Morgunblaðið - 25.07.2019, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2019
LAUGAVEGUR 91 · SMÁRALIND
KLEMENZ Hettupeysa
kr. 8.990.-
DRANGSNES Merino ullarpeysa
kr.9.900.-
DRANGSNES Merinoullarbuxur
kr.8.900.-
M Regnjakki
kr. 8.990.-
ELÍS Lopapeysa
kr.14.990.-
Allt fyrir
VERSLÓ
BRI
GÍGUR Pollabuxur
kr. 6.990.-
icewear.is
FRÍ HEIMSENDING
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Margir hafa hringt og óskað eftir altarisgöngu
og bænastund í Breiðabólstaðarkirkju í Fljóts-
hlíð til þess að geta bergt af fornum kaleik,
einum mesta kirkjudýrgrip hér á landi. Sagt er
að honum fylgi lækningamáttur þeim til handa
sem af honum bergja. Kaleikurinn er nú sýnd-
ur tímabundið í Þjóðminja-
safninu ásamt fleiri kirkju-
gripum í tilefni af
fullveldisafmælinu og lokum
útgáfu ritraðarinnar Kirkjur
Íslands.
„Í gegnum tíðina hafa
margir hringt og sagt að
þeim hafi orðið meina bót við
það að dreypa af bikarnum.
Ég sel það ekki dýrara en ég
keypti, en þannig er það nú
samt,“ sagði séra Önundur Björnsson, sókn-
arprestur á Breiðabólstað. Talið er að kaleik-
urinn sé ekki yngri en frá 13. öld. Söfn hafa
ítrekað falast eftir kaleiknum, m.a. British Mu-
seum sem sendi hingað leiðangur til að kaupa
kaleikinn. Önundur sagði mikilvægt að kirkju-
munir væru varðveittir í kirkjunum og notaðir
af söfnuðunum. „Ef þessi kaleikur hefði verið í
vörslu Þjóðminjasafnsins, hver myndi bergja af
honum þar,“ spurði Önundur.
Varsla kirkjumuna hefur lengi verið Önundi
hugleikin. Þegar hann sat á Alþingi sem vara-
þingmaður fyrir um 15 árum flutti hann þings-
ályktunartillögu um að kirkjugripum í vörslu
Þjóðminjasafnsins yrði skilað í kirkjur sem áttu
þá eða þeir afhentir söfnum heima í héraði.
Kirkjur betur búnar nú
Í greinargerð með henni segir að allt frá
upphafi 20. aldar hafi aðilar á vegum Þjóð-
minjasafnsins safnað eða jafnvel numið á brott
muni í eigu kirkna víða um land. Mörgu hafi
verið bjargað með því móti, ekki síst vegna
þess að flestar kirkjur hafi verið vanbúnar til
að varðveita dýrmæta listgripi. Nú sé öldin
önnur, kirkjur yfirleitt vel byggðar og þeim vel
við haldið, þeirra vel gætt og vel hugsað um
kirkjugripina. Önundur vitnaði í skrif dr. Sig-
urbjörns Einarssonar biskups í bókinni Haust-
dreifar [útg. 1992] sem sagði að kirkjugripum
hefði verið safnað saman í Reykjavík, að segja
mætti af illri nauðsyn. „Nothæfir kirkjulegir
listmunir frá fyrri tíð eiga sem flestir að varð-
veitast í kirkjum, þeim til nota og yndis, sem
þangað koma,“ skrifaði Sigurbjörn biskup.
Önundur nefndi sérstaklega minningarmark
séra Tómasar Sæmundssonar, Fjölnismanns,
sem á ríka sögu á Breiðabólstað. Vinir Tóm-
asar öngluðu saman fyrir brúnsteini úr
Borgundarhólmsnámum. Hann var settur upp í
Breiðabólstaðarkirkjugarði og á hann festar
fjórar lágmyndir úr marmara eftir danska
myndhöggvarann Bissen. Þáverandi þjóðminja-
vörður lét fjarlægja lágmyndirnar í kringum
1930 í heimildarleysi og setja eirafsteypur í
staðinn.
Önundur telur að lágmyndirnar séu betur
komnar á Breiðabólstað og sýnilegar almenn-
ingi en að þær liggi áratugum saman ósýni-
legar í geymslum Þjóðminjasafnsins.
Kaleikur með lækningamátt
Margir vilja bergja af bikarnum Bikarinn er nú til sýnis í Þjóðminjasafninu
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Breiðabólstaðarkirkja í Fljótshlíð Kaleikurinn
forni er helsti dýrgripur kirkjunnar og stolt.
Önundur S.
Björnsson
Þjóðminjasafn Íslands/Ívar Brynjólfsson
Kaleikurinn Hann er talinn vera frá 13. öld og
þykir vera völundarsmíð og er hans vel gætt.
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Reykholtshátíð fer fram um
helgina í Reykholti í Borgarfirði.
Hátíðin er haldin í tengslum við
kirkjudag sem ber nú upp á 28. júlí
en þann dag árið 1996 var nýja
kirkjan í Reykholti vígð.
Kristján Björnsson, vígslubiskup
í Skálholti, predikar í messu á
kirkjudegi. Geir Waage sóknar-
prestur og Flóki Kristinsson á
Hvanneyri þjóna fyrir altari. Viðar
Guðmundsson leikur á orgel og
Reykholtskórinn syngur við athöfn-
ina sem og tónlistarfólk Reykholts-
hátíðar. Á opnunartónleikum hátíð-
arinnar á föstudag verða fluttir
tveir ljóðhlutar úr Schanengesang
og sjö ljóð Ludwig Rellstab. Á
laugardag verða kammertónleikar
og tónleikar með kvennakórnum,
Vox feminae. Reykholtshátíð lýkur
á sunnudag með tónleikunum
Heimskringla og hetjudáð.
Hátíð Gísli Súrsson verður til um-
ræðu í Snorrastofu í Reykholti.
Vígslubisk-
up predikar
í Reykholti