Morgunblaðið - 25.07.2019, Side 44

Morgunblaðið - 25.07.2019, Side 44
44 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2019 ✝ Gunnar BergEydal fæddist á Akureyri 1. nóv- ember 1943. Hann lést á líknardeild Landspítalans 15. júlí 2019. Foreldrar hans voru Hörður Ey- dal, f. 13.2. 1909, d. 3.4. 1976, iðn- verkamaður á Ak- ureyri, og Pálína Indriðadóttir Eydal, f. 10.1. 1909, d. 1.1. 1991, húsfreyja. Bræður Gunnars voru Ingimar Eydal, f. 20.10. 1936, d. 10.1. 1993, kennari og hljómlist- armaður á Akureyri, var kvæntur Ástu Sigurðardóttur, og Finnur Eydal, f. 25.3. 1940, d. 16.11. 1996, kennari og hljómlistarmaður á Akureyri, var kvæntur Helenu Eyjólfs- dóttur. Bróðir Gunnars sam- feðra er Kristbjörn Eydal, f. 4.8. 1929, fyrrv. sjómaður og útgerðarmaður, var kvæntur Steinunni Guðmundsdóttur, d. 26.11. 2007. Gunnar kvæntist 23.9. 1966 Ásgerði Ragnarsdóttur kenn- ara, f. 30.3. 1946. Foreldrar hennar voru Ragnar Ólason, f. 27.3. 2004, c) Jökull, f. 8.12. 2009. Gunnar lauk stúdentsprófi frá MA 1964, lauk embættis- prófi í lögfræði frá HÍ 1971, stundaði nám í vinnurétti í Kaupmannahöfn 1971-72, öðl- aðist hdl.-réttindi 1974 og hrl.- réttindi 1992. Hann var fulltrúi bæjarfógetans á Akureyri 1971, lögfræðingur hjá BSRB 1972-76 og framkvæmdastjóri Sambands íslenskra banka- manna 1976-79. Gunnar hóf störf hjá Reykjavíkurborg 1979 og starfaði þar í rúm 30 ár. Lengst af gegndi hann starfi skrifstofustjóra borgarstjórnar, var borgarlögmaður um skeið og gegndi starfi borgarritara í afleysingum. Gunnar sinnti stunda- kennslu, m.a. við MH og laga- deild HÍ. Hann sat í verðlags- dómi 1974-78, var formaður Barnaverndarráðs Íslands 1979-82, átti sæti í fjölda nefnda, m.a. á vegum ríkis og sveitarfélaga. Eftir Gunnar hafa komið út ritin Vinnu- réttur, 1978 og 1986; Hagnýt lögfræði, 1984; Sveitarstjórnar- réttur, 2006; Borgarfulltrúatal, 2010, og Gamlar glefsur og nýj- ar, 2016. Hann skrifaði auk þess greinar um lögfræðileg málefni, m.a. í Tímarit lögfræð- inga og Sveitarstjórnarmál. Útför Gunnars fer fram frá Bústaðakirkju í dag, 25. júlí 2019, og hefst athöfnin kl. 13. 1.6. 1912, d. 27.7. 1990, efnaverk- fræðingur og fyrrv. forstjóri Efnaverksmiðj- unnar Sjafnar á Akureyri, og Ragnheiður Valde- marsdóttir, f. 2.7. 1919, d. 5.10. 2010, húsfreyja. Börn Gunnars og Ás- gerðar eru: 1) Ragna Björk, f. 16.2. 1966, sér- kennari, gift Steinari Ólafssyni. Börn þeirra eru a) Steinar Örn, f. 26.7. 1985, í sambúð með Írisi Rut Garðarsdóttur, barn þeirra er Aldís Eva, f. 27.9. 2018, b) Arna Laufey, f. 15.4. 1995, c) Bjarki Gunnar, f. 11.10. 2000. 2) Hjördís, f. 3.5. 1967, leik- skólakennari, gift Hlyni Hend- rikssyni. Börn þeirra eru a) Snædís Gerður, f. 5.12. 1991, í sambúð með Sveini Smára Leifssyni, barn þeirra er Hlyn- ur Smári, f. 5.7. 2017, b) Skjöldur Berg, f. 10.9. 1998, c) Sólveig Björt, f. 5.9. 2001. 3) Gunnar Páll, f. 22.2. 1974, jarð- fræðingur, kvæntur Hörpu Grímsdóttur. Börn þeirra eru a) Birkir, f. 3.6. 