Morgunblaðið - 25.07.2019, Qupperneq 28
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Aldrei hafa jafn margir gist á tjald-
svæðinu í Tálknafirði og um síðustu
helgi, að mati Bjarnveigar Guð-
brandsdóttur, oddvita hrepps-
nefndar Tálknafjarðar.
„Um helgina voru yfir 600 manns
á tjaldsvæðinu í Tálknafirði og mað-
ur var bara á hlaupum alla helgina.
Það var náttúrlega enginn undir-
búinn fyrir svona fjölda. Ég veit að
þetta var líka
svona á Patreks-
firði og í Flóka-
lundi. Þorpin
bara margföld-
uðust. Við alla
vega tvöföld-
uðumst.“
Bjarnveig, sem
er sömuleiðis for-
stöðukona
íþróttahússins á
svæðinu og sér
því um tjaldsvæðið, segir að stór-
aukinn ferðamannastraumur hafi
verið til Tálknafjarðar þetta sumarið
og þá séu það helst Íslendingar sem
sæki bæinn heim.
Ein nótt verður að sjö
„Margir hverjir ætla bara að vera
hérna í eina nótt en svo lengist dvöl-
in og sumir dvelja jafnvel allt að viku
á tjaldsvæðinu,“ segir Bjarnveig.
„Vinkona dóttur minnar spurði
hana einmitt núna nýlega hvort allt
Ísland væri bara mætt á Vestfirð-
ina,“ segir Bjarnveig og hlær.
Veðrið hefur leikið við Vestfirð-
inga þetta sumarið.
„Ég held að það sé aðallega veðrið
sem fólk sækir í, það er náttúrlega
búið að vera lélegt veður bæði fyrir
austan og norðan svo allir koma
hingað,“ segir Bjarnveig sem tekur
fram að það sé meira að sækja á
Tálknafjörð en bara sólina.
Fólk sækir í pollinn
„Tálknafjörður er alveg yndis-
legur. Fólk sem kemur hingað skoð-
ar Látrabjarg, Dynjanda, Breiðuvík,
Rauðasand og fleiri staði. Svo sækir
fólk auðvitað í pollinn hjá okkur,
hann er eins konar bað sem er hérna
út með hlíðinni. Mörgum finnst það
mjög merkilegt.“
Bjarnveig segir að fólk virðist í
auknum mæli vera að átta sig á því
að Vestfirðir séu vænlegur áfanga-
staður. „Fólk er að uppgötva Vest-
firðina,“ segir Bjarnveig sem kveðst
mjög sátt vieð þessa miklu spreng-
ingu í ferðamannastraumi til
Tálknafjarðar.
„Fólk er að uppgötva Vestfirðina“
Yfir 600 manns gistu á tjaldsvæðinu í Tálknafirði um helgina og hafa aldrei fleiri gestir dvalið þar
Mestmegnis Íslendingar Oddviti hreppsnefndar Tálknafjarðar segir fólk sækja í góða veðrið
Morgunblaðið/Guðlaugur Albert
Smekkfullt Tjaldsvæðið á Tálknafirði stendur við hlið sundlaugarinnar en Bjarnveig segir gesti tjaldsvæðisins kunna vel að meta staðsetninguna.
Bjarnveig
Guðbrandsdóttir
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2019
Hólshraun 3, 220 Hafnarjörður · Símar 555 1810, 565 1810 · veislulist@veislulist.is · www.veislulist.isSKÚTAN
Veitingar af öllum stærðum,
hvort sem er í sal eða
heimahúsi
Nánar á veislulist.is
Erfidrykkja