Morgunblaðið - 25.07.2019, Qupperneq 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2019
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Um 35 kílómetrar eru frá Varmahlíð
í Skagafirði að innstu byggðum bæj-
um í framdölum héraðsins. Leið
flestra sem hér fara liggur um hring-
veginn, annaðhvort út á Sauðárkrók
eða þá áleiðis til Akureyrar, en hér
verður haldið til suðurs. Hér er líka
góður og greiður vegur, þar sem ekið
er um Neðribyggð en svo nefnist
svæðið sem liggur að Svartá vestan-
verðri. Meðal bæja þar eru Daufá og
Varmilækur og kirkjustaðurinn
Mælifell svo nokkrir séu nefndir.
Nær fjöllum er Efribyggð. Efsti og
nyrsti bær þar er Álftagerði, þaðan
eru hinir söngglöðu bræður Sigfús,
Pétur, Gísli og Óskar Péturssynir.
Torfhúsin halda velli
Neðar í landinu milli Svartár og
Héraðsvatna er svæði sem einu nafni
heitir Tungusveit. Alls er þetta
stykki enda á milli um 20 kílómetrar
og eru klettabelti áberandi í þessu
landslagi. Í Tungusveit er Steins-
staðahverfi, lítið byggðarlag þar sem
eru ferðaþjónustubýli, garðyrkju-
stöð og fleira. Þá er þar félagsheimili
og þar var lengi starfræktur grunn-
skóli fyrir sveitina. Á Reykjum, sem
eru á þessari sömu bæjatorfu, er
jafnframt sóknarkirkja og torfbær í
einkaeigu, sem byggður var á ár-
unum upp úr 1990. Er eftirtektar-
vert að í Skagafirði hafa torfbygg-
ingar haldið velli ágætlega, enda
rignir hér minna en víða annars stað-
ar á landinu. Um skeið var í Reykja-
bænum vísir að minjasafni sem
bóndinn á Reykjum, Kristján Jó-
hannsson (1924-2004), safnaði til. Því
hefur nú verið lokað en hugmyndir
eru um að nýta bæinn með öðru móti.
Landið tvíefldist
Mælifellshnjúkur er áberandi í
landslagi hér; formfagur og gæti frá
sumum sjónarhornum svipað til
pýramídanna í Giza í Egyptalandi.
Hnjúkurinn er 1.138 metrar á hæð,
auðkleifur og af honum víðsýnt.
Fjallið er líka frásagnarefni eða stef í
ýmsum bókmenntum, ljóðum og sög-
um.
„Viðdvölin á tindi Mælifellshnjúks
er ein af stórum stundum barnæsku
minnar. Þar til þá gafst mér ekki sýn
út fyrir mörk Skagafjarðarsýslu.
Landið tvíefldist í skjótri svipan, tók
undir sig stökk í allar áttir sam-
tímis,“ segir Skagafjarðarskáldið
Hannes Pétursson í bókinni Jarðlag í
tímanum. Fjallið er einnig nefnt sem
eins konar táknmynd í marg-
víslegum skrifum Indriða G. Þor-
steinssonar rithöfundar, sem var frá
Gilhaga í fyrrverandi Lýtings-
staðahreppi, sem nú er hluti af sveit-
arfélagi sem spannar héraðið nánast
allt.
Halda má því svo til haga að við
bæinn Nautabú er afleggjarinn í
Efribyggð og þaðan inn á veginn um
Mælifellsdal. Er þá ekið upp dalinn
og um slóða sem tengist Kjalvegi
rétt sunnan við Blöndulón. Þetta er
góður og greiðfær sumarvegur.
Hálsar, hryggir og hæðir
Eftir því sem kemur lengra inn til
landsins þrengir að með hálsum og
dölum – og vegirnir liggja yfir hryggi
og hæðir. Á móts við bæinn Breið
greinast leiðir; þar má beygja til
hægri og aka inn Svartárdal eða
halda áfram og að kirkjustaðnum
Goðdölum sem er í mynni Vestur-
dals. Um hann falla fram Vestari-
Héraðsvötn. Þegar komið er yfir
brúna á vötnum við Goðdali er fyrst
ekið um Vesturdal í byggð en síðan
komið á fjallaslóða sem tengist
Sprengisandsleið við Nýjadal.
Svo er líka hægt að fara yfir í hinn
Austurdal; eyðibyggð í stórbrotinni
náttúru. Í gljúfrinu í dalnum miðjum
eru Austari-Héraðsvötn, hvar marg-
ir hafa reynt sig í flúðasiglingum sem
vinsælda njóta. Um hríð voru svo
uppi fyrirætlanir um virkjun
vatnanna á móts við bæinn Villinga-
nes. Frá því hefur nú verið horfið, í
bili hið minnsta.
