Morgunblaðið - 25.07.2019, Síða 39
39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2019
Framkvæmdir Lóð nýja Landspítalans er nú sundurgrafin við upphaf framkvæmda. Verktakar eru nú á fullu í jarðvinnu og fyrstu uppslættir farnir að líta dagsins ljós.
Hallur Már
Veðrinu hefur verið
misskipt hér sem
annars staðar á þess-
um sumarmánuðum.
Hitamet falla nú eitt
af öðru báðum megin
Atlantshafsins og
norður undir heim-
skautinu. Við erum
þannig stöðugt minnt
á þá staðreynd að
mannkynið er á fullri
ferð með að breyta
hnattrænu umhverfi okkar og ann-
arra lífvera með mengun loft-
hjúpsins. Viðbrögð við þeirri vo-
veiflegu þróun eru nú seint og um
síðir orðin umræðuefni manna á
meðal. Á stjórnmálasviðinu hægist
venjulega um yfir hásumarið, en
út af því hefur líka brugðið, bæði
hér heima og í nágrannalöndum.
Forystumál Evrópusambandsins
og átök í Bretlandi sem er á útleið
úr ESB hafa verið í brennipunkti.
Hér á heimaslóð er upp komin
logandi umræða um afstöðu til
orkupakkanna frá Brussel, ekki
milli stjórnar og stjórnarandstöðu,
heldur í flokkunum sem standa að
ríkisstjórninni, þá ekki síst innan
Sjálfstæðisflokksins. Betra er
seint en aldrei því að
enn á ríkisstjórn og
Alþingi þann kost að
sjá að sér í þessu af-
drifaríka máli.
Um EES og
orkupakkann
Það er skýlaus rétt-
ur Íslands samkvæmt
103. grein EES-
samningsins að hafna
upptöku fyrirliggjandi
gerða um orkupakka
3. Komi í framhaldi af
því til svonefndrar
„sáttagerðar“ á vettvangi sameig-
inlegu EES-nefndarinnarskv. 102
grein samningsins getur Ísland
krafist varanlegrar undanþágu frá
öllu því sem varðar orkumál, sem
ekki voru hluti af EES-samn-
ingnum í upphafi. Jafnframt ætti
Alþingi að styrkja og festa í sessi
lagaákvæði um orkulindir innan
íslensku efnahagslögsögunnar sem
þjóðareign. – Með staðfestingu Al-
þingis á þriðja orkupakkanum og
meðfylgjandi frumvarpi um breyt-
ingu á raforkulögum og lögum um
Orkustofnun (mál 782) væri verið
að breyta henni í yfirþjóðlegt
batterí undir ACER, sem er yf-
irþjóðleg stofnun Evrópusam-
bandsins. ACER hefur heimildir
til að taka bindandi ákvarðanir á
ýmsum sviðum. Með samþykkt
þessa máls væri því verið að fram-
selja þýðingarmiklar ákvarðanir í
orkumálum til ESB. Ekki verður
séð að slík lagasetning samrýmist
gildandi ákvæðum íslensku stjórn-
arskrárinnar.
Orkupakki þvert á almanna-
hag og náttúruvernd
Endurnýjanlegar orkulindir
hérlendis eins og vatnsaflið sem
og jarðvarmi eru undirstaða fyrir
lífsafkomu almennings og starf-
semi innlendra fyrirtækja. Því
eiga þær að haldast í þjóðareign
engu síður en sjávarauðlindirnar
og hafsbotninn innan íslenskrar
auðlindalögsögu. Nýtingu þeirra
og verndun, sem og verðlagningu
framleiddrar orku, á nú og fram-
vegis að miða að því að treysta at-
vinnulíf og jafna lífskjör um allt
land. Með innleiðingu orkupakk-
ans veikist sú stefna til mikilla
muna og getur breyst í andhverfu
sína ef illa tekst til um framhaldið.
Tenging við orkumarkað ESB
myndi hafa í för með sér stór-
hækkun á raforkuverði til fyr-
irtækja og heimila, þar með talið á
verði til húshitunar, bæði beinnar
rafhitunar sem og hitaveitna, en
kostnaður við þær byggist að
hluta til á raforku. – Auk heimila
og smáfyrirtækja sem greiða
myndu kostnaðinn af innleiðingu
orkupakka 3 og meðfylgjandi
tengingu við ESB-kerfið yrði ís-
lensk náttúra, ár, vötn og jarð-
hitasvæði þolendur stóraukinnar
ásóknar í virkjanir með útflutning
á raforku fyrir augum.
Vinstri-græn og Framsókn
slegin blindu
Furðu sætir að VG, flokkur sem
kennir sig við græna stefnu, skuli
hafa gerst þátttakandi í þessum
leiðangri með orkupakka 3, í stað
þess að beita sér fyrir að styrkja
almannaeign á orkuauðlindinni og
stilla til um hóflega nýtingu henn-
ar. Fyrir dreifbýlið er hér sér-
staklega mikið í húfi og því óskilj-
anlegt að þeir sem telja sig
talsmenn þeirra sem þar þrauka
skuli gerast ábekingar á orku-
pakka 3, þar með talið þinglið
Framsóknarflokksins. – Í stað
þess að breyta Orkustofnun í
verkfæri í höndum ESB ætti að
tryggja að stofnunin lúti betur al-
mannahagsmunum en nú gerist,
þar á meðal um verndun og hlífð
gagnvart náttúru landsins. Annað
hefur því miður verið upp á ten-
ingnum eins og gagnrýnislaus
rannsóknaleyfi til virkjanaund-
irbúnings bera ljósan vott um.
Löngu er tímabært að færa mál-
efni Orkustofnunar undir um-
hverfis- og auðlindaráðuneytið til
að tryggja eðlilegt samræmi og
mat á auðlindavernd og nýtingu.
Þjóðaratkvæði um
orkupakka 3
Áður en til endanlegrar af-
greiðslu kemur af hálfu Alþingis í
stórmáli sem þessu ætti að teljast
sjálfsagt að gefa almenningi kost
á að segja sitt álit í þjóð-
aratkvæðagreiðslu. Verði málið
knúið í gegn með þeim hætti sem
nú stefnir í mun það óhjákvæmi-
lega styrkja þær raddir sem nú
þegar gera kröfu um löngu tíma-
bæra endurskoðun á EES-
samningnum, þar á meðal varð-
andi kaup á jarðnæði hérlendis.
Eftir Hjörleif
Guttormsson » Furðu sætir að VG,
flokkur sem kennir
sig við græna stefnu,
skuli hafa gerst þátttak-
andi í þessum leiðangri
með orkupakka 3.
Hjörleifur
Guttormsson
Höfundur er náttúrufræðingur.
Ríkisstjórn og meirihluti þingmanna
á háskalegum villigötum