Morgunblaðið - 25.07.2019, Side 37
FRÉTTIR 37Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2019
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena
undirfataverslun • Næg bílastæði
Frábært úrval af
sundfatnaði
Methiti hefur verið í Frakklandi og
hitamet féllu í fleiri löndum í Evrópu
í gær, meðal annars í Belgíu og Hol-
landi, í annarri hitabylgjunni í álf-
unni á fimm vikum.
Hitinn var allt að 38,9 stig á Cel-
síus í Belgíu og er það mesti hiti í
landinu frá því að mælingar hófust.
75 ára met féll einnig í Hollandi þar
sem hitinn mældist allt að 38,8 stig.
Methiti mældist í mörgum frönsk-
um borgum í fyrradag, m.a. Bor-
deaux þar sem hann var 41,2 stig.
Fyrra metið í borginni var frá árinu
2003 þegar hitinn var 40,7 stig. Hit-
inn hafði í gær mælst 42 stig á svæð-
um í suðvesturhluta landsins og spáð
var methita í París í dag. Mesti hiti
sem mælst hefur þar er 40,4 stig.
Næsthæsta viðbúnaðarstig, rauð-
gult, er í nær öllu Frakklandi vegna
hitabylgjunnar. Vatnsnotkun hefur
verið takmörkuð víða í landinu
vegna þurrka sem hafa orðið til þess
að grunnvatnsstaða vatnsbóla hefur
snarminnkað. „Staðan er erfið en við
ráðum við hana, en þurfum að hafa
mikinn vara á,“ hefur fréttaveitan
AFP eftir Emmanuelle Wargon, að-
stoðarumhverfisráðherra Frakk-
lands. Hlýindunum hefur verið líkt
við hitabylgju sem var í Frakklandi í
ágúst 2003. Nær 15.000 dauðsföll
voru rakin til hennar.
Veðurstofa Belgíu gaf í fyrsta
skipti út „rauða“ viðvörun í öllu
landinu vegna hita sem spáð er þar
næstu daga. Rauð viðvörun veður-
stofunnar merkir að öllum íbúum
landsins er ráðlagt að gera ráðstaf-
anir til að verja sig gegn sólinni, ekki
aðeins ákveðnum hópum eins og
börnum og eldri borgurum.
Veðurstofa Bretlands sagði að út-
lit væri fyrir methita þar í dag.
Fyrra met er frá ágúst 2004 þegar
hitinn mældist 38,5 stig í Kent-sýslu.
Verða algengari
Þetta er önnur hitabylgjan í Evr-
ópu frá síðustu vikunni í júní þegar
methiti mældist víða í Suðvestur- og
Mið-Evrópu. Júní var hlýjasti mán-
uður sögunnar í álfunni.
Talsmaður Alþjóðaveðurfræði-
stofnunarinnar, Claire Nullis, sagði
að hitabylgjurnar hefðu „einkenni
loftslagsbreytinga í heiminum“.
„Eins og við sáum í júní eru hita-
bylgjurnar að verða algengari, þær
hefjast fyrr og verða skæðari,“ hefur
fréttavefur BBC eftir Nullis. Vís-
indamenn hafa varað við því að lofts-
lagsbreytingar af mannavöldum geti
leitt til aukinna öfga í veðurfari.
bogi@mbl.is
Hitinn á hádegi, skv. spá
Í dagHitabylgja í Evrópu
Heimildir: Sat24.com,
veðurstofa Frakklands
FRAKKLAND
Næsthæsta viðbúnaðarstig
í nær öllu landinu og
42°C hita spáð í París
(metið er 40,4°C frá 1947)
BRETLAND
Gæti orðið hlýjasti
dagur í sögu landsins
BELGÍA
„Rauð“ viðvörun gefin út í
fyrsta skipti vegna hita
ÞÝSKALAND
41°C stigs hita spáð í
Köln og nágrenni
SVISS
Mikil hláka í háum fjöllum.
Hiti við frostmark í 4.800 m hæð
30°C 20 15 10 0
Brussel
Köln
Madrid
París
Róm
Methiti víða í annarri hita-
bylgjunni í Evrópu í sumar
Hitabylgjur sagðar verða algengari og skæðari
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Boris Johnson, nýr leiðtogi Íhalds-
flokksins, tók formlega við embætti
forsætisráðherra Bretlands í gær og
hét því tryggja með öllum nauðsyn-
legum ráðum að landið gengi úr Evr-
ópusambandinu 31. október.
