Morgunblaðið - 25.07.2019, Síða 64
VIÐTAL
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Stuttmynd er spretthlaup á meðan
kvikmynd í fullri lengd er maraþon
sem getur reynt verulega á þolrifin,“
segir kvikmyndaleikstjórinn Elfar
Aðalsteins þegar hann er spurður
um muninn á þessum tveimur form-
um en á dögunum var fyrsta kvik-
myndin í fullri lengd sem hann leik-
stýrir, End of Sentence, frumsýnd á
kvikmyndahátíðinni í Edinborg. Og
fékk mjög góða dóma. Hún verður
opnunarmynd RIFF-hátíðarinnar í
haust. Elfar bætir við að ef það sé
eitt sem kvikmyndagerð kenni
manni, þá sé það þolinmæði. Það taki
langan tíma að þróa handrit, tryggja
styrki og fjármögnun og keyra verk-
efnin í gegn.
Stuttmyndin Sailcloth sem Elfar
leikstýrði með John Hurt í aðal-
hlutverki hlaut á sínum tíma mikla
athygli, var valin besta íslenska
stuttmyndin á RIFF árið 2011, vann
Edduverðlaun og komst í lokaúrtak
BAFTA- og Óskarsverðlauna.
Elfar hefur komið að fleiri kvik-
myndum sem framleiðandi en þess-
ari fyrstu leiknu löngu kvikmynd
sem hann leikstýrir, End of Sen-
tence, er lýst sem ljúfsárri og kóm-
ískri vegamynd sem segi sögu feðga
er leggja land undir fót til að heiðra
minningu móður og eiginkonu. Í að-
alhlutverkum eru kunnir leikarar,
John Hawkes og Logan Lerman.
Ólafur Darri Ólafsson fer með lítið
hlutverk í kvikmyndinni sem var að
mestu tekin upp á Írlandi. Hún er
framleidd af Sigurjóni Sighvatssyni,
Elfari og David Collins. Karl Ósk-
arsson var tökumaður, Valdís Ósk-
arsdóttir og Kristján Loðmfjörð
klipptu og Pétur Þór Benediktsson
samdi tónlistina.
Verkið varð persónulegt
„Eva María Daníels, vinkona mín,
ein af framleiðendum myndarinnar,
sendi mér handritið og taldi að það
myndi henta mér sem leikstjóra,“
segir Elfar um End of Sentence.
„Sagan hreyfði við mér og mér
fannst þessir vegvilltu karakterar
áhugaverðir. Þannig að við Michael
Armbruster handritshöfundur hitt-
umst í kjölfarið og náðum strax vel
saman. Hann var tilbúinn í frekari
þróun handritsins og við unnum í því
saman í rúmt ár áður en það var
tilbúið til að senda á leikara. Þá var
verkið orðið persónulegt fyrir okkur
báða sem skipti öllu máli fyrir mig
sem leikstjóra. Ég hefði ekki lagt í
svona vegferð nema sagan hefði haft
sterka persónulega skírskotun.“
– Hvernig varð það persónulegt?
„Þetta laskaða föður- og sonar-
samband var eitthvað sem mig lang-
aði að skoða frá báðum sjónar-
hornum. Ég er fjögurra barna faðir
og náinn börnunum mínum en kem
sjálfur úr óhefðbundnu fjölskyldu-
mynstri þar sem amma mín og afi
gengu mér í foreldrastað. Ég vildi
líka skoða falska ímynd karlmennsk-
unnar þar sem sársaukafullum at-
burðum er ýtt undir yfirborðið og
þeir ekki ræddir. Við þurfum að
kenna ungu mönnunum okkar að op-
in samskipti og hjartahlýja eru
styrkur en ekki veikleiki. Við erum
öll með einhvern farangur.“
Elfar segir verkefnið hafa tekið
sex ár frá því að hann kom að því og
þar til myndin var frumsýnd.
„Þegar handritið var tilbúið kom
Sigurjón Sighvatsson inn sem fram-
leiðandi sem voru ákveðin vatnaskil.
Að fá Sigurjón inn með sína miklu
reynslu og sterku sambönd var mikill
fengur fyrir verkefnið og mig sjálfan.
