem eru alveg rómuð,“ segir Berg-
sveinn Theodórs-
son, viðburða-
haldari og
leiðsögumaður á
Selfossi. Sem
strákur fór hann
oft og stundum
daglega í Þórs-
mörkina og
sumrin og naut
þá bræðra sinna;
þeirra Guðna og
Hlyns, sem voru
rútubílstjórar hjá Austurleið sem
fór daglegar ferðir í Húsadal í
Þórsmörk.
„Ég ólst upp á Hvolsvelli og fór
oft á sumrin með bræðrum mínum
á morgnana inn í Mörk. Var þar
allan daginn, stundum einn eða
með vinum mínum. Við þekktum
fólkið sem vann í gestahúsinu, það
gaf okkur nesti fyrir daginn – og
svo var haldið á spennandi staði.
Til dæmis var ég orðinn sér-
staklega laginn við að klifra upp í
Snorraríki; sem er hellir hátt uppi í
hamravegg innst í Húsadalnum.
Ég þekkti holurnar í klettunum,
hverja og eina, vissi í hverri þeirra
var besta gripið og tók þetta alveg
eins og Tarsan í trjánum. Var enga
stund að lesa mig upp sléttan
vegginn,“ segir Bergsveinn og
heldur áfram:
„Á þessu rölti fór ég líka að taka
eftir því óvenjulega í náttúrunni og
nam líka hverjar væru hættur
hennar. Í seinni tíð geri ég mér æ
betur grein fyrir því hvað þessir
Þórsmerkurdagar voru lærdóms-
ríkir og mótuðu mig mikið. Einnig
ýmsar ferðir með foreldrum mín-
um, til dæmis inn í Fljótshlíð, inn á
Emstrur, Fjallabak og víðar um
Rangárvallasýsluna. Í albúmum
fjölskyldunnar eru til margar
skemmtilegar myndir frá tíma sem
nú er orðinn að dýrri minningu.“
Maður er manns gaman og oft er
óviðjafnanleg stemning í Þórs-
mörk. Margir eiga skemmtilegar
minningar um tjaldútilegur þar
eða söng og spilirí við varðeld und-
ir bláhimni blíðsumarsnætur, eins
og sungið er um í frægu lagi. „Mik-
ið óskaplega var oft skemmtilegt í
Mörkinni og er raunar enn. Já, á
þessum skemmtilegu stundum um
sumarnætur fór maður stundum að
sperra sig aðeins ef maður, þá ung-
lingur, sá fallegar stelpur. Í Mörk-
inni vaknar allt til lífsins.“
Þórsmörkin er ævintýri
Landið mitt! Tími sumarleyfa er nú í algleymingi og þá er tilvalið að bregða undir sig betri fætinum til þess að lifa og njóta. Margir eiga
sína eftirlætisstaði sem er gaman að heimsækja – jafnvel aftur og aftur enda ber alltaf eitthvað nýtt fyrir augu, eins og fólk segir hér frá.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Mörkinni Hin fagra vin í skjóli jöklanna skiptist í tvo megindali og það er í
Húsadalnum sem Bergsveinn er öllum aðstæðum kunnugur frá fyrri tíð.
Bergsveinn
Theodórsson
„Strandir eru staðurinn til að
njóta,“ segir Halla Heimisdóttir,
íþróttakennari í Mosfellsbæ. „Ég er
ættuð úr Norður-
firði og var þar í
sveit hjá frænd-
fólki mínu á Val-
geirsstöðum í tíu
sumur eða svo.
Fyrir nokkrum
dögum var ég
með manninum
mínum og börn-
unum okkar fyrir
vestan og leit þá
á fornar slóðir.
Fann aftur notalega tilfinningu
æskuáranna þegar ég gekk um
sendna fjöruna fyrir botni Norð-
urfjaðar, þar sem litlum bárum
skolar á land. Fór svo líka í sund-
laugina í Krossnesi, sem þar stend-
ur í flæðarmálinu á alveg einstökum
stað. Allt eru þetta einstakir staðir í
firði sem er umlukinn fjöllum og er
ævintýraheimur fyrir mér. Það gild-
ir raunar um Vestfirðina alla; lands-
hluta þaðan sem ég er ættuð.“
Í dag er Árneshreppur á Strönd-
um vinsæll ferðamannastaður yfir
sumartímann, en Halla minnist þess
frá sínum dögum nyrðra að þar
sáust tæplega túristar. „Tímarnir
breytast og mennirnir með, eins og
máltækið segir,“ segir Halla.
„Margt fyrir norðan er þó með
sama svip og áður; hvað sem verður
nú þegar stendur til að reisa þarna
virkjun og fara í ýmsar fram-
kvæmdir. Ég mæli alveg eindregið
með því að fólk fari á Strandirnar;
komi sér úr stressinu í borginni og
nái jarðtengingu í fallegu um-
hverfi.“
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Strandir Miðnætursólin við Drangaskörð er nánast ólýsanlega falleg að sjá.
Staðurinn til að njóta
Halla
Heimisdóttir
Bæjarhátíð Grundfirðinga, Á góðri
stundu, hefst í dag og stendur fram á
laugardagskvöld. Í dag verður haldið
barnaball, en af dagskrárliðum morg-
undagsins má nefna golfmót, harm-
onikkuball og brekkusöng við kirkju
bæjarins. Á laugardaginn verður svo
fjölskyldudagskrá í bænum, Lions-
menn bjóða upp á fiskisúpu, sölu-
markaður verður í samkomuhúsi
Grundarfjarðar og svo endað með
kvöldvöku, bryggjuballi og stórdans-
leik með Stjórninni.
Bæjarhátíð í Grundarfirði
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Grundarfjörður Kirkjufellið í baksýn.
Á góðri stundu
Hin árlega Drusluganga verður í
Reykjavík næstkomandi laugardag,
27. júlí, og verður lagt af stað kl.
14:00 frá Hallgrímskirkju. Efnt er til
þessa viðburðar í því skyni að vekja
athygli á kynferðisofbeldi og öllum
birtingarmyndum þess sem og að
færa ábyrgð kynferðisafbrota frá þol-
endum yfir á gerendur. Einnig til að
sýna brotaþolum kynferðisofbeldis
samstöðu og krefjast betra réttar-
kerfis og bætts samfélags.
„Druslugangan fordæmir alla
þöggunartilburði samfélagsins. Aldir
þöggunar eru liðnar, þöggun verður
ekki liðin áfram. Kynferðisofbeldi
verður að ræða opinberlega. Við
druslur sættum okkur ekki við sam-
félag sem samþykkir kynferðisof-
beldi með þöggun og aðgerðaleysi,
sama hvort við erum þolendur, að-
standendur eða almennt á móti kyn-
ferðisofbeldi,“ segir í tilkynningu.
Drusluganga á laugardag
Á móti ofbeldi