Johnson sagði eftir að hafa tekið
við embættinu af Theresu May að
hann myndi sjá til þess að staðið yrði
við „ítrekuð loforð þingsins við þjóð-
ina“ með því að tryggja útgöngu úr
ESB 31. október og þá yrðu „engin ef
eða en“. „Efasemdamennirnir, dóms-
dagsspámennirnir og svartagalls-
rausararnir“ þyrftu þá að éta ofan í
sig allt það sem þeir hafa sagt um
vandkvæðin á því að virða ákvörðun
kjósendanna í þjóðaratkvæðinu fyrir
þremur árum þegar útgangan úr
ESB var samþykkt.
Johnson lagði áherslu á að virða
þyrfti vilja þjóðarinnar í málinu. „Við
ætlum að ná nýjum samningi. Betri
samningi sem mun gera sem mest úr
tækifærunum sem felast í brexit,“
sagði hann í ræðu fyrir utan Down-
ing-stræti 10. „Ég hef alla trú á að eft-
ir 99 daga hafi okkur tekist að ráða
fram úr þessu. Breska þjóðin hefur
fengið nóg af því að bíða,“ sagði hann
og skírskotaði til þess að útgöngunni
úr ESB hefur verið frestað tvisvar.
Johnson kvaðst ætla að axla sjálfur
ábyrgð á þeim breytingum sem hann
stefndi að. „Ef eitthvað hefur dregið
úr tiltrú fyrirtækja er það ekki nein
ákvörðun sem við höfum tekið heldur
tregða okkar til að taka ákvarðanir.
Breska þjóðin tók þá grundvallar-
ákvörðun með brexit að lög landsins
skyldu vera sett af fólki sem hún kaus
sjálf og sem hún getur sjálf komið úr
embætti. Við verðum núna að virða þá
ákvörðun.“
Brexit án samnings
„fjarlægur möguleiki“
Johnson áréttaði að Bretar þyrftu
að vera tilbúnir að ganga úr ESB án
samnings 31. október ef ekki næðist
nýtt samkomulag um útgönguna.
Hann sagði hins vegar að það væri
„fjarlægur möguleiki“ að leiðtogar
ESB héldu áfram að neita því að
semja um breytingar á brexit-samn-
ingi sambandsins við Theresu May og
að Bretar þyrftu að ganga úr ESB án
samnings. Leiðtogar ESB hafa sagt
að ekki koma til greina að breyta út-
göngusamningnum þótt breska þing-
ið hafi hafnað honum þrisvar. Þeir
vilja hins vegar greiða fyrir útgöng-
unni með því að gefa út sérstaka yfir-
lýsingu um framtíðartengsl Bret-
lands við ESB. Stjórn Íhaldsflokksins
er með mjög nauman meirihluta á
þinginu og flestir þingmannanna,
þ.á m. hópur íhaldsmanna, eru and-
vígir útgöngu úr ESB án samnings.
AFP
Nýr forsætisráðherra Breta Boris Johnson fyrir utan Downing-stræti 10 í
Lundúnum eftir að hafa flutt þar um tólf mínútna ræðu í gær.
Virði vilja
þjóðarinnar
Boris lofar brexit „Engin ef eða en“
Gert er ráð fyrir því að Boris Johnson geri miklar breytingar á ráðherra-
liði Íhaldsflokksins. Rúmur helmingur ráðherranna í stjórn Theresu May
hefur annaðhvort sagt af sér eða verið vikið frá, að sögn BBC.
Á meðal þeirra sem víkja er Jeremy Hunt, utanríkisráðherra og keppi-
nautur Johnsons í leiðtogakjöri Íhaldsflokksins. Dominic Raab, ein-
arður stuðningsmaður brexit, verður utanríkisráðherra. Sajid Javid,
sem hefur verið innanríkisráðherra, verður fjármálaráðherra.
Á meðal þeirra sem víkja er Penny Mordaunt varnarmálaráðherra,
brexit-sinni sem hefur verið vinsæl í Íhaldsflokknum.
Annar brexit-sinni, Liam Fox, lætur af embætti ráðherra alþjóða-
viðskipta.
Johnson er einnig sagður hafa ákveðið að víkja Creg Clark úr embætti
viðskiptaráðherra. Clark hefur verið andvígur útgöngu úr ESB án
samnings.
Mordaunt, Fox og Clark studdu allir Hunt í leiðtogakjörinu.
Uppstokkunin þykir benda til þess að Johnson leggi ekki áherslu á að
reisa brýr milli ólíkra hópa í flokknum, heldur að setja saman lið sem
hann telji líklegt til að ná settum markmiðum, að sögn BBC.
Mikil uppstokkun hafin
JOHNSON BREYTIR RÁÐAHERRALIÐI ÍHALDSMANNA