2000, b) Kári, f. Fréttirnar sem við fengum hinn 27. júní um að pabbi væri með ágengt og útbreitt krabba- mein voru þungt högg. Pabbi tók tíðindunum þó með ró og lífsvilj- inn skein í gegn. Það var gest- kvæmt á sjúkrahúsinu og hann naut þess að spjalla. Það var stutt í kímnina hjá honum, eins og allt- af. Mínar fyrstu minningar um pabba eru þegar hann var að svæfa mig og söng þá gjarnan Internationalinn, alþjóðasöng verkalýðsins. Þetta líkaði mér vel og ég kann textann enn í dag. Sterkustu minningar mínar með fjölskyldunni tengjast þó ferða- lögum. Við höfum alltaf ferðast mikið frá því ég man eftir mér, fyrst öll fimm upp úr 1980 á gulu Lödunni og svo þvældist ég mikið með mömmu og pabba eftir að systur mínar urðu eldri. Vinir mínir hafa sagt að ég hafi aldrei fengið hina svokölluðu unglinga- veiki og það má vel vera, mér leið bara vel á flakki með pabba og mömmu. Ég á líka góðar minn- ingar um okkur pabba í veiðiferð- um, á skíðum og í gönguferðum, m.a. í svartaþoku á Snæfellsjökli. Við pabbi rifjuðum oft upp há- lendisferðir okkar, t.d. eldgosa- ferðirnar og óveðursferð á Arn- arvatnsheiði árið 1985, en þá var svo hvasst að smjörið fauk af brauðinu. Það þurfti töluvert til að koma pabba úr jafnvægi. Dæmi um það er þegar við sátum í jeppanum á miðjum Vatnajökli árið 1996 nálægt eldgosinu í Gjálp í svartabyl, og heyrðum í fréttum að gossprungan væri að færast í átt að okkur. Það varð almenn ókyrrð í jeppahópnum og flestir sneru við í skyndi en pabba fannst sjálfsagt mál að klára slátrið sem hann var að borða í rólegheitum áður en frekari ákvarðanir yrðu teknar. Allir komu heilir heim. Ég, Harpa og strákarnir okkar höfum átt góðar stundir með pabba og mömmu í sumarbú- staðnum á Brúarhóli og á Ísafirði. Sérstaklega minnisstæð er ferð okkar í Klettafjöllin í Kanada árið 2002. Hin síðari ár hefur Hjalli (Sogavegur) verið okkar annað heimili, enda við landsbyggðar- fólkið oft á ferðinni syðra. Pabbi fylgdist alltaf vel með ferðum okkar. Í síðasta mánuði sátum við saman og fórum yfir fyrir- hugaða ferð fjölskyldunnar til Mexíkós. Pabbi var áhugasamur sem fyrr og gróf upp ýmsar upp- lýsingar fyrir okkur. Hann var einnig vel inni í málefnum líðandi stundar og fylgdist vel með frétt- um, reyndar svo vel að útvarpið var oftast í botni svo hann myndi nú örugglega ekki missa af neinu. Stundum spurði hann mig og Hörpu um málefni sem tengd- ust okkar vinnu og sá þá gjarnan málin frá nýjum sjónarhornum. Pabbi og mamma kunnu að njóta lífsins saman. Í febrúar síð- astliðnum sigldu þau í gegnum Panamaskurðinn á skemmti- ferðaskipi og í vor stóð pabbi uppi á jökli og virti hálendið fyrir sér. Fyrir tveimur vikum vorum við feðgar að plana ferð. Ferðinni var heitið út á stétt við Landspít- alann í hjólastól. Þessi ferð var þó aldrei farin vegna heilsuleys- is. Það var alls ekki í anda pabba að láta ferð falla niður, en nú er hann lagður af stað í aðra ferð á ókunnar slóðir og þannig líður honum vel. Það ríkir söknuður hjá mér, Hörpu, Birki, Kára og Jökli en við yljum okkur við góðar minn- ingar. Gunnar Páll. Elsku besti pabbi okkar. Þó sorgin sé yfirþyrmandi þá er þakklæti okkur efst í huga fyr- ir að hafa fengið að eiga þig í lífi okkar. Í sólhvítu ljósi hinna síðhærðu daga býr svipur þinn. Eins og tálblátt regn sé ég tár þín falla yfir trega minn. Og fjarlægð þín sefur í faðmi mínum í fyrsta sinn. (Steinn Steinarr) Við kveðjum þig með sárum söknuði og minning þín mun ávallt lifa. Hvíl í friði elsku pabbi, Ragna Björk og Hjördís. Elsku besti afi okkar. Við er- um svo þakklát fyrir að hafa átt þig sem afa því betri afa var ekki hægt að hugsa sér. En þú varst ekki bara afi okkar heldur líka svo góður vinur. Það var gott að koma í heimsókn til ykkar ömmu, alltaf vorum við velkomin. Við sátum svo oft og spjölluðum sam- an um alla mögulega hluti og það var alltaf hægt að leita til þín og fá góð ráð hjá þér um hvað sem er. Þau voru mörg ferðalögin sem við fórum í saman, til dæmis hinar árlegu fjallaferðir fjölskyldunnar