Morgunblaðið - 25.07.2019, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 25.07.2019, Blaðsíða 68
68 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2019 Rafstilling ehf Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14 Hröð og góð þjónusta um allt land Áratug a reynsla Startar bíllinn ekki? Við hjá Rafstillingu leysum málið AF LUNGA Brynja Hjálmsdóttir hjalmsdottir@gmail.com Útsendari Morgunblaðsinslagði af stað frá Reykjavíkkl. 11 að morgni laugar- dagsins 13. júlí. Við vorum þrjú full- orðin og ein átta ára í úttroðnum smábíl. Eftir tólf klukkustunda bíl- ferð, með viðkomu við helstu kenni- leiti Suðurlands sem þurfti að sjálf- sögðu að frumsýna ungu dömunni, rúlluðum við inn á Seyðisfjörð um kl. 23. Strax varð ljóst að bærinn var að fikra sig í hátíðargírinn. Um göt- urnar flögraði ungt fólk klætt að listamannasið, ekki heimamenn fyr- ir fimm aura. Tónlist ómaði frá veit- ingahúsinu Kaffi Láru þar sem fjöldi manns sat fyrir utan, spjallaði og vökvaði sig. Þetta var eins konar upphitun, brátt myndi aldeilis hitna í kolunum. Hvað er LungA? LungA er vikulöng listahátíð sem haldin er á Seyðisfirði í júlí ár hvert. LungA er míkrókosmós, listrænt fríríki frá raunheiminum, þar sem allir fá tækifæri til að vera skapandi á sínum eigin forsendum. Ekkert hangir á spýtunni, hér er fólk ekki til að græða, til að öðlast ódauðleika, frægð og frama. Hér gefst einfald- lega opið rými fyrir sköpun og til- raunamennsku. Það er svo mikið um að vera á LungA að það er ofurlítið erfitt að fullyrða hvað standi upp úr, hvað sé „aðalatriðið“ á hátíðinni. Líklega eru það þó listasmiðjurnar, sem eru fimm daga námskeið leidd af lista- mönnum úr ólíkum áttum. Að þessu sinni voru smiðjurnar níu og þátt- takendum stóð m.a. til boða að leggja stunda á lagasmíðar, leiklist, dans, myndlist og grafíska hönnun. LungA dagskrársprengjan hefst formlega á mánudegi. Dagskráin á LungA er líklega einhver sú þétt- asta og fjölbreyttasta af hátíðum landsins, á einni viku er boðið upp á danssýningar, uppistand, karókí, fyrirlestra, leikhús, tónleika, mynd- listarsýningar, dragsýningar, dans- og jógatíma, partí, gjörninga og lengi mætti áfram telja. Langflestir dagskrárliðir eru ókeypis, að utan- skildum lokatónleikunum, þannig að hér má sannarlega fá yfirþyrmandi magn af örvun fyrir öll möguleg skynfæri án þess að borga krónu með gati. Húsið lék á reiðiskjálfi Ég hóf mánudaginn á því að mæta í danstíma og sprikla svolítið fyrir komandi stuð. Síðdegis var svo fyrirlestur í samkomuhúsinu Herðu- breið, þar sem flestir viðburðir fara „Listrænt fríríki frá raunheiminum“ fram. Þar steig á stokk Ólafur Stef- ánsson, fyrrverandi handboltamað- ur og núverandi spekingur og sögu- maður. Þetta var afar óhefðbundinn fyrirlestur, raunar minnti þetta frekar á einleik, þar sem Ólafur fór með söguna af Freyju og Brísinga- meninu. Hann brá sér í allra kvik- inda líki og túlkaði með leikrænum tilburðum Freyju, Heimdall, Snorra Sturluson o.fl. Stórfurðulegt og stórskemmtilegt – #takkóli. Um kvöldið var uppistand í Herðubreið, þar sem tveir ungir uppistandarar tróðu upp, þau Stef- án Ingvar Vigfússon og Rebecca Scott Lord. Kvöldinu lauk svo með hinu árlega karókípartíi á Kaffi Láru, sem var algjörlega makalaust fjör að vanda, þar sem hátíðargestir sungu úr sér lifur og lungu og döns- uðu af slíkum krafti að húsið lék á reiðiskjálfi. Seinni part þriðjudags hélt hönn- uðurinn Björn Steinar Blumenstein fyrirlestur um þau verkefni sem hann hefur unnið að undanfarið. Björn leggur ríka áherslu á að nýta og endurnýta auðlindir í hönnun sinni og er baráttumaður fyrir breyttum neysluvenjum á tímum hamfarahlýnunar. Fyrirlesturinn var afskaplega fróðlegur, Björn Steinar er að vinna að spennandi verkefnum og það er sannkallaður innblástur að fylgjast með lista- manni sem gerir engar málamiðl- anir í tilraun sinni til að bæta þenn- an gallaða heim. Stórkostlegur gjörningur Á þriðjudagskvöldi var blásið til teknó-fiðlu-raves í Herðubreið. Fiðlutvíeikið Geigen, sem saman- stendur af Pétri Eggertssyni og Gígju