Morgunblaðið - 25.07.2019, Page 18
BAKSVIÐ
Pétur Hreinsson
peturh@mbl.is
Enski boltinn fær ný heimkynni í
Sjónvarpi Símans á komandi leiktíð.
Stutt er í að leikar hefjist og eru
starfsmenn fyrirtækisins nú í óða-
önn að skipuleggja hvernig dag-
skráin verður í kringum flaggskip
sjónvarpsútsendinga fyrirtækisins.
Áskriftasala að enska boltanum,
sem mun kosta 4.500 kr. á mánuði,
er ekki hafin, en íþróttastöð Símans,
Síminn Sport, er komin í loftið og
aðgengileg öllum þeim sem hafa
Premium-þjónustu Símans.
Flaggskipið mun leysa landfestar
við mikla viðhöfn en Tómas Þór
Þórðarson, ritstjóri enska boltans á
Símanum, mun klippa á borða leik-
tíðarinnar 2019 ásamt sínum helsta
sérfræðingi, Eiði Smára Guðjohn-
sen knattspyrnugoðsögn, á ekki
ómerkari stað en Anfield, heimavelli
Liverpool, sem tekur á móti Nor-
wich á föstudagskvöldi þann 9.
ágúst. Þó að sérfræðingar Símans
verði ekki í hverri umferð á vellinum
er viðveran á enskri grundu ein af
þeim nýjungum sem boðið verður
upp á í kringum dagskrárgerð Sím-
ans í vetur.
Morgunblaðið ræddi við Tómas
Þór um fyrirkomulagið í kringum
enska boltann en ljóst er að ýmsar
nýjungar verða í boði.
Viðtöl við stórlaxa
„Við Eiður Smári munum opna
tímabilið á Anfield og bjóðum enska
boltann velkominn í ný heimkynni á
hliðarlínunni. Svo fer ég heim og
Logi Bergmann og Eiður verða á
grasinu á Old Trafford á leik Man-
chester United og Chelsea,“ segir
Tómas sem er nú þegar búinn að
skipuleggja sjö ferðir út. Tómas
segist vilja færa íslenska áhorf-
endur nær Englandi og viðveran
þar í landi mun augljóslega ná því
markmiði. „Okkur býðst að taka við-
töl eftir leiki en við getum ekki mik-
ið ráðið því við hverja við tölum.
Sjálfur vil ég þess vegna nýta tím-
ann sem við fáum til þess að fá t.d.
uppgjör frá Eiði beint inn í pró-
grammið frá Old Trafford.“
Tómas er nú þegar búinn að
skipuleggja viðtal við dönsku goð-
sögnina Peter Schmeichel. Svo segir
Tómas að Síminn muni ná viðtali við
Frank Lampard, stjóra Chelsea og
góðvin Eiðs Smára. Markmiðið sé
að sjálfsögðu að nýta einstakt
tengslanet hans þar í landi. Þessi
innslög munu að sögn Tómasar m.a.
nýtast í nýja hálftíma upphitun sem
Síminn býður upp á fyrir alla sýnda
leiki.
Hálftíma upphitun
„Það er hálftíma upphitun fyrir
alla leiki, sem er ekkert alltaf í stúd-
íói. Bæði verða þetta innslög sem við
gerum úr efni sem við fáum að utan
og einnig heimagerð innslög sem við
vinnum. Við erum í góðu samstarfi
við Premier League Productions
sem er framleiðslufyrirtæki ensku
úrvalsdeildarinnar. En við ætlum
líka að vera með mikið heimagert
efni í kringum alla leiki,“ segir Tóm-
as Þór.
Hann verður sjálfur með nokkurs
konar ávarp á laugardögum í upphit-
uninni fyrir fyrsta leik þar sem hann
fer yfir komandi umferð. „Bara svo
að fólk sjái andlit til að byrja
helgina,“ segir Tómas. Sá leikur sem
hefst á hinum klassíska leiktíma, kl.
