Morgunblaðið - 25.07.2019, Síða 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2019
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Nýjasta torg Reykjavíkur, Boðatorg
á mótum Geirsgötu og Tryggvagötu,
er óðum að taka á sig mynd. Búið er
að koma fyrir tákni torgsins, sem er
skrúfuhringur af skipi. Hann hefur
slegið í gegn sem leiktæki fyrir unga
sem eldri. Hring-
urinn er fenginn
frá Stálsmiðjunni-
Framtaki (Slippn-
um í Reykjavík)
og er þeirra smíði
og hönnun. Stál-
smiðjan smíðaði
hringinn fyrir
nokkrum áratug-
um sem sýning-
argrip á sjávar-
útvegssýningu í
Laugardalshöll, að því er Hilmar
Kristinsson verkefnastjóri Slippsins,
tjáði Morgunblaðinu. Stálsmiðjan
smíðaði svona hringi og þetta var
sýningargripur til að sýna útgerð-
armönnum hvað smiðjan gat smíðað.
Hringurinn stóð við Mýrargötu í
mörg ár og síðan við athafnasvæði
Stálsmiðjunnar á Ægisgarði, við hlið
Slippsins.
„Hönnuðir Boðatorgsins komu að
máli við okkur og föluðust eftir að fá
hringinn til að setja upp á torginu.
Þeir sáu að hringurinn hafði aðdrátt-
arafl og fólk var að taka myndir í
gegnum hann,“ segir Hilmar.
Hann segir að þetta hafi verið auð-
sótt mál og væntanlega verði hring-
urinn til að minna fólk á Slippinn þeg-
ar fram í sækir. Hringurinn var
málaður í hafnargulum lit, alveg eins
og vitarnir í hafnarmynninu. „Við er-
um mjög ánægðir með nýju staðsetn-
inguna og það er augljóst að hring-
urinn er að slá í gegn á torginu,“ segir
Hilmar.
Hönnun Boðatorgsins var í hönd-
um Landslags. Hugsunin bak við
hringinn er að skapa umgjörð sem er
bæði ætluð til að ramma inn sí-
breytilegu borgarmyndina sem birt-
ist vestan við hann þar sem ný skip
koma í slipp, samkvæmt upplýsingum
frá Reykjavíkurborg. Sennilega hafi
mörg börn í Vesturbænum leikið sér í
þessum hring. Nú hafi honum verið
fundinn varanlegur staður á nýja
torginu. Enn eiga eftir að birtast á
torginu bekkir, hjólastæði og gróður
en það mun gerast á næstu vikum.
Skrúfuhringurinn slær í gegn
Framtíðarstaður
verður á nýja Boða-
torginu við höfnina
Morgunblaðið/Hari
Boðatorg Skrúfuhringurinn setur mikinn svip á nýjasta torg Reykjavíkur, sem er fyrir framan Exeter-hótel. Hringurinn hefur verið vinsælt leiktæki.
Hilmar
Kristinsson
HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is
Hlustaðu
á hjartað þitt
Beltone Trust™ heyrnartækin gera þér kleift að heyra jafnvel minnstu smáatriði
– sem stundum reynast þau mikilvægustu. Við hjá Heyrnarstöðinni leggjum allan
okkar metnað í að veita góða þjónustu og bjóða upp á hágæða heyrnartæki.
Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu.
Beltone Trust
™