„Bláir eru dalir þínir, / byggð mín í
norðrinu,“ yrkir Hannes Pétursson
um framdalina, þar sem um 300
manns búa. Fyrir fólk sem hefur
áhuga á landinu og sögunni er líka
þess virði að kynna sér staðhætti og
aðstæður í framsveitum Skaga-
fjarðar. - Að hinu leytinu til er þetta
hefðbundið landbúnaðarhérað: sauð-
fjárrækt og kúabúskapur á stöku
bæjum og svo ósköpin öll af hrossum
eins og hefð er fyrir í Skagafirði.
Ferðaþjónusta er síðan blómleg eins
og í flestum byggðum landsins enda
er vel þess virði að leggja hingað leið
sína, hvert sem erindið er.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Fjallasýn Slegin tún og grænir rúllubaggar á sumardegi. Næst á myndinni er bærinn Daufá í Neðribyggð og fram-
ar sést Steinsstaðaþorp. Yfir sveitinni allri Mælifellshnjúkur, 1.138 metra hár og áberandi mjög í Skagafirði.
Fram til dala
Skagafjörður Langt inn til lands-
ins Torfbær, pýramídi og sögusvið
bókmennta Ósköpin öll af hrossum
Stóð Svona voru trippin rekin, eins og hestamenn komast að orði. Hestaeign er mjög almenn meðal Skagfirðinga.
Ko
rt
ag
ru
nn
ur
: O
pe
nS
tr
ee
tM
apSkagafjarðardalir
Tunguháls
Mælifells-
dalur
Brúnastaðir
Svartárdalur
Goðdalir
Héraðsvötn
Steinsstaðahverfi
Reykir
Reykjafoss
Álftagerði
N
EÐRIBYGGÐ
EFRIBYGGÐ
Varmahlíð
Goðdalir Gamalt, fallegt guðshús.
Dæmigerð sveitkirkja mætti segja.
Tungusveit Torfbær í gamla stíln-
um á Reykjum, byggður um 1990.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Skagafjarðarskáldin Hannes og
Indriði G. Mynd frá árinu 1997.
Morgunblaðið/Einar Falur
Tignarlegur Reykjafoss er á annan
tug metra á hæð, utan alfaraleiða.
„Landbúnaðurinn er undirstaða í
afkomu íbúa hér, en mjög margir
sækja þó vinnu af bæ. Búskapur-
inn skilar í fæstum tilvikum
þeirri afkomu að hægt sé að lifa
eingöngu af honum,“ segir Jó-
hannes Ólafsson í Álftagerði.
Hann starfar hjá Fish Seefood á
Sauðárkróki en býr heima í sveit-
inni með hross. Sauðfé í Álfta-
gerði var skorið niður vegna riðu
síðasta vetur.
„Nei, að sækja vinnu út á
Sauðárkrók er ekkert mál, enda
fer ég þetta á innan við hálftíma.
Vil vera hér í sveitinni, enda
liggja rætur mínar hér. Umhverf-
ið er fallegt og mannlífið gott,“
segir Jóhannes sem er bróður-
sonur söngvaranna góðu sem seg-
ir frá hér til hliðar. „Ég læt duga
að raula fyrir sjálfan mig og hef
látið sönginn þeim frændum mín-
um eftir.“
„Almennt er veðursælt hér í
sveitinni og vetur snjóléttir, þótt
gaddurinn á veturna verði oft
mikill,“ segir Böðvar Fjölnir Sig-
urðsson, bóndi á Brúnastöðum í
Tungusveit. Þar rekur hann
mektarbú með fjölskyldu sinni;
framleiðir um 300 þúsund lítra af
mjólk á ári og er með um 250
fjár.
„Við búum að því að hafa víð-
feðm beitarlönd, alveg suður á
Eyvindarstaðaheiði, og þangað
rekum við féð á sumrin. Almennt
eru hér góð skilyrði til búskapar
og ánægjulegt þegar ungt fólk
vill taka við keflinu eins og við
sjáum nú merki um,“ sagði Böðv-
ar, sem var í heyskap þegar
blaðamaður Morgunblaðsins tók
hann tali.
Landbúnaðarhérað en margir sækja vinnu af bæ
Veðursælt en gaddurinn oft harður
Jóhannes
Ólafsson
Böðvar Fjölnir
Sigurðsson
LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Einnig mikið úrval varahluta
í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum,
ásamt úrvals viðgerðarþjónustu.
Kerrur
frá Ifor Williams
í öllum stærðum
og útfærslum