Hann hefur staðið þétt við bakið á
mér í gegnum allt ferlið. Ári síðar
bættist annar reyndur framleiðandi
við, David Collins, sem hélt utan um
framleiðsluna og hafði umsjón með
tökunum á Írlandi. Öll eftirvinnsla
fór svo fram á hér á landi með góðum
stuðningi Kvikmyndamiðstöðvar
þannig að kvikmyndataka, klipping,
tónsmíði, tæknileg útfærsla, hljóð og
litgreining er í höndum Íslendinga.“
Köfuðu í karakterana
Þegar Elfar er spurður um frá-
sagnarháttinn sem hann kaus að
beita segir hann þá Karl tökumann
hafa skoðað mikið af efni og ákveðið
á endanum að myndin yrði í „hand-
held“-stíl, sem var bæði listræn og
praktísk ákvörðun. „Takmarkið var
að vera nálægt aðalsöguhetjunni
Frank og upplifa ferðalagið sem
mest í gegnum hann. Frásagnarmát-
inn verður hrárri fyrir vikið en Karl
er snillingur að lýsa fyrir kameruna
þannig að það helst mýkt og fegurð í
rammanum. Við vorum líka fljótari
að skjóta með þessari aðferð sem var
mikilvægt þar sem við höfðum ein-
ungis 26 daga á Írlandi.
Á æfingatímanum köfuðum við
leikararnir saman ofan í karakter-
ana, flettum þeim eins og lauk inn að
kjarna, í stað þess að lesa handritið
orð fyrir orð. Það er verk leikaranna
að kunna textann áður en þeir mæta
á sett og við veltum frekar upp orsök
og afleiðingum, skiptumst á reynslu-
sögum og spurðum allskyns spurn-
inga sem við svöruðum svo fyrir
framan kameruna.“
Þekktir leikarar mikilvægir
Elfar segir það hafa skipt mjög
miklu máli að fá þekkta og vel metna
leikara í aðalhlutverkin. „Þessi mynd
er alþjóðleg vara og hún þarf að selj-
ast. Bæði John og Logan eru reynd-
ir, miklir fagmenn og ljúfir og góðir
drengir utan vinnu. Það ríkti traust
okkar á milli sem er það mikilvæg-
asta í leikara-leikstjóra-sambandinu
og þeir gáfu mikið af sér í gegnum
ferlið. Logan bætti til dæmis á sig 10
kílóum í vöðvamassa bara fyrir þessa
mynd. Hann var alltaf í ræktinni
greyið strákurinn. Samstarf mitt við
John þróaðist út í góðan vinskap og
hann hlakkar mikið til að koma til Ís-
lands, frumsýna og upplifa land og
þjóð.“
Elfar segir að í kvikmyndagerð-
inni sé sinn staður í leikstjórn og
handritsgerð. „Í dag vinn ég ein-
göngu í þróun eigin verkefna og fæ
góða framleiðendur í lið með mér til
að stýra framleiðslunni. Mér finnst
líka gaman að vinna með höfundum
eins og Mike, eingöngu sem leik-
stjóri, og á hugsanlega eftir að gera
meira af því. Ég segi stundum í gríni
að við Michael Armbruster eigum í
óvenjulegu höfundar- og leikstjóra-
sambandi: við erum enn vinir! En
það er ekkert sjálfgefið í þessum
bransa.“
Elfar hóf feril við kvikmyndir sem
framleiðandi en leikstýrir nú líka.
„Áhuginn lá alltaf í sköpun en
framleiðslan var leiðin inn fyrir mann
með minn bakgrunn. Ég var á kafi í
tónlist og leiklist sem ungur maður,
samdi vond ljóð í menntaskóla, þann-
ig að leikstjórnin er ákveðin heim-
koma og samnefnari þess sem ég hef
áhuga á. Kvikmyndagerð er líka
ljómandi góð leið til að uppgötva
heiminn og læra inn á sjálfan sig og
aðra.“
End of Sentence var afar vel tekið
í Edinborg og Elfari þykir vænt um
að myndin snerti bæði við áhorf-
endum og gagnrýnendum sem segja
hana vera lágstemmda en um leið
vekja upp tilfinningar. „Það var alltaf
takmarkið og ég er virklega ánægður
fyrir allra okkar hönd að það hafi
tekist. Að fá svona jákvæða gagnrýni
í leiðandi fagmiðlum skiptir auðvitað
máli fyrir framhaldslíf myndar-
innar,“ segir hann og þá sé það mikill
heiður að vera boðið að opna RIFF-
hátíðina. Myndin fari nú í sýningu á
fleiri alþjóðlegum kvikmyndahátíð-
um.