15 að staðartíma, sem verður reynd-
ar til að byrja með kl. 14 hér á landi,
verður svo í opinni dagskrá í Sjón-
varpi Símans.
Að sögn Tómasar verða síðdegis-
leikirnir á laugardögum og sunnu-
dögum oft hörkuleikir, á milli liða
sem hafa endað í efstu sex sætunum
síðustu ár. „Það verða 14-15 leik-
dagar með stórleikjum. Í 2. umferð
mætir t.d. Manchester City Totten-
ham og í umferðinni eftir það mætir
Liverpool Arsenal. Þegar þessi topp
sex lið mætast á laugardagssíðdegi
kveikjum við ljósin í stúdíóinu og
verðum með umfjöllun bæði fyrir og
eftir. Ég mun stýra því að mestu
leyti og lýsa þessum leikjum oftast.
Það verður léttur bragur yfir því.
T.d. fáum við í hús stuðningsmenn
liðanna, einhverja fótboltamenn eða
einhverja þekkta einstaklinga sem
halda með liðunum. Ekki endilega
okkar sérfæðinga, þannig að það
verður aðeins annar tónn í þessum
laugardagsleikjum,“ segir Tómas en
líkt og fram hefur komið eru sér-
fræðingar Símans þau Bjarni Þór
Viðarsson, Margrét Lára Viðars-
dóttir og Eiður Smári Guðjohnsen.
Ásamt þeim í teymi Símans verða
einnig Logi Bergmann og knatt-
spyrnuþjálfarinn Elísabet Gunn-
arsdóttir, sem býr reyndar í Svíþjóð.
Í lok laugardags verður svo
markasyrpuþáttur, byggður á fyrir-
mynd TV 2 í Noregi þar sem farið
verður yfir leikina í ítarlegum há-
punktum þar sem allt það helsta úr
hverjum leik verður sýnt.
Þungamiðjan á sunnudögum
Á sunnudögum eru yfirleitt tveir
leikir á dagskrá. Sunnudagssíðdegið
er þungamiðja Símans í umfjöll-
uninni um enska boltann. Þá verður
á dagskrá þátturinn Völlurinn.
„Umfjöllunin hefst hálftíma fyrir
seinni leikinn. Í fyrstu umferðinni
mætir Newcastle Arsenal. Eftir
hann gerum við þann leik upp í smá-
stund. Svo gerum við hlé og þá hefst
Völlurinn, umfjöllunarþátturinn sem
mun lifa í Sjónvarpi Símans Premi-
um út vikuna. Það verður undir-
búinn umræðuþáttur um enska bolt-
ann þar sem við erum ekki að fara að
sýna öll mörkin og ekki að fara yfir
alla leikina. Þetta verða heitustu
umræðuefnin og stærstu málin eftir
hverja helgi í boltanum,“ segir Tóm-
as Þór.
Umfjöllun Vallarins verður fyrir
alla og ekki bara fyrir allra hörðustu
sófaspekinga að sögn Tómasar sem
segir að áhorf á enska boltanum
verði mögulega meira en áður þar
sem tugþúsundir heimila eru með
Premium-þjónustu Símans og fá
þannig sjálfkrafa aðgang að enska
boltanum.
„Við erum meðvituð um stærð
áhorfendahópsins og þá er kannski
ekki endilega sniðugt að greina allt
það sem gerist á vellinum. En að
sjálfsögðu verðum við ekki bara að
fleyta rjómann. Við tölum við mjög
hæft fólk um fótbolta og prófum
okkur áfram með að besta þetta
form,“ segir Tómas Þór en búast má
við því að hann fái einhverja gesta-
sérfræðinga í hús á tímabilinu. Það
sé nauðsynlegt því Völlurinn er um-
ræðuþáttur frekar en atvikaþáttur.
„Þá er gott að fá inn fleiri raddir og
sjónarmið,“ segir Tómas Þór.
