Morgunblaðið - 25.07.2019, Qupperneq 62

Morgunblaðið - 25.07.2019, Qupperneq 62
Eitt ogannað 62 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2019  Eygló Ósk Gústafsdóttir hafnaði í 29. sæti af 50 keppendum í 50 metra baksundi á heimsmeistaramótinu í 50 metra laug í Gwangju í Suður-Kóreu í gærmorgun. Hún synti vegalengdina á 29,82 sekúndum en á best 28,61 sek- úndu í þessari grein. Til að komast í milliriðil hefði Eygló þurft að synda á 28,29 sekúndum en þangað komust sextán bestu úr undanrásunum.  Tyrkneska knattspyrnufélagið Ak- hisarspor staðfesti í gær að það hefði samið við Theódór Elmar Bjarnason til tveggja ára en hann lék með Gaz- isehir seinni hluta síðasta tímabils. Akhisarspor féll úr tyrknesku úrvals- deildinni í vor og Elmar verður fyrstur Íslendinga til að spila með félaginu.  Aston Villa, lið Birkis Bjarnasonar, bætti í gær enn einum leikmanninum við í hóp sinn þegar það keypti egypska miðjumanninn Mahmoud Hassan af Kasimpasa í Tyrklandi. Hassan, sem jafnan er kallaður Tré- zéguet, hefur spilað 41 landsleik fyrir Egyptaland. Aston Villa, sem vann sér sæti í ensku úrvalsdeildinni í vor, hefur þar með keypt níu leikmenn í sumar en þrír þeirra léku reyndar sem láns- menn með félaginu síðasta vetur. Tíu leikmenn hafa yfirgefið Aston Villa í staðinn í sumar.  Horfur eru á því að spænski knatt- spyrnumaðurinn Marco Asensio leiki ekkert með Real Madrid á komandi keppnistímabili. Félagið staðfesti í gær að hann hefði slitið krossband í hné og væri á leið í uppskurð en þar með er ljóst að hann spilar ekki næstu 8-12 mánuðina.  Elvar Már Friðriksson og samherjar í sænska liðinu Borås drógust í gær gegn Karsiyaka frá Tyrklandi í und- ankeppni Evrópubikars FIBA (FIBA Eu- rope Cup) í körfuknattleik. Leikið verð- ur 2. og 9. október. Sigurliðið fer í riðil með belgísku liðunum Spirou Basket og Basic-Fit Brussels, og tapliðinu úr einvígi Benfica frá Portúgal og Gron- ingen frá Hollandi. Ef Borås tapar á liðið samt möguleika á að komast í riðlakeppnina, ef einhver liðanna í Evr- ópubikar FIBA vinna sér sæti í Meist- aradeild Evrópu.  Adam Ingi Benediktsson, 16 ára knattspyrnumarkvörður úr HK sem hefur leikið með yngri landsliðum Ís- lands er genginn til liðs við sænska fé- lagið IFK Gautaborg. Þar verður hann væntanlega undir stjórn Hjálmars Jónssonar, fyrrverandi landsliðs- manns, sem þjálfar U19 ára lið Gauta- borgarfélagsins.  Frönsku meistararnir París SG hafa samþykkt að greiða enska knatt- spyrnufélaginu Everton 28 milljónir punda fyrir miðjumanninn Idrissa Gu- eye, samkvæmt heimildum Sky Sports. Gana, eins og hann er kallaður, er 29 ára gamall Senegali. Hann hef- ur verið lykilmaður sem varnartengiliður hjá Everton og spilað 99 leiki með liðinu í úrvalsdeild- inni á und- anförnum þremur árum en lék áður eitt ár með Aston Villa í deildinni. 11. UMFERÐ Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Eiga Valur og Breiðablik eftir að tapa einhverjum stigum áður en þau mætast 15. september á Kópavogs- velli? Allt bendir til þess að á því sunnudagskvöldi verði háður hreinn úrslitaleikur um Íslandsmeistaratitil kvenna í fótbolta. Valur og Breiðablik eru með 31 stig hvort eftir ellefu umferðir og einu töpuðu stig beggja eru í jafn- teflisleik þeirra á Hlíðarenda í 8. umferðinni. Í elleftu umferðinni í fyrrakvöld komst Breiðablik yfir erfiðasta hjallann á leiðinni með því að sigra hið vaxandi lið Selfyssinga 2:1 á Kópavogsvelli. Að öllu jöfnu hefðu Blikar átt að kvíða því að taka á móti Þór/KA 