Morgunblaðið - 25.07.2019, Side 65
MENNING 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2019
Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þér
Varmadælur
Hagkvæmur kostur til
upphitunar
Verð frá aðeins
kr. 145.000 m.vsk
Midea KMB-E09
Max 3,4 kW
2,65 kW við -7° úti og
20° inni hita (COP 2,85)
f. íbúð ca 40m2.
• Kyndir húsið á veturna
og kælir á sumrin
• Fyrir norðlægar slóðir
• Fjarstýring fylgir
• Hægt að fá WiFi sendi
svo hægt sé að stjórna
dælunni úr GSM síma
Uppsetningaaðilar og
umboðsmenn um allt
land
Mission Extreme
Umhverfisvænn kælimiðill
» Kvartett saxófónleik-arans Sigurðar Flosa-
sonar hélt tónleika á Kex
hosteli í vikunni. Með
Sigurði léku Kjartan
Valdemarsson á píanó,
Valdimar Olgeirsson á
kontrabassa og Einar
Scheving á trommur auk
þess sem Stefan Karl
Schmid var gestaleikari
á tenórsaxófón.
Kvartett Sigurðar Flosasonar á Kex hosteli
Morgunblaðið/Hari
Kvartett Stefan Karl Schmid, Einar Scheving og Sigurður Flosason auk þess sem glittir í Valdimar Olgeirsson.
Djass Hugguleg stemning ríkti á Kex hosteli á djasstónleikum vikunnar.
Hrifning Gestir á öllum aldri nutu tónlistarinnar.Stuð Áheyrendur nutu þess að hlýða á djassstandarda.
Það er sjaldgæft að fá í hend-urnar jafn margslungnaplötu og Bobby er. Viðfyrstu hlustanir er um
stórkostlega djúpa, ljóðræna og
blíða djassplötu að ræða sem er
jafnframt bæði gefandi og krefjandi.
Mikael Máni er ungur hljóðfæraleik-
ari en sýnir bæði
framúrskarandi
spilamennsku og
leikgleði í til-
raunum sínum á
gítar. Honum til
stuðnings eru
tveir framúrskar-
andi spilarar, Skúli með eigin heim í
bassaleik og trommuleikarinn
Magnús, sem einhvern veginn gerir
einungis það sem þarf, hvorki of né
van. Fyrir vikið eru lög plötunnar
afslöppuð og spennt, einföld og flók-
in, saklaus og dularfull. Enginn tón-
listarmannanna virðist efast um
nokkuð það sem spila þarf og þaðan
kemur því sjálfsöryggi og dýpt plöt-
unnar. Hljómur þessa verks er einn-
ig með afbrigðum mjúkur og hlýr og
hentar tónlistinni vel.
Platan Bobby stekkur nokkuð
auðveldlega frá melódískum og sak-
leysislegum stefjum í ómstríðari og
straumharðari tónlistarleg fljót, sér
í lagi þegar sígur á seinni hluta plöt-
unnar.
Við nokkrar hlustanir við mis-
munandi aðstæður er ljóst að þarna
er komin tónlist sem virkar nokkurn
veginn jafnvel í heyrnartólum og
sem ljúfur bakgrunnur úr hljóm-
tækjum. Sömu stefin skjóta upp
kollinum í gítarleik, bassaleik og
víbrafónum, byggja upp spennu og
leysa hana, draga mann til sín og
skola manni svo til baka.
En svo er það konseptið, og hvílík
u-beygja sem hugur manns og eyru
þurfa að taka til að reyna að láta það
rúmast innan tónlistarinnar. Bobby
fjallar nefnilega um Bobby Fischer
og lífsskeið hans, á Íslandi, í Ung-
verjalandi og víðar um heiminn. Í
texta umslagsins er hvert lag tengt
ákveðnu tímabili í lífi skákmeist-
arans og má til dæmis finna lagið
„Reyjavík 1972“ ásamt titillaginu
„Bobby“ sem var kveikjan að plöt-
unni og konseptinu. Stundum finnst
mér eins og það bæti engu við lagið
sjálft að vita „um hvað það fjallar“,
en á öðrum stundum gæti þessi hug-
myndafræðilega sköpun mögulega
bætt aðeins við. Góð dæmi um þetta
eru lagið „Sol“, sem er lýst sem lagi
sem fjallar um mann sem lætur
stjórnast af tilfinningum, og lokalag
plötunnar, „Down in the Well“, sem
er bæði undarlegt og inniheldur
skringilegan heim inni í heimi, enda
er það undir áhrifum frá Murakami-
bókinni The Wind-Up Bird Chron-
icles þar sem aðalsöguhetjan fer nið-
ur á botn brunns til að vera einn
með hugsunum sínum. Einnig
Bobby Fischer hvarf af yfirborði
jarðar til að vera einn og flakka um
heiminn. Ef til vill er það einmitt
það sem þessi plata fjallar um: Að
vera einn með hugsunum sínum á
botni brunnsins, í ferðalagi um
heiminn eða sitjandi á sófanum með
djúpa og gefandi tónlist í eyrunum.
Allt eru þetta leiðir til að læra eitt-
hvað um sjálfan sig og Bobby gefur
manni næði til að hugsa. Ef ég ætti
að vera virkilega djúp, eins og
brunnur, myndi ég segja hlust-
endum að hlusta á tómið milli nótn-
anna og bilið milli trommuslaganna.
Þar felast svörin við dýpstu spurn-
ingunum.
Á botni brunnsins
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Geisladiskur
Mikael Máni Trio – Bobby bbbbn
Öll tónlist er eftir Mikael Mána. Mikael
Máni Ásmundsson leikur á gítar. Skúli
Sverrisson leikur á bassa. Magnús
Trygvason Elíassen leikur á trommur og
víbrafón. Davíð Þór Davíðsson leikur á
víbrafón í lagi 9. Um upptöku, hljóð-
blöndun og hljómjöfnun sá Birgir Jón
Birgisson í Sundlauginni. Ljósmyndir á
albúmi: Spessi. Grafísk vinnsla:
Ámundi. Útgefandi: Smekkleysa. 10 lög,
42.40 mínútur.
RAGNHEIÐUR
EIRÍKSDÓTTIR
TÓNLIST
Dýpt „Bobby gefur manni
næði til að hugsa,“ segir í
rýni um nýja plötu Mikaels
Mána sem nefnist Bobby.