um landið. Við eigum svo margar góðar minningar frá þeim ferð- um. Þú varst alltaf að fræða okk- ur um landið okkar og að því munum við alltaf búa. Okkur eru líka minnisstæðar allar sögurnar sem þú sagðir okkur, til dæmis allar þjóðsögurnar, enda varstu mikill sögumaður. Þú sagðir svo skemmtilega frá og það var líka alltaf stutt í húmorinn hjá þér, jafnvel alveg fram á síðustu stundu. Við erum heppin að hafa haft þig í lífi okkar og kveðjum þig með miklum söknuði. Heimurinn er fátækari án þín elsku afi. Minning þín mun lifa í hjörtum okkar alla tíð. Steinar Örn, Arna Laufey og Bjarki Gunnar. Elsku hjartans afi okkar. Við viljum þakka þér fyrir allar góðu stundirnar sem við höfum átt saman. Við munum aldrei gleyma skemmtilegu fjallaferð- unum sem við fórum í á sumrin. Þar flökkuðum við um allt land og gistum á hinum ýmsu stöðum. Þú kenndir okkur svo margt um landið. Við gleymum líka aldrei sög- unum sem þú sagðir okkur um álfa og tröll og ekki má gleyma sögunni um Búkollu og Pönnu- kökukónginn því enginn sagði þær jafn skemmtilega og þú. Það var alltaf jafn gott að koma til þín og ömmu í Brúarhól og njóta í sveitasælunni. Einnig minnumst við ferðanna okkar norður. Í Akureyrarferðinni í síð- astliðnum apríl fórum við saman upp á Kaldbak og þú varst svo glaður að geta farið með okkur upp því Kaldbakur var eitt af þeim fjöllum sem þú varst ekki búinn að fara á. Það var alltaf gaman í kringum þig enda mikill húmoristi. Þú vild- ir að okkur liði vel og þér var svo umhugað um okkur. Þú hugsaðir svo vel um alla í kringum þig og fylgdist alltaf vel með því sem við krakkarnir vorum að gera og ekki síst hvað hann Hlynur Smári væri að bralla, enda miklir félagar. Elsku afi, við þökkum þér fyrir allar yndislegu stundirnar okkar saman og allt það sem þú hefur gefið okkur. Hvíl í friði elsku afi, Snædís Gerður, Skjöldur Berg og Sólveig Björt. Gunnar Berg Eydal, föður- bróðir okkar, er látinn eftir stutta sjúkdómslegu. Það er ákaflega óraunverulegt og ótímabært, finnst okkur sem hittum hann glaðan og sjálfum sér líkan í stúd- entsveislum vorsins en hann var þá orðinn veikari en nokkurn ór- aði fyrir. Gunni frændi lifði sínu lífi sannarlega til fulls, sinnti mörg- um ábyrgðarhlutverkum, ferðað- ist með Ásgerði sinni og afkom- endahópnum, var lífið og sálin í fjölskylduboðum, hafði gaman af að vera með fólki og lét sér annt um samferðamenn sína og ætt- ingja. Hann var fróður sam- félagsrýnir, húmoristi, fræði- og sögumaður. Sumt fólk lifir lífinu af meiri krafti en aðrir og Gunni var einn af þessum kröftugu einstakling- um sem sáu spaugilegu hliðarnar á tilverunni en var þó bjargfastur bakhjarl sínu fólki. Okkur og börnum okkar hafa þau Ásgerður sýnt stuðning og ræktarsemi, fylgst af áhuga með því sem við tökum okkur fyrir hendur og sýnt samhug á tímamótum. Útilegur Eydalsfjölskyldunnar eru okkur ógleymanlegar, þar lét elsta kynslóðin sitt ekki eftir liggja og Gunni frændi lék að sjálfsögðu á als oddi. Fjallamað- urinn og jeppakarlinn kunni á landið sitt og innrætti okkur öll- um virðingu fyrir og skilning á hálendinu. Börnin hans og fjöl- skyldur þeirra gátu ekki annað en smitast af fjallabakteríunni og gaman hefur verið að fylgjast með fjölskyldunni í fjalla- mennsku og ferðalögum. Á námsárum hans í Kaup- mannahöfn fórum við fjölskyldan nokkrum sinnum að sumarlagi í heimsókn. Þessar ferðir voru æv- intýri í okkar augum, Gunni frændi var skemmtilegasti mað- ur í heimi og við fengum að vera með Rögnu og Hjördísi frænkum okkar. Í fyrstu heimsókninni gistu allir í litlu íbúðinni þeirra á Amager, þau fjögur, við fimm og amma Pálína. Líklega hefur íbúð- in verið u.