Morgunblaðið - 25.07.2019, Qupperneq 54

Morgunblaðið - 25.07.2019, Qupperneq 54
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2019 Glæsilegir skartgripir innblásnir af íslenskri sögu GULL SM IÐUR & SKARTGR I PAHÖNNUÐUR Skólavörðustíg 18 – www.fridaskart.is Guðrún Selma Sigurjónsdóttir gudrunselma@mbl.is „Ég er fyrir löngu orðin háð því að hreyfa mig. Mér finnst best að byrja alla daga á einhverri hreyf- ingu, annaðhvort góðri æfingu eða léttum teygjum. Dagurinn verður miklu betri fyrir vikið,“ segir Sig- urbjörg sem segist helst heillast af hagnýtri þjálfun sem snýst um að gera líkamann sem best í stakk bú- inn til að takast á við daglegt líf og það sem þú vilt geta gert. „Hvort sem það er að hoppa, lyfta börnum eða kössum, hlaupa eða sitja úti í náttúrunni. Mér finnst best að blanda saman alls konar hreyfingu og breyta til eftir árstíð- um og almennri líðan. Á sumrin stunda ég meiri útiveru, fer í sund og æfi jafnvel úti með eigin líkams- þyngd eða ketilbjöllur. Á veturna er ég í meira stuði fyrir að vera inni og lyfta. Mér finnst líka skemmti- legast að hafa eitthvert markmið til að stefna að, það hvetur mig áfram og mér finnst alveg ofboðslega gaman að bæta mig,“ segir Sig- urbjörg um það hvernig hún æfir. Fann neistann aftur í herþjálfun Þú lyftir þungu, stundar akró og dansar, hvernig fer þetta allt sam- an? „Í sannleika sagt fór þetta ekki saman tímalega séð þótt ég sé meistari í skipulagi. Ég var farin að gera allt of mikið og hreinlega keyra mig út á öllum sviðum; í vinnu, einkalífi og áhugamálum. Núna er dansinn í smá pásu. Ég er ekki hætt að dansa en hugsa til dansins með því hugarfari að ég hlakki til að geta byrjað aftur. En að því slepptu passar mjög vel að stunda þessar íþróttir saman og þær styðja mjög vel hver við aðra. Ég varð miklu betri í akró þegar ég byrjaði að lyfta þungu og sveifla ketilbjöllum, ég varð betri í dansi þegar ég byrjaði í akró. Ketilbjöllur og akró eiga sérstaklega vel saman og eru frábærar og hagnýtar æfing- ar til að styrkja líkamann heilt yfir og sérstaklega miðjuna. Svo má blanda öllu saman; ég og akrófélagi minn höfum búið til akródans-- lyftingarútínur okkur og öðrum til skemmtunar.“ Sigurbjörg hefur alltaf hreyft sig reglulega en forsendurnar hafa ver- ið mismunandi. Hún æfði fimleika til 18 ára aldurs en þá tóku við nokkur ár þar sem hún fann ekki réttu hreyfinguna. „Við tóku nokkur ár þar sem ég hreyfði mig bara af skyldurækni því ég vildi ekki fitna. Það var einhvern veginn ekki neitt sem vakti áhuga minn eða sem mig langaði að gera, svo ég gerði nánast ekki neitt,“ seg- ir Sigurbjörg sem fann þó loks sína hillu þegar hún prófaði herþjálfun í íþróttahúsi Háskóla Íslands þegar hún var í lögfræði. „Á þessum tíma hafði ég ekki vigtað mig í mörg ár en allt í einu fór ég að taka eftir að fötin mín voru orðin of stór og ég var farin að geta gert ýmislegt sem ég gat ekki þegar ég byrjaði. Það hvatti mig áfram og þegar herþjálfunin hætti fór ég að búa til æfingar fyrir mig sjálfa með hjálp netsins. Þegar ég útskrifaðist fór ég að æfa heima í stofu og þar æfði ég þar til fyrir þremur árum þegar við maðurinn minn fórum saman í einkaþjálfun. Við vorum saman í þjálfun í tvö ár og tímdum ekki að hætta hjá einka- þjálfaranum, það var svo gaman.