Jónsdóttur, sýndi þar listir sínar. Þau léku á fiðlur sem tengdar voru við tölvur og hljóðgervla, þann- ig að úr varð taktfastur og dans- vænn strengjahljóðheimur. Sal- urinn, sem og flytjendurnir, voru skreyttir með neonlitum og þegar leikar tóku að æsast köstuðu flytj- endur glóprikum og sjálflýsandi fiðlubogum út í áhorfendaskarann. Gestir gátu svo mundað bogana á fiðlustrengjum sem strengdir voru milli gólfs og lofts og tekið þannig þátt í að móta hljóðheiminn. Stór- kostlegur gjörningur og fagnaðar- lætin voru gríðarleg. Á miðvikudegi fór útsendari í könnunarferð yfir heiðina til Egils- staða, ásamt fríðu föruneyti. Þar fórum við í sund, kíktum í búðir og komum við í bakaríinu í Fellabæ sem er alveg fyrsta flokks bakarí. Eftir heilnæman kvöldverð héld- um við á danssýninguna Mass Confusion í Herðubreið. Sýninguna sömdu Anderan Sigurgeirsson og Sara Margrét Ragnarsdóttir og hún var flutt af dansflokknum FWD Youth Company. Mass Confusion fjallar um sjálfsmynd ungs fólks á öld samfélagsmiðla og þessu um- fjöllunarefni voru gerð góð skil í verkinu. Dansararnir tíu hreyfðu sig stundum eins og ein heild, ein hjörð, stundum skildu einstaklingar sig frá heildinni með einhverjum hætti og þá var hjörðin fljót að fylgja eftir þannig að hreyfingarnar samlöguð- ust á ný. Verkið var afar viðburða- ríkt og fjölbreytt, gjarnan var feiki- lega mikil orka og hraði á sviðinu en inni á milli voru lágstemmdari kafl- ar. Reglulega flott sýning. Umhverfisvænni heimur Eftir hressandi fimmtudagsjóga- danstíma og góðan kvöldverð héld- um við á fyrirlestur í Herðubreið hjá Kristínu Völu Ragnarsdóttur sem hafði titilinn „Hamfarahlýnun og nauðsyn nýrrar hagfræðihugs- unar“. Fyrirlesturinn var bæði fróð- legur og uppörvandi, sem er merki- legt miðað við alvarleika viðfangsefnisins. Kristín lagði fram nokkur heilræði um hvernig er með virkum hætti hægt að stuðla að um- hverfisvænni heimi. Tillögurnar voru ekki einungis þessar venju- legu, að minnka persónulega neyslu, endurvinna o.s.frv., heldur benti Kristín á margvíslegar aðgerðir og þrýstihópa sem hægt er að leggja lið. Auðvitað getur virst yfirþyrm- andi að ætla að berjast við stórfyrir- tæki og vistmorðingja heimsins einn síns liðs en ef við sameinum krafta okkar er líklegra að við náum ár- angri. Eftir fyrirlesturinn var heldur betur skipt um gír en næst á dag- skrá var dragsýning með drag- drottningu Íslands, Gógó Starr. Sýningin var þrælskemmtileg og uppfull af dunandi popptónlist, gríni og camp skemmtun. Margir lögðu svo leið sína á barinn eftir dragsýn- inguna. Þar var augljóst að bæst hafði í hópinn. Eftir því sem líður á vikuna kemur sífellt fleira fólk í bæ- inn sem er komið til að skemmta sér. Það er ákveðin rómantík sem fylgir fyrri hluta vikunnar, þá eru færri í bænum, meiri kjarni. Svo fara partíþyrstir nærsveitungar og Reykvíkingar að streyma í bæinn og á fimmtudagskvöldið mátti sjá tjald- svæðið tútna út smám saman, fullt var út úr dyrum á öllum börum og mikið fjör í fólki. Geislaði af öryggi Föstudagurinn var að þessu sinni hápunktur hátíðarinnar. Lengi vel hefur laugardagurinn verið aðal- dagurinn, þar sem listasmiðjurnar sýna afrakstur vikunnar yfir daginn og svo eru tónleikar um kvöldið. Í fyrra var ákveðið að hafa tónleika- kvöldin tvö, bæði á föstudegi og laugardegi, og í ár var enn önnur breyting gerð sem var að hafa lista- smiðjusýningarnar síðdegis á föstu- degi. Útsendari verður að viður- kenna að þetta var ofurlítið endasleppara en að hafa sýning- arnar á laugardegi, fólk neyddist til að haska sér milli sýninga, áður en það þurfti að skófla í sig kvöldmat og flýta sér á tónleika. Fyrir vikið var líka í rauninni engin dagskrá á laugardeginum, fyrir utan tónleika um kvöldið. Síðdegis á föstudegi hóf ég leika á að sjá dönsku tónlistarkonuna Söru Flindt, sem gengur undir lista- mannsnafninu ZAAR, í Bláu kirkj- unni. Þrátt fyrir ungan aldur geisl- aði Sara af öryggi og fagmennsku og tónleikarnir voru afskaplega góð- ir. Því næst skoðaði ég afrakstur listasmiðjanna, þar sem úði og grúði af áhugaverðum sýningum