þ.b. 60 fermetrar en enginn kvartaði og alltaf var gaman. Bræðurnir „diskúteruðu“ djass, pólitík og sögðu sögur, það var kært með þeim öllum og fjöl- skyldan var ákaflega samheldin. Hlíðargata 8 á Akureyri, heimili afa og ömmu, var oftast mið- punkturinn, jólaboð, lamba- hryggir og hnallþórur, sumar- blíða, ferðir í Vaglaskóg og lautartúrar í Vaðlaheiði, Gunni frændi að gera grín að foreldrum sínum og bræðrum, komst alltaf upp með það enda yngstur og í uppáhaldi hjá öllum. Minning- arnar eru margar og allar góðar. Með Gunna er genginn síðasti meðlimur fjölskyldunnar í Hlíð- argötunni og enginn er lengur til staðar til að segja okkur sögurn- ar af bralli þeirra bræðra. Marg- ar þeirra munum við og við er- umþakklát fyrir endurminningarnar hans sem komu út á prenti fyrir nokkrum árum. Elsku Ásgerði, Rögnu Björk, Hjördísi, Gunnari Páli, Steinari, Hlyni og Hörpu, börnum ykkar og barnabörnum, vottum við okk- ar dýpstu samúð og einnig Krist- birni elsta föðurbróður okkar. Við systkinin þökkum frænda okkur góða samfylgd, væntum- þykju og elskusemi. Inga Dagný, Guðný Björk, Ingimar og Ásdís Eydal. Það sem við eigum sameigin- legt með Gunnari heitnum og Ás- gerði eru þrír kraftmiklir drengir barna okkar, þeirra Gunnars Páls Eydal og Hörpu, og svo þær stundir sem við eðlilega eignuð- umst þeirra tengsla vegna. Þar sem við sitjum hér í miðju ferðalagi um veldi Svíakonungs sækja að minningabrot úr sér- deilis ánægjulegum samveru- stundum sem við áttum, oftar en ekki einmitt tengdum ferðalög- um. Ef til vill sú eftirminnileg- asta var 14 daga ferð um Kletta- fjöllin í Kanada ásamt Gunnari Páli, Hörpu og Birki, þá tveggja ára. Margt skoðað daglangt og í svartamyrkri skógarins að kvöldi setið í skini varðelds, spjallað og spekúlerað, sögur sagðar og dátt hlegið. Við þessar aðstæður var Gunnar á heimavelli. Ef svo þögn sló á hópinn og það eina sem heyrðist um stund var úr hljóð- heimi skógarins í bland við snarkið í kulnandi eldinum sagði hann gjarnan: „Heldur í feldinn, horfir í eldinn, og hrærist ei.“ (Matth. Jochumsson) Minningar um Gunnar uppi á hátindi Glámu um hávetur, geisl- andi af gleði yfir ægifögru útsýni, gleymast ekki. Þar höfðum við fengið að slást í för með stórum vinahópi þeirra Ásgerðar sem gjarnan fór vetrarferðir á fjöll. Við hjónin verðum ævinlega þakklát fyrir allar þær ljúfu stundir sem okkur hafa hlotnast í návist Gunnars, Ásgerðar, ætt- ingja þeirra og vina. Það er ómet- anlegt að fá að njóta þess að um- gangast svona gott fólk og sannarlega tilheyrði Gunnar þeim flokki manna sem gaman var að hitta, fróðlegt að spjalla við og tilhlökkunarefni að hitta næst. En það verður víst því miður ekki. Minningarnar um hann lifa hins vegar með okkur á þann hátt sem þessum fátæklegu orðum er ætlað að tjá. Takk. Okkar innilegustu samúðar- kveðjur til fjölskyldunnar allrar. Sýbilla og Grímur. Elsku Gunni minn. Það er með djúpri sorg í hjarta sem ég skrifa þessi orð til þín en efst í huga mér er þakklæti fyrir allar góðu minn- ingarnar sem ég á um þig. Mikið var ég lánsöm að alast upp í nágrenni við ykkur Ásgerði og vera alltaf velkomin á heimili ykkar. Þær eru margar æsku- minningarnar sem streyma fram, bæði úr Háagerðinu og af fjöllum. Þú kenndir mér svo margt og skilur svo mikið eftir þig sem ég mun koma áfram til dætra minna. Þú varst