Sumarljós Jóns Kalmans næst
– Þú hefur nú í allnokkur ár unnið
með íslenskan efnivið, skrifaðir
handrit eftir verðlaunaskáldsögu
Jóns Kalmans Stefánssonar Sum-
arljós og svo kemur nóttin. Hvers
vegna valdirðu þá sögu? Og hvaða
leið ferðu í því að segja söguna – í
bókinni er hún sögð af látnu fólki og
það engin ein aðalpersóna.
„Sagan snerti mig djúpt og mig
langaði að kafa ofan í lífheim þorps-
ins úti á landi sem ég ólst upp í og
þekki svo vel,“ segir Elfar. „Við Ólaf-
ur Darri, sem á verkefnið með mér,
fórum og hittum Jón Kalman og
deildum með honum okkar sýn á
verkið. Ég gleymi því aldrei þegar
síminn hringdi hjá mér viku síðar og
það var Jón að tilkynna mér að hann
hefði ákveðið að veita okkur kvik-
myndaréttinn. Ég þakkaði honum
fyrir og spurði hann hvort hann væri
búinn að hugsa málið og hann svaraði
um hæl: „Nei, ég er ekkert búinn að
hugsa þetta, það er tilfinningin sem
ræður.“ Jón er einn af fremstu
prósahöfundum heims þannig að
þetta er vandasamt verk. En maður
verður að takast á við það sem hreyf-
ir við manni og hræðir mann um leið,
annars er enginn alvöruávinningur.
Án þess að gefa of mikið upp þá
verða þetta fjórar sögur sem fléttast
saman, sagðar já, af kollektívri rödd
þorpsins.“
Elfar bætir við að planið sé að
hefja tökur í júní á næsta ári og vetr-
artökur verða svo í nóvember. En
hvar verður hún tekin?
„Ég veit það satt besta að segja
ekki enn. Fallegasti staður á landinu,
Eskifjörður, er því miður of stór og
fjölmennur fyrir söguna. Þorpið þarf
að vera helmingi fámennara.
Ólafur Darri, vinur minn, mun
leika eitt af burðarhlutverkunum og
ég hef rætt við örfáa aðra leikara um
stærri hlutverkin. Ég verð með pruf-
ur síðsumars og klára að ráða í aðal-
hlutverkin upp úr því. Þetta eru tólf
aðalleikarar þannig að við þurfum
góðan tíma í undirbúning.“
– Og hvað svo?
„Stefnan er að klára Sumarljós um
mitt ár 2021. Handritið að myndinni
sem ég stefni á þar á eftir hefur verið
í þróun í átta ár, þannig að kannski
verður tíminn kominn að segja þá
sögu,“ svarar Elfar.
Ljósmynd/Mikael Karlsson
Við tökur Karl Óskarsson kvikmyndatökumaður og leikstjórinn Elfar Aðalsteins á Írlandi við tökur á End of Sen-
tence. „Ég hefði ekki lagt í svona vegferð nema sagan hefði haft sterka persónulega skírskotun,“ segir Elfar.
Leikstjórnin er ákveðin heimkoma
Fyrsta langa kvikmynd leikstjórans Elfars Aðalsteins, End of Sentence, fær góða dóma Verður
opnunarmynd RIFF Næsta kvikmynd Elfars mun byggjast á skáldsögu Jóns Kalmans Stefánssonar
64 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2019
SKECHERS D´LITES 2.0 DÖMU SANDALAR. STÆRÐIR 36-41.
DÖMUSKÓR
5.998
VERÐ ÁÐUR 11.995
ÚTSALA
50%
AFSLÁTTUR