Morgunblaðið - 25.07.2019, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 25.07.2019, Blaðsíða 58
58 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2019 Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • tengi@tengi.is Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • www.tengi.is Opið virka daga frá kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-15 Gæði, þjónusta, ábyrgð - það er Tengi SÍGILD HÖNNUN Í 50 ÁR Fyrir 50 árum hannaði danski hönnuðurinn Arne Jacobsen fyrsta kranann fyrir Vola. Æ síðan hefur hönnun og framleiðsla Vola verið í fremstu röð. 30 ára Ingibjörg er fædd og uppalin í Selja- hverfinu í Reykjavík en býr á Háaleitisbraut núna. Ingibjörg er stúd- ent úr Verzlunarskól- anum og er tannlæknir frá Háskóla Íslands frá 2017. Ingibjörg er í fæðingarorlofi en starf- ar annars í Mjóddinni sem tannlæknir. Maki: Ingibjörg er trúlofuð Gunnari Mar- teinssyni tölvunarfræðingi, f. 1983. Hann er úr Reykjavík. Börn: Tinni Brynjar, f. 2016, og Rökkvi Sveinn, f. 2019. Sonur Gunnars er Mar- teinn Daði, f. 2009. Foreldrar: Hjónin Sveinn Ásgeirsson tannlæknir, f. 1964 í Norðfirði, og Hólm- fríður Brynjólfsdóttir tannlæknir, f. 1964 í Reykjavík. Þau búa í Reykjavík. Ingibjörg Lára Sveinsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Gamlar ástir setja svip sinn á líf þitt næstu vikurnar. Sýndu hvað í þér býr. Ekki beygja þig undir vöndinn, láttu skammirnar sem vind um eyru þjóta. 20. apríl - 20. maí  Naut Fólk er óvenju þrætugjarnt í dag og því er þetta afleitur dagur til alvarlegra samræðna við maka þinn eða nána vini. Fjármálin eru loksins á hreinu. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú finnur hjá þér hvöt til þess að koma vini til hjálpar í dag. Ef þú ert alltaf að bíða eftir að eitthvað gerist þá máttu bíða lengi. Þú verður að framkvæma sjálf/ur. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú ert eitthvað viðkvæm/ur og þarft umfram allt að halda andlitinu innan um aðra. Gefðu þér tíma til að sinna sjálf- um/sjálfri þér þótt aðrir kalli á athygli þína. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Hvað gengur og hvað ekki er álitamál hvers og eins. Einhver reynir á þolrifin í þér með kæruleysi sínu. Ástarsamband fer út um þúfur. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þetta getur orðið mjög skemmti- legur dagur þótt þú verðir sennilega ekki af- kastamikil/l. Láttu þarfir þínar ganga fyrir. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú átt auðvelt með að gera málamiðl- anir í vinnunni í dag. Þú bíður frétta með öndina í hálsinum, búðu þig undir óvænta niðurstöðu. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Nú skiptir öllu að huga að heilsufarinu og gæta hófs í mat og drykk. Viljirðu hafa áhrif skaltu byrja á sjálfum/ sjálfri þér og sýna gott fordæmi. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Hafðu ekki áhyggjur þótt ferða- áætlanir þínar eða áætlanir sem tengjast námi líti ekki nógu vel út. Hlutirnir leysast. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú átt eftir að koma samstarfs- mönnum þínum á óvart með staðfestu þinni. Vinur nær áttum og þið eigið góðan dag saman. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Ekki reyna að þröngva fjöl- skyldumeðlimi til þess að vera sammála þér í dag. Sættu þig við staðreyndir og þú munt fá þann styrk sem þú þarft á að halda. 19. feb. - 20. mars Fiskar Allir hafa gott af tilbreytingu svona öðru hvoru. Líka þú. Einhver reynir að ganga í augun á þér. hvert einasta stórmót frá 1989. Það er engin íþrótt nema handbolti,“ full- yrðir Þorsteinn en fellst þó í sömu andrá á að hann fylgist líka aðeins með fótbolta. Ekki dregur það síðan úr handboltaáhuganum að tengda- sonur Þorsteins er „skipstjóri lands- liðsins“ Guðjón Valur Sigurðsson og með barnabörnum sínum og tengda- börnum fylgist hann með helsta áhugamáli sínu sem er íslenski hand- boltinn. Áhugi hans á handboltanum vaknaði þegar hann fór á B-keppni heimsmeistaramótsins í handbolta árið 1989. „Síðan þá höfum við hjónin elt liðið um allan heim og farið á Þ orsteinn Geirsson er fæddur