Morgunblaðið - 25.07.2019, Síða 30

Morgunblaðið - 25.07.2019, Síða 30
VIÐTAL Veronika S. Magnúsdóttir veronika@mbl.is Alþjóðaforseti samtakanna Delta kappa gamma (DKG), Cathy P. Daugherty, er stödd hér á landi þar sem í dag fer fram ráðstefna DKG á Icelandair Hótel Reykjavík Natura. Þar verða nýjungar í menntamálum í brennidepli og verða lykilkonur sam- takanna fyrirlesarar. Yfir 300 íslensk- ar konur eiga aðild að samtökunum, en meðlimir á heimsvísu eru um 65 þúsund. Samtökin DKG fóru forðum huldu höfði en reyna nú markvisst að kynna sig fyrir alþjóðasamfélaginu. Daugherty segir að mikilvægt sé að hafa í huga að samtökin séu ekki kvenfélag heldur hafi þau mun ríkari tilgang. Stofnuð þegar konur máttu ekki stofna samtök „Því miður hefur leynd hvílt yfir samtökunum okkar því á þann hátt urðu þau til,“ sagði Daugherty. Sam- tökin voru stofnuð í félagi kvenna- deildar í háskólanum í Texas árið 1929 með leynd: „Konur máttu þá ekki eiga aðild að öðrum félögum á háskólasvæðinu. Þær hittust reyndar inni á snyrting- unni hjá kvenfélagi skólans og héldu fyrsta fundinn,“ segir hún. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar – um 65 þúsund konur frá 17 löndum eiga aðild að samtökunum í dag. Markmið DKG er að styðja við konur í fræðslustörfum og það gera þau til dæmis með háskólastyrkjum til meðlima og einnig þeirra sem minna mega sín. Verkefnið Skólar í þágu Afríku er fyrsta alþjóðlega verkefni DKG og hófst árið 2010 í samstarfi vi Unicef í Bandaríkjunum. Meðlimir DKG hafa styrkt verkefnið um yfir 40 milljónir króna, en það er nú virkt í 13 löndum Suður-Afríku. Eþíópía er meðal þeirra og Daugtherty fór þangað í apríl síðastliðnum og kynnti sér að- stæður. Hún starfaði í nefnd sem stóð að verkefninu ásamt Sigrúnu Klöru Hannesdóttur, sem var prófessor í upplýsinga- og bókasafnsfræðum við HÍ. Daugtherty fannst frábært að sjá hvernig eðli verkefnisins hefur breyst – fyrir tíu árum var markmið þess að koma í veg fyrir að stúlkurnar þyrftu að ganga langar leiðir til að sækja vatn. Fyrir tilstilli verkefnisins var vatnsbólum komið fyrir svo stúlkurn- ar ættu betri möguleika á skólasókn. „Nú er meiri áhersla lögð á að laga kynjamisrétti. Stúlkurnar eru farnar að skilja að þær hafa rödd og þær geta neitað því að giftast 35 ára manni, þegar þær eru 12 ára. Svo við höfum mikil áhrif á menntun kvenna á heimsvísu með þessu verkefni. Þeg- ar ég kom til baka sagði ég við sam- starfskonur mínar að ég væri svo stolt af því að vera meðlimur DKG,“ sagði hún. Daugherty segir félagið veita ýmsa styrki til kvenna í menntavísindum, þar megi nefna World Fellowship Fund. „Þeir sem ekki eiga aðild að fé- laginu eiga möguleika á slíkum styrk,“ segir hún. Konur hvetja hver aðra til dáða  DKG eru alþjóðleg samtök kvenna í fræðslustörfum sem lítið fór fyrir fyrr á öldum  Nú eru með- limir frá 17 löndum og 65 þúsund talsins  Alþjóðaforseti staddur á Íslandi og efnt til ráðstefnu í dag Morgunblaðið/Hari Kjarnakonur Efri röð frá vinstri: Elsa Petersen, Sigríður Ragna Sigurðardóttir, Phyllis A. Hickey, Nita R. Scott og Sig- rún Jóhannesdóttir. Neðri röð, frá vinstri: Sigrún Klara Hannesdóttir, Cathy P. Daugherty og Sjöfn Sigurbjörnsdóttir. 30 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2019 Er stærsti framleiðandi sportveiðarfæra til lax- silungs- og sjóveiða. Flugustangir og fluguhjól í úrvali. Gott úrval af fylgihlutum til veiða stólar, töskur, pilkar til sjóveiða, spúnabox margar stærðir, veiðihnífar og flattningshnífar. Abulon nylon línur. Gott úrval af kaststanga- settum, fyrir veiðimenn á öllum aldri, og úrval af „Combo“ stöng og hjól til silungsveiða, lax veiða og strandveiða. Flugustanga sett stöng hjól og lína uppsett. Kaststangir, flugustangir, kast- hjól, fluguhjól, gott úrval á slóðum til sjóveiða. Lokuð kasthjól. Úrval af flugustöngum, tvíhendur og hjól. Balance Lippa, mjög góður til silungsveiða „Original“ Fireline ofurlína, gerfi- maðkur sem hefur reynst sérstaklega vel, fjölbreitt gerfibeita fyrir sjóveiði og vatnaveiða, Berkley flattnings- hnífar í úrvali og úrval fylgihluta fyrir veiðimenn. Flugnanet, regnslár, tjaldhælar, og úrval af ferðavörum Helstu Útsölustaðir eru: Veiðivon Mörkinni Vesturröst Laugavegi Veiðiportið Granda Veiðiflugur Langholtsvegi Kaupfélag Borgfirðinga Borgarnesi Kassinn Ólafsvík Söluskáli ÓK Ólafsvík Skipavík Stykkishólmi Smáalind Patreksfirði Vélvikinn Bolungarvík Kaupfélag Steingrímsfjarðar Hólmavík Kaupfélagi V-Húnvetninga Hvammstanga Kaupfélag Skagfirðinga Sauðárkróki SR-Bygginavöruverslun Siglufirði Útivist og Veiði Hornið Akureyri Veiðiríkið Akureyri Hlað Húsavík Ollasjoppa Vopnafirði Veiðiflugan Reyðarfirði Krían Eskifirði Þjónustustöðvar N1 um allt land.Dreifing: I. Guðmundsson ehf. Nethyl 1, 110 Reykjavík. Nánari upplýsingar um þessar vörur má fá á eftirfarandi vefsíðum: www.purefishing.com - www.abugarcia.se - www.kuusamonuistin.fl - www.coghlans.com. Þekktustu veiðivörumerkin eru seld í öllum „Betri sportvöruverslunum landsins“ Ráðstefna DKG fer fram í dag og verður þar meðal annars fjallað um nýjungar í menntun. Yfir 300 íslenskar konur eiga aðild að samtökunum en þau voru fyrst stofnuð hér á landi árið 1975 og nefndist sú deild Alfa deild. Á Ís- landi starfa nú 13 deildir frá Alfa til Ný en þær bera allar nöfn gríska stafrófsins. Alþjóðlegar menntaráðstefnur samtakanna eru haldnar annað hvert ár bæði í Bandaríkjunum og Evrópu. Nán- ari upplýsingar um viðburðinn má finna á dkg.is. Nýjungar í menntun RÁÐSTEFNA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.