1. ágúst en Akureyrarliðið er væng- brotið án Stephany Mayor og Bi- öncu Sierra sem eru á Ameríkuleik- unum í Perú með mexíkóska landsliðinu. Þór/KA mun ekki þvæl- ast mikið fyrir Blikum í þeim leik, frekar en gegn botnliði Fylkis í fyrrakvöld. Tveir aðrir lykilmenn Akureyringa eru frá keppni og lið þeirra er ekki til stórræðanna í bili. Valur á eftir erfiða ferð á Selfoss í fjórtándu umferð en annars ættu toppliðin að vera með 46 stig hvort af 48 mögulegum þegar að stór- leiknum kemur. Slæm staða HK/Víkings Fallbaráttan harðnar hinsvegar með hverri umferð. HK/Víkingur virðist þó vera að einangrast á botn- inum. Eitt stig í tveimur heima- leikjum gegn Keflavík og Stjörnunni hefur komið liðinu í vonda stöðu og erfiðir útileikir við Selfoss og Val næstir á dagskrá. Hinsvegar skilja aðeins þrjú stig að Stjörnuna, ÍBV, Keflavík, KR og Fylki sem munu slást innbyrðis um fullt af dýrmætum stigum í næstu leikjum. Fylkir mætir t.d. bæði KR og ÍBV fyrir mánaðamót og Stjörn- unni í næsta leik þar á eftir. Baneitraðar fyrirgjafir Hallbera Guðný Gísladóttir vinstri bakvörður Vals var besti leik- maður elleftu umferðar að mati Morgunblaðsins. Hún átti mjög góð- an leík í 3:0-sigri Vals gegn KR og lagði upp tvö fyrri mörk liðsins fyrir Elínu Mettu Jensen og Hlín Eiríks- dóttur. Hallbera, sem er 32 ára gömul og Akurnesingur að upplagi, er komin í hóp reyndustu knattspyrnukvenna landsins og er í stóru hlutverki í Valsliðinu þar sem hún leggur upp mikið af mörkum með fyrirgjöfum frá vinstri kantinum, eins og hún hefur gert nánast allan sinn feril með félagsliði og landsliði. Hallbera er orðin áttunda leikjahæsta ís- lenska konan í deildakeppni frá upp- hafi með 273 leiki heima og erlendis. Af þeim eru 185 á Íslandi með Val, Breiðabliki og ÍA en hinir í efstu deildum Svíþjóðar og Ítalíu. Hún lék með Piteå í Svíþjóð 2012-13 og Djurgården 2017 og hálft tímabil með Torres á Ítalíu árið 2014. Þá er Hallbera orðin sjöunda leikjahæsta landsliðskonan frá upp- hafi. Hún lék sinn 100. landsleik gegn Kanada snemma á þessu ári og leikirnir eru orðnir 105 talsins. Skoraði líka þrennu í landsleik Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir framherji Stjörnunnar var besti ungi leikmaðurinn í 11. umferð að mati Morgunblaðsins en þessi korn- unga stúlka skoraði þrennu í lang- þráðum sigri Garðabæjarliðsins þegar það lagði HK/Víking 5:2 í Fossvogi í fyrrakvöld. Hildigunnur, sem varð 16 ára í janúar, lék aðeins sinn fimmta leik í efstu deild og mörkin þrjú eru henn- ar fyrstu mörk á þessum vettvangi. Hún skoraði þó fyrsta meistara- flokksmarkið í bikarleik gegn Sel- fossi 1. júní. Hildigunnur hefur líka verið á skotskónum með yngri landsliðum Íslands því á þessu ári hefur hún gert sex mörk í níu landsleikjum. Hún skoraði þar m.a. þrennu í 6:0- sigri gegn Búlgaríu og hefur einnig gert mörk gegn Ítalíu, Svíþjóð og Króatíu.  Berglind Björg Þorvaldsdóttir skoraði sitt 120. mark í efstu deild í 2:1-sigri Breiðabliks á Selfyssingum. Hún náði þar með Rakel Hönnudótt- ur í 9.-10. sæti yfir þær markahæstu í deildinni frá upphafi.  