Morgunblaðið - 25.07.2019, Síða 34

Morgunblaðið - 25.07.2019, Síða 34
34 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2019 Morgunblaðið/Sigurður Bogi Áætlað er að smíði brúar yfir Þjórsá framan við Sult- artangavirkjun ljúki í október. Nýja brúin kemur í stað gömlu brúarinnar og er 50 til 100 metrum ofar. Ar- inbjörn Bernharðsson, verkstjóri hjá Eykt sem er und- irverktaki hjá Suðurverki sem sér um verkið fyrir Lands- virkjun, segir að nýja brúin sé byggð á grunnberginu á gamla Þjórsárdalshrauninu. Gamla búin verði rifin þegar nýja brúin verði tekin í notkun. Brúarsmíði framan við Sultartangavirkjun Ásmundur Einar Daðason hyggst ráðast í aðgerðir sem gera Íbúða- lánasjóði kleift að bjóða nýjar teg- undir lána til uppbyggingar íbúðar- húsnæði á landsbyggðinni. Þetta kemur fram í minnisblaði sem Ásmundur birti í samráðsgátt stjórnvalda í gær. Fyrirhugaðar eru breytingar á lögum um almennar íbúðir, sem er meðal annars ætlað að bregðast við misvægi á milli byggingarkostnaðar og markaðsverðs á landsbyggðinni. Tillögurnar byggjast meðal ann- ars á tilraunaverkefni Íbúðalána- sjóðs með sjö sveitarfélögum. Breytingarnar miða að því að gera sveitarfélögum á landsbyggðinni kleift að byggja íbúðir í almenna leigukerfinu með stofnframlagi rík- isins. Drög að frumvarpi þess efnis voru kynnt í samráðsgátt stjórn- valda í maí síðastliðnum. „Ég tel að það þurfi aðgerðir af hálfu stjórnvalda til að rjúfa þá stöðnun sem ríkt hefur í húsbygg- ingum á landsbyggðinni,“ er haft eft- ir Ásmundi í fréttatilkynningu. Víða um land hefur ekkert íbúðarhúsnæði verið byggt í einn eða tvo áratugi. Ný lán fyrir landsbyggðina  Íbúðalánasjóður bjóði sveitarfélögum upp á nýstárleg lán Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Tólfta árið í röð verður messað í eyðibyggð í Fjörðum, sem eru á milli Eyjafjarðar og Skjálfanda. Messan hefst kl. 14 á Þönglabakka sem er í Laufásprestakalli en Þönglabakkakirkja var tekin ofan 1944 eftir að byggð í Fjörðum lagð- ist í eyði. Í messunni þjóna Kristján Valur Ingólfsson biskup, Sólveig Halla Kristjánsdóttir prestur og Sindri Geir Óskarsson guðfræð- ingur. Margrét Bóasdóttir, söng- málastjóri þjóðkirkjunnar, stýrir söng, Gunnar Sigfússon leikur á trompet og Benedikt Kristjánsson syngur einsöng og leikur á gítar og fótstigið ferðaharmoníum. Messu- gestir geta siglt með Húna II frá Akureyri eða Grenivík. Einnig er hægt að aka í átt að Grenivík þar til komið er að hliði norðan við Grýtu- bakka skammt sunnan við brúna yf- ir Gljúfurá. Keyra þaðan um jeppa- veg Leirdalsheiðina í Hvalvatns- fjörð. Skammt frá Kaðalstöðum er gengið til móts við Tindriðastaði í Þorgeirsfirði að Þönglabakka. Akst- ur og ganga taka um tvær klst. Messugestir mæta einnig á eigin bátum eða ríðandi. Föru- og skáldkonan Látra-Björg orti lýsandi ljóð um Firði á 18. öld. Fagurt er í Fjörðum, þá frelsarinn lánar veðrið blítt. Heyið grænt í görðum, grös og heilagfiskið nýtt. En þegar vetur að oss fer að sveigja veit ég enga verri sveit um veraldar reit. Menn og dýr þá deyja. Kristján Valur Ingólfsson, sem þjónað hefur í messu á Þönglabakka sl. 12 ár, segir að afkomendur þeirra sem bjuggu á svæðinu séu duglegir að sækja messu síðasta sunnudag í júlí en helgihald á Þönglabakka, sem endurvakið var 2007, lagðist niður 1944. Krisján segir óendanlega náttúru- fegurð á Þönglabakka þegar vel viðri, fjöllin í kring og sjórinn geri messu þar einstaka. Hann segir þekktar gönguleiðir að Þönglabakka og margir göngumenn komi til messu. Reynslan sýni að því erfiðara sem það er að komast til messu því fleiri mæta, en mest hafa 200 manns mætt til helgihalds í Þönglabakka. Messað í eyði- byggð í Fjörðum  Hestar, bátar og tveir jafnfljótir Fegurð Gestir koma siglandi til messu í Þönglabakka í Fjörðum. Sindragata 12c | Ísafirði | Sími 456 1300 | smidjan@velsmidjan.is FRÁBÆR HREINSI- OG SMUREFNI FYRIR BÍLINN ÞINN FYRIR BÍLINN

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.