og gjörn- ingum. Einnig voru listasýningar á vegum starfandi myndlistarmanna á sama tíma, þannig að það var sann- arlega ofgnótt af list til að berja augum þetta síðdegi. Umbreytt í draumaveröld Eftir kvöldmat var kominn tími til að fara á tónleika. Tónleikasvæðið er í Norðursíld, örlítið fyrir utan bæinn. Þessu fábrotna plani við sjó- inn er umbreytt í algjöra drauma- veröld, smiðir vinna myrkranna á milli við að smíða svið, skúlptúra og aðrar byggingar, auk þess sem svæðið er málað og skreytt með ljósum, fánum og diskókúlum. Að þessu sinni voru skreytingarnar á svæðinu aðeins lágstemmdari en oft áður, sennilega hefur veðrið spilað inn í þar. Engu að síður var af- skaplega hátíðlegt og pollagalla- klæddir tónleikagestir skemmtu sér undir tónum GDRN, Mammút, Bríetar, Hatara, Kælunnar miklu og Club Dub. GDRN steig fyrst á svið og á eftir henni fylgdu Mammút, sem fluttu frábæra tónleika. Júróhetjurnar í Hatara voru næstar á svið og allt ætlaði um koll að keyra meðan þær fluttu sitt andkapítalíska atriði. Það sem stóð upp úr á kvöldinu var án efa hin bandaríska Kelsey Lu, sem bauð upp á seiðandi djassskotna r’n’b tónlist. Það var magnað að fylgjast með Kelsey á sviðinu, hún var í glæsilegum búningi og röddin full af tjáningu. Hún var með frá- bæra spilara með sér, hljómborðs- leikara og trommara sem sýndu mikla meistaratakta. Fyrri hluta tónleikanna virtust gestir ekki alveg gera sér grein fyrir hvers konar snilld væri að eiga sér stað á svið- inu, enda orðið áliðið og margir bún- ir að marinera skilningarvitin í áfengum drykkjum. Ég segi ekki að þetta hafi verið perlur fyrir svín, en kannski perlur fyrir fólk sem hefði mátt sýna meiri eftirtekt. Þegar leið á virtist mannskapurinn samt átta sig aðeins, tók að hlusta og fagna þessu frábæra atriði. Það teygðist svolítið á dagskránni þannig að tón- leikarnir stóðu töluvert lengur inn í nóttina en til stóð. Kvöldið var samt sem áður afar vel heppnað og fólk virtist skemmta sér konunglega. Þokukennd stemning Á laugardeginum var nokkuð þokukennd stemning framan af, þokan hékk ekki bara yfir firðinum heldur líka yfir heilabúi gesta sem höfðu slett ærlega úr klaufunum daginn áður. Fólk virtist þó ná að rétta úr kútnum og fjöldi manns var mættur á tónleikasvæðið um kvöld- ið. Indísveitin Bagdad Brothers hóf leika og á eftir henni steig hinn danski Goss á svið og flutti hressi- legt popp. Næst kom ungi rapp- arinn Yung Nigo Drippin. Það var nokkur byrjendabragur á þeim tón- leikum en þeir voru afar fjörugir og fólk skemmti sér vel. Því næst steig önnur dönsk hljómsveit á svið, Liss, og Aron Can lokaði svo kvöldinu með glæsibrag. Þar sem það rigndi eldi og brennisteini var lokahófið, sem til stóð að væri haldið á tónleikasvæð- inu, flutt inn í Herðubreið. Þar stýrðu plötusnúðarnir DJ Domina- tricks, upsammy og Bjarki æsilegu danspartíi sem stóð fram undir morgun. Fjörðurinn alltaf jafn kynngimagnaður Að vanda var vikan frábær. Við- burðirnir voru fjölbreyttir og skemmtilegir, pitsan á Skaftfelli er alltaf jafn ljúffeng og fjörðurinn allt- af jafn kynngimagnaður. Veðrið var til allrar óhamingju ekki eins og best verður á kosið, rigning, þoka og kuldi nánast alla vikuna. Það er víst ekki hægt að halda því fram að há- tíðargestir hafi engan bilbug látið á sér finna, sér í lagi voru tjaldbúar ansi bilbugaðir. Reiknist mér rétt til er þetta sjötta skiptið sem ég mæti á hátíðina og það hefur ekki alltaf verið tóm veðursæld, oft hefur veðr- ið verið köflótt, sumir dagar góðir og aðrir verri. Þetta er alversta verður sem ég hef upplifað á hátíð- inni og ég saknaði vissulega þeirra töfrastunda sem geta skapast þegar fólk hefur færi á að hanga úti, spjalla og njóta. Þrátt fyrir vætu- tíðina geislaði hátíðin enda fær því ekkert breytt að lungun sitja sem fastast sitt hvorum megin við hjartastað. Hátíð „Hér gefst einfaldlega opið rými fyrir sköpun og tilraunamennsku,“ skrifar útsendarinn um LungaA-hátíðina þar sem boðið var upp á fjölda atriða. Ljósmynd/Juliette Rowland
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.