Hefja leiktíðina á Anfield
Tómas Þór Þórðarson fer fyrir teymi Símans í umfjöllun um enska boltann Ætlar að færa ís-
lenska áhorfendur nær Englandi Hálftíma upphitun Þátturinn Völlurinn verður á sunnudögum
AFP
Anfield Tómas Þór Þórðarson og Eiður Smári Guðjohnsen munu hefja komandi leiktíð á Anfield í Liverpool.
Morgunblaðið/RAX
Spark Bjarni Þór Viðarsson, Eiður Smári Guðjohnsen, Tómas Þór Þórðar-
son, Margrét Lára Viðarsdóttir og Logi Bergmann skipa teymi Símans.
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2019
Álfabakka 12, 109 Rvk • s. 557 2400 • bjorg@bjorg.is • Opið virka daga kl. 8-18
Sérhæfum
okkur í hreinsun
á viðkvæmum
fatnaði
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Eins og fram hefur komið mun Sjón-
varp Símans bjóða upp á enska bolt-
ann í svonefndri 4K upplausn, en þá
er átt við hve myndin á skjánum er
skýr og smáatriði greinileg.
Eftir því sem sjónvarpstækni
fleygir fram þá fjölgar líka skamm-
stöfunum sem notaðar eru til að
tákna gæði skjásins. Flestir þekkja
eflaust HD-tækni, en slík tæki voru
markaðssett sem háskerputæki, en
þá er upplausnin á skjánum, ljósdíl-
arnir sem birta myndina, að minnsta
720 línur lárétt (t.a.m. 1024x768).
Tækninni hefur fleygt umtalsvert
fram frá því HD-sjónvarpstæki
komu á markað og skjálínunum hef-
ur líka fjölgað enda er myndin á
skjánum alla jafna því betri sem lín-
urnar eru fleiri (svo framarlega sem
efnið sem horft á er af sömu gæð-
um). Það helst og í hendur við það að
sjónvarpsskjáir hafa líka farið
stækkandi og eftir því sem skjárinn
er stærri því meira máli skiptir upp-
lausnin.
Svonefnt Full HD-sjónvarpstæki
er með upplausn sem er a.m.k. 1.920
x 1.080 dílar. Ultra HD, eða UHD,
sem er líka markaðssett sem 4K, er
aftur á móti með 3.840 x 2.160 díla —
um það bil fjórum sinnum fleiri díla
en á Full HD sjónvarpi. Fyrir vikið
er myndin skýrari, smáatriði sjást
betur, nema hvað.
Ekki er þó allt talið hvað varðar
myndgæðin, því eðlilega skiptir máli
hvaða efni er verið að sýna í tækinu,
þ.e. hvaða upplausn er á því, og einn-
ig skipti máli hversu nálægt áhorf-
andinn er skjánum, því ef hann situr
tiltölulega langt frá honum sér hann
ekki svo mikinn mun þó skipt sé úr
Full HD yfir í 4K. Það er svo annað
mál að það að skipta í 4K-skjá gefur
einmitt möguleika á því að sitja nær
skjánum þegar horft er á boltann og
upplifunin verður þeim mun betri.
Þess má að lokum geta að til er
meira 4K-efni en enski boltinn, því
hægt er að horfa á Netflix í 4K-
gæðum.
Háskerpu háskerpa
Morgunblaðið/Ófeigur
Sjónvörp Tækninni fleygir fram.
Hægt verður að sjá helstu atriði
úr leikjunum í enska boltanum á
vefsíðu mbl.is sem er í sam-
starfi við Símann, auk allra
þeirra frétta sem þar birtast um
enska boltann. Að sögn Tóm-
asar Þórs verða helstu atriði úr
leikjum sýnd morguninn eftir.
„Eins verða líka aðgengilegar á
mbl.is klippur úr umfjöllun okk-
ar, bæði úr Vellinum, upphit-
unum úr myndveri eða innslög-
unum sem við höfum gert,“
segir Tómas og heldur áfram:
„Síðan þegar umferðin er búin
koma klippur eins og bestu
mörkin, bestu markvörslurnar
og stærstu stundirnar.“
Klippur sýnd-
ar á mbl.is
ENSKI BOLTINN Á MBL.IS