Málfríður Erna Sigurðardóttir kom inná hjá Val gegn KR og lék sinn fyrsta leik á tímabilinu. Mál- fríður er þriðja leikjahæst í deildinni frá upphafi með 235 leiki. Lið umferðarinnarEinkunnagjöfi n 2019 Þessar eru með fl est M í einkunnagjöf Morgunblaðsins. Gefi ð er eitt M fyrir góðan leik, tvö M fyrir mjög góðan leik og þrjú M fyrir frábæran leik. Cloé Lacasse, ÍBV 13 Agla María Albertsdóttir, Breiðabliki 12 Elín Metta Jensen, Val 12 Natasha Moraa Anasi, Kefl avík 12 Sveindís Jane Jónsdóttir, Kefl avík 12 Berglind B. Þorvaldsdóttir, Breiðabliki 9 Hlín Eiríksdóttir, Val 9 Margrét Lára Viðarsdóttir, Val 9 Alexandra Jóhannsdóttir, Breiðabliki 8 Dóra María Lárusdóttir, Val 8 Hallbera Guðný Gísladóttir, Val 8 Hildur Antonsdóttir, Breiðabliki 8 Anna María Friðgeirsdóttir, Selfossi 7 Emma Kelly, ÍBV 7 Fanndís Friðriksdóttir, Val 7 Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, Breiðabliki 7 Berglind B. Þorvaldsdóttir, Breiðabliki 11 Hlín Eiríksdóttir, Val 11 Stephany Mayor, Þór/KA 10 Agla María Albertsdóttir, Breiðabliki 10 Elín Metta Jensen, Val 10 Cloé Lacasse, ÍBV 9 Markahæstar Valur 64 Breiðablik 66 Kefl avík 53 ÍBV 47 Þór/KA 43 Selfoss 42 Stjarnan 42 KR 41 HK/Víkingur 38 Fylkir 34 Leikmenn: Hversu oft leikmaður hefur verið valinn í lið umferðarinnar 2 11. umferð í Pepsi Max-deild kvenna 2019 Lið: Lára Kristín Pedersen, Þór/KA 7 Stephany Mayor, Þór/KA 7 3-4-3 Cecilía Rán Rúnarsdóttir Fylki Brenna Lovera ÍBV Cloé Lacasse ÍBV Jasmín Erla Ingadóttir Stjörnunni Hlín Eiríksdóttir Val Dóra María Lárusdóttir Val Berglind Björg Þorvaldsdóttir Breiðabliki Hildur Þóra Hákonardóttir Breiðabliki Berglind Rós Ágústsdóttir Fylki Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir Stjörnunni Hallbera Guðný Gísladóttir Val 4 3 2 2 4 3 22 Með 46 stig fyrir úrslitaleik?  Valur og Breiðablik sigla áfram án áfalla  Fallbaráttan harðnar enn  Hallbera besti leikmaður 11. umferðar og Hildigunnur besti ungi leikmaðurinn Morgunblaðið/Hari Best Hallbera Guðný Gísladóttir lék mjög vel með Val gegn KR. Morgunblaðið/Eggert Efnileg Hildigunnur Ýr Benedikts- dóttir, 16 ára, skoraði þrennu. Íslenska U21 árs landslið karla í handknattleik fékk skell gegn Kró- atíu í 16-liða úrslitum heimsmeist- aramótsins á Spáni í gær. Króatar voru miklu sterkari og unnu stór- sigur 29:16. Höfðu þeir sex marka forskot að loknum fyrri hálfleik 13:7. Þótt styrkleikamunurinn væri talsverður þá átti íslenska liðið möguleika á að halda spennunni lengur í leiknum en leikmenn liðsins brenndu hins vegar af þremur víta- köstum í fyrri hálfleik. Króatía var yfir 7:6 en þá skildi leiðir. Vonir Íslendinga um að ná góðum kafla í upphafi síðari hálfleiks urðu fljótt að engu og Króatar höfðu náð níu marka forskoti eftir nokkurra mínútna leik í síðari hálfleik. Króatar voru með nokkra há- vaxna og líkamlega sterka leikmenn. Fyrir vikið átti íslenska liðið í basli bæði í sókn og vörn. Í sókninni var lítil skotógnun fyrir utan punktalínu og þurftu íslensku leikmennirnir að reyna gegnumbrot og hornaspil til að skapa sér góð skotfæri. Vinstri hornamaðurinn Orri Freyr Þorkelsson var markahæstur í liði Íslands með 5/2 mörk en þeir Gabríel Martinez Róbertsson og Kristófer Andri Daðason komu næstir en þeir skoruðu þrjú mörk. Viktor Gísli Hallgrímsson varði fimm skot og Andri Sigmarsson Scheving varði þrjú. Króatía er þar með komið í 8-liða úrslit keppninnar og mætir þar Tún- is sem vann Svíþjóð í 16-liða úrslit- um í gær. Engu að síður eru tvær Norðurlandaþjóðir í 8-liða úrslitum: Danir og Norðmenn. Ísland á eftir að spila einn leik og mætir Serbíu í dag í leik um 13. sæt- ið í mótinu. Bahrain undir stjórn Halldórs Jóhanns Sigfússonar mæt- ir Japan í leik um 17. sætið. kris@mbl.is Skellur gegn Króatíu á Spáni  U21 árs landsliðið féll úr keppni í 16-liða úrslitum HM Ljósmynd/IHF Markahæstur Orri Freyr Þorkels- son skoraði 5/2 mörk.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.