guðfaðir minn og varst mér sem afi. Það var alltaf gott að leita til þín og það er mér ein- staklega minnisstætt eitt vor- kvöld þegar þú aðstoðaðir mig við undirbúning fyrir stúdentspróf- sritgerð þar sem við vorum svo sammála um röksemdafærslu. Sem og kvöldin þegar þú hjálp- aðir mér með dönsku háskólaum- sóknina og við æfðum dönskuna. Síðustu dagana þegar við viss- um í hvað stefndi ræddum við um lífið og tilveruna. Þú spurðir mig hve lengi við ætluðum að vera í Svíþjóð og ég viðurkenndi fyrir þér að það örlaði á heimþrá á þessum fallegu sumardögum og ekki síst fjölskyldunnar vegna. Þá sagðir þú þessi orð Laxness sem ég mun aldrei gleyma: „Því hvað er auður og afl og hús ef engin jurt vex í þinni krús.“ Takk elsku Gunni fyrir allt, þín verður sárt saknað. Ragnheiður Valdimarsdóttir. Gunni frændi er dáinn. Þegar ég hitti þig fyrir um það bil tveim- ur vikum sá ég hvert stefndi og þú vissir það líka. Við töluðum um dauðann og þú þessi jarðbundni og raunsæi maður hafðir ekki áhyggjur af þér en kveiðst því að öðrum sem elskuðu þig liði illa í sorginni. Þegar ég sagði þér að Egill maðurinn minn heitinn hefði sagt að hann hefði ekkert á móti því að sameinast náttúrunni þá sagðir þú með glettni í augum: „Já, fyrst að hann sagði þetta þá get ég heldur ekki haft neitt á móti því að verða eitt með nátt- úrunni.“ Þótt Gunnar væri fár- veikur vantaði ekki húmorinn og hnyttin tilsvörin. Ég var á Akureyri þegar mér berst andlátsfregnin. Minning- arnar sem við Gunnar áttum sam- an helltust yfir mig. Ég keyrði strax framhjá æskuheimili Gunn- ars í Hlíðargötu 8 þar sem við bjuggum saman í nokkur ár, hús- inu sem feður okkar byggðu sam- an. Þessi staður geymir svo margar góðar minningar. Ógleymanleg eru öll jólaboðin þar sem þið bræður, Ingimar, Finnur og þú sögðu okkur hinum krökk- unum mergjaðar draugasögur og spiluðuð háværa músík. Þarna átti Gunnar mjög góða æsku, ómetanlega vini og þar naut frjótt ímyndunarafl og uppátækjasemi hans sín vel. Öskudagurinn og gamlárskvöld standa upp úr, ekki síst þegar minnst er á stórhættu- legu heimatilbúnu sprengjurnar. Ógleymanlegar eru líka minning- ar tengdar veru Eydalsfjölskyld- unnar í Vaglaskógi á sumrin. Gunnar lýsir þessu í bókinni Gamlar glefsur og nýjar og hann segir að allra bestu minningar sínar úr æsku séu tengdar Bjar- karlundi. Þarna var svo margt ótrúlega skemmtilegt brallað og þarna naut stórfjölskyldan sín upp í topp, mikið leikið, spjallað og hlegið. Gunnar hafði mikil áhrif á mín- ar pólitísku skoðanir. Í byrjun menntaskóla tók Gunnar mig á eintal og gaf mér bækur eftir Ca- Gunnar Berg Eydal Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN BENEDIKTSDÓTTIR frá Hólmavík, lést á Droplaugarstöðum í Reykjavík, laugardaginn 20. júlí. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 29. júlí klukkan 15. Ólafur Reykdal Guðrún Björk Reykdal Sigurður Sigurðsson Sigrún Edda Reykdal Þórarinn, Auðunn, Alexander og Sara Xiao Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, RAGNHEIÐUR JÚLÍUSDÓTTIR, Sörlaskjóli 19, Reykjavík, lést á Landspítalanum í Fossvogi miðvikudaginn 17. júlí. Útför hennar fer fram frá Háteigskirkju miðvikudaginn 31. júlí klukkan 13. Melkorka Gunnarsdóttir Björn Már Jónsson Júlíus Þór Gunnarsson Guðrún Júlíusdóttir Úlfar Örn Gunnarsson Þóra Katrín Gunnarsdóttir Þórarinn Þorgeirsson Katinka Ýr, Jón Gunnar, Ragnheiður, Ólafur Haukur, Kjartan Þór, Þorgeir Örn og Þorsteinn Ari

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.