Morgunblaðið - 25.07.2019, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 25.07.2019, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2019 BAKSVIÐ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Skipulagsfulltrúi Djúpavogshrepps hefur auglýst til kynningar breyt- ingu á aðalskipulagi hreppsins. Gerð er tillaga um breytta landnotkun í Fossárvík í Berufirði sem verður af- þreyingar- og ferðamannasvæði í stað landbúnaðarsvæðis. Jafnframt hefur verið auglýst til- laga að nýju deiliskipulagi fyrir svæðið. Deiliskipulagstillagan gerir ráð fyrir allt að 90 fermetra þjón- ustuhúsi, uppbyggingu stígakerfis og útsýnispalla, og tveimur bíla- stæðum fyrir allt að 42 bíla og þrjár rútur. Landeigandinn hefur fengið styrki úr Framkvæmdasjóði ferða- mannastaða til að hefja verkefnið, tæpar 14 milljónir króna. Fram kemur í greinargerð til kynningar á deiliskipulaginu, sem unnin er af teiknistofunni AKS, að undanfarin ár hafi svæðið í Foss- árvík, við Nykurhylsfoss og Nyk- urhyl, þróast frá því að vera falin náttúruperla yfir í fjölfarinn ferða- mannastað. Hundruð gesta dag hvern Óformlegar vettvangsathuganir sumarið 2016 leiddu í ljós að á bilinu 4-500 gestir heimsóttu svæðið þá daga þegar mest var. Yfir háanna- tímann er því töluverður fjöldi gesta á svæðinu og gætir áhrifa þess á um- hverfið sem og aðgengi inn Foss- árdal. Aðeins þrjú malarbílastæði eru uppi á Sveinsstekk, þaðan sem fólk gengur til að skoða Nykurhyls- foss. Ökutækjum er því gjarnan lagt í vegköntum, jafnt smábílum og rút- um, og stoppa jafnvel umferð eftir veginum. Áhrifa þessarar auknu umferðar er farið að gæta á lággróður og mosa auk þess sem umgengni um svæðið er á tímum mjög slæm. Innviðir ferðaþjónustu á svæðinu eru mjög takmarkaðir. Snarbrattir gljúf- urveggir Fossár geta reynst mjög hættulegir ef farið er ógætilega í ná- grenni þeirra. Eyjólfsstaðavegur, sem liggur inn í Fossárdal, er gjarn- an illfær vegna bílaumferðar við Nykurhylsfoss. Stæði er fyrir þrjá bíla en einnig hafa myndast lítil út- skot meðfram veginum og bæði fólksbílar og rútur leggja á veginum ef svo ber undir. Hentislóðar hafa myndast víða í gróðri þar sem ferða- menn vilja nálgast ána og virða fyrir sér fossa og flúðir. Til að bregðast við þeirri stöðu sem komin er upp hafa landeigendur á Eyjólfsstöðum og Eiríksstöðum haft frumkvæði að gerð deiliskipulags sem ætlað er að tryggja öryggi gesta og að skapa þeim, og heimamönnum, umgjörð til ánægjulegrar upplifunar af íslenskri náttúru. Fossárdalur er um 20 km langur dalur sem gengur inn úr Fossárvík í Berufirði. Upp af víkinni eru há klettabelti sem nefnast Fossárdals- klif og hylja dalinn fyrir augum þeirra sem leið eiga um hringveginn. Það er ekki fyrr en upp fyrir Klifin er komið sem grösugur dalurinn blasir við. Dalurinn er umkringdur háum og miklum klettabeltum Foss- árfells annarsvegar og Suðurfjalla hins vegar. Grösugur og kjarri vaxinn Dalurinn er grösugur og kjarri vaxinn að hluta auk þess sem blóm- leg skógrækt prýðir landslag norðan megin Fossár, utan við Eyjólfsstaði. Eftir dalnum rennur Fossá en hún á upptök sín í Líkárvatni og fellur fram dalinn um gljúfur og ása og myndar hátt í 30 fossa á leið sinni til Fossárvíkur. Fossarnir draga marg- ir hverjir nafn sitt af landslaginu sem áin rennur um svo sem Vind- ássfoss, Vondássfoss, Sundássfoss og Fálkaássfoss. Nykurhylsfoss er neðsti fossinn í langri fossaröðinni og steypist fram af 16 metra háu hamrabelti þaðan sem áin kastast um flúðir og hylji þar til á henni hægist í Nykurhyl sem er 9 m djúp- ur þar sem mest er. Úr Nykurhyl rennur áin áfram til sjávar, undir hringveginn, út í Berufjörð. Umhverfi árinnar einkennist af gljúfrum og klettahömrum sem sumir hverjir hafa slípast til af ágangi árinnar í gegnum aldirnar. Landið er rýrt og landslagið stallað með klöppum næst brúnum en gróðri á milli klappanna. Lúpína og birki ásamt fjölbreyttum tegundum blómplantna einkenna grösug svæði meðfram ánni. Trjágróðri hefur ver- ið plantað á nokkrum svæðum með- fram ánni að norðanverðu og eru þar öflug skjólbelti með fjölbreyttum tegundum s.s. lerki, greni, furu og ösp. Hægt er að kynna sér tillögurnar á heimasíðu Djúpavogshrepps: www.djupivogur.is. Frestur til að gera athugasemdir er til 23. ágúst. Falin perla varð þekkt og fjölsótt  Byggt upp fyrir ferðamenn í Fossárvík í Berufirði  Öngþveiti hefur myndast á sumardögum Ljósmynd/Jón M. Eyþórsson Fossárvík Horft inn Fossárdal. Fossaröð í neðsta hluta árinnar fyrir miðju og heimreið að bæjum í dalnum til hægri. Morgunblaðið/Andrés Skúlason Á gljúfurbrún Horft til austurs niður glúfur Fossár. Ferðamenn á ystu brún og gróðurskemmdir eru þar áberandi. Reykjavíkurborg efnir til opins út- boðs um byggingarrétt á lóðum í Úlfarsárdal. Lausar lóðir eru bæði í grónari hluta hverfisins og á nýju svæði við Leirtjörn. Um er að ræða 32 lóðir og 102 íbúðir í hverfinu og rennur tilboðs- frestur á lóðunum út kl. 12.00 hinn 29. ágúst næstkomandi. Mikil uppbygging á sér stað í Úlf- arsárdal. „Mikill kraftur er í smíði íbúða og neðst í hverfinu reisir Reykjavíkurborg virki sem hýsa mun skóla, leikskóla, menningar- miðstöð, bókasafn, sundlaug og íþróttamannvirki,“ segir meðal annars í frétt á heimasíðu Reykja- víkurborgar. Borgin býður út lóðir í Úlfarsárdal Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995 Fljót, örugg og persónuleg þjónusta Allar almennar bílaviðgerðir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.