“ Þjálfarinn hvatti Sigurbjörgu til að breyta til „Vorið 2018 var ég að þrotum komin í lífinu og sagði Helga þjálf- aranum okkar frá því. Hann spurði hvort ég vildi gera eitthvað allt ann- að; hvort ég vildi þjálfa með sér því hann vantaði samstarfsmann um haustið. Ég sagði já strax og einka- þjálfaraskóla og nokkrum nám- skeiðum síðar er ég komin á þenn- an stað. Ég hafði kennt akró og dans áður í sjálfboðavinnu og þjálf- að vini mína óformlega en ekki unn- ið við þjálfun fyrr,“ segir Sig- urbjörg, sem þjálfar nú í World Class. Hvernig áttaðirðu þig á að þú værir að upplifa sjúklega streitu og kulnun? „Ég áttaði mig á því smátt og smátt að mitt „norm“ væri ekki eðlilegt. Ég var hætt að sofa, alltaf þreytt, pirruð, gat ekki setið kyrr. Ég hélt ekki einbeitingu yfir 20 mínútna löngum sjónvarpsþætti. Ég þurfti helst að vera með tölvuna fyrir framan mig og símann líka og gera allt í einu. Ég var uppstökk, þoldi ekki há- vaða og gerði allt sem þurfti að gera á hnefanum. Ég var að bugast af svefnleysi og svo var eitt sterk- asta merkið að ég hafði ekki farið á blæðingar í tvö ár, án þess að nokk- ur ástæða fyndist. Ég þurfti alltaf að hafa gríðarlegt plan og var alltaf að keyra í sjötta gír en á tómum tanki. Þegar ég áttaði mig á því að öll þessi einkenni mætti tengja við streitu fór ég að reyna að vinda of- an af þessu sjálf. Eftir að hafa reynt það í nokkra mánuði viður- kenndi ég fyrir sjálfri mér að ég gæti þetta ekki lengur. Það var í maí 2018 og ég sagði við sjálfa mig: „Ég vil ekki lifa svona áfram, ég verð að breyta einhverju.“ Ég pant- aði tíma hjá lækni sem sendi mig strax í veikindaleyfi. Mesta sjokkið var að læknar og sálfræðingar sögðu ástand mitt augljóst en ég hafði ekki áttað mig á því að þetta væri svona slæmt. Hreyfing sem mér finnst skemmtileg fær mig til að gleyma stað og stund og er mikil andleg hvíld fyrir mig,“ segir Sig- urbjörg. Ekki fá samviskubit Sigurbjörg leggur mikla áherslu á að hafa gaman af hreyfingu og líf- inu sjálfu. Þegar kemur að matar- æði mælir hún til dæmis með því að borða eftir 80/20-reglunni, það er í 80 prósentum tilvika á máltíðin að vera holl. Hún leggur þó áherslu á að fólk refsi sér ekki fyrir að fara út af brautinni. Jafnvægi er lykilstef í lífi Sigurbjargar. „Ég passa að borða mest af því sem mér líður vel af en borða í hófi það sem mér líður ekki eins vel af en langar samt ekki að sleppa al- veg, vörur eins og sykur og áfengi. Ég elska að borða, elda, baka og bjóða fólki í mat. Ég held smáköku- boð í desember og er í æfingahóp sem snýst um að æfa akró og smakka kökur og súkkulaði í pás- um. Ég er sem sagt ekki heilög í þessum efnum, ég mun ekki hætta að borða súkkulaði, kökur og ís nema ég fái ofnæmi fyrir þeim fæðutegundum.“ Hvað gerirðu til þess að slaka á og gera vel við þig? „Ef ég þarf að slaka á líkamanum fer ég í heitt bað, sund eða leggst upp í sófa. Ef ég þarf að slaka á sál- inni er best að fara annaðhvort í dásamlegu kyrrðina í sumar- bústaðnum sem fjölskyldan er nýbúin að eignast eða komast á góða akróæfingu.“ Sigurbjörg ráðleggur fólki að hætta ekki að hreyfa sig þótt það sé í sumarfríi. Hún leggur þó mikla áherslu á að fólk fái að njóta þess að vera í fríi. „Þú hættir ekki að bursta tenn- urnar á jólunum, af hverju ættirðu að hætta að hreyfa þig í sumar- fríinu? Það er hægt að æfa hvar sem er ef maður vill; á hótelher- bergjum, á ströndinni eða í sum- arbústaðnum. Það að taka hvíld frá rútínunni er samt hollt og maður má ekki fá kvíðakast og sam- viskubit yfir að mæta ekki í rækt- ina, það er gott að breyta til og stunda annars konar hreyfingu í frí- inu en vant er. Aðlagaðu hreyf- inguna að því sem þú ert að gera, gerðu það sem þig langar og njóttu þess.“ „Ég verð að breyta einhverju“ Sigurbjörg Rut Hoffritz er menntaður lögfræðingur og starfaði um árabil sem slíkur. Í kjölfar þess að Sigurbjörg upplifði sjúklega streitu og kulnun fyrir rúmu ári byrjaði hún að vinna í sjálfri sér og starfar nú í jöfnu hlutfalli sem þjálfari og lögfræðingur. Sigurbjörg hefur auk þess þjálfað dans í sjálfboðavinnu og stofnaði fyrir tæpum tveimur árum félagið Akró Ísland þar sem hún er formaður. ljósmynd/Hermann Hoffritz Þjálfun Sigurbjörg er bæði þjálfari og lögfræðingur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.