á Þórshamri á Seltjarnarnesi 25. júlí 1949. Hann ólst þar upp og hefur alla tíð alið manninn á Seltjarnarnesi. Hann býr þar nú ásamt eiginkonu sinni Jónu í húsi sem þau byggðu sér. Þar var fyrsta skóflustungan tekin árið 1978, flutt inn 1980 og þar ólu þau hjónin upp börnin sín. Þorsteinn stofnaði fyrirtækið Fal- leg gólf ehf. árið 1984. Eins og nafnið gefur til kynna felst starfsemi þess fyrst og fremst í að leggja gólf ýmis. „Stærsti vinnuþátturinn er parketið. Svo erum við með alls konar gólf,“ segir Þorsteinn, sem nú rekur fyrir- tækið einn með hjálparsveinum. Þegar mest lét var hann með 12 menn í vinnu, við að leggja gólf af öll- um stærðum og gerðum, sem sagt allumfangsmikla starfsemi. „Ég hef farið á sýningar erlendis og reynt að fylgjast vel með. Tæknin hefur breyst mjög mikið síðan við byrj- uðum,“ segir Þorsteinn og aðspurður segir hann að helsta tískan nú sé „þetta plastdót sem er að tröllríða öllu“. Þorsteinn hefur aldrei séð lífið í svörtu og hvítu og árið 1999 keyptu hjónin sumarbústað og kvað hann bera þess glöggt merki að Þorsteinn sér lífið í lit. Honum finnst mjög gaman að safna hlutum eins og fing- urbjörgum, skeiðum, búddastyttum, grímum og síðast en ekki síst fugl- um. Hann er fagurkeri mikill og heimili hans ber því vitni. „Þetta er gott fólk“ Þorsteinn fór á sínum tíma í skyldunám á Seltjarnarnesi en fór svo út á vinnumarkaðinn. „Ég byrj- aði að læra smiðinn en varð faðir ungur og þá hófst bara lífsbaráttan,“ segir Þorsteinn. Hann byrjaði ungur að vinna og eignaðist fjögur börn. Hann er mikill fjölskyldumaður og fylgist vel með börnum sínum, tengdabörnum og barnabörnum. „Ætli það sem stendur upp úr sé ekki fjölskyldan,“ segir hann við þessi tímamót. „Ég á góða að, fjölskylduna mína. Þetta er gott fólk,“ segir hann. Um leið og Þorsteinn hefur auga barnabarn hans er Elín Jóna í ís- lenska kvennalandsliðinu. Fjölskylda Eiginkona Þorsteins er Jóna Kristjánsdóttir sjúkraliði, f. 7. janúar 1951 á Jaðri í Bolungarvík. For- eldrar Jónu eru Þórunn Ketilsdóttir húsfreyja, f. 1916, d. 1962, og Krist- ján Jóhann Finnbjörnsson mál- arameistari, f. 1921 í Miðvík í Að- alvík, d. 2002, síðast búsettur í Kópavogi. Börn Þorsteins og Jónu eru 1) Kristján Geir Þorsteinsson, f. 20. ágúst 1968, d. 2. apríl 1976, 2) Þor- steinn Þorsteinsson iðnaðarmaður á Seltjarnarnesi, f. 18. mars 1972, kona hans er Unnur Teits Halldórsdóttir og börn þeirra a) Viktor Orri Þor- steinsson, f. 1994, b) Elín Jóna Þor- steinsdóttir, f. 1996, og c) Helga Dögg Þorsteinsdóttir, f. 2005, 3) Kristján Geir Þorsteinsson kennari á Seltjarnarnesi, f. 1. febrúar 1978, kona hans er Rakel Viðarsdóttir og börn þeirra a) Sara Kristjánsdóttir, Þorsteinn Geirsson, verktaki og eigandi Fallegra gólfa ehf. – 70 ára Handboltinn Þorsteinn og tvær kynslóðir afkomenda hans, Þorsteinn til vinstri og Viktor Orri til hægri, gera sig hér tilbúna að fara á handboltamót í Króatíu. Þorsteinn hefur fylgt landsliðinu á hvert stórmótið á fætur öðru. Engin íþrótt nema handbolti Sjötugur Þorsteinn á langan feril að baki við að leggja falleg gólf. 40 ára Lísabet er fædd í Reykjavík og ólst upp í Garðabæ. Hún er stúdent úr FG. Lísabet er með meist- aragráðu í fornleifa- fræði frá Háskóla Ís- lands frá árinu 2013 og stundar nú doktorsnám við sama skóla. Lísabet hefur starfað hjá Fornleifa- stofnun Íslands. Lísabet býr í 107. Eiginmaður: Sigvaldi Jónsson, f. 1975 í Reykjavík, tölvukall. Börn: Hilmar Búi Sigvaldason, f. 2008, og Auður Sigvaldadóttir, f. 2010. Foreldrar: Þórunn Kristín Sverrisdóttir þjónustufulltrúi, f. 1961 í Vestmanna- eyjum, og Guðmundur Ólafsson, verka- maður og sundkappi, f. 1955 í Hafnar- firði, d. 1992. Lísabet Guðmundsdóttir Til hamingju með daginn Systurnar Svanborg Hel- ena og Sólveig Maríanna Pétursdætur ásamt vin- konu sinni Auði Ísafold Jónsdóttur héldu tombólu hliðina á Krónunni í Nóa- túni. Þær söfnuðu 4.010 kr. sem þær gáfu Rauða kross- inum að gjöf. Rauði krossinn þakkar þessum duglegu stelpum fyrir þetta glæsilega fram- lag til mannúðarmála. Hlutavelta
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.