Morgunblaðið - 25.07.2019, Síða 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2019
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Skipulagsfulltrúi Djúpavogshrepps
hefur auglýst til kynningar breyt-
ingu á aðalskipulagi hreppsins. Gerð
er tillaga um breytta landnotkun í
Fossárvík í Berufirði sem verður af-
þreyingar- og ferðamannasvæði í
stað landbúnaðarsvæðis.
Jafnframt hefur verið auglýst til-
laga að nýju deiliskipulagi fyrir
svæðið. Deiliskipulagstillagan gerir
ráð fyrir allt að 90 fermetra þjón-
ustuhúsi, uppbyggingu stígakerfis
og útsýnispalla, og tveimur bíla-
stæðum fyrir allt að 42 bíla og þrjár
rútur.
Landeigandinn hefur fengið
styrki úr Framkvæmdasjóði ferða-
mannastaða til að hefja verkefnið,
tæpar 14 milljónir króna.
Fram kemur í greinargerð til
kynningar á deiliskipulaginu, sem
unnin er af teiknistofunni AKS, að
undanfarin ár hafi svæðið í Foss-
árvík, við Nykurhylsfoss og Nyk-
urhyl, þróast frá því að vera falin
náttúruperla yfir í fjölfarinn ferða-
mannastað.
Hundruð gesta dag hvern
Óformlegar vettvangsathuganir
sumarið 2016 leiddu í ljós að á bilinu
4-500 gestir heimsóttu svæðið þá
daga þegar mest var. Yfir háanna-
tímann er því töluverður fjöldi gesta
á svæðinu og gætir áhrifa þess á um-
hverfið sem og aðgengi inn Foss-
árdal. Aðeins þrjú malarbílastæði
eru uppi á Sveinsstekk, þaðan sem
fólk gengur til að skoða Nykurhyls-
foss. Ökutækjum er því gjarnan lagt
í vegköntum, jafnt smábílum og rút-
um, og stoppa jafnvel umferð eftir
veginum.
Áhrifa þessarar auknu umferðar
er farið að gæta á lággróður og mosa
auk þess sem umgengni um svæðið
er á tímum mjög slæm. Innviðir
ferðaþjónustu á svæðinu eru mjög
takmarkaðir. Snarbrattir gljúf-
urveggir Fossár geta reynst mjög
hættulegir ef farið er ógætilega í ná-
grenni þeirra. Eyjólfsstaðavegur,
sem liggur inn í Fossárdal, er gjarn-
an illfær vegna bílaumferðar við
Nykurhylsfoss. Stæði er fyrir þrjá
bíla en einnig hafa myndast lítil út-
skot meðfram veginum og bæði
fólksbílar og rútur leggja á veginum
ef svo ber undir. Hentislóðar hafa
myndast víða í gróðri þar sem ferða-
menn vilja nálgast ána og virða fyrir
sér fossa og flúðir. Til að bregðast
við þeirri stöðu sem komin er upp
hafa landeigendur á Eyjólfsstöðum
og Eiríksstöðum haft frumkvæði að
gerð deiliskipulags sem ætlað er að
tryggja öryggi gesta og að skapa
þeim, og heimamönnum, umgjörð til
ánægjulegrar upplifunar af íslenskri
náttúru.
Fossárdalur er um 20 km langur
dalur sem gengur inn úr Fossárvík í
Berufirði. Upp af víkinni eru há
klettabelti sem nefnast Fossárdals-
klif og hylja dalinn fyrir augum
þeirra sem leið eiga um hringveginn.
Það er ekki fyrr en upp fyrir Klifin
er komið sem grösugur dalurinn
blasir við. Dalurinn er umkringdur
háum og miklum klettabeltum Foss-
árfells annarsvegar og Suðurfjalla
hins vegar.
Grösugur og kjarri vaxinn
Dalurinn er grösugur og kjarri
vaxinn að hluta auk þess sem blóm-
leg skógrækt prýðir landslag norðan
megin Fossár, utan við Eyjólfsstaði.
Eftir dalnum rennur Fossá en hún á
upptök sín í Líkárvatni og fellur
fram dalinn um gljúfur og ása og
myndar hátt í 30 fossa á leið sinni til
Fossárvíkur. Fossarnir draga marg-
ir hverjir nafn sitt af landslaginu
sem áin rennur um svo sem Vind-
ássfoss, Vondássfoss, Sundássfoss
og Fálkaássfoss. Nykurhylsfoss er
neðsti fossinn í langri fossaröðinni
og steypist fram af 16 metra háu
hamrabelti þaðan sem áin kastast
um flúðir og hylji þar til á henni
hægist í Nykurhyl sem er 9 m djúp-
ur þar sem mest er. Úr Nykurhyl
rennur áin áfram til sjávar, undir
hringveginn, út í Berufjörð.
Umhverfi árinnar einkennist af
gljúfrum og klettahömrum sem
sumir hverjir hafa slípast til af
ágangi árinnar í gegnum aldirnar.
Landið er rýrt og landslagið stallað
með klöppum næst brúnum en
gróðri á milli klappanna. Lúpína og
birki ásamt fjölbreyttum tegundum
blómplantna einkenna grösug svæði
meðfram ánni. Trjágróðri hefur ver-
ið plantað á nokkrum svæðum með-
fram ánni að norðanverðu og eru þar
öflug skjólbelti með fjölbreyttum
tegundum s.s. lerki, greni, furu og
ösp.
Hægt er að kynna sér tillögurnar
á heimasíðu Djúpavogshrepps:
www.djupivogur.is. Frestur til að
gera athugasemdir er til 23. ágúst.
Falin perla varð þekkt og fjölsótt
Byggt upp fyrir ferðamenn í Fossárvík í Berufirði Öngþveiti hefur myndast á sumardögum
Ljósmynd/Jón M. Eyþórsson
Fossárvík Horft inn Fossárdal. Fossaröð í neðsta hluta árinnar fyrir miðju og heimreið að bæjum í dalnum til hægri.
Morgunblaðið/Andrés Skúlason
Á gljúfurbrún Horft til austurs niður glúfur Fossár. Ferðamenn á ystu brún og gróðurskemmdir eru þar áberandi.
Reykjavíkurborg efnir til opins út-
boðs um byggingarrétt á lóðum í
Úlfarsárdal. Lausar lóðir eru bæði í
grónari hluta hverfisins og á nýju
svæði við Leirtjörn.
Um er að ræða 32 lóðir og 102
íbúðir í hverfinu og rennur tilboðs-
frestur á lóðunum út kl. 12.00 hinn
29. ágúst næstkomandi.
Mikil uppbygging á sér stað í Úlf-
arsárdal. „Mikill kraftur er í smíði
íbúða og neðst í hverfinu reisir
Reykjavíkurborg virki sem hýsa
mun skóla, leikskóla, menningar-
miðstöð, bókasafn, sundlaug og
íþróttamannvirki,“ segir meðal
annars í frétt á heimasíðu Reykja-
víkurborgar.
Borgin býður út lóðir í Úlfarsárdal
Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is
Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995
Fljót, örugg og persónuleg þjónusta
Allar almennar bílaviðgerðir